Hlustið á nýtt og óútgefið snilldar lag með Jóhönnu Seljan í tónspilaranum

  Ég var að setja lagið Ætlarðu að hringja á morgun?  með söngkonunni Jóhönnu Seljan í tónspilarann hér á síðunni.  Það hefur ekki verið gefið út ennþá.  En fulltrúar plötufyrirtækjanna eiga eftir að togast á um að fá þetta lag á safnplötu í kjölfar þess að hlusta á það hér.  Einnig munu dagskrárgerðarmenn útvarpsstöðva einhenda sér í að verða fyrstir til að kynna lagið í sínum þáttum.

  Lagið er út af fyrir sig ekki nýtt.  Það er hátt í hálfrar aldar gamalt.  Tröllreið fyrst vinsældalistum í flutningi stúlknasönghópsins The Shirelles og hefur síðan verið endurunnið af ótöldum fjölda stórstjarna.  Oft með góðum árangri.  Í fljótu bragði man ég eftir laginu í flutningi Bryans FerrysRobertu Flack,  MelanieAmy Winehouse,  Joe WalshLindu Ronstadt,  Smokey Robinson og Joni Michelle.

  Höfundar lagsins eru Gerry Goffin og Carole King.  Þegar ég skellti laginu í flutningi Jóhönnu Seljan undir geislann varð mér á að hugsa:  "Nei,  sko.  Stelpan að heiðra Phil Spector."  Það er svo sterkur Phil Spector keimur af laginu.  En mér tókst að átta mig á höfundum þess áður en ég skrifaði þessa færslu.

  Jóhönnu Seljan þekki ég ekki.  En ég þekki Þórodd Seljan föður hennar,  skólastjóra á Reyðarfirði síðast þegar ég vissi.  Sömuleiðis þekki ég afa hennar og ömmu.  Ömmunni kenndi ég skrautskrift fyrir mörgum árum.  Afinn,  Helgi Seljan,  er formaður bindindisfélagsins IOGT.  Hann var alþingismaður til margra ára og síðar framkvæmdarstjóri Öryrkjabandalagsins.  Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan,  sem tók við mig Kastljóssviðtalið umtalaða,  og Jóhanna eru bræðrabörn.

  Allt saman svo mikið úrvalsfólk að það er mér heiður að fá að frumflytja og kynna til leiks þetta lag með Jóhönnu Seljan hér í tónspilaranum mínum.  Ég veit fátt meira um þetta lag og þennan flutning annað en að trommari 200.000 naglbíta slær taktinn. 

  Gaman væri að heyra viðbrögð/skoðun ykkar á flutningi Jóhönnu á þessu lagi.

  Athugið að það þarf að "skrolla" niður tónspilarann til að finna lagið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst þetta ekki sérlega skemmtilegt, vel sungið svo sem en þessi popp útsetning með tölvutrommum er leiðinleg, sem og textinn. Líkaði betur við shirelles útgáfuna með klassísku óldís sándi og alvöru "sál" = http://www.youtube.com/watch?v=LmWRjjpBlWw

Ari (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 00:09

2 identicon

Hvernig ertu af flensunni, Jens minn!

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 00:22

3 Smámynd: Jens Guð

  Þrátt fyrir tölvukeim af trommuleiknum (vegna þessa "kling" tóns í stað hæ-hatts) þá er trommuleikurinn "orginal"/ekta.

Jens Guð, 5.3.2008 kl. 00:26

4 Smámynd: Jens Guð

  Guðmundur minn,  ég er farinn að sakna þess hvað langt er síðan ég hef fengið almennilega flensu.  En vonandi styttist í næstu flensu.  Þar fyrir utan,  jú,  í fullri hreinskilni þá er mér eðlilægara að sækja í pönk og harðkjarna I Adapt og Forgarðs helvítis en léttpopp af þessu tagi.  En samt. Verður maður ekki stundum að láta reyna á fordómaleysi?  Jóhanna Seljan gerir þetta vel.  Hún er góð söngkona,  lagið er gott,  íslenski textinn er ágætur og svo framvegis. 

  Maður verður stundum að hvíla eyrun frá Slayer,  Pantera og Minor Treat.      

Jens Guð, 5.3.2008 kl. 00:39

5 identicon

Sæll Jens og takk fyrir kynninguna. Um undirleikinn sjá Pétur Hallgrímsson á gítar, Guðni Finnsson á bassa og Axel Árnason - a.k.a. Axel naglbítur - trommar og leikur á hammond og harmonikku. Axel útsetti jafnframt og stjórnaði upptökum sem fóru fram í Hljóðrita í Hafnarfirði. Þúsund kossar á færibandi til þín Jens. Kveðja, Jóhanna Seljan.

Jóhanna Seljan (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 00:41

6 Smámynd: Jens Guð

  Jóhanna,  sæl og blessuð.  Takk fyrir upplýsingarnar.  Eins og þú kannski veist þá fékk ég lagið frá Viðari trommusnillingi Ingólfssyni (pabba Andra Freys útvarpsgúrús og Birkis Fjalars,  söngvara I Adapt) sem í gamla daga gerði út þungarokkshljómsveitina Frostmark með mér.  Nú er bara allt komið á "full swing".  Upplýstu mig um netfangið þitt og ég skal gefa þér nokkur "tips" varðandi framhaldið. 

  Skilaðu bestu kveðju frá mér til pabba þíns,  afa og ömmu. 

Jens Guð, 5.3.2008 kl. 00:56

7 Smámynd: Ragnheiður

Mér finnst falleg röddin hennar, afar falleg.

Ragnheiður , 5.3.2008 kl. 01:02

8 identicon

Sæll Jens.......jújú, maður kannast við þessa eðalsnillinga.....Viðar er náttúrulega brilliant maður í alla staði og synir hans miklir hæfileikamenn (já og bráðmyndarlegir í þokkabót). Gekk nú á eftir þeim eldri með grasið í skónum minnir mig á sokkabandsárum mínum á Reyðarfirði. En þótt svo lagið mitt beri keim af poppi þá vildi ég nú bara segja þér að ég er rokkari af lífi og sál.....Sepultura, Manowar, Skidrow, Iron Maiden, Megadeath, Pantera, Metallica og fleiri góðir eru í algeru uppáhaldi hjá mér.  Það er sennilega þannig með mig að ég get hlustað á hvað sem er....svo fremur að það snerti einhvern minn innri streng. Skila kveðjunni......heyrumst.

Jóhanna Seljan (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 01:15

9 Smámynd: Jens Guð

  Jóhanna,  svo sannarlega eru bræðurnir Andri Freyr og Birkir Fjalar þvílílkt frábærir að ég er montinn af að hafa þekkt þá frá fæðingu og fylgst með þeim fram til þessa dags.  Fyrir utan það að ég hef skilgreint Viðar pabba þeirra sem minn besta vin frá unglingsárum.  Eins og við elduðum þó grátt silfur saman áður en við vorum eiginlega þvingaðir til að spila saman í hljómsveitinni Frostmarki.  Að sögn gítarsnillingsins Vilhjálms Guðjónssonar,  kennara okkar,   var hugmyndafræðin sú að við værum ekki að lemja skólasystkini á meðan hljómsveitin væri aðal verkefnið.

  Aldeilis er hún flott upptalning þín á rokksveitunum sem þú hlustar á.  En mig vantar ennþá netfang þitt til að taka dæmið með lagið lengra.   

Jens Guð, 5.3.2008 kl. 01:33

10 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hún syngur afskaplega vel en ég er ekkert hrifin af útsetningunni.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.3.2008 kl. 07:49

11 identicon

Jóhanna Seljan (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 09:18

12 identicon

Þetta er náttúrlega bara frábærlega flott. Mér er reyndar málið skylt, er semsé móðir Jóhönnu og aðdáandi nr. 1

Takk Jens fyrir skemmtileg skrif, einkum dásamlegar sögur af afa þínum og Önnu á Hesteyri

Inga Margrét Árnadóttir

inga margrét (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 10:07

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hurru, það vantar aftan á lagið, eða skrána öllu heldur.

allt í einu, í miðju viðlagi, mætir einhver bananasyngjandi kleóli

Brjánn Guðjónsson, 5.3.2008 kl. 10:49

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm endirinn var dálítið snubbóttur.  En þetta er skemmtileg útsetning að mínu mati, og röddin góð.  Takk fyrir að benda okkur á þessa stúlku Jens minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.3.2008 kl. 11:39

15 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ekkert sérlega hrifinn af þessum flutningi en ég veit að Jóhanna er mjög góð söngkona. Hef heyrt hana nokkrum sinnum syngja, fyrst fyrir rúmlega áratug síðan. Þá var ég sannfærður um að hún gæti orðið fræg söngkona.

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.3.2008 kl. 11:49

16 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

..... og er enn  

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.3.2008 kl. 11:52

17 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Annars eru Jóhanna og Helgi Seljan yngri ekki syskinabörn, þau eru bræðrabörn

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.3.2008 kl. 11:55

18 identicon

Þetta er snoturt. Árshátíðavænt.

Efnileg söngkona. Undirspilið sleppur.. kannski aðeins meira en það.

Full þéttur hljóðveggur. Nú vill maðurinn fá meira að heyra af þessari stúlku. 

Bjarni (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 13:05

19 identicon

Frábær flutningur á klassísku popplagi.  Ég fíla þetta sko alveg í tætlur. 

Mig langar einnig að nota tækifærið  að vekja athygli á frábærri söngkonu og lagahöfundi sem heitir Edwina Hayes.  Hún er barasta alveg stórfín, stúlkan sú.  Hún er nýbúin að gefa út plötu sem mér finnst alveg frábær. 

Jæja, hafðu það svo sem allra best... 

Ása (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 13:50

20 identicon

Snilldarlag, í snilldar útsetningu og sungið af snilldarsöngkonu....

Þetta á eftir af fara beint á toppinn!

 Kveðja, Þórir Bró;)

Þórir St.... (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 15:13

21 identicon

Flott lag í skemmtilegum búningi með fínum texta. Söngurinn er prýðilegur. Vonandi á maður eftir að heyra þetta oftar á öldum ljósvakans.

Tryggvi Stefánsson

Tryggvi Stefánsson (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 15:52

22 identicon

Ekki vil ég nú hrósa þessu, frekar en öðru. Það var ekki til siðs í minni sveit. En hitt get ég sagt að Allaballinn Helgi senior Seljan hefði örugglega haft gaman af að vera með undirrituðum í Bolshoj, skammt frá Rauða torginu í Moskvu, þar sem léttklæddar yngismeyjar skoppuðu um sviðið í Svanavatninu.

Steini Briem (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.