Plötuumsögn

ylfa lind 

Flytjandi:  Ylfa Lind

Titill:  Petit Cadeau

Einkunn: **** (af fimm)

  Fyrst verð ég að nefna netta andúð mína á því sem Idol-söngvarakeppni stendur fyrir.  Ég ætla ekki að fara náið út í það.  Flest sem að lýtur að Idol er fjarri flestu sem ég sækist eftir í músík.  Fyrir nokkrum dögum ræddum við Stefán bróðir minn um fordóma.  Svo virðist sem engin manneskja sé saklaus af fordómum.  Stefán vísaði á að ég sé með mikla fordóma gagnvart léttri poppmúsík.  Mér er ljúft að gangast við því.  Ég er öfgakall í andúð á léttri iðnaðarkenndri poppmúsík.

  Að óreyndu hefði ég ekki trúað upp á mig að kaupa plötu með Idol-söngvara.  Það gerði ég þó á dögunum þegar ég fjárfesti í Petit Cadeau með Ylfu Lind.

  Ástæðan fyrir því að ég keypti þessa plötu er tvíþætt:  Annars vegar hef ég heyrt á rás 2 lög af þessari plötu og kunnað vel að meta.  Hinsvegar að Ylfa Lind hefur tekið þátt í umræðu á blogginu mínu og haft þar margt áhugavert fram að færa.

  Þegar ég var kominn með plötuna í hendur uppgötvaði ég að ég á öll lögin á plötunni í frumútgáfum höfunda að undanskildu Vaki, vaki vinur minn eftir Loft Guðmundsson.  

  Ylfa Lind náði á sínum tíma inn í einhver af efstu sætum Idols.  Ég fylgdist ekki náið með framvindu mála.  En giska á að hún hafi verið í u.þ.b. 4.  sæti.  En ég man ekki og veit ekki hverjir urðu sigurvegarar í Idol það árið.  Enda skiptir það ekki máli.

  Ylfa Lind er góð söngkona og fínn túlkandi.  Hún er með hörkufínt band með sér:  Bigga Baldurs á trommur.  Hann er bara gæðastimpill;  Eðvarð Lárusson á gítar.  Hann er annar gæðastimpill; Og Jakob Smára Magnússon á bassa.  Enn einn gæðastimpillinn. 

  Það getur fátt farið úrskeiðis þegar þessir snillingar eru á ferð.  Mér heyrist sem upptaka sé meira og minna "live" í hljóðveri.

  Upphafslag plötunnar er As Tears Go By eftir Rolling Stones.  Ylfa Lind "raular" það virkilega vel og andi Cowboy Junkies svífur yfir vötnum. 

  Annað lag plötunnar er Bítlalagið Don´t Let Me Down.  Það er eitt af mínum uppáhalds Bítlalögum.  Lágstemmdur en samt áleitinn blús sem John Lennon öskraði listavel.  Þarna ræðst Ylfa Lind á háan garð.  Ég sakna þess að heyra ekki bregða fyrir öskursöngstílnum sem er svo heillandi í flutningi Bítlanna.  Samt afgreiðir Ylfa Lind þetta vel.  Fyrir minn smekk hefði hún mátt gefa betur í,  þenja sig ennþá betur en hún gerir undir lok lagsins. 

  Þriðja lagið er Glorybox eftir Portishead.  Hljómsveitin gefur vel í og líka Ylfa Lind í söngnum.  Eitt besta lag plötunnar.  Ég hefði kosið að heyra meira af svona hávaðalátum á plötunni.  Það jaðrar jafnvel við öskursöng hjá Ylfu Lind.  Endirinn á laginu er flott keyrsla.

  Fjórða lagið er Where The Wild Roses Grow eftir Nick Cave.  Andrea Gylfadóttir hleypur undir bagga.  Bara glæsileg afgreiðsla. 

  Fimmta lagið er Pain´t It Black eftir Rolling Stones.  Lágstemmd útfærsla sem hæfir heildarsvip plötunnar.

  Sjötta lagið er Touch Me eftir The Doors.  Stemmning The Doors fær að halda sér.

  Sjöunda lagið er White Room eftir The Cream.  Þarna eru smá læti, blús og rífandi gítarsóló.  En samt frekar mild afgreiðsla nema í niðurlagi.   Ég held að mig misminni ekki að á unglingsárum hafi ég sungið White Room með hljómsveitinni Frostmarki.  Að minnsta kosti vorum við Viðar Júlí Ingólfsson trommusnillingur,  með einhver Cream-lög á "prógrammi" hljómsveitarinnar.   

  Áttunda lagið er Three Little Birds eftir Bob Marley.   Yndislega fallegt lag flutt af einlægni og fegurð lagsins fær að njóta sín án þess að gengið sé inn í reggí-taktinn af fullum þunga.  Fyrir minn smekk er þetta flottasta lag plötunnar.  Þarna fer Ylfa Lind í soul-gír og lifir sig betur inn í lagið en í öðrum lögum.  Nær algjörlega að gera þetta að sínu lagi. Ég stend mig að því að setja þetta lag á "endurspilun".  Aldeilis mögnuð útgáfa.  Ég á þetta lag í flutningi margra.  Þetta er ein besta útfærslan.  Jakob Smári fer á kostum í humátt að "dub" bassaleik.  Snilld.

   Níunda lagið er Hard Rain Is Gonna Fall eftir Bob Dylan.  Það er ekki allra að taka þetta magnaða Bob Dylan lag.  Nýverið klúðraði Brian Ferry því með því að keyra það áfram í of hröðum takti.  Ylfa Lind nær hinsvegar réttu "tempói" með því að fanga stemmninguna,  galdurinn við að byggja upp stígandann.  Enn og aftur fer Jakob Smári á kostum.  Hann hefur einstaklega góða "tímasetningu" (timing) á því að hlaða undir framvindu lagsins.

  Lokalagið er Vaki,  vaki vinur minn eftir Loft Guðmundsson.  Ég þekki þetta lag ekki.  Það er fallegt og framkallar söknuð gagnvart því að fleiri lög á plötunni séu ekki sungin á íslensku.  Sömuleiðis söknuð gagnvart því að platan inniheldur ekkert frumsamið lag.  Eftir stendur að öll platan er góð.  Vel sungin og vel flutt lög í alla staði.

  Ég gef þessari plötu mín bestu meðmæli.  Þetta er klárlega besta plata sem Idol-söngvari hefur sent frá sér.  Reyndar hvet ég ykkur til að sniðganga (næstum) allar aðrar Idol-plötur.  En þessi plata er virkilega áheyrileg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ylfa Lind var einfaldlega í sérflokki. Sú sem virkilega skildi eitthvað eftir sig. Og svo ég taki nú hanskann upp fyrir Idol þá er hún minnisstæð miklu fleira fólki en ella, einmitt vegna þátttöku í Idol. Viðurkenni að flest sem þar hefur verið á ferð er lítt minnisstætt, en Hildur Vala er annað nafn sem vert er að nefna, þótt hún sé á öðrum slóðum í tónlist en Ylfa Lind, hún rokkar!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.2.2008 kl. 01:57

2 Smámynd: Haukur Viðar

Það er nú pínu svipur með henni og Svavari Knúti, trúbador og Hraun-liða

Haukur Viðar, 20.2.2008 kl. 02:14

3 identicon

Ekki minn tebolli. Enn einn idol karaóke söngvara að gefa út karaóke ábreiðu plötu. Ég hef engan áhuga á þessari karaóke-væðingu sem fer yfir allt með þátttakendum karaókeþáttanna (Idol/X-faktor/Bandið hans Bubba) , geta svo sem verið góðir söngvarar sem koma úr þessu, en ekkert frumlegt.

Snilldarlagaval á ábreiðum, verð að hrósa henni f. það. Verst að ég hef engan áhuga að kaupa ábreiðuskífur.

Ari (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 03:10

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ég verð að nálgast þessa plötu, úr því þú ert svona hrifinn. Þessi tónlist gæti líka passað vel inn á Sögu.

Markús frá Djúpalæk, 20.2.2008 kl. 09:58

5 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Ég þakka kærlega fyrir mig Jens minn, þetta var fallegt af þér. Ég ber mikla virðingu fyrir þér sem tónlistarspegúlant og er alveg í skýjonum yfir þessari umsögn frá þér

Takk fyrir mig 

Ylfa Lind Gylfadóttir, 20.2.2008 kl. 14:11

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ylfa Lind ætlar að vera í viðtali á Útvarpi SÖgu næstkomandi mánudagsmorgun kl. 7:30.

Markús frá Djúpalæk, 20.2.2008 kl. 14:43

7 identicon

algjörlega sammála..

ég elska þennan disk og hún syngur náttlega bara vel :)

Tinna Berg (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 17:20

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hef svosem engu við að bæta, hrósaði stúlkunni fyrir löngu. En nú eiga þeir sem þetta lesa bara skilyrðislaust að verða sér úti um plötuna, hlýtur að leynast í einvherjum verslunum, en ekki þar þá bara hafa samband við söngkonuna sjálfa, sem sjálfsagt á eintök ennþá hjá sér!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.