Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.10.2013 | 22:28
Tónlist skiptir sköpum
Tónlist er manninum nauðsynleg. Tónlist kemur næst á eftir þörfinni fyrir mat og svefn. Tónlistin deilir röðinni með þörfinni fyrir að ávaxta kyn sitt. Tónlistin sefar, linar þjáningar, léttir geð, lyftir andanum, nærir sálina, veitir ómælda gleði, styttir stundir og það sem skiptir mestu máli: Er gott hjálpartæki þegar löngun til að dansa kviknar.
Allar manneskjur hafa unun af tónlist. Margir eru tónlistarfíklar. Tilvera þeirra snýst að meira eða minna leyti um tónlist. Margir iðka tónlist. Spila á hljóðfæri og syngja.
Tónlistariðkun er bráðholl. Hún eflir hæfileika viðkomandi á mörgum sviðum: Ýtir undir skapandi hugsun, samvinnu, hæfni til að hlusta á aðra, taka nýjum hugmyndum fagnandi, deila upplifun með öðrum, taka tillit til annarra, skerpir skilning á gildi fortíðarinnar, njóta augnabliksins og horfa til framtíðar.
Vegna þessa hafa tónlistariðkendur forskot á aðra þegar kemur að öðrum hlutum. Gott dæmi um það er framboð Besta flokksins. Þetta var framboð vinahóps tónlistarmanna. Hann tók önnur framboð í nefið. Kosningabaráttan var snilldin ein. Kosningalag Besta flokksins gerði kosningalög allra annarra framboða - í gegnum söguna - að hallærislegu prumpi. Frambjóðendur Besta flokksins voru á heimavelli og tóku slaginn með óverjandi trompi.
Fremstur í flokki fór bassaleikarinn úr pönksveitinni Nefrennsli, Jón Gnarr. Þegar ég hlustaði á Nefrennsli spila á pönkhljómleikum Útideildar fyrir röskum þremur áratugum þá vissi ég strax að þarna væri á sviði borgarstjóraefni Reykjavíkur. Nei, reyndar ekki. Það blasti ekki við. Ég hugsaði ekkert út í það. Ekki frekar en þegar ég hlustaði á hljómsveitina Ske og þar var hljómborðsleikari, Guðmundur Steingrímsson, sem í dag leiðir Bjarta framtíð. Þingflokk sem nú tekur við kefli Besta flokksins í Reykjavík.
Farsæll miðborgarstjóri Reykjavíkur er stuðmaðurinn, hljómborðsleikarinn og djassgeggjarinn Jakob Magnússon. Forstjóri Höfuðborgarstofu, Einar Bárðarson, er gamalreyndur gítarleikari og lagahöfundur.
Jón Gnarr er ekki eini tónlistarmaðurinn sem hefur orðið borgarstjóri Reykjavíkur. Ólafur F. Magnússon er gítarleikari og söngvari. Birgir Ísleifur er djassgeggjari og píanóleikari. Árni Sigfússon er gítarleikari, lagahöfundur og söngvari. Ingibjörg Sólrún hefur sungið inn á plötu. Davíð Oddsson samdi dægurlagatexta og söng á hljómleikum með Gunnari Þórðarsyni.
Það voru svo tíð borgarstjóraskipti í Reykjavík um tíma að ég man í fljótu bragði ekki hverjir komu þar við sögu. Borgarstjórnarfulltrúinn Oddný Sturludóttir var hljómborðsleikari hinnar ágætu rokksveitar Enzími.
Tónlistarmenn eru í forystu í hinum ýmsu sveitastjórnum um allt land. Söngvari og selló-leikari Todmobile, Eyþór Arnalds, er í Árborg. Matti Matt var í Dalvíkurbyggð. Guðmundur í Sé Ellen og söngvari (ég man ekki nafn hans) sem var í hljómsveit á Laugarvatni og síðar í hljómsveitinni Bumbunum eru í Fjarðarbyggð.
Gott ef Magnús Stefánsson í Upplyftingu og fyrrverandi þingmaður er ekki sveitastjóri í Garði.
Geir Haaarde söng inn á plötu með South River Band.
Menntamálaráðherrann, Illugi Gunnarsson, er píanóleikari og hefur sent frá sér plötu.
Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, er saxafónleikari. George eldri Bush er blúsgeggjari og gítarleikari. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er rokkgítarleikari.
Upptalningin er endalaus.
Fæstir tónlistarmenn eru "bara" tónlistarmenn. Flestir koma víðar við. Margir eru í leiklist. Margir eru listmálarar. Margir fást við ritstörf. Um síðustu aldamót gerðu margir fjölmiðlar upp við tuttugustu öldina. Völdu mann aldarinnar. Eða tónlistarmann aldarinnar. Flestir helstu fjölmiðlar heims enduðu á því að velja á milli Johns Lennons og Bobs Dylans. Jafnan með þeirri niðurstöðu að Lennon hefði vinning. Hljómsveit hans, Bítlarnir, vóg það þungt. Lennon og Dylan voru ekki aðeins tónlistarmenn heldur einni myndlistamenn og rithöfundar.
![]() |
Jón Gnarr hættir í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.10.2013 | 22:09
Mögnuð markaðssetning
Góð markaðssetning er gulls ígildi. Markviss og vel hönnuð auglýsingaherferð skiptir sköpum. Dæmi um slíkt er auglýsingaherferðin "Taktu Pepsi áskorun". Herferðin gekk út á það að þvers og kruss um heiminn var viðskiptavinum matvöruverslana boðið að smakka Pepsi kóla og Kóka kóla blindandi. Síðan átti smakkarinn að gefa upp hvor drykkurinn væri bragðbetri og hvor væri Pepsi og hvor væri Kók.
Þessi herferð stóð í nokkur ár. Afleiðingarnar urðu þær að sala á Pepsi kóla margfaldaðist og raunar líka á Kóka kóla. Síðan hafa kóladrykkir annarra framleiðanda ekki átt möguleika á markaðnum. Fólk er ennþá forritað fyrir því að velja á milli Pepsi og Kóla.
Sælgætisgerðin Góa er ekki þekkt af merkilegri markaðssetningu né vel hönnuðum auglýsingaherferðum. Undan er skilið að forstjórinn, Helgi í Góu, hefur verið duglegur að halda sér í sviðsljósinu og taka þátt í umræðu um lífeyrissjóði og íbúðir aldraðra.
Nú hefur Góa skyndilega og óvænt spilað út stóru trompi fyrir súkkulaðibita sem kallast Hraun. Stofnaður hefur verið hópur sem samanstendur af aðdáendum Hraunbita. Hann kallast Hraunavinir. Fyrir hópnum fara margir landsþekktir menn. Þeir hafa verið duglegir við að vekja athygli á Hrauni. Fara mikinn. Svo mikinn að lögreglan hefur ekki svigrúm til að eltast við skipulagða glæpastarfsemi og kveða hana niður. Lögregluflotinn er upptekinn við að vakta Hraunavini og bera þá á höndum sér fram og til baka um holt og hæðir.
Það gefst alltaf vel að stilla upp í auglýsingaherferð frægum andlitum. Almenningur treystir fræga fólkinu betur en sjálfum sér til að vita hvaða súkkulaði er gott á bragðið.
Þessa dagana er togast á um hvern kassa af Hrauni í sjoppum og matvöruverslunum landsins. Samt er Hraun ekkert gott. Nóa Kropp er miklu betra. Nóa hlýtur að koma með mótleik í stöðunni. Stofna hóp Nóa-Kroppsvina og valta yfir Hraun. Hvaða frægir ætli verði í forsvari fyrir Nóa Kropp? Forsetinn? Björk? John Lennon? Þetta eru spennandi tímar.
![]() |
Engar landbætur vegna Álftanesvegar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
22.10.2013 | 23:43
Líkamlegt ofbeldi er af hinu vonda
Líkamlegt ofbeldi, líkamlegar refsingar, eru af hinu vonda. Þetta hafa bandarískar rannsóknir leitt í ljós. Reyndar er þetta svo augljóst að það á varla að þurfa að ræða það. Hvað þá rannasaka það. Samt eru alltaf einhverjir sem réttlæta líkamlegar refsingar á börnum. Í lok síðustu aldar refsuðu 70 % bandarískra foreldra börnum sínum með flengingum. Í dag er talan komin niður í 57% mæðra og þriðjungur feðra.
Börn, sem er refsað líkamlega, eru 70% líklegri til að þróa með sér þunglyndi á fullorðins árum. Það er svakalega há tala.
Columbia háskólinn í New York var að ljúka við 15 ára rannsókn á flengingum. Í Bandaríkjunum eru líkamlegar refsingar algengari en í Evrópu. Algengasta ofbeldi gagnvart börnum í Bandaríkjunum er flenging. Niðurstaða rannsóknar Columbia háskólans er sú að flengingar draga úr hæfileika barna til að tjá sig með orðum. Þau verða ofbeldisfyllri. Þau eru líklegri til að leysa ágreiningsmál með ofbeldi. Þau skortir hæfileika til að leysa ágreining með orðum og rökum.
Raunar er undarlegt að nokkurt foreldri geti fengið sig til að beita barn ofbeldi. Ofbeldi gagnvart börnum ætti að vera refsivert eins og annað ofbeldi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.10.2013 kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2013 | 23:41
Kynlíf í eða utan hjónabands
Í helgarblaði DV er fróðlegt og áhugavert viðtal við nokkrar íslenskar konur sem eru múslímar. Þær eru giftar og eiginmenn þeirra eru einnig múslímar. Það er allt hið besta mál. Það er gott framtak hjá DV að kynna okkur sem erum ekki múslímar viðhorf þessa fólks á sem flestum sviðum.
Í viðtalinu kemur fram að konurnar voru hreinar meyjar þegar þær gengu í hjónaband. Þær eru ánægðar með það og fullyrða að kynlíf í hjónabandi sé betra (en utan þess). Hvernig vita þær það? Hvernig fá þær samanburð?
![]() |
Loksins gift eftir fjögurra ára trúlofun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
19.10.2013 | 19:41
Broslega heimskir þjófar
Í grófum dráttum skiptast þjófar í tvo flokka. Í öðrum flokknum eru heimskingjar. Þeir sem falla í þann flokk eru þjófar vegna heimsku. Í hinum flokknum eru menn með meðalgreind eða rúmlega það. Þeir eru siðblindir. Þeir hasla sér helst völl á sviði banka eða stjórnmála.
Heimsku þjófarnir eru skemmtilegri. Þeir eru að auki ekki eins stórtækir.
Einn þjófurinn birtist í búðarlúgu á aktu-taktu skyndibitastað í Halifax. Hann krafðist peninganna úr kassanum. Afgreiðslumaðurinn svaraði því til að staðurinn opnaði ekki fyrr en eftir 10 mín. Með þeim orðum taldi afgreiðslumaðurinn sig vera að upplýsa þjófinn um að það væru engir peningar komnir í kassann. Þjófurinn misskildi þetta og sagði: "Ég hinkra þá bara!" Afgreiðslumaðurinn hringdi þegar í stað í lögguna. Hún kom að vörmu spori og handtók þjófinn þar sem hann sat úti á vegarkanti og beið eftir því að skyndibitastaðurinn opnaði.
Annar þjófur ruddist inn í banka í Edinborg og krafðist 5000 punda (um milljón ísl. kr.). Gjaldkerinn þóttist ekki heyra hvað hann sagði, bað hann um að taka af sér grímuna og tala skýrar. Við það komst styggð að þjófnum. Hann hljóp út úr bankanum og inn í að næsta banka skammt frá. Þar var biðröð við gjaldkerastúkuna. Þjófurinn stillti sér upp í röðina sem styttist hægt. Glöggur starfsmaður bankans hringdi á meðan í lögregluna og tilkynnti um mann með grímu. Löggan mætti í skyndi og handtók þjófinn í þann mund sem röðin kom að honum.
Í Sussex á Englandi rölti öldruð veikburða kona með plastpoka. Þjófur hljóp að henni, hrifsaði af henni pokann og hljóp í burtu. Í pokanum var nokkurra daga safn af hundaskít. Gamla konan hefur þann hátt á að hirða samviskusamlega upp eftir hundinn sinn og safna í poka. Þegar pokinn er fullur röltir kella með hann í grenndargám.
Í London lenti bankagjaldkeri í þrefi við vopnaðan þjóf með grímu. Þjófurinn hafði rétt gjaldkeranum plastpoka og miða. Á miðanum voru afskaplega illa skrifuð fyrirmæli sem áttu að vera: "Put the money in the bag" (Settu peningana í pokann). Gjaldkeranum sýndist sem stæði á miðanum "Put the honey in the bog" (Settu hunangið í mýrarfenið). Gjaldkerinn, hrekklaus og hjálpleg eldri kona, benti þeim grímuklædda á að það væri heilsubúð í næsta húsi. Þar gæti hann fengið hunang. Við það "sprakk" ræninginn úr stressi og öskraði: "Hvers vegna ætti ég að vilja hunang?" Við hrópin rumskuðu aðrir starfsmenn bankans og hringdu í lögregluna. Þegar lögreglan sveif inn í bankann með handjárn á lofti voru gjaldkerinn og ræninginn ennþá að þrefa. Gjaldkerinn var í miðju kafi að upplýsa ráðvilltan ræningjann um mýkjandi eiginleika hunangs við hálsbólgu.
![]() |
Stálu í stað þess að bjarga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2013 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2013 | 21:32
Nefnum götur og vegi eftir heimsfrægum Íslendingum
Maður hét Levon Helm. Hann var söngvari og trommuleikari kanadísku hljómsveitarinnar The Band. Annarrar af tveimur fyrstu hljómsveitum til að spila músíkstílahræru sem fengu samheitið americana (ópoppuð amerísk rótarmúsík; blanda af rokki, kántrýi, blús og þjóðlagamúsík). Hin hljómsveitin var Creedence Clearwater Revival.
Levon Helm fæddist í Bandaríkjum Norður-Ameríku en flutti til Kanada á sjötta áratugnum. Um miðjan sjöunda áratuginn tók söngvaskáldið Bob Dylan sér hlé frá kassagítar. Hann fékk Levon og kanadíska félaga hans til að spila með sér rafmagnaða rokkmúsík. Samstarfið varð langt og farsælt.
Undir lok sjöunda áratugarins fóru Levon og félagar að senda frá sér plötur undir hljómsveitarnafninu The Band. Nafnið The Band hafði fram að því verið óformlegt heiti á hljómsveitinni sem spilaði með Bob Dylan.
Fjöldi laga með The Band varð vinsæll og er í dag klassískt rokk. Nægir að nefna lög eins og "The Night They Drow Old Dixie Down" og "The Weight".
Levon Helm dó í fyrra. Síðustu æviárin bjó hann í Woodstock í New York ríki. Yfirvöld þar á bæ hafa nú formlega heiðrað minningu Levons með því að endurnefna þjóðveginn Route 375. Héðan í frá heitir hann Levon Helm Memorial Boulevard. Flott dæmi.
Íslenskir embættismenn ættu að gera eitthvað svona. Nefna götur og vegi eftir heimsfrægustu Íslendingum: Björk, Eivör, Laxness, Sigur Rós, Leoncie...
Til gamans má geta að Levon hét í raun Lavon. Kanadamenn gátu hinsvegar ekki borið það nafn fram rétt. Þeir gátu aðeins borið nafnið fram sem Levon. Til að koma í veg fyrir rugl og til að einfalda málin tók Lavon upp ritháttinn Levon á nafni sínu.
1971 sló bandaríska söngkonan Jóhanna frá Bægisá (Joan Baez) óvænt í gegn með sönglagi Levons og Robba Róbertssonar, The Night They Drove Old Dixie Down. Í flutningi Jóhönnu toppaði lagið vinsældalista þvers og kruss um heiminn. Og fór í 3ja sæti bandaríska vinældalistans.
Ofurvinsældir lagsins í flutningi Jóhönnu kom öllum í opna skjöldu. Líka henni sjálfri. Ennþá meira Levon og félögum í The Band. Þeir móðguðust og tóku vinsældunum illa. Sökuðu Joan Baez um að hafa stolið af sér vinsældum. Fannst sem Jóhann hefði valtað yfir þá. Eftir á að hyggja voru viðbrögð liðsmanna The Band kjánaleg. Þeir sendu lagið frá sér tveimur árum áður. Vegna vinsælda lagsins í flutningi Joan Baez er þetta The Band lagið sem flestir þekkja.
Jóhanna las aldrei texta lagsins skrifaðan heldur lærði hann (frekar illa) þegar hún spilaði lagið með The Band. Sitthvað lærði hún vitlaust. Það lagðist illa í Levon og þá hina í The Band. Þeir voru ekki fyrir svona kæruleysi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.9.2013 kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
18.9.2013 | 20:42
Fólk þarf að bera virðingu fyrir sektum
Hvers vegna gefa íslenskir ökumenn ekki stefnuljós? Hvers vegna tala íslenskir ökumenn á ferð í síma? Hvers vegna leggja "heilbrigðir" í stæði merkt fötluðum? Hvers vegna nota hjólreiðamenn ekki öryggishjálm? Svarið er einfalt: Ástæðan er sú að Íslendingar bera enga virðingu fyrir umferðarlögum um þessi atriði né heldur sektum við því að brjóta þessi lög.
Þekkir þú einhvern sem hefur verið sektaður fyrir að gefa ekki stefnuljós? Ekki ég heldur. Og þó. Fyrir 2 eða 3 árum var auglýst átak fyrir notkun stefnuljósa. Þá vikuna notuðu flestir stefnuljós. Einstaka manneskja var föst í gamla farinu og fékk smá sekt. Sektin var svo lág að það var hlegið að henni. Síðan hefur enginn skipt sér frekar af stefnuljósum.
Oft og tíðum birtast fréttir af rannsóknum sem leiða í ljós að ökumaður á ferð sem talar í síma tapar einbeitingu og athygli í umferðinni á meðan. Reyndar sér maður það ósjaldan í umferðinni. Sömu rannsóknir sýna að það er enginn munur á því hvort að ökumaður talar í handfrjálsan búnað eða heldur sjálfur símanum við eyrað. Handfrjáls búnaður er í raun verri vegna þess að hann veitir falskt öryggi.
Það er kjánalegt að halda í lög um handfrjálsan símabúnað. Það ber enginn virðingu fyrir kjánalegum lögum. Ofan á þennan kjánagang þá er refsilaust að ökumaður tali í talstöð.
Við höfum nýlegt dæmi um frjálsíþróttamann sem leggur jafnan jeppa sínum beint á ská í tvö stæði merkt fötluðum. Útskýring hans er sú að hann vilji frekar borga 5000 króna sekt fyrir það en láta "hurða" bílinn á þrengra stæði. Enda sé bíllinn á einkanúmeri.
Hann er ekki einangraður frekjuhundur. Þetta er algeng afstaða jeppagutta. Sektin fyrir að leggja í stæði merkt fötluðum er svo lág að það er hlegið að henni. Þar fyrir utan eru þessi spjátrungar aldrei sektaðir fyrir að leggja í stæði merkt fötluðum. Þeir fá að komast upp með þetta vegna þess að þeim er vorkunn. Frekja þeirra og ótillitssemi ræðst augljóslega af andlegri fötlun.
![]() |
Fékk ekki að borga sektina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.9.2013 kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
2.9.2013 | 22:39
Sadistar og kynferðislega brenglaðir hafa eyðilagt busavígslur
Það er fyrir löngu síðan tímabært að tekið sé af alvöru á busavígslum. Það er fyrir löngu síðan fullljóst að busavígslur þjóna þeim eina tilgangi að fróa annarlegum hvötum sadista og kynferðislega brenglaðra einstaklinga. Þeir fá "kikk" út úr því að þvinga nýnema undir sitt vald og niðurlægja þá. Fjölmörg dæmi eru þess að busun sé upphaf á einelti.
Það er fyrir löngu síðan tímabært að ofbeldisfull framkoma brenglaðra busunarböðla sé skilgreint eins og annað ofbeldi. Og tekið á því eins og öðru ofbeldi. Ofbeldi varðar við lög. Sama á við um einelti. Það verður að fara að taka á því eins og hverju öðru ofbeldi og ofsóknum sem varða við lög.
Ég kann ekki sögu og þróun busavígslna. En ég þykist viss um að þær hafi verið saklaus leikur framan af. Ég man eftir busavígslum þar sem nýnemar voru "tolleraðir" (hent þrisvar upp í loftið). Það var ósköp saklaust. Ég man líka eftir busavígslum þar sem nýnemar voru látnir krjúpa fyrir framan fulltrúa eldri nema og fara með tiltekinn texta. Textinn gekk út á að businn lýsti sér sem vesalingi og lofaði að sýna eldri nemendum virðingu. Ósköp saklaust en kjánalegt. Það er eiginlega allt kjánalegt við busavígslur.
Þegar ég hóf nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands fyrir næstum fjórum áratugum voru við busarnir leiddir - með bundið fyrir augun - einhverjar krókaleiðir og látnir smakka á einhverjum ógeðsdrykkjum. Ég vissi aldrei hvað var í þessum drykkjum. Það var þó að minnsta kosti lýsi. Þetta var bara kjánalegt.
Næsta ár á eftir sameinuðumst við bekkjarsystkinin um að leggja af þessar aulalegu busavígslur. Þess í stað buðum við busa velkomna með glæsilegu kaffihlaðborði. Sá siður festist í sessi í skólanum (minnir mig) öllum til gleði og ánægju.
Ég veit ekki hvenær sadistar og kynferðislega brenglaðir komust upp með að gera busavígslur að sínum degi. Degi þar sem þeir fengu átölulaust að níðast á öðrum. Sennilega misjafnt eftir skólum. En það verður að taka í taumana og stöðva þetta ofbeldi.
Það verður líka að fara að taka af alvöru á (líkamlega) ófötluðum sem leggja undir sig bílastæði fatlaðra.
![]() |
Busavígslum hætt vegna ofbeldis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.7.2013 | 22:09
Aðförin að Ólafi F. Magnússyni
Ólafur F. Magnússon hefur aldrei farið leynt með veikindi sín. Hann hefur tjáð sig af hreinskilni um þau í fjölmiðlum og ekkert dregið undan. Veikindi hans eru ekki stöðug. Þau eru sveiflukennd. Hann hefur náð heilsu og er alveg meðvitaður um ástandið. Meðvitaðri en margur annar undir þessum kringumstæðum vegna þess að hann er læknir og hefur læknisfræðilega þekkingu á sjúkdómnum.
Ég átti töluverð samskipti við Ólaf þegar hann var borgarstjóri og eftir það. Hann var við góða heilsu á því tímabili. Hann er vel gefinn, léttur og skemmtilegur í umgengni, með góðan tónlistarsmekk og hugsjónarmaður sem gefur engan afslátt á sínum hugsjónum. Hann er baráttumaður fyrir þeim. Hann er einlægur og fylginn sér í baráttu fyrir umhverfisvernd, verndun eldri húsa og því að flugvöllurinn sé áfram í Vatnsmýri.
Þessi lýsing á honum þýðir ekki að ég sé sammála honum um alla hluti. En sammála honum um marga hluti, svo sem flugvöllinn. Mér þykir vænt um hlý orð hans og góð í garð Ásatrúarfélagsins. Ég er í Ásatrúarfélaginu.
Að þessu sögðu vil ég fullyrða að lýsing Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur í tímaritinu Nýju lífi á heilsu Ólafs sé röng. Ólafur F. Magnússon var ekki veikur á því tímabili sem þau fóru saman með stjórn Reykjavíkurborgar. Alls ekki. Hann var við góða heilsu. Hann var góður borgarstjóri. Agaður og fastur fyrir. Hann leið ekki spillingu eða bruðl. Sem dæmi get ég tiltekið að iðulega nota borgarfulltrúar hvert tækifæri sem gefst til utanlandsferða á kostnað borgarbúa. Ólafur sat í borgarstjórn í áratugi og fór aðeins einu sinni til útlanda. Það var til Færeyja í boði þarlendra stjórnvalda.
Það felast miklir fordómar í garð fólks með geðhvörf að heimfæra sjúkdóminn yfir á allt í þeirra tilveru, líka þegar heilsa þess er í lagi og þú ert ósammála skoðunum þess. Ólafur F. Magnússon var heilbrigðastur allra sem sátu samtímis honum í borgarstjórn. Hann var sá eini sem gat lagt fram heilbrigðisvottorð.
![]() |
Misnotuðu veikindi Ólafs F. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.8.2018 kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
3.7.2013 | 23:31
Íhaldssamur kennari með einfaldan smekk
Það er kúnst að vera kennari. Eða öllu heldur er það kúnst að vera góður kennari. Hvað er góður kennari? Svar: Sá sem laðar fram það besta hjá nemendum og - það sem skiptir jafnvel meira máli: lætur þeim líða vel í skólanum. Ákjósanlegasta staðan er þegar nemendur hlakka til að mæta í skólann.
Kennarinn er fyrirmynd. Afstaða hans til námsefnisins hefur mótandi áhrif á nemendur. Framkoma hans, talsmáti og jafnvel klæðaburður verður nemendum til eftirbreytni.
Skólamyndir af kennara - sem nú hefur sest á helgan stein - í Dallas í Texas hafa vakið athygli. Í 40 ár hefur hann haldið sig staðfastur við nokkurn veginn sama stíl: Hárgreiðslu, gleraugu, yfirvararskegg, skyrtu með stórum flaksandi kraga og brúna vestispeysu. Að vísu skóf hann af sér yfirvararskeggið 1975. En skeggið kom aftur sterkt til leiks 1976.
![]() |
Límdi fyrir munn sjö ára stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |