Fréttablaðið með rosa "skúbb" á morgun

  Fréttablaðið hefur verið á blússandi siglingu að undanförnu.  Efnistök sífellt hnitmiðaðri,  betur skrifuð, áhugaverðari og skemmtilegri.  Rannsóknarblaðamennskan hjá Fréttablaðinu er til  fyrirmyndar.  Þar eru svör fundin og birt við spurningunum sem heitast brenna á landsmönnum hverju sinni.

  Undanfarnar vikur hefur ein spurning verið á allra vörum í heitum pottum sundlauga,  saumaklúbbum og hverfispöbbum.  Hún er:  "Hvað borðar Jens Guð í morgunmat?"  Á morgun upplýsir Fréttablaðið - fyrst íslenskra fjölmiðla - allt um málið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svar: Jensinn fær sér aldrei morgunmat, því hann vaknar ekki fyrr en eftir hádegi og þá fær hann sér eina bjórkippu til að halda skorpulifrinni í skefjum.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:12

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sá Kastljósið og þú varst næstum ekkert kjánalegur. Helgi var hálf kjánalegur þegar þú útlistaðir notagildi sóttherinsivökvans.....;-)

Vilborg Traustadóttir, 20.2.2008 kl. 20:13

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

.....sem er kannski morgunmatur????

Vilborg Traustadóttir, 20.2.2008 kl. 20:14

4 Smámynd: Erna

Flottur í Kastljósinu Jens. Mæli með ajax til hreingerninga það bæði lyktar betur og er ódýrara en þetta sem þú notar. Kveðja Erna.

Erna, 20.2.2008 kl. 20:21

5 identicon

Þú rúlar eftir þetta Kastljós. Þetta með skorpulifrina var frekar sannfærandi, sérstaklega þegar fór að líða á og talið barst að bjórnum

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:30

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Bjór er sumsé ekki áfengi, ojæja, hann er böl samt.

Kúturinn annars bara sætur & fínn í sjónvarpinu.

Nú verður maður að sníkja fríblaðið fyrramáls.

Steingrímur Helgason, 20.2.2008 kl. 20:34

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

 

Þú varst barasta flottur elsku Jens,til lukku með þetta.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.2.2008 kl. 20:47

8 identicon

Silfurskotturnar allar komnar með skorpulifur út af sótthreinsileginum notadrjúga.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 20:48

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Missti af þér var í sundi með fjölskyldunni, en ætla að hlusta á eftir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2008 kl. 21:28

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Búin að taka upp og klippa. Þetta eru 26,7 MB, svolítið stórt í flutningum - en það má reyna. Ziping minnkaði mjög lítið, breytir engu. Nú vantar mig netfangið þitt. Ef þú vilt ekki setja það hér sendirðu mér bara póst. Mitt er í skránni.

Svo seturðu þetta auðvitað á bloggið þitt - nema hvað! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 21:44

11 identicon

Lára, netfangið hans Jens er j.gud@simnet.is

Það er ekkert leyndó. Ekki lengur alla vega.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 21:55

12 identicon

  þú varst flottur í Kastljósinu í kvöld  

kv. Anna Þorkels

Anna Þorkels (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 21:57

13 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk, Steini... ekki leyndó lengur...  Ég sendi honum þetta þá bara... ef tölvurnar leyfa svona stórt viðhengi. Hef aldrei sent svona stórt áður en einhvern tíma er allt fyrst.  Læt vita hér ef það tekst ekki.

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 21:58

14 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Þú varst góður í Kastljósinu í kvöld. Sá sem er með skorpulifur drekkur bara minna, ekki satt?

Gunnar Skúli Ármannsson, 20.2.2008 kl. 22:07

15 identicon

Um að gera að senda kallinum þetta, Lára. Þú sást nú hvað hann er með öflugar græjur, innan um allar silfurskotturnar og sótthreinsilöginn.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:08

16 Smámynd: Haukur Kristinsson

hélt þú værir yngri af myndini að dæma, en virðist voða gamall maður eftir kastljósþáttin. en bloggaðu samt áfram, þú ert frábær

Haukur Kristinsson, 20.2.2008 kl. 22:17

17 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sendingin fór í gegn hjá mér, Steini... svo er bara að frétta hjá Jens hvort hún fari í gegn hjá honum. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 22:19

18 identicon

Hey flottur í Kastljósinu!

Ragga (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:25

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Á enn eftir að sjá Kastljós ... en þú lítur út fyrir að vera hafragrautsmaður og fá þér gúlsopa af lýsi!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 20.2.2008 kl. 22:29

20 identicon

Jensinn fer nú jafnlétt með að taka á móti þessu 27 marka pródúkti þínu eins og lömbunum í Hjaltadalnum, því hann er með nettar hendur, eins og skagfirsku rollurnar minnast enn, fröken Lára. Hann kemur væntanlega af tónleikunum bráðum og segir okkur fréttir af Nojurunum Bubba í boxi og Geir Haarde í boxer.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:40

21 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þetta er stærra í sendingu, það eru viðhengi alltaf. Þótt viðhengið hafi verið 27 á disknum er það 37,5 þegar það er sent. Ég hef ekki fengið í hausinn tilkynningu um að pósturinn hafi ekki komist til skila svo við vonum bara það besta.

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 22:43

22 identicon

Kallinn verður kannski að hætta að blogga út af þessu atriði, fröken Lára.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:46

23 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ætli kallinn hætti nú ekki seint að blogga...    En hvaða atriði ertu að tala um annars?

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 22:54

24 identicon

Ef þessi sending þín stíflar burðarliðinn hjá Jensanum, meinti ég, fröken Lára. Ef innpúttið stíflast verður ekki um neitt átpútt að ræða hjá kallinum, jafnvel fram á mitt sumar.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 23:08

25 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Skemmtilegt kastljós.

Mikið vildi ég að þú tækir inn ginsengið í morgunmat sem ég gaf þér.

Besta kveðja 

Sigurður Þórðarson, 20.2.2008 kl. 23:13

26 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Engin hætta á stíflu - annað hvort fær hann þetta eða ekki. Gæti tekið tíma að hlaðast inn, fer eftir hraða tengingarinnar hjá honum. Og eftir Kastljósið í kvöld getur hann ekki hætt að blogga - þótt hann gjarnan vildi sem hann vill nú örugglega ekki!

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 23:13

27 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég ætla bara að taka það fram að ef að Jensinn bloggar ekki frameftir nóttu, þá er það Láru Hönnu að kenna & hennar velmeinandi magnpóstsendíngum.

Lára Hanna, hann hefði líkast til alveg sætt sig við 100 kb. .jpeg mynd af þér brosandi í besta formi, ef ég þekki rétt til.

Steingrímur Helgason, 20.2.2008 kl. 23:24

28 identicon

Ég sé að Jens er byrjaður aftur að blogga, þannig að átpúttið er greinilega ennþá í lagi hjá honum.

Steini Briem (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 23:24

29 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ertu að senda honum þetta á hljóðformi eða er þetta myndræn upptaka af viðtalinu, ágæta Lára Hanna?

Væri gaman að vita það og þá sömuleiðis hvort Jens getur þá spilað þetta ef það nær þá í gegn. Það er nú ekki endilega víst.

En gætir þá bara væntanlega bara brennt þetta á kringlu handa honum, ef Helgi gerir það þá ekki bara fyrir hann!?

Magnús Geir Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 23:29

30 Smámynd: Steinn Hafliðason

Horfði á þig í Kastljósinu. Góður þar eins og á blogginu

Steinn Hafliðason, 20.2.2008 kl. 23:30

31 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Bíðið bara rólegir, strákar mínir... Jens er að græja þetta trúi ég.

Lára Hanna Einarsdóttir, 20.2.2008 kl. 23:41

32 Smámynd: Haukur Kristinsson

hvar er kallinn? ekki hægt að hann svari ekki. ég vill svar frá kallinum NÚNA!!!!!!!, sakna hans

Haukur Kristinsson, 20.2.2008 kl. 23:58

33 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Við Steingrímur erum allavega rólegir hygg ég, fullvissa þig um það kæra L.H. Hann var svo bara að grínast þarna áðan, er reyndar fjölfróður refur um tölvur grunar mig og fær meira að segja borgað fyrir að vera það!

Sjálfur veit ég svo sitt lítið af hverju, en geri annnars ekki mikið úr því!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 23:59

34 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Steingrímur...  iss, 100 kb .jpeg er bara passamynd! Hann getur séð slíka hér á blogginu. Allt annað mál ef um væri að ræða 100 MB plakat...

Lára Hanna Einarsdóttir, 21.2.2008 kl. 00:02

35 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það eru Silfurskottur þar sem ég vinn og ég fæ mig aldrei til að sálga þeim

Flottur annars í Kastljósinu...ég hafði góða skemmtun af 

Rúna Guðfinnsdóttir, 21.2.2008 kl. 00:14

36 Smámynd: Jens Guð

  Steini,  ég ætla ekki að skemma "skúbbið" fyrir Fréttablaðinu.  En bjórinn drekk ég ekki fyrr en eftir kvöldmat.

  Ippa,  ljómandi kemstu skemmtilega að orði með því að segja að ég hafi NÆSTUM ekki verið kjánalegur.  Hehehe!  Vel orðað!

  Erna,  ég mæli líka með Ajax.  Hitt dæmið var fljótfærnis afsökun fyrir því að vera  óvart með flöskuna í augsýn.  Ég hálf hrökk við þegar Helgi dró hana fram í sviðsljósið og reyndi að gera gott úr því.

  Erlingur,  það er góð hugmynd að virkja Magnús í silfur(Egils)skottuvinafélag.  Einhversstaðar kom fram að Magnús sé skráður félagi í 120 vinafélögum músa,  geimvera,  hvala og svo framvegis.

  Anna, ég er nokkuð sáttur við það hvernig ég snéri mig út úr þessari óvæntu vinkilbeygju Helga frá umræðu um bloggið.

  Steingrímur,  bjór er blessunarlega yfirleitt með smá alkóhóli en ég kannast ekki við bölið.

  Linda,  takk fyrir það.  Ef þú vilt fræðast meira um Daða og þátt hans í endurreistum Dátum þá er netfangið classic@classic.is.

  Steini,  silfurskotturnar sækja í raka.  Þess vegna gusa ég stundum yfir þeirra hýbýli smá viský-slurki.

  Ásthildur,  þetta var svo sem ekkert merkilegt.  En samt er ég sáttur við útkomuna.  Eftir útsendingu þáttarins fékk ég um 20 jákvæð sms og hátt í 10 jákvæðar upphringingar.  Ég verð ekkert var við neikvæðni.  Fólk er eitthvað svo jákvætt í kvöld.

  Lára,  takk fyrir sendinguna.  Núna þarf ég að læra á það hvernig ég set þetta á netið.  Ég veit ekkert um tölvur.

  Anna Þorkells,  takk fyrir það.  Gaman að þú skulir hafa fylgst með gamla vinnufélaganum verða stétt auglýsingateiknara ekki verulega til skammar.

  Gunnar Skúli,  sem læknir veistu allt um skorpulifrardæmið.  Það er búið að spara mér mikinn pening.

  Haukur,  ég er kominn vel á sextugsaldur og stefni hratt og örugglega á að verða löglegt gamalmenni.  Öfugt við það sem ég hélt á yngri árum þá virðist bulláráttan ekki ætla að rjátlast af mér.  Ég hélt alltaf að þegar virðuleiki gamals manns færðist yfir þá yrði ég einhvern veginn yfirvegaðri í hugsun og hegðun.  En það er eins og ætli að verða bið á því.

  Ragga,  takk fyrir það.

  Jóhanna,  ég verð að valda þér vonbrigðum með að hafgraut hef ég ekki borðað í áratugi og lýsi hef ég ekki drukkið frá því að ég var í barnaskóla.

  Hlerinn,  ég veit ekki hver gaf leyfið.  Kannski var þetta innslag Kastljóss í leyfisleysi.

  Steini,  það er rétt hjá þér að ég fór á hljómleikana með Bubba og Geir Haarde og mun greina frá því.

  Siggi,  gott að þú minnir mig á að taka inn Rautt Eðal Ginseng.  Ég er búinn að eiga sama 100 hylkja pakkann í 9 ár.  Hann er næstum hálfnaður.  Þegar ég hef rænu á að fá mér Rautt Eðal Ginseng þá finn ég fljótt mun á því hvað maður á auðveldara með að vakna á morgnana ásamt því að vera sprækari yfir daginn. 

  Steingrímur og Maggi,  sendingin frá Láru skilaði sér og ég þakka kærlega fyrir hana.

   Steinn,  takk fyrir góð orð.

Jens Guð, 21.2.2008 kl. 00:14

37 Smámynd: Jens Guð

  Haukur,  nú er ég nýlega kominn af hljómleikum Bubba og fleiri í Austurbæ og búinn að fara yfir innlegg ykkar hér.

  Maggi,  því miður er það staðreynd að ég kann ekkert á tölvur.  Er bara alveg úti að aka þegar dæmið snýr að þeim.  Kann lítið meira á tölvur en senda tölvupóst.

  Rúna,  takk fyrir ummæli þín.  Silfurskottur eru bara flottar,  ljúfar og þægilegar í umgengni - þó að þær eigi erfitt með að gegna nafni.

Jens Guð, 21.2.2008 kl. 00:20

38 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Komdu sæll Jens. Ég er ein af þeim sem hef eiginlega aldrei lesið þig, veit bara ekki afhverju.  Mig langar bara að segja að mér fannst þú mjög fínn í Kastljósinu í kvöld.  Flottur kall, ekki spurning.

Ásdís Sigurðardóttir, 21.2.2008 kl. 00:23

39 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

verst ég les sjaldnast blöðin. annars finnst mér eitt merkilegt. þegar maður fær hugmynd er eins og hún fari í loftið og hver sem er getur gripið hana og gert að sinni. ég hef haft hugmynd að auglýsingu fyrir fréttablaðið, með slogan, í nokkur ár en enn hefur enginn gripið hana. samt finnst mér eins og hún liggi í augum uppi.

Brjánn Guðjónsson, 21.2.2008 kl. 00:33

40 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  þú ert að missa af mörgu með því að lesa ekki bloggið mitt reglulega.  Nei,  ég segi nú bara svona í gríni.  Ég verð alltaf af og til var við þig á blogginu mínu.  En takk fyrir jákvæða umsögn.

  Brjánn,  ég vann til fjöldra ára á auglýsingastofum.  Það er kúnst við gott slagorð að það hljómi eins og eitthvað sem skilur eftir sig spurninguna:  "Af hverju var ég ekki búinn að fatta þetta?"

Jens Guð, 21.2.2008 kl. 00:40

41 Smámynd: Halla Rut

Var að horfa á þetta aftur og verð að segja að þú ert gull.

Halla Rut , 21.2.2008 kl. 01:33

42 Smámynd: Hugrún Jónsdóttir

Frábær, alveg frábær. Bíð eftir næsta námskeiði hér á Akureyri (missti af síðasta, var á þarsíðasta - ef þú manst eftir arabísku skrautskriftinni).

Hugrún Jónsdóttir, 21.2.2008 kl. 01:42

43 identicon

hafragrautur með dass af salti og blóðmör etin með, ég ætla að giska á það.

Ari (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 02:40

44 Smámynd: Jens Guð

  Halla Rut,  mikið er gaman að þessari umsögn þinni.

  Hugrún,  bestu þakkir fyrir að kynna mér arabísku skrautskriftina.  Ég hef einmitt verið að skoða hana mér til skemmtunar og fróðleiks.  Ásamt því að reyna að setja mig inn í arabísk viðhorf.  Ég er að reyna að vera anti-rasisti og ég man alveg eftir áhuga þínum á bahámisma (ég er sennilega að stafsetja þetta vitlaust).  Ef þú hefur áhuga á framhaldsnámskeiði þá vísa ég því til Kvenfélgsins Baldursbráar.   

Jens Guð, 21.2.2008 kl. 02:42

45 identicon

Þetta viðtal var náttúrulega eins og besti leikþáttur. Þáttastjórnandinn vissi reyndar ekkert af því að hann væri í hlutverki þáttastjórnandans í leikþættinum. Hélt að hann væri þáttastjórnandi í sjónvarpsþætti.

Aðalhlutverkið var í höndum Jens Guðmundssonar sem að þessu sinni lék sjálfan sig, bara nokkuð vel, en brá sér þó í nokkur smærri hlutverk og gerði það vel. T.d. gerði hann skordýrafræðingnum góð skil. Einnig lék hann hreingerningamanninn með miklum bravúr. Verk þetta sem ekki er langt á án efa eftir að lifa lengi með landsmönnum og kæmi mér ekki á óvart að það yrði leikið á öllum helstu árshátíðum og þorrablótum framtíðar. Það eina sem gæti staðið í vegi fyrir því er sú staðreynd að aðalhlutverkið Jens Guð er afar vandmeðfarið og krefst óhemju leikhæfileika; hæfileika sem ekki liggja á hverju strái. 

Kveðja, Guðmundur

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 10:23

46 Smámynd: Hugrún Jónsdóttir

Já ég er Bahá'í trúar. Gaman að sjá að þú ert að kynna þér arabísku skrautskriftina, hún er undurfalleg.

Ég væri meira en til í framhaldsnámskeið hjá þér, hefði annars farið bara aftur á byrjendanámskeið til að viðhalda tækninni.

Hugrún Jónsdóttir, 21.2.2008 kl. 12:33

47 Smámynd: Haukur Nikulásson

Skemmtilegt viðtal við þig Jens. Þú gefur þessu öllu lit, takk!

Haukur Nikulásson, 21.2.2008 kl. 13:29

48 identicon

þú varst skemmtilegur Jens í Kastljósinu...kom ekki á óvart

Bubbi J. (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 17:18

49 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, laukrétt hjá hauki, áður var það Harpa sem gaf lífinu lit, en nú er það Jens sem gerir það og ekki bara gráan!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.2.2008 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband