Hlustið á splunkunýtt lag

  kúrekarkúrekastígvél

  Kúrekahljómsveitin Blues Willis hefur hljóðritað 12 lög fyrir plötuna "Hang ´Em High" sem kemur út í næsta mánuði við mikinn fögnuð landsmanna og fleiri.  Eitt lag af plötunni er að laumast í umferð þessa dagana.  Það heitir "Ballad of Dallas" og er eina lag plötunnar sungið á móðurmáli drengjanna.  Hin lögin eru sungin á þýsku.  Eða ensku?  Ég man það ekki.  En hlustið á lagið "Ballad of Dallas" í tónspilaranum hjá www.siggileelewis.is og látið álit ykkar í ljós.  Ekki endilega á laginu.  Bara hverju sem er.  Orðið er laust. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Hef ekki hlustað á þetta band, leit á síðuna og hlustaði á lagið. Jú,jú grípandi lag, örugglega mellufærir hljóðfæraleikarar.

Mér finnst þetta alls ekki leiðinleg tónlist, hef mest gaman af henni á fleygiferð á jeppanum upp á hálendinu, gaman að hækka þegar maður þeisir eftir endilöngum jöklinum.

Finnst samt mikið til af þessum lögum, þau hljóma flest eins, leið eins og að hlusta á RÍÐUM, RÍÐUM REKUM YFITR SANDINN.

Manni er einhvernveginn alveg sama þó maður nái alls ekki textanum. Vonlaust að heyra um hvað er sungið. 

S. Lúther Gestsson, 15.8.2008 kl. 00:24

2 identicon

Ég bjóst við einhverju lagi eins og Volare þegar ég las þetta há þér Jens! Þú hefur einhvern ítalskan stíl yfir þessari færslu þinni, það er að segja myndin. En lagið er meira coyntry stíll held ég. En lagið er frábært! Hlakka til að heyra meira frá þeim...

Áslaug Skúlasdóttir (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 01:05

3 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður Lúther,  ég fattaði ekki að þeir væru að syngja á íslensku fyrr en mér var sagt það.  Mér heyrðist þetta vera norska og skildi ekki orð.

  Áslaug,  ég sem hélt að myndin væri af dæmigerðum bandarískum kúrekum.  Þegar ég skoða hana betur tek ég þó eftir indíánastemmningu á henni.  En litla myndin er af ekta bleikum og fínum kúrekaskóm með spora. 

Jens Guð, 15.8.2008 kl. 01:54

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég var alltaf í svona bleikum kúrekastígvélum þegar ég var að reka kýrnar í Hlíð í Skíðadal.

Þorsteinn Briem, 15.8.2008 kl. 10:31

5 identicon

Þetta virðist vera SNILLDAR grúbba! Hljómar einstaklega vel í eyru. Hressilegt contry kemur manni í gott skap. En hljóðblönduna má bæta hjá strákunum....

Böðvar B (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband