Fréttablaðið "skúbbar" með frétt af blogginu mínu

  Til að allt sé á hreinu og enginn misskilji neitt þá þykir mér þetta gaman.  Bara gaman og ekkert nema mjög gaman.  Glaður í bragði og með bros á vör vek ég athygli á þessu:  Ein aðalfréttin á visir.is í dag er "skúbb" um útkomu í skoðanakönnun hér á blogginu mínu um besta íslenska hljómsveitarnafnið.  Ég hef ekki séð Fréttablaðið í dag en svo virðist sem fréttin sé þar líka.  Fréttin er merkt Fréttablaðinu.

  Strangt til tekið er "skúbbið" með fyrri skipunum.  Könnuninni er ekki lokið.  Ég geng þó út frá því sem vísu að endanleg niðurstaða sé komin varðandi efstu sætin núna þegar 439 atkvæði hafa verið greidd.  Röðin á efstu sætunum hefur ekkert breyst frá því að innan við 100 atkvæði höfðu skilað sér í hús.  Þannig að þetta skemmtilega "skúbb" Fréttablaðsins stendur.

------------------------------------------------------------------------------------------------

 

„Spilverk þjóðanna“ besta hljómsveitarnafnið

spilverk þjóðanna 
Á æfingu fyrir rúmlega 30 árum „Spilverk þjóðanna“ þykir besta nafnið.

Jens Kr. Guðmundsson hefur undanfarið staðið fyrir ýmsum lesendakönnunum á bloggsíðu sinni. Í nýjustu könnuninni er spurt „Hvert er besta íslenska hljómsveitarnafnið?". Könnun Jens er hávísindaleg og hann byrjaði á því að óska eftir tillögum frá lesendum. Viðbrögð voru góð og Jens tók saman lista yfir þau fimmtán nöfn sem fengu flestar tilnefningar. Nú hafa rúmlega 400 manns kosið. „Spilverk þjóðanna" hefur tekið afgerandi forystu með 18,4 prósent atkvæða. „Kamarorghestarnir" eru í öðru sæti með tólf prósent, svo kemur „Unun" með 9,6 prósent og Purrkur Pillnikk með 8,3 prósent atkvæða.
„Þessi staða kemur mér ekkert á óvart, enda er þetta óviðjafnanlega stórt nafn fyrir litla hljómsveit og lágværa," segir Valgeir Guðjónsson, einn Spilverksmanna. Bandið varð til í MH og kom fyrst fram undir þessu nafni árið 1972. Áður höfðu nöfn eins og „Hassanssmjör", „Egils appelsín" og „Hljómsveit Árna Vilhjálmssonar" verið mátuð við tríóið.
„Við vorum þrír að velta nafni sveitarinnar á milli okkar," segir Valgeir. „Spilverk kom fyrst. Bjólan fór í orðabók og komst að því að Spilverk getur þýtt grindverk á milli bása í fjósi. Okkur fannst það ekkert verra. Þjóðanna bættist svo við. Okkur fannst það fyndið og lýsa geigvænlegum skorti á minnimáttarkennd. Það var lókal húmor hjá okkur að bæta þriðja n-inu við ákveðinn greini fleirtölu nafnorða svo nafnið var alltaf skrifað Spilverk þjóðannna í byrjun." - glh


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kannski fólk streymi hingað inn út af fréttinni og kjósi í gríð og erg valdandi því að röðin breytist ;)

Ari (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: Halla Rut

Þú ert svo frægur.

Halla Rut , 6.3.2008 kl. 12:44

3 Smámynd: Rannveig H

'Eg þekki frægan mann.

Rannveig H, 6.3.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Ragnheiður

 Ó..ég dreif mig í að kjósa en vegna þess að þetta hlýtur að vera hálfleynileg kosning þá segi ég ekki hvað ég kaus !

Ragnheiður , 6.3.2008 kl. 12:49

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Gaman að þessu, til hamingju. Miðað við hugleiðingar mínar á viðkomandi færslu (sem LMR bað mér Guðsblessunar fyrir) get ég ekki verið annað en ánægð með niðurstöðuna.

Lára Hanna Einarsdóttir, 6.3.2008 kl. 12:54

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til lukku með þetta Jens minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2008 kl. 13:19

7 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Mikið er ég glaður að mitt atkvæði eigi sinn þátt í því að Spilverkið vinni til viðurkenninga hjá þér Jens. Svo sannarlega flottasta nafnið, sem inniheldur allt sem þarf. Takk fyrir mig.  

Kjartan Pálmarsson, 6.3.2008 kl. 13:24

8 Smámynd: Hammurabi

Tek ofan af fyrir þér.

Niðurstaða könnunarinnar er líka "rétt", Spilverk Þjóðanna er besta nafnið.

Hammurabi, 6.3.2008 kl. 13:26

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ansi ólíklegt að þetta breytist úr þessu, nema kannski milli þeirra nafna sem fæst atkvæði hafa. verður samt spennandi að fylgjast með þegar utankjörfundaratkvæðin hafa verið talin.

Brjánn Guðjónsson, 6.3.2008 kl. 14:00

10 identicon

Spilverks saga þjóðanna:

http://www.tonlist.is/Music/ViewBiography.aspx?AuthorID=2689

Steini Briem (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 14:09

11 Smámynd: Gulli litli

Á Gagnheiði er viðgerð hafin....

Gulli litli, 6.3.2008 kl. 14:20

12 identicon

Frábært!

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 14:55

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Slá í gegn, slá í gegn ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.3.2008 kl. 15:10

14 Smámynd: Blúshátíð í Reykjavík

Spilverk Þjóðannna er gott nafn. Var upphaflega með þremur ennum ef ekki fjórum.

Blúshátíð í Reykjavík, 6.3.2008 kl. 17:04

15 identicon

Ég var einu sinni frægur..

Atli Viðar Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 17:11

16 Smámynd: Ómar Ingi

Kallinn

Tékkaðu á Þessari elsku tekið úr Búlgarska Idolinu , þú sérð varla neitt fyndnara í dag Jenni

http://ommi.blog.is/blog/ommi/entry/466520/

Ómar Ingi, 6.3.2008 kl. 17:18

17 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.3.2008 kl. 19:04

18 Smámynd: Hlynur Jón Michelsen

Bjöggi... ég þekki hann...

Hlynur Jón Michelsen, 6.3.2008 kl. 20:51

19 Smámynd: Jens Guð

  Hver þekkir ekki Bjögga Gísla,  einn alflottasta gítarleikara íslenska rokksins?

Jens Guð, 6.3.2008 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband