Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Danskur strippari strippađur í Fćreyjum

  Tollverđir í einu flugstöđinni í Fćreyjum,  í Vogum,  hafa yfir ađ ráđa fíkniefnahundi.  Fram til ţessa hefur hvutti bent međ áberandi hćtti á ţá Dani sem eru svo vitlausir ađ koma til Fćreyja međ eiturlyf.  Svo bar ţađ til ađ frćg dönsk nektardansmey hugđist verja rómantískri helgi í Fćreyjum.  Fíkniefnahundurinn trylltist í návist hennar.  Leitađ var á dömunni.  Ekkert fannst.  Hún var send í röntgenmyndatöku.  Ekkert grunsamlegt kom ţar fram.  Ţá var framkvćmd á henni gróf líkamsleit.  Ađ hennar sögn var ekki ađeins einum putta stungiđ í endaţarm hennar heldur fimm fingra krumlu upp ađ olnboga.  Ekkert dóp fannst. 

  Fćreysku tollvörđunum til afsökunar má tiltaka ađ fíkniefnahundurinn hefur fram til ţessa veriđ óskeikull.  En öllum verđur á.  Skýringin er eflaust sú ađ danska nektardansmćrin hefur einhvern tíma áđur veriđ međ dóp í sínum vösum.  Hún uppgötvađi nýlega ađ hún vćri komin međ barn í mallakútinn.  Undir ţannig kringumstćđum hćtta margar konur ađ neyta eiturlyfja.  Hinn möguleikinn er sá ađ daman hafi vitađ af dóphundinum í Vogum og veriđ nógu klár til ađ láta ekki reyna á dópsmygl til Fćreyja.  

  En hún er ósátt.  Verulega ósátt viđ međhöndlunina á sér.  Kannski hefur ţetta eftirmála.  Henni var samt nćr ađ koma til Fćreyja í fatnađi sem hafđi hýst dóp.  Svo er ég ekkert viss um ađ daman segi satt og rétt frá ađ öllu leyti.  Hitt er annađ mál ađ fćreyskir tollverđir eru harđir í horn ađ taka ţegar kemur ađ eiturlyfjum.  Ţeir standa sína vakt vegna ţess ađ Fćreyjar eiga ađ vera fíkniefnalausar. 

  danskur strippari

  


mbl.is Ţunguđ nektardansmćr í endaţarmsleit
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Veiddur fyrir framan nefiđ á Sea Shepherd-liđum

ss gónir út á haf 

 Eins og allir vita ţá hefur hópur á vegum bandarísku hryđjuverkasamtakanna Sea Shepherd stađiđ vakt í Fćreyjum í allt sumar.  Hópurinn kom í byrjun júní og ćtlar ađ standa vaktina út september.  Fátt hefur boriđ til tíđinda annađ en sitthvađ sem hefur gert SS ađ ađhlátursefni í Fćreyjum og víđar.

  Á dögunum sást til SS-liđa aka í átt ađ fjörunni í Hvannasundi.  Skyndilega var bílnum bremsađ harkalega.  Út stukku nokkrir vígalegir menn.  Ţeir höfđu komiđ auga á fýlsunga sem kjagađi stutt frá veginum.  

  Hinir herskáu SS-liđar virtust ekki ţekkja til fuglsins.  Ţeir nálguđust hann ofurhćgt og hikandi.  Fuglinn gaf lítiđ fyrir SS fremur en ađrir í Fćreyjum.  Eftir langan tíma og vandrćđagang tókst bjargvćttunum ađ koma fuglinum á skriđ niđur í fjöru og út á sjó.  Um leiđ og fuglinn synti frá fjöruborđinu stukku SS-liđarnir fagnandi og hrópandi upp í loftiđ og gáfu hver öđrum "háa fimmu".  

  Í sömu andrá kom Hvannasundsmađur á mótorbát siglandi.  Hann stefndi ađ unganum og veiddi hann međ vönum handtökum hiđ snarasta.  Svo veifađi veiđimađurinn til SS-liđanna í ţakklćtisskyni fyrir ađ hafa komiđ fengnum út á sjó til sín.  

  Síđan seldi hann fuglakjötiđ á 70 krónur (1400 ísl. kr.) í Ţórshöfn.  

-------------------------------------

Hér er fleiri brosleg dćmi um rugliđ á SS: 

 http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1436008/

 http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1434794/

  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1420693/

------------------------------------

    

      


Fćreyskir hljómleikar - frítt inn

  
  Íslenskur almenningur elskar Fćreyinga of fćreyska tónlist.  Íslendingar tengja sig strax viđ Fćreyinga sem brćđur  og systur viđ fyrstu kynni.  Fćreyingar hafa enda ćtíđ veriđ snöggir ađ rétta Íslendingum hjálparhönd á erfiđum tímum.  Ţannig söfnuđu Fćreyingar háum fjárupphćđum til ţeirra sem áttu um sárt ađ binda vegna snjóflóđanna í Súđavík og á Flateyri.  Einnig björguđu Fćreyingar Íslendingum ţegar allt var ađ stöđvast vegna gjaldeyrisskorts í kjölfar bankahrunsins.  Engir vildu lána gjaldţrota Íslandi gjaldeyri.  Hvorki Bandaríkin,  Norđurlönd eđa Rússar ţrátt fyrir ađ Íslendingar kćmu grátbiđjandi á hnjánum.     
 
  Ţrátt fyrir kćrleiksrík samskipti viđ Fćreyinga hafa íslenskir embćttismenn nú hver á fćtur öđrum tekiđ upp á ţví ađ sýna Fćreyingum fádćma hroka.  Fyrst var ţađ Isavia sem dró í meira en heilt ár ađ svara formlegu erindi fćreyska flugfélagsins Atlantic Airwaves um lendingarleyfi á Reykjavíkurflugvelli.  Atlantic Airwaves hafđi árum saman flogiđ til og frá Reykjavíkurflugvelli. Svo keypti flugfélagiđ stćrri flugvél  (144 farţega í stađ innan viđ 100 farţega).  Ţá var eđlilegt ađ óska eftir leyfi fyrir lendingu stćrri flugvélarinnar.  Beiđni ţar um hefđi átt ađ taka einn dag eđa í hćsta lagi nokkra daga.  Ekkert svar barst hinsvegar fyrr en rösku ári síđar.  Í millitíđinni varđ fćreyska flugvélin ađ lenda í Keflavík međ tilheyrandi ferđakostnađi og óhagrćđingu fyrir flugfarţega. Sem var samt ekki máliđ heldur ţessi ókurteisi ađ svara erindinu svona seint.  En samt ekki illa.   Erindinu var vel tekiđ og fćreyska flugfélagiđ Atlantic Airways má lenda á Reykjavíkurflugvelli.
   
   Nćst gerist ţađ ađ forstjóri Ölgerđarinnar Egill Skallagrímsson, Andri Ţór,  skrifar forstjóra Föroyar Bjór afar ósvífiđ,  frekjulegt og dónalegt bréf.  Hótar ţví ađ ef ađ Föroya Bjór Gull verđi ekki umsvifalaust tekinn af markađi ţá muni hann setja Föroya Bjór út af markađi međ ađstođ dómsstóla.
 
  Krafan er kolgeggjuđ og heldur ekki vatni.  Föroya Bjór Gull hefur veriđ á markađi í hálfan fjórđa áratug.  Egils Gull kom ekki á markađ fyrr en nćstum áratug síđar.  Fyrir ţremur árum skráđi hrokagikkurinn hjá Ölgerđinni hinsvegar Egils Gull sem vörumerki.  Sú skráning hefur enga ţyngd vegna hefđaréttar og ađ bjór merktur Gulli hefur langa sögu í skandinavískri skilgreiningu á bjór.  Löng hefđ er fyrir Carlsberg Gulli,  Tuborg Gulli o.s.frv.  Ţađ er ekki hćgt ađ öđlast einkarétt á bjór merktum Gulli fremur en bjór merktum Pilsner,  Stout eđa Lite.   
 
  Ţađ spaugileg viđ aulalega framgöngu Andra Ţórs er ađ sala á Föroya Bjor á Íslandi óx um 1200%. Áđur var fćreyski bjórinn ađeins í 5 vínbúđum á Íslandi.  Í dag er salan svo góđ ađ hann er í öllum vínbúđum.  Forstjóri Ölgerđarinnar er ađhlátursefni hvar sem tveir eđa fleiri koma saman og drekka Föroya Bjór Gull.
 
  Svo var ţađ ţessi rembingur íslenskra embćttismanna gagnvart vélarbiluđum fćreyskum togara,  Nćrabergi.  Framkvćmdarstjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar,  Ásgrímur Ásgrímsson,  uppbelgdist í embćttishroka og meinađi áhöfn fćreyska skipsins ađ taka vistir á Íslandi.  Meinađi áhöfn landgöngu.  Meinađi skipsverjum eldneytiskaup.  Ţađ ríkti neyđarástand um borđ. Íslendingar sem ofbauđ báru hamborgara og gosdrykki til skipsverja.  Ţetta var niđurlćgjandi fyrir alla sem ađ málinu komu.  Sjávarútvegsráđherra hafđi ekki rögg á sér til ađ leysa vandamáliđ fyrr en mörgum dögum síđar ţegar fćreyskur kollegi hans hafđi samband símleiđis. 
 
  Sunnudaginn 14. september heldur fćreyska söngkonan Dorthea Dam hljómleika í Tjarnarbíói.  Hún er frábćr söngkona,  frábćr túlkandi og frábćr söngvahöfundur.   Eiginmađur hennar,  William Silverthorn,  er frábćr söngvahöfundur eins og heyra má í međfylgjandi myndböndum.  Hann semur söngva sína á ensku en Dorthea flytur sína dagskrá jöfnum höndum á fćreysku.   Hljómleikarnir hefjast klukkan 21.00.
 
  Ađgangur er ókeypis.  
   

Hlálegur misskilningur og eintómt rugl međ "selfie"

barn 

  Ţađ var ekki auđhlaupiđ ađ ţví ađ koma atvinnuleysi niđur í ţađ lćgsta sem ţekkst hefur í Evrópu.  Síst af öllu ţegar samtímis eru bođađar mestu kjarabćtur sem ţekkst hafa í Evrópu.  Svo ekki sé talađ um ađ í ofanílag bćtist stórtćkasta skuldaleiđrétting sem ţekkst hefur í öllum heiminum.  Upp á 300 eđa 400 milljarđa.  Og ţađ öll á kostnađ útlendra hrćgamma án ţess ađ íslenskir skattgreiđendur ţurfi ađ leggja fram krónu.  Allt beint í vasann.  Ekki króna úr sameiginlegum ríkissjóđi landsmanna.

  Forsćtisráđherrann hefur í fögnuđi yfir framvindu mála opinberađ af sér fyrstu "selfie" ljósmynd mannkynssögunnar - ađ međtalinni Biblíunni,  mörg ţúsund ára gömlum ţjóđsögum gyđinga í Arabíu.  Ţćr eru ađ mestu án ljósmynda.  Engin "selfie".  Og án trúverđugra teiknimynda ef út í ţađ er fariđ. 

  Ţegar SDG var 4 eđa 5 ára eignađist hann myndavél.  4 eđa 5 árum síđar tók hann af sér "selfie" mynd.  4 eđa 5 árum eftir ţađ leit hann yfir sköpunarverk sitt.  Ţađ var harla gott.  Ţađ var betra en ţegar skapari himins og jarđar leit yfir sköpunarverk sitt eftir ađ hafa í kolsvartamyrkri skapađ ljós.  Nokkru síđar greindi hann ţađ frá myrkrinu.  Í millitíđinni var algjört rugl á ljósi og myrkri. 

  Fyrir 4 eđa 5 árum síđan dustađi SDG rykiđ af "selfie" myndinni sinni. af sér.  Núna,  4 eđa 5 árum síđar skynjađi hann ţörf heimsbyggđarinnar fyrir myndinni.  4 eđa 5 geta vistađ ţćr í tölvu,  prentađ ţćr í 4 eđa 5 eintökum út á pappír í lit,  rammađ ţćr inn og hengt upp á svefnherbergisvegg.  4 eđa 5 hafa ţegar gert ţađ.  Allir međ lögheimili á eyđijörđ á norđ-austurhluta landsins.     

  Ţegar tímasetningar sem SDG nefnir og aldur ríma ekki viđ raunveruleikann er vert ađ hafa í huga ađ fyrir honum er einn dagur sem ţúsund ár og fyrir honum eru ţúsund ár sem einn dagur.   

sigmundur-david-gunnlaugsson

    

 


mbl.is Sigmundur birtir gamla „selfie“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sláandi ljósmyndir

  Góđ ljósmynd segir meira en ţúsund orđ.  Meira en tveggja klukkutíma löng kvikmynd.  Ljósmyndin frystir augnablikiđ og vel heppnuđ ljósmynd fangar áhorfandann. Neglir hann niđur.  Á alla hans athygli ótruflađa frá hljóđi eđa hreyfingu á öđrum en viđfangsefninu.

  Hér eru nokkur dćmi:

áhrifaríkar ljósmyndir - munkar biđja fyrir betri heimi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Munkar á bćn.   

áhrifaríkar ljósmyndir - stelpa reykir

 

 

 

 

 

 

 

 Frá ţeim árum er reykingar ţóttu töff og hćttulausar.  Jafnvel hollar.  Stelpan er kannski 10 ára eđa svo.   

áhrifaríkar ljósmyndir - 3ja vikna albínói kúrir hjá frćnku sinni 

  3ja vikna albinói kúrir hjá frćnku sinni.

áhrifaríkar ljósmyndir - kona í Eţíópíu skođar tímarit

  Kona í Eţíópíu skođar franskt tískutímarit.  Nauđsynlegt ađ fylgjast međ tískunni.

áhrifaríkar ljósmyndir - barn í flóttamannabúđum í Kosovo handlangađ til afa síns

  Barn í flóttamannabúđ í Kosovo handlangađ til afa síns.

áhrifaríkar ljósmyndir - barn skođar jakka pönkara

  Barn skođar gadda á jakka pönkara.

áhrifaríkar ljósmyndir - breskur drengur gengur yfir götu og dregur á eftir sér leikfangastrćtó

  Breskur drengur gengur yfir gangbraut og stöđvar akstur 2ja hćđa strćtisvagns.  Strákurinn dregur á eftir sér leikfangastrćtó af sömu gerđ. 


Sleep Shepherd í bráđri lífshćttu undir ógnandi byssuhlaupi í Fćreyjum

 

  Á laugardaginn,  um kvöldiđ,  kom marsvínavađa (grind) upp í fjöru í Sandi á Sandey.  Ţá varđ "grindbođ",  útkall.  Mótorbátar umkringdu vöđuna og ţjálfađir hvalveiđimenn slátruđu 33 marsvínum (grind).  Án sársauka fyrir dýrin,  vel ađ merkja.  Ţau deyja á sekúndubroti viđ stungu í mćnu.

  14 SS-liđar reyndu ađ trufla veiđina og flćma dýrin út á haf.  Ţeir voru umsvifalaust handteknir af lögreglunni og fćrđir í járnum til Ţórshafnar.  Eftir ţađ gekk allt sinn vanagang.

  Í yfirheyrslum hjá lögreglunni lýsa sakborningar atburđarrás á ţann hátt ađ ljóst er ađ sumir eru veruleikafirrtir.  Til ađ mynda segist ein daman hafa veriđ í bráđri lífshćttu.  Henni hafi veriđ hótađ undir byssukjafti lífláti.  Enginn annar varđ var viđ byssu á svćđinu.  Né heldur hróp međ hótunum.

  Flestir af handteknu SS-liđum koma fyrir dómara 25. sept.  Hald var lagt á ţrjá SS-spíttbáta.  Ţar á međal einn sem er gerđur út af bandarískum sjónvarpsţátta- og kvikmyndaleikara,  Charlie Sheen.  Sá ku vera einna frćgastur fyrir ofbeldi gegn konum,  konulemjari.  En andvígur hvalveiđum.  Fćreyingar hafa bent á ţetta sem eitt af ótal dćmum um tvöfalt siđgćđi SS-liđa.    

   


Viđbjóđsleg framkoma íslenskra embćttismanna gagnvart Fćreyingum

 Fćreyskt skip, Nćraberg,  lenti í nauđ. Vélarbilun viđ makrelveiđar í grćnlenskri lögsögu.  Ţađ náđi ađ skrölta til Íslands á fjögurra hnúta hrađa. Móttökurnar á Íslandi voru til skammar.  Ţćr einkenndust af embćttismannahroka og rembingi.  Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar, Ásgrímur Ásgrímsson,  bannfćrđi skipiđ međ ţađ sama.  Bannađi alla ţjónustu viđ skipiđ.  Skipsverjar máttu ekki einu sínni fara frá borđi.  Ţeir máttu hvorki kaupa vistir né eldsneyti í íslenskri höfn.   

  Sjávarútvegsráđherra lýsti yfir ógildingu á banninu. En fylgdi ţví ekki eftir af neinum ţunga.  Hrokafull afstađa íslenskra embćttismanna fékk ađ leika lausum hala dögum saman.  Viđbrögđ íslensks almennings voru ţau ađ hátt í 14 ţúsund manns studdi á Fésbók afsökunarbeiđni til Fćreyinga.  Sömuleiđis tóku einstaklingar upp á ţví ađ fćra áhöfn Nćrabergs hamborgara og gosdrykki.  Ţađ var niđurlćgjandi fyrir alla ađila - ţó ađ reisn vćri yfir uppátćkinu út af fyrir sig.  

  Allt bull um lög frá 1998 um samskipti viđ Fćreyinga höfđu og hafa ekkert gildi eftir ađ fríverslunarsamningur viđ Fćreyinga 2006 gekk í gildi.   

   Framkoma íslenskra embćttismanna í garđ Fćreyinga er viđbjóđur.  Nćsti bćr viđ hrokafullt erindi Ölgerđarinnar,  kröfu um ađ frábćrt Föroya Bjór Gull sé tekiđ af markađi.  Styđjiđ Fćreyinga í verki međ ţví ađ kaupa Föroya Bjór Gull og sniđgangiđ vörur frá Ölgerđinni. 

  Ég fordćmi  hroka og yfirgangssemi íslenskra frekjuhunda í garđ Fćreyinga.  Ég er búinn ađ setja viđskiptabann á Ölgerđina Egil Skallagrímsson.  Óţverrafyrirtćki.  

föroyabjórgull

   


mbl.is Fćreyska skipiđ fariđ frá Íslandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Falsanir Sleep Shepherd

 Ţađ eru ekki ađeins uppbelgdir og hrokafullir íslenskir embćttismenn sem níđast á Fćreyingum ţessa dagana. Bandarísku hryđjuverkasamtökin Sleep Shepherd fara einnig mikinn.  Forsprakki SS,  Paul Watson,  er töluvert yfirlýsingaglađari og kjaftforari en ađrir SS-liđar.  SS hafa stađiđ vakt í Fćreyjum í allt sumar án tíđinda. Í gćr klúđrađist vaktin vegna ţess ađ SS-liđar sváfu á međan hvalur var veiddur fyrir framan trýniđ á hrjótandi hópnum. Í dag kom upp smá órói ţegar hvalur var veiddur.  Ţađ gekk samt allt ljúft fyrir sig. SS-liđar voru handjárnađir og fjarlćgđir snöfurlega.

  Forsprakki SS,  Paul Watson,  heldur ţví fram ađ fullyrđingar Fćreyinga um ađ veiđar á marsvínum (grind) sé sjálfsbjargarviđleitni en ekki í ábataskyni standist ekki skođun.   Máli sínu til stuđnings birtir hann ljósmyndir úr kjötborđi fćreyskrar matvöruverslunar.  Ţar sést glöggt ađ til sölu er hvalkjöt merkt hvalbiff.  Ţađ sem Paul og félagar fatta ekki er ađ hvalbiff er norkst heiti á hvalkjöti.  Ţetta er norskt hvalkjöt.  Ekki fćreyskt.  

 

norskt hvalbuff

norskt hvalbuff A


Aulagangur hrokafyllstu Íslendinga ríđur ekki viđ einteyming

  Skammt er stórra högga á milli í keppni hrokafyllstu Íslendinga í ókurteysi, yfirgangssemi og frekju í garđ Fćreyinga.  Fyrst gekk fram Andri Ţór,  forstjóri Ölgerđarinnar Egill Skallagrímsson.  Međ verulega ókurteisu,  frekjulegu og yfirgangssömu bréfi til Föroya Bjór hótađi hann öllu illu ef Föroya Bjór Gull yrđi ekki umsvifalaust tekiđ af markađi.  Krafan var ósanngjörn,  heimskuleg og óraunhćf.  Frekjukast án innistćđu.

  Frekjuhundurinn gerđi sig ađ athlćgi.  Og ekki í fyrsta skipti.  Aulalegt frekjukast hans skilađi ţví ađ sala á Föroya Bjór Gull óx um 1200% á Íslandi í síđustu viku.  Á sama tíma sór fjöldi Íslendinga ţess heit ađ kaupa engar vörur frá Ölgerđinni fyrr en hrokafulla frekjukast Andra Ţórs rjátlađist af honum.

  Nćst gerist ţađ ađ fćreyskt skip,  Nćraberg,  lendir í vandrćđum. Bilun og nćr međ erfileikum ađ koma sér í íslenska höfn.  Ţá tekur á móti ríkisrekinn embćttismađur hjá Landhelgisgćslunni,  Ásgrímur Ásgrímsson.   Hann belgir sig út og neitar um alla ađstođ. Bannar skipsverjum landgöngu,  bannar afgreiđslu á eldsneyti, bannar liđsinni viđ viđgerđ.  

  Embćttismađurinn útbelgdi ber titilinn framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar.  

  Ţökk sé Óđni og Ţór ađ hann fer ekki međ alrćđisvald.  Seint og síđar meir tókst stjórnvöldum ađ gera hann afturreka međ rembinginn.   Nćraberg fćr ţá ađstođ sem ţarf.  Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar grćtur sig í svefn í kvöld.  Niđurlćgđur. 

 

   


mbl.is Vandar Íslendingum ekki kveđjurnar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sea Shepherd ađhlátursefni

  Aulagangurinn á Sea Shepherd,  ranghugmyndir ţeirra og framganga hefur skemmt Fćreyingum rćkilega og lengi.  Ţađ er langt síđan Fćreyingar hafa hlegiđ jafn mikiđ og jafn lengi í einu,  eđa í nćstum tvo mánuđi samfleytt.  Enn bćtti í ţegar bíl Sea Shepherd var keyrt út af og ofan í skurđ.  Viđ ţađ komst styggđ ađ bílstjóranum.  Hann fćldist og hljóp gólandi út í móa.  Ţar bađađi hann út höndum og fótum í geđshrćringu og ráđaleysi.

  Fćreyingar fylgdust međ og tóku bakföll í hláturskasti.  Viđ ţađ bráđi af SS-manninum.  Hann fćrđi sig varfćrnislega aftur ađ bílnum og bađ um ađstođ viđ ađ ná bílnum upp úr skurđinum.  Spurđi hvort hćgt vćri ađ fá kranabíl í verkiđ.  Jafnframt afsakađi hann viđbrögđ sín.  Sagđist hafa fengiđ ofsafengiđ hrćđslukast viđ ađ bíllinn myndi velta ofan í skurđinn og hann sjálfur stórslasast og örkumlast í kjölfariđ.   

  Af viđbrögđunum ćtla menn ađ ţarna hafi kauđi ţreytt frumraun sína í akstri utan malbikađra breiđstrćta New York borgar. 

  Honum var bent á ađ setja bílinn í bakkgír og bakka upp á veg.  Skurđurinn er grunnur,  grasi gróinn og hćttulaus međ öllu.  Bakkgírinn virkađi á bílnum.  Ţetta var ekkert mál og gaurinn ók niđurlútur á brott undir hlátursköllum Fćreyinga.  Reyndar hefđi alveg eins mátt aka kraftmikla jeppanum áfram og upp á veg.  Eins og sést á myndunum voru ađstćđur ekki jafn skelfilegar og vesalingurinn upplifđi.  Áđur en hann staulađist taugaveiklađur upp í bílinn leitađi hann af sér allan grun međ ţví ađ skríđa undir bílinn og velta sér ţar eins og afvelta rolla.  

  Grunur leikur á ađ bílstjórinn hafi veriđ ađ skima eftir marsvíni ţegar honum fipađist aksturinn.  Ţrátt fyrir ađ hvergi hafi sést til sjós frá ţessum sveitatrođningi.  

sea shepherdbíll úti í skurđi

sea shepherd bíll úti í skurđi


mbl.is Pamela bjargar fćreyskum hvölum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.