13.8.2008 | 23:13
Algjör snilld! Ótrúlegt en satt!
Larry Walters hét bandarískur vörubílstjóri, fæddur 1949 og dáinn 1993. 11 árum áður en hann svipti sig lífi setti hann saman heimalagað loftfar úr hægindastól og 45 helium-fylltum veðurathugunarblöðrum. Í þessum stól skaust Larry 16.000 fet (næstum 5 kílómetra) upp í loftið og setti úr skorðum flugumferð yfir Long Beach flugvelli.
Larry dreymdi um að komast í bandaríska flugherinn. Vegna sjóndepru kappans var umsókn hans hafnað af flughernum. Það var þá sem Larry hófst handa við að hanna flugfarið.
Hugmyndin var nokkuð ólík raunveruleikanum. Hann ætlaði einungis að svífa 30 metra ofar jörðu í nokkra daga. Þegar hann væri búinn að sveima um nægju sína ætlaði hann að skjóta gat á blöðrurnar og ná mjúkri lendingu.
Larry nestaði sig með áfengi og nokkrum vel smurðum samlokum. Einnig hafði hann meðferðis talstöð, myndavél og byssu til að skjóta á blöðrurnar.
Larry að óvörum sveif stóllinn ekki hægt og rólega upp í loftið heldur skaust eins og korktappi næstum 5 km upp til himins og inn á flugstjórnarsvæði Long Beach flugvallar. Larry tapaði gleraugunum af sér um leið og stóllinn tók flugið. Fyrir bragðið gat hann ekki notið útsýnisins.
Hann skaust upp að hlið TWA flugvélar. Gapandi af undrun tilkynnti flugmaðurinn flugturninum að við hlið sér í 16.000 feta hæð svifi maður í hægindastól.
Flugturninn náði sambandi við talstöð Larrys. Larry stamaði og hikstaði í geðshræringu en bað þó um að fjölskylda sín væri látinn vita að hann væri heill á húfi. Því næst tók Larry að skjóta á blöðrurnar til að lækka flugið. En það var ískalt í þessari hæð og Larry missti byssuna fljótlega úr krókloppnum höndum.
Eftir 45 mínútur í loftinu brotlenti Larry á rafmagnslínu og rotaðist í 20 mínútur. Hann var handtekinn af fjúkandi reiðum flugvallarlögreglumönnum sem spurðu hvern fjandann hann væri að pæla. "Maður getur ekki bara setið aðgerðarlaus," stundi Larry. Síðar sagði hann að þetta hafi verið eitthvað sem hann varð að gera eftir að hafa hugsað um þetta frá 13 ára aldri.
Larry var kærður og dæmdur fyrir að brjóta allskonar lög er varða flugrýmisreglur. Meðal annars að fljúga án flugskírteinis.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:38 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Hver er uppáhalds Bítlaplatan þín?
Please Please Me 10.1%
With The Beatles 3.7%
A Hard Days Night 3.5%
Beatles For Sale 4.0%
Help! 6.2%
Rubber Soul 9.2%
Revolver 14.9%
Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band 13.8%
Magical Mystery Tour 2.6%
Hvíta albúmið 10.1%
Let It Be 2.4%
Abbey Road 17.4%
Yellow Submarine 2.0%
455 hafa svarað
Nýjustu færslur
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski
- Sérkennilegur vinsældalisti
- Sparnaðarráð
- Niðurlægður
- Safaríkt 1. apríl gabb
- Svangur frændi
- 4 lög með Bítlunum sem þú hefur aldrei heyrt
- Stórhættulegar Færeyjar
- Aldeilis furðulegt nudd
- Frábær kvikmynd
- Kallinn sem reddar
- Af hverju hagar fólk sér svona?
- Passar hún?
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit heims
- Framhald á frásögn af undarlegum hundi
Nýjustu athugasemdir
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Sigurður I B, segðu! jensgud 16.4.2025
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Stefán, hún var einbúi og dugleg að hringja í útvarpsþætti. Á... jensgud 16.4.2025
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Hún hefi nú alveg getað bætt fasteignagjöldunum við!!! sigurdurig 16.4.2025
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Kerla hefur legið í símanum á milli þess sem hún hlúði að kindu... Stefán 16.4.2025
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Jóhann, Anna frænka var snillingur! jensgud 16.4.2025
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski: Þetta kallar maður að bjarga sér og að vera snöggur að hugsa og... johanneliasson 16.4.2025
- Sérkennilegur vinsældalisti: Jóhann (#9), kærar þakkir fyrir þessa greiningu og umsögn. jensgud 12.4.2025
- Sérkennilegur vinsældalisti: Ég er alltaf jafn hrifinn af því hvað þú svarar öllum athugasem... johanneliasson 11.4.2025
- Sérkennilegur vinsældalisti: Jósef, vinsældalistar og listar yfir bestu plötur eru ágætir s... jensgud 10.4.2025
- Sérkennilegur vinsældalisti: Það er töluverður munur á vinsælarlistum og listum yfir bestu p... jósef Ásmundsson 10.4.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 4
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 1158
- Frá upphafi: 4136298
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 969
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
sigurjonth
-
asthildurcesil
-
siggith
-
hallarut
-
reykur
-
rannveigh
-
skulablogg
-
fiski
-
gudruntora
-
asgerdurjona
-
zeriaph
-
jevbmaack
-
lehamzdr
-
ffreykjavik
-
fuf
-
stormsker
-
xfakureyri
-
jonmagnusson
-
palmig
-
jonaa
-
jakobsmagg
-
ktomm
-
th
-
jenfo
-
gurrihar
-
kiddirokk
-
hlynurh
-
skessa
-
prakkarinn
-
maggadora
-
skinkuorgel
-
agustolafur
-
einherji
-
heidathord
-
atlifannar
-
konukind
-
gudnim
-
730
-
blekpenni
-
heida
-
annabjo
-
vglilja
-
sleggjan007
-
markusth
-
bergruniris
-
aevark
-
rannthor
-
katrinsnaeholm
-
birgitta
-
jullibrjans
-
fararstjorinn
-
agny
-
ippa
-
hugrunj
-
aring
-
ikjarval
-
gujo
-
bjorgvinbjorgvinsson
-
drhook
-
runarsv
-
sjos
-
doriborg
-
haukurn
-
gammon
-
millarnir
-
robbitomm
-
korntop
-
killjoker
-
vantru
-
evathor
-
partners
-
heiddal
-
meistarinn
-
skrifa
-
heidistrand
-
iaprag
-
semaspeaks
-
svei
-
jonthorolafsson
-
sverrir
-
bonham
-
bjarnihardar
-
sigurgeirorri
-
ladyelin
-
birnamjoll
-
veraknuts
-
fia
-
plotubudin
-
ringarinn
-
nonninn
-
larahanna
-
juliusvalsson
-
skari60
-
ingvarvalgeirs
-
lubbiklettaskald
-
kolgrimur
-
olinathorv
-
hreinsi
-
baddinn
-
hrolfur
-
jenni-1001
-
handsprengja
-
ahi
-
perlaheim
-
gudrunmagnea
-
ommi
-
hemba
-
grumpa
-
bergthora
-
grafarholt
-
mummigud
-
athena
-
sigaxel
-
bjolli
-
gummiarnar
-
kerchner
-
rustikus
-
hordurj
-
thegirl
-
birna-dis
-
siggivalur
-
krizziuz
-
fridaeyland
-
evabenz
-
quackmore
-
andres08
-
bleikaeldingin
-
bardurorn
-
snorris
-
ver-mordingjar
-
nexa
-
thorasig
-
lindalinnet
-
gudni-is
-
mordingjautvarpid
-
arh
-
sinfonian
-
raggipalli
-
mongoqueen
-
lovelikeblood
-
holi
-
jakobk
-
rannveigbj
-
stebbifr
-
credo
-
ylfalind
-
herdis
-
steinnhaf
-
halo
-
gullilitli
-
810
-
motta
-
leifurl
-
janus
-
ljonid
-
kerla
-
solir
-
nilli
-
guru
-
steinnbach
-
skagstrendingur
-
hemmi
-
gunnar
-
hannamar
-
mosi
-
geislinn
-
hlekkur
-
luther
-
zumann
-
jara
-
hector
-
malacai
-
polly82
-
hughrif
-
einarlee
-
loopman
-
sign
-
destiny
-
gilsneggerz
-
thuridurbjorg
-
liljabolla
-
saethorhelgi
-
svatli
-
siggiholmar
-
folkerfifl
-
sigurjonsigurdsson
-
eythora
-
kiddijoi
-
kjartanis
-
rosagreta
-
gurkan
-
killerjoe
-
gthg
-
gebbo
-
laugatun
-
tru
-
presley
-
siggileelewis
-
helgamagg
-
doddilitli
-
kjarrip
-
steinibriem
-
huldumenn
-
jobbisig
-
id
-
mp3
-
blomid
-
ketilas08
-
lilly
-
hjolaferd
-
lostintime
-
skordalsbrynja
-
birtabeib
-
karitryggva
-
marzibil
-
zunzilla
-
fjola
-
storibjor
-
rannug
-
glamor
-
venus
-
eurovision
-
skjolid
-
einarsigvalda
-
minna
-
austurlandaegill
-
coke
-
eyja-vala
-
harpao
-
ljosmyndarinn
-
doriegils
-
lordbastard
-
neddi
-
holmarinn
-
vga
-
bus
-
dolli-dropi
-
vefritid
-
eirikurgudmundsson
-
hallibjarna
-
svetlana
-
blues
-
huxa
-
judas
-
asdisran
-
omarpet
-
skattborgari
-
himmalingur
-
neytendatalsmadur
-
salkaforlag
-
kje
-
laufabraud
-
vestskafttenor
-
gunnarggg
-
esb
-
ingvarari
-
gunnarpalsson
-
hreinn23
-
saltogpipar
-
hergeirsson
-
jea
-
arniarna
-
psychosurfer
-
metal
-
hreinsamviska
-
godinn
-
krissa1
-
robertb
-
perlaoghvolparnir
-
brandurj
-
madddy
-
tibet
-
minkurinn
-
hallidori
-
liso
-
graceperla
-
mrsblues
-
gummiogragga
-
sisvet
-
vild
-
holar
-
presleifur
-
helgadora
-
xjonsig
-
helgananna
-
meyjan
-
tungirtankar
-
visindavaka
-
borgarfjardarskotta
-
mal214
-
vilberg
-
brandarar
-
einarhardarson
-
steffy
-
adhdblogg
-
litliper
-
audunnh
-
gotusmidjan
-
saemi7
-
dorje
-
sterlends
-
jgfreemaninternational
-
aloevera
-
lucas
-
olibjossi
-
bestfyrir
-
helgigunnars
-
gleymmerei
-
leifur
-
ace
-
diesel
-
methusalem
-
astroblog
-
lynx013
-
brell
-
kikka
-
doddyjones
-
sigurjon
-
birnast
-
gunnarbjorn
-
disdis
-
valdinn
-
ragnar73
-
helgatho
-
cigar
-
parker
-
manisvans
-
kerubi
-
mis
-
bmexpress
-
drum
-
gisgis
-
finni
-
tbs
-
topplistinn
-
rognvaldurthor
-
pjeturstefans
-
gullfoss
-
lotta
-
thjodarsalin
-
freyrholm
-
olii
-
gattin
-
bjornj
-
olafiaherborg
-
rallysport
-
sur
-
sigrunzanz
-
rafng
-
hrannsa
-
draumur
-
aslaugas
-
aeon
-
gumson
-
glamur
-
skinogskurir
-
launafolk
-
bjarnimax
-
westurfari
-
bookiceland
-
braskarinn
-
elfarlogi
-
komediuleikhusid
-
elismar
-
emilhannes
-
fingurbjorg
-
frida-litlah
-
gudjul
-
gp
-
gusg
-
gubo
-
vgblogg
-
hafthorb
-
morgunblogg
-
sveinnelh
-
rattati
-
diva73
-
itlajh
-
minos
-
kliddi
-
daliaa
-
axelma
-
ingolfursigurdsson
-
thjodfylking
-
fun
-
jaisland
-
jeremia
-
johanneliasson
-
eyfeld
-
johannesthor
-
stjornun
-
josefsmari
-
x-d
-
kristjan9
-
larusg
-
lifsrettur
-
lifsyn
-
loftslag
-
ludvikludviksson
-
margretsverris
-
mofi
-
sumri
-
skari
-
raffi
-
rso
-
roslin
-
runarf
-
jardytan
-
sigridursig
-
joklamus
-
siggifannar
-
sigurdurig
-
stjornlagathing
-
stefanjul
-
stommason
-
steinki
-
svanurg
-
spurs
-
sveinneh
-
tryggvigunnarhansen
-
myworld
-
valdimarjohannesson
-
valmundur
-
vest1
-
totibald
Athugasemdir
Þessi saga hlýtur að vera skrökulýgi.
Númi (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 23:21
E-n tímann heyrði ég nú þessa sögu löngu síðan... mjög fyndið hjá honum
en ekki fyndið að hann skv. wikipedia hafi skotið sig til bana í hjartað og látist :(
p.s. upprunalega planið var víst að svífa 30 fet (9 metra) ofan jörðu. En hann sveif 600x hærra
ari (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 23:22
engin skrökvilygi Númi. Ef þetta er á wikipedia (nútíma biblíunni) þá er þetta satt:
http://en.wikipedia.org/wiki/Larry_Walters
ari (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 23:23
Ég er nú ekki hissa þó þessi vitleysingur hafi misst byssuleyfið!
Árni Gunnarsson, 13.8.2008 kl. 23:44
Fólk er fífl
Ómar Ingi, 13.8.2008 kl. 23:50
Er ekki óþarfi að eyðileggja góða sögu með efanum? Ef þetta GÆTI verið satt þá er sagan góð!
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 14.8.2008 kl. 00:21
æi blesaður karlinn...
alva (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 00:27
..maður bara kennir í brjósti um hann...en hann er samsagt dauður núna...mér finnst þetta svolítið frábært sko..
alva (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 00:28
Vindur allur úr Walters,
vínið einnig og Kippers,
upp hann skaust,
og af því hlaust,
þar Wiki nú pedíu vers.
Þorsteinn Briem, 14.8.2008 kl. 00:55
Sagan er sönn. Þess vegna lét ég fylgja með færslunni myndir með netföngum sem hægt er að fletta upp á. Sonur minn hefur sankað að sér heimildum um þennan "merka" mann og benti mér á þetta. Það eru til heilu netsíðurnar tileinkaðar uppátæki mannsins. Ég hafði færsluna stutta en það er hægt að skrifa langan texta um uppátæki mannsins.
Eftir uppátækið varð maðurinn eftirsóttur í viðtöl hjá fjölmiðlum sem veltu sér upp úr dæminu. Viðtölin staðfesta að margt þvældist fyrir Larry annað en gáfur. Í aðra röndina er þetta verulega broslegt en í hina röndina sorglegt.
Samt er gaman þegar menn láta æskudrauma rætast þó að í þessu tilfelli hefði ef til vill verið betra að leyfa þessu að vera bara æskudraum sem ekki rættist.
Jens Guð, 14.8.2008 kl. 01:01
Hann er án efa það furðulegasta sem flugmaður flugvélanar hefur lent í á sinni starfsævi. alltaf gaman af svona rugludöllum.
Skattborgari, 14.8.2008 kl. 02:22
Ég myndi gefa mikið fyrir að sjá framan í flugmanninn og flugumferðarstjórann, ætli turninn hafi haldið að flugmaðurinn væri á sýru.....
...sorglegur endir hjá kallinum samt.
Haraldur Davíðsson, 14.8.2008 kl. 07:22
Svona á að ferðast um!! Þetta er alvöru!
Siggi Lee Lewis, 14.8.2008 kl. 10:16
Svo ég grípi nú til útjaskaðs frasa sem endurtekið hefur fengið mig til að slökkva á útvarpinu/sjónvarpinu mínu undanfarna mánuði þá hefur Larry greinilega verið maður sem lét verkin tala
Takk fyrir þessa ágætu sögu. 
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 10:27
Var einmitt að horfa á mynd um daginn þar sem aðalsöguhetjan gerði einmitt það sama og Larry - ég hafði ekki hugmynd um að þetta hefði verið gert í alvörunni :) http://www.alltrailers.net/danny-deckchair.html
Marý (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 11:12
Merkilegt hvað það loðar oft við fólk sem lætur drauma sína rætast og er máski ekki eins og fólk er flest að vera vitleysingar og fífl.
...désú (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.