Skúbb! Bók um Eivöru

  Það er fastur liður á þessu bloggi að ég "skúbbi" af og til (skúbb = fyrstur með fréttirnar).  Nú er enn einu sinni komið að því.  Að þessu sinni slæ ég hér upp frétt af því að Bókaútgáfan Æskan mun í haust gefa út bók um færeysku álfadísina Eivöru.  Bókin er þegar langt komin í vinnslu.  Hún verður meira UM Eivöru en eitt langt viðtal við hana.  Svo skemmtilega vill til að ég hef verið ráðinn til að skrifa bókina.  Hugsanlega er það þess vegna sem ég veit allt um þessa bók.  Þó þarf það ekki að vera.  Ég mun samt geta skýrt frekar frá bókinni þegar nær útgáfu dregur.  Það er rosalega gaman að skrifa hana.  Mér segir svo hugur að hún verði skemmtileg.  Að minnsta kosti er viðfangsefnið rosalega skemmtilegt.  Eivör er frábær.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þetta verður flott bók.

Þorsteinn Briem, 12.4.2010 kl. 23:29

2 Smámynd: Jens Guð

  Steini,  ef bókin verður annað en flott er það ekki Eivöru að kenna.  Ég get þó varla klúðrað þessari bók.  Svarfdælungurinn Ingólfur Júlíusson,  ljósmyndari,  er með mér í þessu verkefni.  Hann er meðhöfundur Evu "nornar" í bókinni frábæru  Ekki lita út fyrir.

Jens Guð, 13.4.2010 kl. 00:24

3 identicon

Mikið hlakka ég til að sjá afraksturinn. Þessi stelpa er svo stórkostlegur listamaður, mér hefur alltaf fundist hún vera svo yfirnáttúruleg, hvað hæfileika og fegurð varðar.

Hafdís Helgadóttir (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 15:54

4 Smámynd: Jens Guð

  Hafdís,  Eivör er yfirnáttúruleg.

Jens Guð, 13.4.2010 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.