Fćrsluflokkur: Tónlist
17.3.2013 | 21:00
Ókeypis lag til niđurhals og uppselt á alla hljómleika
"Ferđalagiđ byrjađi í Ţýskalandi og hefur gengiđ vonum framar en ţetta verđa nćrri 30 tónleikar í 11 löndum á 31 degi," útskýrir Svavar Austmann, bassaleikari Sólstafa. Flestir tónleikarnir eru haldnir á međalstórum stöđum sem taka 500 til 1000 manns. Ţađ hefur veriđ smekkfullt öll kvöld enn sem komiđ er, og oftast uppselt," bćtir Svavar viđ.
Nýtt smáskífulag
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2013 | 22:54
"Merkilegur menningarvitnisburđur"
"Nú skömmu fyrir jólin lćddist inn um lúgu hjá mér skífa nokkur sem eftir ţví sem tíminn líđur og meira er hlustađ, verđur meira og meira skemmtileg og góđur vitnisburđur fyrir sinn (ţjóđa)hatt!"
Svo segir Magnús Geir Guđmundsson um kynni sín af vest-norrćnu safnplötunni World Music from the Cold Seas. Magnús Geir var árum saman plötugagnrýnandi dagblađanna Tímans og Dags. Magnús Geir segir ennfremur:
"Ansi fjölbreytt flóra ţarna á ferđinni, meira og minna rammţjóđleg, ný lög í bland viđ eldri og kunnari, samanber hinn geysivinsćla Orm víkingarokkaranna í Týr (svei mér ef lagiđ var bara ekki ţađ alvinsćlasta hérlendis um langt skeiđ?) ţjóđbraginn gamla um Ólaf (í frábćrum flutningi Tryggva o.fl.)...
Ţau Elín og Johann Anders frá Samalandi eru bćđi međ gríđarfín lög, hennar ansi seiđmagnađ bćđi og kraftmikiđ, minnti mig í senn á eitthvađ í anda Bjarkar og eitthvađ svona austrćnt í taktinum. Hans ţjóđlegra en ţó skemmtilega djassskotiđ.
Hin íslensk-danska Klakki er ţarna sömuleiđis međ ansi flott lag er hreif mig vel og ţannig mćtti telja fleiri lög af plötunni.
Síđan má ekki láta hins merkilega fćreyska músíkfrömuđar, Kristian Blak, ógetiđ, en ekki ađeins gefur hann plötuna út sem eigandi Tutl, heldur kemur hann viđ sögu allra hinna fćreysku laganna og gaf auđvitađ Týr út á fyrri stigum. Stórmerkilegur mađur og áhrifamikill!
Ţessi eftirfari hinnar mögnuđu og rokkuđu Rock From The Cold Seas kemur mér satt best ađ segja mjög ţćgilega á óvart, vel heppnađ samsafn í alla stađi í öllum ţeim ólíku tónmyndum sem ţar birtast.
Merkilegur menningarvitnisburđur um hve margt er ađ finna hjá ţessum fjórum ólíku en menningarríku ţjóđum í norđri!"
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
2.3.2013 | 19:19
Veitingaumsögn - Grill 66
![]() |
Opnar Joe & the Juice á Íslandi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2013 | 02:01
Frábćr kvöldskemmtun til fjáröflunar fyrir Ingó og hans fjölskyldu
Tilefni fjáröflunarhljómleika í kvöld fyrir Ingó og hans fjölskyldu var og er dapurlegt. Ingó greindist međ bráđahvítblćđi í októberbyrjun. Síđan hefur hann gengiđ í gegnum ţrjár erfiđar međferđir til ađ kveđa sjúkdóminn niđur. Án árangurs. Međferđ hefur veriđ hćtt.
Í kvöld komu 600 vinir Ingós saman í Norđurljósum í Hörpu. Um 100 ţeirra stóđu fyrir fjölbreyttri dagskrá ásamt fylgdarliđi (róturum, hljóđmönnum, ljósameisturum og svo framvegis). 500 vinir Ingós fylltu Norđurljósasalinn. Mér er til efs ađ margir einstaklingar í öllum heiminum (ađ međtalinni vetrarbrautinni) eigi jafn marga góđa vini og Ingó. Allir sem kynnast Ingó eignast umsvifalaust kćran og traustan vin, frábćran húmorista og grallara, einstakt góđmenni sem má ekkert aumt sjá, hjálplegan náunga sem allt vill fyrir alla gera og upptalningin á mannkostum Ingós er óendanleg.
Ég er svo lánssamur ađ hafa haft Ingó sem ferđafélaga mörgum sinnum til Fćreyja og á Fćreyska fjölskyldudaga á Stokkseyri. Frábćrari ferđafélaga er ekki hćgt ađ hugsa sér. Hann er svo fyndinn, jákvćđur og elskulegur í alla stađi. Hver samverustund međ Ingó er gulls ígildi. Ţađ er góđ skemmtun frá A-Ö. Allir sem kynnast Ingó elska hann sem sinn besta vin.
Ţađ kom ekki á óvart ađ vinahópur Ingós fyllti Norđurljósasal Hörpu í kvöld. Né heldur hvađ margir tónlistarmenn voru áhugasamir um ađ leggja fjáröflun fyrir Ingó og hans fjölskyldu liđ međ ţví ađ mćta. Vandamáliđ var og er ađ Ingó hefur lengst af starfađ sem "free lance" ljósmyndari (marg verđlaunađur sem slíkur). En ţegar honum var skyndilega kippt út af vinnumarkađi sat hann og hans fjölskylda uppi međ ýmis föst útgjöld sem hann áđur gat stađiđ skil á međ vinnu sem "free lance" ljósmyndari (húsaleiga, afborganir af vinnutćkjum og ţess háttar).
Hljómleikarnir í kvöld í Norđursal Hörpu tókust glćsilega vel í alla stađi. Óperusöngvarar Óp-hópsins hófu dagskrá. Síđan tók viđ nýrokkssveitin Nóra. Sú hljómsveit gaf út á síđasta ári eina af bestu plötum ársins 2012. Seyđandi og dulmagnađ krúttpopp međ skemmtilegri stigmögnun fallegs hljómagangs og dálitlum látum í framvindu laga. Nóra er ennţá skemmtilegri (og hrárri) á sviđi en á plötu. Samt er nýjasta plata Nóru frábćr: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1273485/
Nćstir á sviđ voru Hrafnar. Sú hljómsveit á rćtur í Vestmannaeyjum. Kynnirinn, Hörđur Torfason, skilgreindi Hrafna sem Logandi Papa (les= Logar + Papar). Hrafnar spila írskćttađa órafmagnađa pöbbaslagara. Banjó, mandólín, munnharpa... Skemmtileg hljómsveit sem grallađist í kynningum á lögum og liđsmönum.
Á eftir Hröfnum spilađi KK tvö ljúf og róleg lög. Ari Eldjárn uppistandari tók viđ og afgreiddi nokkra brandara út frá dagskrá KK. Ţar međ afhjúpađi hann hversu naskur hann er á ţađ fyndna í stemmningu augnabliksins. Hann samdi brandara á stađnum. Í endursögn eru brandarar hans ekki eins fyndnir og ţegar hann segir ţá. Ari hefur frábćrt vald á ţví sem á ensku kallast "timing" (ađ skynja stemmningu augnabliksins og tímasetja ţagnir og framhald á tali. Ţetta hefur líka eitthvađ ađ gera međ raddblć og framsetningu). Ari var svo stórkostlega fyndinn ađ hann ţurfti ítrekađ ađ gera hlé á sínum texta á međan áheyrendur lágu í hláturskasti.
Á eftir virkilega fyndnu uppistandi Ara tók viđ Ný dönsk. Ný dönsk er séríslenskt fyrirbćri í músíkflóru. Dálítiđ hippalega hljómsveit í ađra rönd en á sama tíma líka eitthvađ í átt ađ ţví sem á sínum tíma var skilgreint sem nýbylgja í víđustu merkingu.
Eftir hlé tók harđa og pönkađa rokkiđ viđ: Hellvar, Bodies, Q4U, Frćbbblarnir og Dimma. Fyrir minn smekk voru ţađ bestu konfektmolarnir. Ég elska Hellvar. Ég elska Bodies. Lagiđ "Where Are The Bodies" er eitt allra flottasta lag íslensku rokksögunnar. Ţađ er jafn ferskt og hrífandi í dag og fyrir ţremur áratugum.
Frćbbblarnir eru flottari og magnađri međ hverju ári. Yfir heilu línuna eru Frćbbblarnir eiginlega í dag svo gott sem flottasta hljómsveit íslensku rokksögunnar. Međ fullri virđingu fyrir öđrum frábćrum hljómsveitum af kynslóđ "Rokks í Reykjavík".
Q4U flutti fjögur lög. Ingó var kallađur upp á sviđ og spilađi á gítar í síđasta lagi Q4U. Ţá ćtlađi allt um koll ađ keyra. Ingó hefur veriđ gítarleikari Q4U síđustu áratugi. Egill Viđarsson í Nóru leysti Ingó af á ţessum hljómleikum en svo spiluđu ţeir báđir á gítar í laginu "Creeps".
Ţegar dagskrá var tćmd sté Ingó á sviđ og ţakkađi fyrir sig. Hann var ađ venju fyndinn og orđheppinn. Gaf Ara Eldjárn eiginlega ekkert eftir á ţví sviđi.
Fjölmenniđ í Norđurljósum, bćđi áheyrendur og ţeir sem gáfu vinnu sína á sviđ, stađfesti ađ Ingó á fleiri góđa og trygga vini en nokkur önnur manneskja í heiminum. Ţađ er eđlilegt fyrir okkur í hans vinahópi.
![]() |
Ţetta verđur ađ skođa |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
18.2.2013 | 22:05
Sönn gamansaga af vindmyllum
Bloggfćrslan frá í gćr - um vindmyllur - vakti mikla athygli. Enda fáir sem höfđu gert sér grein fyrir ţví hvernig skýin verđa til. Ónefndur tónlistarmađur sendi mér skemmtilegan póst um vindmyllur. Sagan er sönn og of góđ til ađ ég einn sitji ađ henni.
Á síđustu öld fór vinsćl íslensk hljómsveit til Hollands. Söngvarinn var á ţeim tíma mikil stjarna en oft dálítiđ ringlađur vegna vímuefnaneyslu (í dag er hann ţekktastur sem grúppía bankarćningja). Hljómsveitarrútan átti leiđ framhjá túni međ fjölda vindmylla. Söngvarinn horfđi hálf dáleiddur á spađa myllnanna sem snérust allir á jöfnum og góđum hrađa. Ţađ var fögur sjón. Ađ dálitlum tíma liđnum spurđi söngvarinn sljór og opinmynntur: "Ćtli ţćr gangi fyrir rafmagni?"
Tónlist | Breytt 19.2.2013 kl. 15:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
17.2.2013 | 01:57
Plötuumsögn
- Titill: Evulög
- Flytjandi: Gímaldin
- Einkunn: **** (af 5)
Gímaldin er listamannsnafn Gísla Magnússonar, söngvaskálds, gítarleikara og söngvara. Hann er ólíkindatól. Músík hans sveiflast á milli ólíkra músíksstíla: Allt frá a-everópskri vísnamúsík til ţungarokks. Reyndar ekki á ţessari plötu, Evulögum.
Upphafslagiđ er međ nettum kántrý-keim. Önnur lög eru einhverskonar létt-pönkađ vísnapopp-rokk. Allt einfalt og verulega hrátt. Ţađ er kostur. Meira en nóg frambođ er af fínpússuđu poppi.
Um margt hljómar platan eins og demó (lítiđ unnin kynningarupptaka/sýnishorn fyrir plötuútgáfu sem á eftir ađ fínpússa hlutina). Ţađ er ekkert neikvćtt. Bara jákvćtt. Demó-stemmningin nćr bćđi yfir flutning og lagasmíđar. Laglínur eru iđulega snotrar en gćtu hljómađ "útvarpsvćnni" međ smávćgilegu glassúri.
Vegna ţess hversu hrá platan er ţá er hún pínulítiđ seintekin viđ fyrstu hlustun - ţrátt fyrir ađ sum lög séu grípandi.
Söng er skipt á milli margra: Allt frá Megasi (föđur Gímaldins) til Rúnars Ţórs, Karls Hallgrímssonar, Trausta Laufdals, Agnesar Ernu Estherardóttur, Láru Sveinsdóttur og HEK.
Vegna margra söngvara hefur platan yfirbragđ safnplötu. Og ţó eiginlega ekki vegna ţess ađ lagasmíđar Gímaldins og útsetningar hafa sterkan höfundarblć.
Eins og nafn plötunnar, Evulög, vísar til eru textarnir eftir Evu Hauksdóttur. Hún er ţekkt sem norn, ađgerđarsinni og kjaftfor bloggari. Ljóđ hennar á plötunni eru ljúf, ljóđrćn og bundin í form stuđla, höfuđstafa og ríms (sum ađ vísu lausbundnari en ekki síđri). Ţau eru áhugaverđar vangaveltur um lífiđ og tilveruna.
Evulög er skemmtilega hrá plata sem venst betur og betur viđ hverja spilun. Sterkasta lagiđ er Sálumessa. Ég kann vel ađ meta ljóđrćn og falleg kvćđi Evu sem og ţetta ofur hráa popp-rokk Gimaldins. Platan er góđ skemmtun.
Tónlist | Breytt 22.2.2013 kl. 23:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2013 | 11:19
Ekki missa af!
Takiđ fimmtudaginn 28. febrúar frá. Eđa í ţađ minnsta fimmtudagskvöldiđ. Ţá fer nefnilega fram virkilega spennandi, fjölbreytt og mikil tónlistarhátíđ. Tilgangurinn er brýnn og göfugur. Tónlistarhátíđin fer fram í Norđurljósum í Hörpu. Herlegheitin byrja klukkan 20.00. Međal ţeirra sem koma fram eru KK, Frćbbblarnir, Óp-hópurinn, Nóra, Hrafnar, Q4U, Dimma, Bodies, Hörđur Torfason og Ari Eldjárn.
Tilgangur tónlistarhátíđarinnar er ađ afla fjár til styrktar ljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni. Síđasta haust greindist hann međ hvítblćđi. Síđan hefur hann veriđ í einangrun á Landspítalanum og stöđugri međferđ, sem ekki hefur skilađ tilćtluđum árangri.
Ingó starfađi sem "free lance" ljósmyndari, ásamt ţví ađ spila á gítar í hljómsveitinni Q4U. Viđ ţađ ađ vera kippt án fyrirvara af vinnumarkađi fóru fjármálin í klessu. Ingó hefur fyrir fjögurra manna fjölskyldu ađ sjá. Ađ auki situr hann tekjulaus uppi međ fastan kostnađ viđ vinnustofu (húsaleiga, afborganir af tćkjabúnađi o.s.frv.).
Međ ţví ađ mćta á tónlistarhátíđina slćrđ ţú tvćr flugur í einu höggi: Styrkir góđan málstađ og upplifir frábćra tónlistarveislu. Takiđ međ ykkur gesti.
Tónlist | Breytt 20.2.2013 kl. 14:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2013 | 10:05
Nćsti páfi
Ađeins einni manneskju tókst ađ átta sig á ţví hvađ Benedikt sextándi var ađ muldra ţegar hann tilkynnti á blađamannafundi afsögn sína úr embćtti. Óvíst er hvort ađ manneskjan heyrđi rétt. Heimsfréttin um afsögnina hefur ekki veriđ borin til baka af Vatíkaninu. Ţađ bendir til ţess ađ konan hafi heyrt rétt og sátt ríki um hennar túlkun á fréttinni.
Meiri ágreiningur ríkir um ástćđur afsagnarinnar. Sumir telja ađ komiđ hafi upp ósćtti og óyfirstíganlegur ágreiningur á milli páfans og himnaföđur hans. Sá síđarnefndi var međ stöđuga hrekki sem lýstu sér ţannig ađ hvert sem páfi fór ţá gustađi á kjólinn hans sem vafđist honum um höfuđ og byrgđi sýn. Ţá fengu ófáar húfur, pottlok og hattar ađ fjúka af páfanum út í buskann.
Í ţau örfáu skipti sem kjóllinn fékk ađ vera í friđi myndađist gustur páfa yfir höfđi og skóp hárgreiđslu kennda viđ pönkara og hanakamb.
Ef páfinn nćr ađ setja upp gleraugu er eins og hann sé međ ţađ sama kýldur í hausinn; gleraugun hendast út um allt andlitiđ og koma aldrei ađ gagni. Ţau hafa ósjaldan endađ uppi í túlanum og hann jórtrađ á ţeim eins og tyggjói.
Ađrir telja ađ páfinn sé á leiđ út úr skápnum, svo ţekktur sem hann er fyrir ađ vera međ tunguna út um allt.
Páfa verđur minnst fyrir harđorđa og skelegga gagnrýni á prjál og pjatt. Einhverjir hafa af óskammfeilni talađ um ađ páfi kasti glerflöskum úr steinhúsi allur hlađinn bling-bling glingri og gullslegnum hatti. Hiđ rétta er ađ hatturinn er ekki til skrauts. Hann er nestispakki páfa.
Eđlilega er byrjađ ađ máta ýmsa einstaklinga í páfastól. Ţađ skiptir máli hver vermir hann. Páfinn er óskeikull leiđtogi fjölmennasta sértrúarsafnađar heims. Ţessir ţykja taka sig best út sem arftakar Benna - enn sem komiđ er:
![]() |
Konan sem skildi hvađ páfi var ađ segja |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (32)
11.2.2013 | 18:45
Plötuumsögn
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
4.2.2013 | 00:24
Bestu plötur Megasar
Fyrir nokkru síđan ýtti ég úr vör skođanakönnun um bestu plötur Megasar. Fyrsta skrefiđ var ađ leita á náđir lesenda. Ég bađ ţá um ađ tiltaka ţćr plötur Megasar sem ţeim ţykir bestar. Öllum plötum sem nefndar voru til sögunnar stillti ég upp í formlega skođanakönnun. Ég ákvađ ađ láta könnunina standa ţangađ til 2000 atkvćđi hefđu skilađ sér í hús. Nú hefur ţađ mark náđst. Niđurstađan er sú sama og ţegar 100 atkvćđi höfđu veriđ greidd. Af ţví dreg ég ţá ályktun ađ útkoman sé nokkurn veginn til samrćmis viđ almennan smekk fyrir plötum Megasar. Ađ minnsta kosti hvađ varđar plöturnar í efstu sćtunum. Ţar er útkoman afgerandi. Ég ćtla ađ flestir ađdáendur Megasar hefđu ađ óreyndu giskađ rétt á hvađa plötur myndu hreiđra um sig í efstu sćtunum.
Ţar fyrir utan er ţetta fyrst og fremst léttur samkvćmisleikur.
Ţannig er listinn:
1. Á bleikum náttkjólum 25,5%
2. Megas (fyrsta platan) 17,7%
3. Loftmynd 12,5%
4. Til hamingju međ falliđ 8,1%
5. Í góđri trú 7,7%
6. Drög ađ sjálfsmorđi 7,3%
7. Millilending 6,4%
8. Fram og aftur blindgötuna 5,2%
9. Nú er ég klćddur og kominn á ról 4,5%
10. Ţrír blóđdropar 2,7%
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (17)