Fćreyskir hljómleikar - frítt inn

  
  Íslenskur almenningur elskar Fćreyinga of fćreyska tónlist.  Íslendingar tengja sig strax viđ Fćreyinga sem brćđur  og systur viđ fyrstu kynni.  Fćreyingar hafa enda ćtíđ veriđ snöggir ađ rétta Íslendingum hjálparhönd á erfiđum tímum.  Ţannig söfnuđu Fćreyingar háum fjárupphćđum til ţeirra sem áttu um sárt ađ binda vegna snjóflóđanna í Súđavík og á Flateyri.  Einnig björguđu Fćreyingar Íslendingum ţegar allt var ađ stöđvast vegna gjaldeyrisskorts í kjölfar bankahrunsins.  Engir vildu lána gjaldţrota Íslandi gjaldeyri.  Hvorki Bandaríkin,  Norđurlönd eđa Rússar ţrátt fyrir ađ Íslendingar kćmu grátbiđjandi á hnjánum.     
 
  Ţrátt fyrir kćrleiksrík samskipti viđ Fćreyinga hafa íslenskir embćttismenn nú hver á fćtur öđrum tekiđ upp á ţví ađ sýna Fćreyingum fádćma hroka.  Fyrst var ţađ Isavia sem dró í meira en heilt ár ađ svara formlegu erindi fćreyska flugfélagsins Atlantic Airwaves um lendingarleyfi á Reykjavíkurflugvelli.  Atlantic Airwaves hafđi árum saman flogiđ til og frá Reykjavíkurflugvelli. Svo keypti flugfélagiđ stćrri flugvél  (144 farţega í stađ innan viđ 100 farţega).  Ţá var eđlilegt ađ óska eftir leyfi fyrir lendingu stćrri flugvélarinnar.  Beiđni ţar um hefđi átt ađ taka einn dag eđa í hćsta lagi nokkra daga.  Ekkert svar barst hinsvegar fyrr en rösku ári síđar.  Í millitíđinni varđ fćreyska flugvélin ađ lenda í Keflavík međ tilheyrandi ferđakostnađi og óhagrćđingu fyrir flugfarţega. Sem var samt ekki máliđ heldur ţessi ókurteisi ađ svara erindinu svona seint.  En samt ekki illa.   Erindinu var vel tekiđ og fćreyska flugfélagiđ Atlantic Airways má lenda á Reykjavíkurflugvelli.
   
   Nćst gerist ţađ ađ forstjóri Ölgerđarinnar Egill Skallagrímsson, Andri Ţór,  skrifar forstjóra Föroyar Bjór afar ósvífiđ,  frekjulegt og dónalegt bréf.  Hótar ţví ađ ef ađ Föroya Bjór Gull verđi ekki umsvifalaust tekinn af markađi ţá muni hann setja Föroya Bjór út af markađi međ ađstođ dómsstóla.
 
  Krafan er kolgeggjuđ og heldur ekki vatni.  Föroya Bjór Gull hefur veriđ á markađi í hálfan fjórđa áratug.  Egils Gull kom ekki á markađ fyrr en nćstum áratug síđar.  Fyrir ţremur árum skráđi hrokagikkurinn hjá Ölgerđinni hinsvegar Egils Gull sem vörumerki.  Sú skráning hefur enga ţyngd vegna hefđaréttar og ađ bjór merktur Gulli hefur langa sögu í skandinavískri skilgreiningu á bjór.  Löng hefđ er fyrir Carlsberg Gulli,  Tuborg Gulli o.s.frv.  Ţađ er ekki hćgt ađ öđlast einkarétt á bjór merktum Gulli fremur en bjór merktum Pilsner,  Stout eđa Lite.   
 
  Ţađ spaugileg viđ aulalega framgöngu Andra Ţórs er ađ sala á Föroya Bjor á Íslandi óx um 1200%. Áđur var fćreyski bjórinn ađeins í 5 vínbúđum á Íslandi.  Í dag er salan svo góđ ađ hann er í öllum vínbúđum.  Forstjóri Ölgerđarinnar er ađhlátursefni hvar sem tveir eđa fleiri koma saman og drekka Föroya Bjór Gull.
 
  Svo var ţađ ţessi rembingur íslenskra embćttismanna gagnvart vélarbiluđum fćreyskum togara,  Nćrabergi.  Framkvćmdarstjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar,  Ásgrímur Ásgrímsson,  uppbelgdist í embćttishroka og meinađi áhöfn fćreyska skipsins ađ taka vistir á Íslandi.  Meinađi áhöfn landgöngu.  Meinađi skipsverjum eldneytiskaup.  Ţađ ríkti neyđarástand um borđ. Íslendingar sem ofbauđ báru hamborgara og gosdrykki til skipsverja.  Ţetta var niđurlćgjandi fyrir alla sem ađ málinu komu.  Sjávarútvegsráđherra hafđi ekki rögg á sér til ađ leysa vandamáliđ fyrr en mörgum dögum síđar ţegar fćreyskur kollegi hans hafđi samband símleiđis. 
 
  Sunnudaginn 14. september heldur fćreyska söngkonan Dorthea Dam hljómleika í Tjarnarbíói.  Hún er frábćr söngkona,  frábćr túlkandi og frábćr söngvahöfundur.   Eiginmađur hennar,  William Silverthorn,  er frábćr söngvahöfundur eins og heyra má í međfylgjandi myndböndum.  Hann semur söngva sína á ensku en Dorthea flytur sína dagskrá jöfnum höndum á fćreysku.   Hljómleikarnir hefjast klukkan 21.00.
 
  Ađgangur er ókeypis.  
   

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er hćttur ađ kaupa bjór og gos frá Ölgerđinni vegna hrokafullrar og ósvífinnar framgöngu forstjórans gagnvart fćreyingum, okkar traustustu og líklega einu vinum í dag. Nú verđur ţađ bara fćreyskur bjór !

Stefán (IP-tala skráđ) 10.9.2014 kl. 08:13

2 Smámynd: Jens Guđ

Stefán, gott hjá ţér.

Jens Guđ, 11.9.2014 kl. 21:59

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.