Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.12.2014 | 19:15
Kynlífsklúbburinn
Áskrifendur málgagns LÍÚ, Morgunblađsins, eru sjálfkrafa skráđir í félagsskap, klúbb sem kallast Moggaklúbbur. Nafn klúbbsins hefur vakiđ gríđarlega mikla athygli Fćreyinga. Sama hvort er Fćreyinga stađsetta á Íslandi og fletta Mogganum hér eđa Fćreyinga sem fletta Mogganum í Norrćna húsinu í Fćreyjum eđa í blađsölunni í fćreysku Kringlunni, SMS í Ţórshöfn. Fćreyingar hafa spurt mig ađ ţví hvort ađ Morgunblađiđ reki "swing" klúbb međal áskrifenda sinna. Eđa út á hvađ ţessi klámklúbbur gangi eiginlega.
Fćreyska orđiđ yfir kynlíf er mogga.
____________________________
Takiđ endilega ţátt í vali á jólalagi ársins 2014. http://http://www.ruv.is//content/jolalagakeppni-rasar-2//content/jolalagakeppni-rasar-2 Jólalag Dađlanna er ţvílíkt lang flottast:
![]() |
Swingiđ án efa frétt ársins |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2014 | 00:00
Skegg og jólasveinninn
Í kvöld hitti ég gamlan félaga. Ţađ eru nokkuđ mörg ár síđan viđ hittumst síđast. Kannski aldarfjórđungur eđa svo. Svo vill til ađ í millitíđinni höfum viđ báđir leyft skeggi ađ vaxa ađ mestu óáreitt. Ég hef ađ vísu alltaf skoriđ skegg viđ yfirvör. Hann hinsvegar leyfir skegginu ađ vaxa yfir munn sér. Kallar ţađ "ađ samkjafta".
Á dögunum gekk hann framhjá leikskóla í nágrenni sínu. Krakkar ţar kölluđu til hans: "Hć, manni!" Hann svarađi ţví engu. Ţađ espađi krakkana upp. Ţeim fjölgađi sem kölluđu til hans: "Hć, manni!" Hann hélt sínu striki framhjá leikskólanum án ţess ađ virđa krakkana viđlits. Ţá heyrir hann einn krakkann kalla yfir hópinn: "Kallinn getur ekki talađ. Hann er međ skegg í munninum!"
--------------------------
Ég kíkti inn á bókasafniđ í Kringlunni í dag. Ţar sem sat og las breska Q-músíkblađiđ gekk fast upp ađ mér lítill drengur. Kannski 3ja eđa 4ra ára. Hann horfđi rannsakandi á mig. Ég sagđi lágt: "Hó, hó, hó!". Stráksa lét sér hvergi bregđa heldur horfđi ennţá alvarlegri á mig. Alveg ţétt upp viđ mig. Mamma hans kom og dró hann burt. Hann hélt ţó áfram ađ stara á mig og ţráađist viđ ađ fylgja mömmunni. Já, ég er dálítiđ líkur jólasveininum međ mitt síđa hvíta skegg. Ţetta er í annađ skiptiđ sem svona gerist međ nokkurra daga millibili.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
6.12.2014 | 17:42
Hvađa ţjóđir njóta mesta netfrelsis?
Í útlöndum er til stofnun sem mćlir netfrelsi hinna ýmsu ţjóđa. Hún heitir Freedom house. Allt sem snýr ađ netfrelsi er skođađ. Međal annars út frá ţví hvort eđa hvađa skorđur yfirvöld setja á umgengni almennings viđ netiđ. Til ađ mynda hvort ađ einhver forrit séu bönnuđ eđa ađgengi ađ ţeim takmörkuđ og bara allskonar. Listinn yfir ţćr ţjóđir sem búa viđ mesta netfrelsi er forvitnilegur. Ekki síst fyrir okkur Íslendinga. Ţessi lönd tróna á toppnum:
1 Ísland
2 Eistland
3 Kanada
4 Ástralía
5 Ţýskaland
Íranar búa viđ minnst netfrelsi. Ţar er eiginlega flest blokkerađ eđa stranglega bannađ. Sýrlendingar koma ţar nćst. Síđan eru ţađ Kínverjar. Kúbanar eru í fjórđa neđsta sćti. Á hćla ţeirra koma Eţíópar.
Ekki reyndist unnt ađ mćla netfrelsi í N-Kóreu. Enginn ţeirra íbúa sem rannsóknarteymiđ rćddi viđ ţar í landi hafđi hugmynd um hvađ internet er.
-----------------------------------------------------------
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.1.2016 kl. 11:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
3.12.2014 | 19:38
Jón Ţorleifsson og slagsmál
Jón Ţorleifsson, verkamađur og rithöfundur, var mikil barnagćla. Sjálfur eignađist hann engin börn. Hann var einhleypur alla ćvi. Börn löđuđust ađ Jóni. Hann kom fram viđ ţau eins og jafningja og gat endalaust leikiđ viđ ţau. Ţó ađ hann vćri orđinn háaldrađur ţá lét hann sig ekki muna um ađ velta sér um gólf eđa skríđa á fjórum fótum ţegar ţađ hentađi leiknum. Synir mínir og systkinabörn mín elskuđu Jón. Ţađ var ćtíđ fagnađarfundur ţegar Jón kíkti í heimsókn. Skipti ţá engu máli ţó ađ hann kćmi stundum dag eftir dag.
Einhverju sinni var leikurinn ţannig ađ litlir plastkallar voru látnir slást. Hvort ađ ţeir hétu Action Man, He-Man, Hulk eđa eitthvađ annađ. Synir mínir stýrđu sitthvorum plastkallinum. Jón ţeim ţriđja. Hans kall var fyrst og fremst í ţví hlutverki ađ verja sig í stađ ţess ađ sćkja fram. Sennilega var ţađ ţess vegna sem sonur minn spurđi Jón: "Hefur ţú aldrei veriđ í slagsmálum?"
Jón svarađi strangur á svip: "Nei, aldrei. Ég hef óbeit á öllu ofbeldi. Slagsmál eru andstyggđ!"
Ég blandađi mér í umrćđuna. Sagđist hafa heyrt af slagsmálum Jóns viđ nasista á Eyrarbakka eđa ţar um slóđir.
Jón spratt á fćtur og andlitiđ ljómađi viđ upprifjunina. Hann lagđi handarbakiđ á barkann á sér og sagđi hróđugur: "Ég sló nasistann međ spýtu af alefli á barkann. Hann steinlá og var ekki til frekari stórrćđa ţann daginn!"
__________________________________________
Fleiri sögur af Jóni:
http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1409699/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
22.11.2014 | 18:31
Byssan er saklaus
Byssur drepa engan. Ţessu halda margir fram í kjölfar ţess ađ hafa sett upp spekingslegan svip og tekiđ í nefiđ. Ef vel er ađ gáđ er ţađ alveg rétt ađ byssur drepa engan. Ekki fremur en handsprengjur, kjarnorkusprengjur, eldflaugar, eiturefnavopn eđa rafmagnsstóllinn. Ţađ er ástćđulaust ađ agnúast út í ţetta dót. Drápstćkin eru saklaus uns sekt er sönnuđ. Sökin liggur hjá manneskjunum sem misnota leikföngin. Svo geta alltaf orđiđ slys. Eins og gengur. Ţau gera ekki bođ á undan sér.
![]() |
Skotinn til bana fyrir slysni |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.12.2015 kl. 18:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2014 | 01:28
Kćkur lygara
Rađfréttir af embćttismanni kristins safnađar Fíladelfíu; rađlygara sem reynir eftir getu ađ venja sig af lygaáráttunni og kenna börnum sínum ađ ljúga ekki, rifja upp símtal sem ég átti viđ 6 ára systurson minn fyrir margt löngu.
Tekiđ skal fram ađ ég er fylgjandi ţví ađ bćđi lygarar og sannsöglir kenni börnum sínum ađ ljúga lítiđ sem ekkert. Og ađallega lítiđ.
Ég hringdi í Svandísi systir mína á Akureyri. Systursonur okkar svarađi í símann. Hann sagđist vera í pössun hjá Svandísi ásamt bróđur sínum. Ég spurđi hvort ađ ţeir brćđur vćru ekki stilltir og ţćgir í pössuninni. Stráksi svarađi ađ ţeir vćru ţađ. Nema ađ Svandís vćri ósátt viđ ađ ţeir ćttu ţađ til ađ róla sér á hurđum hjá henni. Ţá yrđi hún alltaf reiđ. Ég sagđi: "Ţiđ verđiđ ađ hćtta ţví." Sá 6 ára svarađi: "Já, ég er ađ reyna ađ venja mig af ţví!"
![]() |
Bađ Sigríđi um upplýsingar um Omos |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
10.10.2014 | 17:46
Áfall Sveinbjargar Birnu
Í Viđskiptablađinu má lesa um andúđ Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur á styrkveitingu sem Jón Gnarr fékk úr friđarsjóđi Lennon Ono. Styrkinn, sex milljónir króna, veitti Jón Kvennaathvarfinu. Sveinbjörg Birna er borgarfulltrúi í Reykjavík (en búsett í Kópavogi). Samkvćmt Viđskiptablađinu furđar Sveinbjörg Birna sig á ađ Jón Gnarr hafi tekiđ viđ styrknum. Sjálf segist Sveinbjörg ekki hefđi gert slíkt.
![]() |
Styrkurinn til friđar á heimilum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.10.2014 kl. 16:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
23.9.2014 | 00:33
Stjörnurnar sem risu upp gegn kynţáttahatri
Langt fram eftir síđustu öld voru gríđarlega miklir kynţáttafordómar, kynţáttahatur og kynţáttamisrétti ríkjandi í Bandaríkjum Norđur-Ameríku. Ástandiđ var svo svakalegt ađ nútímamanneskja, almenningur í dag, á erfitt međ ađ skilja hversu djúpstćtt ţetta var - einkum í Suđurríkjunum.
Tvćr manneskjur áttu stćrstan og róttćkastan ţátt í ađ slá hratt og rćkilega á ţennan viđbjóđslega rasisma. Annarsvegar var ţađ rokksöngvarinn Elvis Presley um miđjan sjötta áratuginn. Hinsvegar leikkonan Marilyn Monroe örlitlu síđar.
Elvis Presley var hvítur söngvari í Memphis, Tennessee. Ţví sem kallast Djúpa-suđriđ. Ţar var kynţáttahatur nomiđ. Elvis var hinsvegar ónćmur fyrir kynţáttahatri. Ţvert á móti ţá hafđi hann dálćti á svertingjablús og bar mikla virđingu fyrir annarri blökkumannatónlist. Til ađ mynda gospell.
Í upphafi ferils stóđ til ađ Elvis myndi gera út á kántrý í bland viđ blökkumannablús. Hann varđ strax fyrir hatursfullum viđbrögđum vegna blökkumannatónlistarinnar. Hann var úthrópađur "negrasleikja" og hótađ ađ vera útilokađur frá markađnum. Ţetta hafđi ţveröfug áhrif á unga uppreisnarmanninn sem sá ekkert nema óréttlćti í ţví kynţáttahatri sem hann mćtti.
Í stađ ţess ađ láta undan hótunum blés hann til sóknar. Hann tilkynnti hljómsveit sinni og umbođsmanni ađ vegna hótana og ofsókna myndi hann breyta dagskrá sinni úr kántrýi yfir í eintóma blökkumannablúsa. Sem hann stóđ viđ. Ţar međ stimplađi hann nýtilkomna rokkbylgju sjötta áratugarins inn sem blökkumannabylgju. Rokkbylgjan fór í hćstu hćđir 1955 - 1958. Presley flaug ţar efst en á hćla hans komu Jerry Lee Lewis, Chuck Berry, Little Richards og Fats Domino. Rokkbylgjan var blökkumannatónlist og engin greinarmunur gerđur á hörundslit rokkaranna. Hörundsdökki Chuck Berry samdi lögin. Hörundsdökki Little Richards sum af ţeim. Og allir sungu sömu lögin. Komu saman fram á hljómleikum og almenningur hćtti ađ greina tónlist, rokkiđ, út frá hörundslit.
Án MM hefđi heimurinn aldrei heyrt af Ellu.
![]() |
Ljósmynd af Marilyn Monroe fyrir 817.000 krónur |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
18.9.2014 | 20:29
Rokkstörnurnar styđja sjálfstćđi Skota
Fjöldi rokkstjarna utan Skotlands hefur lýst opinberlega yfir stuđningi viđ skosku Já-hreyfinguna. Hún leiđir baráttuna fyrir ţví ađ Skotland segi sig formlega úr sambandríkinu Stóra-Bretlandi. Mikiđ er í húfi. Ekki síst fyrir afganginn af Stóra-Bretlandi. Ţađ verđur heilmikiđ tjón fyrir íbúa ţess ađ missa Skotland úr sambandsríkinu. Ađ sama skapi er líklegt ađ sjálfstćđi verđi Skotum til framdráttar.
Međal rokksjarna sem opinberlega styđja Já-hreyfinguna má nefna Björk, Johnny Marr (The Smiths), Matt Bellamin (The Muse) og Billy Bragg. Í ţessum hópi eru líka skoskar stjörnur á borđ viđ Edwin Collins, Alex Kapranos (Franz Ferdinand), Stuart Braithwaite (Mogwai) og liđsmenn Deacon Blue.
Paul McCartney styđur hinsvegar Nei-hreyfinguna, eins og fleiri af eldri kynslóđinni. Til ađ mynda Mick Jagger, David Gilmour (Pink Floyd), Bryan Ferry, Sting, Cliff Richard og David Bowie.
![]() |
Skotar líta til Norđurlanda |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
17.9.2014 | 23:01
Áfengir drykkir eiga ađ vera undanţegnir virđisaukaskatti
Margt er gott í fyrirhuguđum breytingum á virđisaukaskatti. Mestu munar um ađ bođuđ hefur veriđ byltingarkennd einföldun á honum. Í stađ tveggja ţrepa verđa tekin upp tvö ţrep. Flćkjustigiđ á ţví ađ vera međ mishá ţrep kemur einna best fram í áfengum drykkjum. Í blönduđum kokkteilum er hluti blöndunnar í lćgra ţrepi en áfengi hlutinn í hćrra ţrepi. Í öđrum tilfellum borgar viđskiptavinurinn hátt verđ fyrir kaffibolla í lćgra ţrepi. Í kaupbćti fćr hann ókeypis bjór í hálfslítra glasi. Af ţví ađ hann er ekki seldur ţá ber ţađ engan virđisaukaskatt. Ţađ besta er ađ ţađ ţarf ekki einu sinni ađ drekka kaffiđ til ađ njóta ţessara kjara. Ţađ bara stendur og kólnar.
Til ađ losna viđ flćkjustigiđ er einfaldast og best ađ fella niđur virđisaukaskatt á áfenga drykki. Nćst skásti kostur er ađ setja ţađ í lćgra ţrep. Allt annađ er della. Hvort skrefiđ sem verđur stigiđ til einföldunar mun verđa til mikils stuđnings viđ rísandi ferđamannaiđnađi. Ţađ kemur öllum Íslendingum til góđa ţegar upp er stađiđ.

![]() |
Áfengi í lćgra ţrepiđ? |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)