Fćrsluflokkur: Tónlist
23.2.2008 | 18:32
Lay Low heldur toppsćtinu
Platan Ökutímar međ söngkonunni Lay Low er söluhćsta platan á Íslandi í dag, ađra vikuna í röđ. Platan inniheldur tónlistina úr samnefndu leikriti sem naut gríđarlegra vinsćlda í uppfćrslu Leikfélags Akureyrar í vetur. Leikritiđ verđur sett upp í Reykjavík nćsta haust.
Mig minnir ađ ég hafi áđur nefnt ađ á plötuumslaginu stendur: "Ágóđahlutur Lay Low af sölu ţessa geisladisks rennur til Aflsins á Akureyri. www.aflid.muna.is."
Afliđ er systursamtök Stígamóta á Norđurlandi. Ţegar ţiđ kaupiđ ţennan disk eruđ ţiđ ekki einungis ađ eignast áheyrilega plötu heldur einnig ađ styrkja góđan málstađ.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
23.2.2008 | 04:01
Aldeilis furđulegt lag - hulunni svipt af
Í dag er síđasti dagur ţorra, svokallađur Ţorraţrćll. Af ţví tilefni hef ég sett í tónspilarann gamalt lag sem ég gerđi viđ kvćđi Kristjáns Jónssonar, Ţorraţrćl (Nú er frost á Fróni...). Kristján ţessi gegndi einnig nafninu Kristján Fjallaskáld.
Ţetta lag hljóđritađi ég í galsa á tíunda áratug síđustu aldar. Líklega 1997 fremur en 1998. Ég sendi upptökuna til rásar 2 og ţar var hún spiluđ grimmt, samkvćmt STEF-gjöldum. Af ţví ađ ég var dómharđur plötugagnrýnandi á ţessum árum, kominn á fimmtugsaldur og lagiđ furđulegt ţá skráđi ég flytjanda lagsins Gleđisveitina Alsćlu ţó ađ ég vćri bara einn ađ verki. Umrćđa um E-pilluna bar hátt og sumum ţótti nafn flytjandans orka tvímćlis. Til ađ mynda var heill ţáttur á rás 2, Ţjóđarsálin, lagđur undir hugleiđingu um ţađ hversu óheppilegt vćri ađ kalla hljómsveit Alsćlu. Eđa réttara sagt fordćmingu á ţví uppátćki.
Sérstaklega fyndiđ ţótti mér ţegar lagiđ var kynnt í útvarpi ţannig ađ talađ var um strákana í Alsćlu.
1999 kom lagiđ út á safnplötunni Rock for the Cold Seas. Plötu sem innihélt lög frá Íslandi, Fćreyjum, Grćnlandi og Samalandi. Hún seldist í 20 ţúsund eintökum og lagiđ náđi 6. sćti grćnlenska vinsćldalistans og fékk einnig góđa spilun í fćreyska ríkisútvarpinu. Í kjölfariđ var mér í tvígang bođiđ ađ fara í hljómleikaferđ til Grćnlands. Ţar tók ég međ mér til undirleiks dauđapönksveitina Gyllinćđ og Bjarna heitinn Móhíkana úr pönksveitinni Sjálfsfróun. Ţćr hljómleikaferđir urđu ansi skrautlegar vegna ţess ađ töluvert varđ um slagsmál og ađrar óvćntar uppákomur.
Magnús Geir Guđmundsson gerđi ţeim ćvintýrum góđ skil í dagblađinu Tímanum ásamt grćnlenskum, fćreyskum, dönskum og kanadískum fjölmiđlum.
Einnig fékk ég bođ um ađ spila á skoskri tónlistarhátíđ út á Ţorraţrćlinn. Ţangađ fór ég bara einn en afgreiddi máliđ vel bara međ kassagítar. Kynntist í leiđinni syni söngvara Nazareth og náunga sem síđar sló í gegn sem léttpoppari á breska vinsćldalistanum. Ég man ekki nafn hans. Enda var vinsćla lagiđ hans leiđinlegt.
Ţessar góđu viđtökur Ţorraţrćlsins míns komu mér verulega á óvart. Af minni hálfu var ţetta sprell og viđlagiđ er afskaplega kjánalegt. Ég syng ţađ reyndar ţokkalega vel. En textinn er út í hött. Ljóđiđ um ţorrann fjallar eđlilega um ţađ tímabil ársins. Ţess vegna er út í hött ađ í viđlagi segi:
Ó, ţađ er löng löng biđ,
frá maí til desember.
Ég finn engan friđ
fyrr en í september.
Algjört hnođ og bara bull. Lagiđ er neđarlega í tónspilaranum mínum. Ég vil taka fram ađ í ţessu lagi er ég ekki ađ reyna ađ rappa. Ţetta er ţulusöngur. Hinsvegar fékk sjónvarpiđ snillingana Erp Blazrocka og Sesar A til ađ flytja ţetta lag á degi íslenskrar tungu 1998. Ţá hafđi sjónvarpiđ reynt - án árangurs - ađ finna Gleđisveitina Alsćlu til ađ flytja ţetta lag í sjónvarpssal. Erpur og Sesar A eru vinir mínir og vissu allt um feluleik minn međ Alsćlu. Ţeir afgreiddu dćmiđ međ stćl, eins og ţeirra var von og vísa og ţóttust ekkert vita um Alsćlu.
Daginn eftir gerđi Spaugstofan sína útgáfu af Ţorraţrćlnum mínum. Síđan hefur mér veriđ hlýtt til Spaugstofunnar. Núna er langt um liđiđ og allt í lagi ađ afhjúpa allt um Gleđisveitina Alsćlu og Ţorraţrćlinn. Ég er ennţá ađ fá ţokkaleg STEF-gjöld fyrir ţetta lag og ađallega fyrir spilun á ţví í útlöndum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
20.2.2008 | 01:27
Plötuumsögn
Flytjandi: Ylfa Lind
Titill: Petit Cadeau
Einkunn: **** (af fimm)
Fyrst verđ ég ađ nefna netta andúđ mína á ţví sem Idol-söngvarakeppni stendur fyrir. Ég ćtla ekki ađ fara náiđ út í ţađ. Flest sem ađ lýtur ađ Idol er fjarri flestu sem ég sćkist eftir í músík. Fyrir nokkrum dögum rćddum viđ Stefán bróđir minn um fordóma. Svo virđist sem engin manneskja sé saklaus af fordómum. Stefán vísađi á ađ ég sé međ mikla fordóma gagnvart léttri poppmúsík. Mér er ljúft ađ gangast viđ ţví. Ég er öfgakall í andúđ á léttri iđnađarkenndri poppmúsík.
Ađ óreyndu hefđi ég ekki trúađ upp á mig ađ kaupa plötu međ Idol-söngvara. Ţađ gerđi ég ţó á dögunum ţegar ég fjárfesti í Petit Cadeau međ Ylfu Lind.
Ástćđan fyrir ţví ađ ég keypti ţessa plötu er tvíţćtt: Annars vegar hef ég heyrt á rás 2 lög af ţessari plötu og kunnađ vel ađ meta. Hinsvegar ađ Ylfa Lind hefur tekiđ ţátt í umrćđu á blogginu mínu og haft ţar margt áhugavert fram ađ fćra.
Ţegar ég var kominn međ plötuna í hendur uppgötvađi ég ađ ég á öll lögin á plötunni í frumútgáfum höfunda ađ undanskildu Vaki, vaki vinur minn eftir Loft Guđmundsson.
Ylfa Lind náđi á sínum tíma inn í einhver af efstu sćtum Idols. Ég fylgdist ekki náiđ međ framvindu mála. En giska á ađ hún hafi veriđ í u.ţ.b. 4. sćti. En ég man ekki og veit ekki hverjir urđu sigurvegarar í Idol ţađ áriđ. Enda skiptir ţađ ekki máli.
Ylfa Lind er góđ söngkona og fínn túlkandi. Hún er međ hörkufínt band međ sér: Bigga Baldurs á trommur. Hann er bara gćđastimpill; Eđvarđ Lárusson á gítar. Hann er annar gćđastimpill; Og Jakob Smára Magnússon á bassa. Enn einn gćđastimpillinn.
Ţađ getur fátt fariđ úrskeiđis ţegar ţessir snillingar eru á ferđ. Mér heyrist sem upptaka sé meira og minna "live" í hljóđveri.
Upphafslag plötunnar er As Tears Go By eftir Rolling Stones. Ylfa Lind "raular" ţađ virkilega vel og andi Cowboy Junkies svífur yfir vötnum.
Annađ lag plötunnar er Bítlalagiđ Don´t Let Me Down. Ţađ er eitt af mínum uppáhalds Bítlalögum. Lágstemmdur en samt áleitinn blús sem John Lennon öskrađi listavel. Ţarna rćđst Ylfa Lind á háan garđ. Ég sakna ţess ađ heyra ekki bregđa fyrir öskursöngstílnum sem er svo heillandi í flutningi Bítlanna. Samt afgreiđir Ylfa Lind ţetta vel. Fyrir minn smekk hefđi hún mátt gefa betur í, ţenja sig ennţá betur en hún gerir undir lok lagsins.
Ţriđja lagiđ er Glorybox eftir Portishead. Hljómsveitin gefur vel í og líka Ylfa Lind í söngnum. Eitt besta lag plötunnar. Ég hefđi kosiđ ađ heyra meira af svona hávađalátum á plötunni. Ţađ jađrar jafnvel viđ öskursöng hjá Ylfu Lind. Endirinn á laginu er flott keyrsla.
Fjórđa lagiđ er Where The Wild Roses Grow eftir Nick Cave. Andrea Gylfadóttir hleypur undir bagga. Bara glćsileg afgreiđsla.
Fimmta lagiđ er Pain´t It Black eftir Rolling Stones. Lágstemmd útfćrsla sem hćfir heildarsvip plötunnar.
Sjötta lagiđ er Touch Me eftir The Doors. Stemmning The Doors fćr ađ halda sér.
Sjöunda lagiđ er White Room eftir The Cream. Ţarna eru smá lćti, blús og rífandi gítarsóló. En samt frekar mild afgreiđsla nema í niđurlagi. Ég held ađ mig misminni ekki ađ á unglingsárum hafi ég sungiđ White Room međ hljómsveitinni Frostmarki. Ađ minnsta kosti vorum viđ Viđar Júlí Ingólfsson, trommusnillingur, međ einhver Cream-lög á "prógrammi" hljómsveitarinnar.
Áttunda lagiđ er Three Little Birds eftir Bob Marley. Yndislega fallegt lag flutt af einlćgni og fegurđ lagsins fćr ađ njóta sín án ţess ađ gengiđ sé inn í reggí-taktinn af fullum ţunga. Fyrir minn smekk er ţetta flottasta lag plötunnar. Ţarna fer Ylfa Lind í soul-gír og lifir sig betur inn í lagiđ en í öđrum lögum. Nćr algjörlega ađ gera ţetta ađ sínu lagi. Ég stend mig ađ ţví ađ setja ţetta lag á "endurspilun". Aldeilis mögnuđ útgáfa. Ég á ţetta lag í flutningi margra. Ţetta er ein besta útfćrslan. Jakob Smári fer á kostum í humátt ađ "dub" bassaleik. Snilld.
Níunda lagiđ er Hard Rain Is Gonna Fall eftir Bob Dylan. Ţađ er ekki allra ađ taka ţetta magnađa Bob Dylan lag. Nýveriđ klúđrađi Brian Ferry ţví međ ţví ađ keyra ţađ áfram í of hröđum takti. Ylfa Lind nćr hinsvegar réttu "tempói" međ ţví ađ fanga stemmninguna, galdurinn viđ ađ byggja upp stígandann. Enn og aftur fer Jakob Smári á kostum. Hann hefur einstaklega góđa "tímasetningu" (timing) á ţví ađ hlađa undir framvindu lagsins.
Lokalagiđ er Vaki, vaki vinur minn eftir Loft Guđmundsson. Ég ţekki ţetta lag ekki. Ţađ er fallegt og framkallar söknuđ gagnvart ţví ađ fleiri lög á plötunni séu ekki sungin á íslensku. Sömuleiđis söknuđ gagnvart ţví ađ platan inniheldur ekkert frumsamiđ lag. Eftir stendur ađ öll platan er góđ. Vel sungin og vel flutt lög í alla stađi.
Ég gef ţessari plötu mín bestu međmćli. Ţetta er klárlega besta plata sem Idol-söngvari hefur sent frá sér. Reyndar hvet ég ykkur til ađ sniđganga (nćstum) allar ađrar Idol-plötur. En ţessi plata er virkilega áheyrileg.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
14.2.2008 | 19:37
Lay Low á toppnum
Fyrir viku síđan spáđi ég ţví ađ platan Ökutímar međ söngkonunni Lay Low myndi ná toppsćtinu í ţessari viku. Ţetta hefur gengiđ eftir. Ökutímar er söluhćsta platan á Íslandi í dag. Ţađ er sérstakt fagnađarefni. Ekki ađeins er platan hin áheyrilegasta, eins og Lay Low er von og vísa, heldur rennur allur ágóđahlutur Lay Low af sölu plötunnar óskiptur til Aflsins, systursamtaka Stígamóta á Norđurlandi.
Ţess vegna hvet ég alla ţá sem eiga eftir ađ kaupa ţessa plötu til ađ draga ţađ ekki lengur. Best er ađ kaupa nokkur eintök og gefa ţau í afmćlisgjafir og stinga ţeim međ í fermingarpakkana. Međ ţví er vakin athygli á ţarfri starfsemi Aflsins og stutt viđ bakiđ á fjársveltum samtökum. Um leiđ er vakin athygli á höfđinglegu framtaki Lay Low. Ţađ getur orđiđ öđrum hvatning til ađ styđja Afliđ. Og viđtakandi getur hlustađ á fína plötu.
Tónlist | Breytt 15.2.2008 kl. 02:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (23)
13.2.2008 | 20:03
Ódýrasti skemmtikraftur landsins
Ég reyni eftir fremsta megni ađ missa ekki af útvarpsţćtti Sverris Stormskers og Halldórs Einarssonar á Útvarpi Sögu. Hann er á dagskrá á milli klukkan 16:00 til 18:00 á miđvikudögum. Ţeir félagarnir eru bráđfyndnir og eiga létt međ ađ koma viđmćlendum sínum í góđan gír. Í dag rćddu ţeir viđ Gurrí Har og Árna Johnsen. Ţau eru reyndar jafnan í góđa gírnum og voru ţađ einnig í spjallinu í dag.
Í spjallinu viđ Árna kom fram ađ hann hefur í áranna rás komiđ um 3000 sinnum fram sem skemmtikraftur. Ţađ kom mér ekki á óvart ţví ađ ég hef sennilega séđ hann syngja og spila á Ţjóđhátíđ í Eyjum, Fćreyskum dögum í Ólafsvík og víđar ađ minnsta kosti 5 - 10 sinnum. En ţađ sem kom mér á óvart er ađ Árni tekur aldrei krónu fyrir ađ skemmta međ leik og söng. Ef um mikinn útlagđan kostnađ er ađ rćđa ţá lćtur Árni skemmtanahaldarann afgreiđa hann. En sjálfur rukkar Árni ekki neitt fyrir sitt framlag.
Ţetta eru góđar fréttir fyrir blanka skemmtanahaldara. Fólk er ađ nurla saman 200 ţúsund kalli fyrir hinn og ţennan söngvarann til ađ syngja viđ brúđkaup, jarđarfarir eđa í fermingarveislum. En svo er hćgt ađ fá Árna Johnsen syngja alveg ókeypis um Ţykkvabćjarkartöflur og Gölla Valdason.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
10.2.2008 | 15:57
Söluhćstu tónlistarmenn sögunnar
Ţessi listi er sóttur í smiđju Samtaka bandarískra hljómplötuútgefenda og mćlir ţess vegna einungis plötusölu í Bandaríkjunum. En bandaríski plötumarkađurinn er sá stćrsti í heimi ásamt ţví ađ hafa mikil áhrif á heimsmarkađinn. Fjölmiđlar vítt og breitt um heim fylgjast međ bandaríska músíkiđnađinum, birta bandaríska vinsćldalista og fréttir.
Listinn speglar upp ađ einhverju marki hlutföll í heimssölu. Á heimsmarkađi hefur selst röskur milljarđur af plötum međ Bítlunum. Á heimsmarkađi er Presley nćst söluhćstur. Vinsćldir kántrý-boltans Garths Brooks eru hinsvegar bundnar viđ bandaríska markađinn.
Ţannig lítur listinn út. Talan fyrir aftan nöfnin stendur fyrir milljónir eintaka.
1 Bítlarnir 170
2 Garth Brooks 128
3 Elvis Presley 118,5
4 Led Zeppelin 111,5
5 Eagles 98
6 Billy Joel 79,5
7 Pink Floyd 74,5
8 Barbra Streisand 71
9 Elton John 69,5
10 AC/DC 69
11 George Strait 67
12 Aerosmith 66,5
13 Rolling Stones 66
14 Bruce Springsteen 63,5
15 Madonna 63
16 Mariah Carey 61,5
17 Michael Jackson 60,5
18 Metallica 57
19 Van Halen 56,5
20 Whitney Houston 54
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
5.2.2008 | 13:22
Íslensk hljómsveit komin í lokaúrslit í alţjóđlegri lagakeppni
Fyrir nokkrum dögum sagđi ég frá ţví ađ íslenska hljómsveitin Soundspell vćri komin í undanúrslit lagakeppninnar International Songwriting Competition í Bandaríkjunum (http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/428416). Soundspell hefur vegnađ heldur betur vel í keppninni ţví ađ núna eru hljómsveitin komin í lokaúrslit (13 finalists) međ lagiđ Pound http://www.songwritingcompetition.com/ , en ţeir voru einnig međ lagiđ Her Favourite Colour Is Blue sem "semifinalists".
http://www.songwritingcompetition.com/winners.htm
Hver og einn getur kosiđ DAGLEGA um lögin á ofangreindri netsíđu út ţennan mánuđ.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
4.2.2008 | 22:50
Fćreysk hljómsveit slćr í gegn í Danmörku
Undanfarnar vikur hefur ţátttaka og velgengni fćreysku pönksveitarinnar The Dreams í dönsku söngvakeppninni Melodi Grand Prix vakiđ mikla athygli í Danmörku. Sömuleiđis hafa Fćreyingar fylgst vel međ sínum mönnum. The Dreams komst áfram í öllum ţrepum keppninnar og endađi í lokakeppninni núna í fyrrakvöld.
Ţar var ţađ danskur súkkulađistrákur sem sigrađi. Strákarnir í The Dreams eru síđur en svo ósáttir. Vegna ţátttöku ţeirra í keppninni hafa danskir fjölmiđlar slegist um viđtöl viđ ţá, lag ţeirra "La' mig vćre"hefur fengiđ góđa útvarpsspilun og einnig veriđ spilađ á sjónvarpsstöđinni DR1. Sem dćmi um árangurinn ţá er The Dreams ţegar bókuđ á 15 danskar tónlistarhátíđir í sumar. Ţađ er meira en nokkur vinsćl dönsk hljómsveit getur státađ af.
Ég veit ekki hvernig stađiđ er ađ vali á sigurvegara í Melodi Grand Prix. Ég hef grun um ađ sérstök dómnefnd hafi mikiđ vćgi í niđurstöđunni. Samkvćmt umsögn fjölmiđla náđi The Dreams upp lang bestu stemmningunni á úrslitakvöldinu. Tryllti lýđinn, eins og sagt er. Í skođanakönnun á heimasíđu keppninnar veđja lang flestir - af ţeim sem taka afstöđu - á sigur The Dreams.
Ţađ er ekki alltaf vont fyrir alla Fćreyinga ađ tilheyra danska markađnum - ţó ađ ég sé hlynntur "200% loysing".
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
29.1.2008 | 23:00
Hann á afmćli í dag - kannski
Margir héldu upp á afmćli bandaríska blúsistans Leadbellys í dag. Međal annars gerđi Guđni Már Henningsson meistaranum góđ skil á rás 2 í dag. Hlustendum greinilega til ánćgju. Unga fólkiđ er ađ uppgötva Leadbelly. Enda nauđsynlegt ađ ţekkja hans framlag til rokksögunnar. Já, og blússögunnar eđa bara dćgurlagasögunnar.
Fćđingardagur Leadbellys er reyndar á hreinu. Samkvćmt sumum heimildum fćddist hann 20. janúar 1889. Ađrir heimildir gefa upp 23. janúar 1888. Enn ađrar 29. janúar 1885. Nákvćmur fćđingardagur hans verđur áfram á reiki.
Leadbelly var kvensamur skapofsamađur. Ósjaldan lenti hann í illvígum slagsmálum og sat oftar en einu sinni fangelsi fyrir morđ. Hann var samanrekinn kraftaköggull og illvígur. Dróg jafnvel upp hníf ţegar kom til ágreinings.
Leadbelly náđi góđum tökum á 12 strengja gítar. Spilađi á hann ţannig ađ hljómađi eins og tveir gítarleikarar vćru ađ verki. Leadbelly er enn í dag kallađur "konungur 12 strengjanna". Hann lést 1949.
Leadbelly var/er einn af bestu söngvahöfundum Bandaríkjanna og hefur veriđ "coverađur" af mörgum helstu poppstjörnum heims. Dćmi:
Cotton Fields = The Beach Boys, Creedence Clearwater Revival, Árni Johnsen (Kartöflugarđarnir), Lúdó & Stefán.
Goodnight Irene = Jerry Lee Lewis, Brian Wilson, Van Morrison, Brian Ferry, Tom Waits, The Weavers, Michelle Shocked, Siggi Björns, Haukur Morthens...
Rock Island Line = Johnny Cash, Lonnie Donegan, Little Richard, Bubbi Morthens...
Alberta = Eric Clapton
Midnight Specials = Creedence Clearwater Revival, Van Morrison, ABBA...
When Did You Sleep Last Night / In the Pines = Nirvana (Nirvana "coveruđu" 3 önnur lög eftir Leadbelly. Skömmu fyrir sjálfsvíg sitt sagđist Kurt Cobain ćtla ađ hćtta hljómsveitarspili og gerast nútíma Leadbelly. Hvađ svo sem ţađ átti ađ vera), Mark Lanegan...
Pick A Bale of Cotton = ABBA, Bubbi...
Burgeose Blues = The Rolling Stones (ţeir kalla lagiđ When the Wips Come Down), Bubbi...
Gallis Pole = Led Zepplin (stafsettu ţađ Gallows Pole á LZ III)
Black Betty = Tom Jones, The Ram Jam...
Ég gćti haldiđ áfram langri upptalningu međ Ry Cooder, Greatful Dead, The Doors, Nick Cave...
Til gamans má geta ađ The White Stripe, The Hole og Siggi Lee Lewis enda jafnan hljómleika sína međ Leadbelly lögum.
Ummćli:
- Ţetta byrjađi allt međ Leadbelly. Janis Joplin
- Allt umlykjandi voru söngvarar eins og Leadbelly sem blönduđu saman allrahanda músíkstílum. Roy Orbinson
- Leadbelly var ekki einn af ahrifavöldunum. Hann var áhrifavaldurinn. Án hans vćri ég ekki ţađ sem ég er. Van Morrison
- Fyrirmyndin er Leadbelly. Curt Cobain
- Hann (Leadbelly) var einn helsti drifkraftur minn á ćskuárum. Robert Plant
Tónlist | Breytt 3.2.2008 kl. 23:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
Íslenska hljómsveitin Soundspell er komin í undanúrslit í alţjóđlegri lagakeppni í Nashville í Bandaríkjunum, einni ţeirri stćrstu í heiminum. Keppnin heitir International Songwriting Contest. Ţađ segir nokkuđ um stćrđ keppninnar ađ međal dómara eru ţungavigtarmenn á borđ viđ Jerry Lee Lewis, Tom Waits, Robert Smith, forsprakka The Cure, og Frank Black, framvörđ The Pixies.
Ţađ er lagiđ Pound sem hefur fleytt Soundspell ţetta langt. Lagiđ er af jómfrúarplötu Soundspell, An Ode to the Umbrella, sem kom út í fyrra. Tilkynnt verđur um úrslitalögin 4. febrúar.
Sigurvegarinn fćr nćstum tveggja milljón króna verđlaun. Athyglin sem fylgir sigrinum er sennilega miklu verđmćtari. Og jafnvel bara ţađ ađ koma lagi í undanúrslit og vita af Jerry Lee Lewis og Tom Waits hlusta á lagiđ er sigur.
Hér er umsögn mín um plötuna An Ode to the Umbrella: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/312228
Hér má heyra nokkur lög međ Soundspell:
http://www.myspace.com/spellthesound
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (20)