Þetta vita ekki allir

  Óli Palli er sammála breskum gagnrýnendum um að hljómleikarnir með Led Zeppelin í gær hafi tekist afskaplega vel.  Það teljast tíðindi.  Led Zeppelin var á sínum tíma,  1969 og næstu ár,  besta rokkhljómsveit sögunnar.  Yfirburðarmaður í hverju rúmi.  Þar af John Bonham sennilega besti trommuleikari rokksögunnar.  Allir að springa af sköpunargleði og löðuðu fram það besta hver í öðrum.

  Led Zeppelin lagði grunninn að þungarokkinu - þó að liðsmenn hljómsveitarinnar teldu sig vera að flytja framsækinn þjóðlagablús.  Led Zeppelin fyllti glæsilega upp í skarðið sem Bítlarnir skildu eftir sig 1969.  Varð það viðmið sem aðrar hljómsveitir mældu sig við. 

  Fyrstu plötur LZ eru óumdeilanlega 5 stjörnu dæmi.  Og hafa staðist tímans tönn með glæsibrag - þrátt fyrir að hafa verið innblásnar og litaðar af tíðaranda hippaáranna. 

  Að óreyndu hefði ég ekki veðjað á að Led Zeppelin stæði undir væntingum næstum fjórum áratugum eftir að hljómsveitin lagði heiminn að fótum sér. 

  Ég hef grun um að það séu ekki margir sem vita að söngvari Led Zeppelin,  Robert Plant,  er óformlegur félagi í íslenska Ásatrúarfélaginu (einungis fólk með íslenskan ríkisborgararétt er formlega skráð af Hagstofu í félagið).  Hann hefur meira að segja mætt óvænt á blót hjá Ásatrúarfélaginu.  Þar kvaddi hann sér hljóðs og sagðist,  sem ásatrúarmaður,  vera meira en lítið ánægður yfir að á Íslandi sé starfrækt formlegt og skráð ásatrúarfélag.


mbl.is Flottasti söngvari rokksögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Robert Plant er minn maður en sem fyrr...

Hlynur Jón Michelsen, 12.12.2007 kl. 01:18

2 identicon

,, Led Zeppelin fylltu glæsilega upp í skarðið sem að Bítlarnir skildu eftir sig 1969 " er svo sannarlega rétt orðað hjá þér Jens. Og ennþá hefur ekki komið fram ROKK-hljómsveit sem kemst með tærnar þar sem Led Zeppelin höfðu hælana og Robert Plant vinur þinn líka langbesti ROKK-söngvari sem fram hefur komið, enda eru nánast allir síðari rokksöngvarar undir áhrifum frá honum, rétt eins og trommararnir sem reyna að stæla John Bonham þó að þeim takist ekki að ná krafti og snilld hans.  Þetta comeback gekk greinilega vonum framar og fær allsstaðar topp dóma t.d. fá hljómleikarnir 5 stjörnur hjá Guiardian. Enn ein snilldin frá konungum rokksins og hljómleikarnir væntanlegir á DVD. Þess má líka geta að DVD diskar Led Zeppelin eru lang mest seldu tónlistar-DVD diskar sögunnar.     

Stefán (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 10:42

3 identicon

þetta hefur greinilega heppnast vel eftir að hafa séð viðbrögð aðdáenda á netsíðum og youtube.

Hér er brot af Black Dog á hljómleikunum.

 http://www.youtube.com/watch?v=a8v_Rqi4B-E

 Þetta er flott hjá þeim, en vissulega nær Plant ekki háróma ungri rödd sinni alveg, skiptir ekkert endilega máli (nema maður sé e-r fullkomnunarsinni) , röddin þroskast alla ævina held ég.

ari (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 14:06

4 Smámynd: Jens Guð

  Það er sameiginlegt vandamál söngvara sem hafa háa og bjarta söngrödd að um miðjan aldur lækkar röddin.  Jafnframt minnkar úthaldið.  Þó viðkomandi geti kreist röddina upp í gamla raddsviðið þá fer svo mikil orka í það að hann er búinn á því í kjölfarið.

  Mér skilst að Led Zeppelin hafi lækkað sum lög sín um tón eða svo til samræmis við breytt raddsvið Plöntunnar. 

Jens Guð, 12.12.2007 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.