Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Ótrúleg framkoma Sophiu Hansen

  Það hefur verið með ólíkindum að fylgjast með málaferlum Sophiu Hansen gegn Sigurði Pétri Harðarsyni.  Málið teygir anga sína aftur til níunda áratugarins.  Þá var Sophia gift ljúfmenninu Halim Al.  Þau áttu tvær dætur.  Að sögn Halims var Sophia leiðinleg við hann.  Dró meðal annars Sigurð Pétur inn á heimilið.  Eða eins og Halim orðaði það þá var Sigurður Pétur eins og köttur í húsi þeirra (frekar en að hann hafi bara verið eins og köttur.  Man það ekki alveg).

  Þetta leiddi til þess að kjarnafjölskyldan leystist upp.  Halim flutti sunnar á hnöttinn.  Dæturnar fóru þangað líka.  Þá upphófst leiðinleg togstreita.  Sigurður Pétur stóð undir nafni.  Nafnið Sigurður þýðir verndari/vörður.  Nafnið Pétur þýðir klettur.  

  Sigurður Pétur fórnaði næstu árum ævi sinnar í að styðja Sophiu í bak og fyrir.  Hann fórnaði meðal annars sambandi við dætur sínar og fjölskyldu,  fjármunum og öllum þeim tíma og fyrirhöfn sem hann gat í þágu Sophiu.  Sendi henni meðal annars Prince Póló í ábyrgðarpósti til Tyrklands.

  Sigurður Pétur stóð fyrir fjársöfnun meðal landsmanna til handa Sophiu.  Hluti af söfnunarféinu fór í fataverslun sem Sophia rak en gekk illa.  Annar hluti söfnunarfésins fór í tíð ferðalög Sophiu á milli Íslands og Tyrklands.  Fötin í verslun Sophiu voru tyrknesk.

  Þegar söfnunarfé þraut voru útbúin veðskuldabréf,  skuldaviðurkenningar,  viðskiptabréf og  tryggingabréf upp á 42 milljónir sem voru undirrituð nafni Sophiu.  Í stað þess að standa við skuldbindingar sínar kærði Sophia sinn dygga stuðningsmann,  Sigurð Pétur,  fyrir að hafa falsað undirskriftir hennar.  Þetta gerði hún til að skuldir hennar myndu lenda óskiptar á Sigurði Pétri.

  Sænskir rithandarsérfræðingar sáu glöggt að undirskriftir Sophiu eru ófalsaðar.  Rithönd er nánast eins og fingraför. 

  Sophia kom kjánalega fyrir í réttarhöldunum.  Reif kjaft og hagaði sér eins og illa uppalinn léttruglaður krakki í frekjukasti.

  Nú hefur hún verið dæmd fyrir að bera rangar sakargiftir á Sigurð Pétur.  Það er sérkennilegt að stinga hnífasetti í bak hans á þennan hátt eftir fórnfýsi hans og einarðan stuðning.  En segir heilmikið um þá persónu sem Sophia hefur að geyma.  Ég tek fram að ég þekki ekkert til neins af þessu fólki annað en það sem komið hefur fram í fjölmiðlum og fyrir dómstólum. 

halim al

Halim Al,  alltaf brosmildur og vinalegur Íslandsvinur.  Fyrir neðan:  Konan sem var ótrú og svikul í hjónabandi og einnig óþokkaleg gagnvart þeim sem ofaldi kálfinn.  Þrátt fyrir að hún sé dæmd fyrir að bera rangar sakargiftir á sinn einlæga og fórnfúsa stuðningsmann er það henni refsilaust.  Óskilorðsbundinn hálfs árs dómur snertir hana hvergi þar sem hún býr ljúfu lífi í Tyrklandi.

sophia_hansen

     


mbl.is Í skilorðsbundið fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smásaga um systur í sjávarþorpi

  3sisters

  Myrkrið grúfir sig yfir litla sjávarþorpið hinumegin við fjallið.  Allir þorpsbúar eru í fasta svefni.  Samt er miður dagur.  Komið langt fram yfir hádegi.  Þorpsbúar hafa ruglað sólarhringnum.  Ástæðan er sú að stóra útiklukkan á eina torgi þorpsins er vitlaus.  Þorpsbúar stilla grunlausir sín úr og klukkur eftir torgklukkunni.

  Það styttist í að þorpsbúar vakni.  Í lágreistu timburhúsi býr gömul kona með sjal ásamt manni sínum og þremur dætrum.  Þorpsbúar gera enga athugasemd við það.  Systurnar eru ekki í neinni vinnu og eru tekjulausar.  Foreldrarnir eru í vinnu,  hafa þokkalegar tekjur og eiga húsið skuldlaust. 

  Systurnar vakna ein af annarri.  Þær heita ekki neitt.  Þess í stað eru þær kallaðar: Sú elsta.  Hún er 7 ára;  Miðsystirin.  Hún er 6 ára;  Og Yngsta barnið.  Hún er 5 ára.  Foreldrarnir eru kallaðir Pabbi og Mamma en heita Pétur og Páll.  Foreldrarnir vakna líka. 

  Þegar fjölskyldan er í miðju kafi við að snæða smjörsteiktan hvítlauksristaðan humar með nýlöguðu og heitu Irish Coffie segir Mamma skyndilega skrækrómuð og taugaveikluð:  "Stelpur,  þið hafið kannski tekið eftir því að ég hef fitnað að undanförnu."

  Yngsta barnið kannast við það og segir ávítandi:  "Það er af því að þú drekkur mikið af bjór þegar enginn sér.  Allir krakkarnir í leikskólanum segja að þú skolir honum niður með Einiberja-brennivíni og 8 ára Bacardi."

  Mamma leiðréttir hana:  "Nei,  ég hef aldrei á ævi minni bragðað bjór eða neitt áfengi.  Áfengi er óhollt.  Ég sprauta mig bara einstaka sinnum með heróíni.  Varla einu sinni tvisvar á dag.  Ástæðan fyrir því að ég er orðin mikil um mig miðja er sú að ég er með barn í maganum.  Ég veit ekki hvernig það hefur gerst.  Læknirinn staðfesti þetta í gær og grunar Pabba um að hafa verið eitthvað að fíflast.  Þið eruð að eignast nýtt Yngsta barn."

  Yngsta barnið fölnar upp,  fer að hágráta og spyr á milli ekkasoga:  "Nýtt Yngsta barn?  Hvað verður þá um mig?"

  Mamma dæsir og segir sorgmædd og róandi:  "Það þýðir að við verðum að henda þér í ruslið."

  Pabbi grípur fram í blíðróma en ákveðinn:  "Nei,  elskan mín.  Mamma er að bulla og dramatísera.  Þér verður ekki hent í ruslatunnuna.  Ég set þig í poka og hendi þér í sjóinn."  Og það gerði hann.

 

---------------------------------------------------------------------
Fleiri smásögur og leikrit:
 - Jólasaga
.
- Á rjúpnaveiðum:
.
- Ólétta nunnan:
.
- Gullfiskur:
.
- Flugvélamódel:
.
- Miðaldra maður:
.
- Leyndarmál stráks:
.

Frábær útvarpsþáttur færður um set

  litlahafmeyjan

  Einn alskemmtilegasti þáttur í útvarpi í dag er  Litla hafmeyjan  á rás 2.  Þar hafa snillingarnir Andri Freyr og Doddi litli farið á kostum á föstudagskvöldum.  Nú hefur sú breyting orðið á að þátturinn er sendur út á milli klukkan 16.00 til 18.00 á laugardögum.  Þetta hefur ruglað marga í ríminu.  Mér er ljúft að reyna mitt besta til að vekja athygli á þessu.  Þeir sem misstu óvart af þættinum í dag geta tekið gleði sína á ný með því að fletta honum upp á http://dagskra.ruv.is/ras2/4522424/2010/02/06/

  Vandamálið er ekki stærra en það að nú þarf fólk að rífa sig upp um eða fyrir klukkan 16.00 á laugardögum.  Eða hitt:  Að fletta þættinum upp á netinu.  Kát/ir og hress.


Skemmtilegar og broslegar myndir af þreyttum köttum

AAAAABköttur

  Kettir hugsa fyrst og síðast um að láta sér líða vel.  Þeir nota hvert færi sem gefst til skreppa inn í draumalönd - á milli þess sem þeir gera strangar kröfur um að fá gott að borða og drekka hjá "eiganda" sínum.  Reyndar viðurkenna kettir ekki að neinn eigi þá.  Fólk má snúast í kringum þá,  klappa þeim og klóra,  en kötturinn fer sínar eigin leiðir,  frjáls og óháður.

AAAAABBAAAAABBBkötturAkötturAAkötturAAAkötturAAAAkötturAAAAAkötturAAAAAAkötturAAAAAAAAköttur


Samanburður á prófkjörsúrslitum frá 2006

  Það er alltaf gaman að skoða úrslit í prófkjöri hvaða flokks sem er.  Einhver skilaboð hljóta að felast í því hverjir færast upp og hverjir færast niður listann.  Ég hef sett hér innan sviga í hvaða sæti frambjóðendurnir voru í síðustu kosningum:

1.   ( 2 )  Hanna Birna Kristjánsdóttir       
2.   ( 5 )  Júlíus Vífill Ingvarsson
3.   ( 4 )  Kjartan Magnússon
4.   ( 6 )  Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
5.   ( 3 )  Gísli Marteinn Baldursson
6.   ( - )  Geir Sveinsson
7.   (14) Áslaug María Friðriksdóttir
8.   ( 7 ) Jórunn Frímannsdóttir
9.   ( - )  Hildur Sverrisdóttir
10. (10) Marta Guðjónsdóttir

  Til að auðvelda samanburðinn hef ég rauðlitað nöfn þeirra frambjóðenda sem eru heitir (á uppleið) en blálitað þá sem færast niður eftir listanum. 

  Hanna Birna og Júlíus Vífill hljóta að teljast sigurvegarar prófkjörsins í ár.  Sigur Hönnu Birnu var kannski fyrirsjáanlegur.  Sá sem var í 1.  sæti 2006,  gamli góði Villi,  gaf ekki kost á sér í ár.  Hanna Birna ein bauð sig fram í 1.  sætið.  Það væri skrýtið ef hún hefði ekki verið svo gott sem sjálfkjörin í það sæti;  sitjandi borgarstjóri að auki.

  Hástökkvarar prófkjörsins eru tengdasonur gamla góða Villa,  Geir Sveinsson;  Áslaug María og Hildur Sverrisdóttir.  Áslaug hefur verið áberandi á kjörtímabilinu.  Hefur látið til sín taka í nefndum borgarinnar og verið dugleg að tjá sig í blaðagreinum og bloggheimi.  Á þeim fundum sem ég hef setið með henni er hún vel inni í málum,  áhugasöm og samviskusöm.  Ég spái henni frekar frama á sviði stjórnmála.

  Framan af kjörtímabilinu litu margir á Gísla Martein sem keppinaut Hönnu Birnu sem framtíðarleiðtoga borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.  Heldur hefur dregið í sundur með þeim.  Einhvernveginn skynjaði maður á síðustu misserum að svona gæti farið.  Þó var ég nokkuð viss um að Gísli Marteinn myndi ekki falla neðar en í 4.  sæti.  Það kemur mér á óvart að Þorbjörg Helga færist upp fyrir hann.     

  Sjálfstæðisflokkurinn hefur 7 borgarfulltrúa eins og undanfarin kjörtímabil.  Samkvæmt því er Jórunn dottin út úr borgarstjórn.  Nema flokkurinn bæti við sig borgarfulltrúa.  Jórunn óskaði eftir stuðningi í 3ja sæti.  

Hanna Birna...

Hvað er í gangi?  Af hverju er Hanna Birna á djamminu með Ömma?


mbl.is Hanna Birna fékk 84% atkvæða í 1. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtal fyrir brúðkaup og löngu síðar

 Hver kannast ekki við svona samtal fyrir brúðkaup?  Það má reyndar líka heimfæra þetta samtal upp á Ólaf F.  Magnússon og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þegar verið var að ganga frá ráðningu hans sem borgarstjóra.
.
Ólafur:  Ég get varla beðið.
Hanna: Viltu að ég fari?
Ólafur:  Nei,  láttu það ekki hvarfla að þér.
Hanna:  Elskarðu mig?
Ólafur:  Auðvitað.  Alltaf.
Hanna:  Hefur hvarflað að þér að halda framhjá?
Ólafur:  Nei,  aldrei.
Hanna:  Kysstu mig.
Ólafur:  Hvenær sem er.
Hanna:  Myndir þú einhvertímann beita mig ofbeldi?
Ólafur:  Auðvita ekki.
Hanna:  Má ég alltaf treysta þér?
Ólafur:  Að sjálfsögðu er það þannig.
.
  Tveimur árum síðar er samtalið alveg eins.  Nema að þá er það lesið neðan frá og upp.  .
 
hannabirna

mbl.is Farið heim og fjölgið ykkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvikmyndarumsögn

Mamma Gógó

 - Titill:  Mamma Gógó

 - Handrit og leikstjórn:  Friðrik Þór Friðriksson

 - Helstu leikendur:  Kristbjörg Kjeld,  Hilmir Snær Guðnason,  Margrét Vilhjálmsdóttir,  Gunnar Eyjólfsson...

 - Tónlist:  Hilmar Örn Hilmarsson

 - Einkunn: **** (af 5)

  Kynningarmyndbandið (treiler) fyrir  Mamma Gógó  lofar ekki góðu (sjá hér fyrir neðan).  Ekki söguþráðurinn heldur.  Hann fjallar í stuttu máli um ungan kvikmyndaframleiðanda sem á í fjárkröggum.  Á sama tíma er móðir hans greind með Alzheimer,  heilahrörnunarsjúkdóm sem rænir sjúklinginn minninu.  Myndin snýst um þessi vandamál:  Blankheit sonarins og minnistap móðurinnar. 

  Ég hefði ekki nennt á þessa kvikmynd nema vegna fyrri verka Friðriks Þórs og Hilmars Arnar Hilmarssonar.  Hæst hefur samstarf þeirra risið í meistaraverkinu marg verðlaunaða  Börn náttúrunnar.  

  Mamma Gógó  hefst einmitt á því að verið er að frumsýna  Börn náttúrunnar.  Þar með er tónninn sleginn.  Áhorfandinn er hrifinn inn í hið heillandi hugljúfa andrúmsloft þeirrar kvikmyndar.  Jafnframt er augljóst að  Mamma Gógó  er ævisöguleg mynd höfundar.  Eins og margar fyrri myndir hans.   

  Hilmir Snær leikur Friðrik Þór.  Blessunarlega reynir hann ekki að herma eftir Friðriki.  Hvorki í útliti né töktum.  Engu að síður er hann afar sannfærandi sem Friðrik Þór - eða hvaða kvikmyndaframleiðandi sem væri í þessari sömu stöðu:  Blankheitum og tilheyrandi vandamálum.  Ásamt því dapurlega ferli þegar móðir hans tapar minninu jafnt og þétt. 

  Kristbjörg leikur mömmuna af stakri snilld.  Þetta er hjartnæm dramamynd.  En jafnframt blönduð hárfínni gamansemi sem heldur myndinni út í gegn á þeim dampi að áhorfandinn er að fá kökk í hálsinn en missir sig á næsta andartaki í hláturköstum.  Hver bráðfyndna senan rekur aðra.  

  Faðir Friðriks Þórs er fallinn frá en er samt í stóru hlutverki (Gunnar Eyjólfsson).  Þar á meðal er fléttað inn í myndina svart-hvítum klippum úr gamalli kvikmynd,  79 af stöðinni,  með Kristbjörgu og Gunnari.  Fyrst var ég á því að gömlu svart-hvítu klippunum væri ofaukið.  Þegar á leið fóru þær hinsvegar að gefa myndinni dýpt og skerpa á fegurð sögunnar. 

  Mamma Gógó  er mögnuð mynd.  Það var djarft uppátæki hjá Friðriki Þór að gera mynd sem einskonar óbeint framhald eða hliðarmynd við  Börn náttúrunnar.  Það er varla hægt að fylgja þeirri mynd eftir.  Þetta er svolítið eins og ef Paul McCartney tæki upp á því að gera plötu sem gerði út á  Sgt.  Peppers... plötu Bítlanna.   Það er óhugsandi að svoleiðis dæmi yrði vel heppnað.  En Friðriki Þór tekst hið illmögulega með glæsibrag.    

  Tónlist Hilmars Arnar er rjómi rjómans.   

  Mamma Gógó  eykur skilning á Alzheimer.  Sjálfur þekki ég þennan sjúkdóm því faðir minn varð fórnarlamb hans.  Áður en pabbi veiktist vissi ég ekkert um Alzheimer.  Það er óvíst að þeir sem ekki þekkja til sjúkdómsins átti sig á því hvers vegna Gógó á til að verða ofur ókurteis.  Sjúkdómurinn eyðir hömlum á því hvað er við hæfi að segja "í hreinskilni",  samanber þegar Gógó lýsir tengdadóttur sinni sem ljótri fyrir framan hana. 

  Ég hvet fólk til að skreppa í kvikmyndahús og eiga góða kvöldstund.


Furðufrétt frá Þorlákshöfn

hestur 

  Hestar eru einhver fegurstu og tignarlegustu hryggdýr þessarar jarðar.  Veit ekki með aðrar jarðir.  Þess vegna vekur undrun frétt frá Þorlákshöfn.  Og ekki í fyrsta skipti.  Að þessu sinni eru málavextir þeir að kona sendi systurdóttir sinni póstkort með hlýlegri kveðju.  Framhlið kortsins prýddi falleg ljósmynd af hestum.  Systurdóttirin var ekki lengi að leggja saman tvo og tvo.  Útkoman sem hún fékk var sú að frænkan væri að líkja henni við hest.  Eða öllu heldur meri. 

  Ásamt mömmu sinni stormaði stelpan heim til frænkunnar og í sameiningu gáfu þær henni vænan kinnhest.  Hún kunni illa að meta.  Í stað þess að bjóða fram hinn vangann - eins og mælt er með í Biblíunni - hefur hún kært mæðgurnar fyrir líkamsárás. 


Jólagjöfin í ár

skei_1.jpg  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Fólk er í stöðugum vandræðum með hvað gefa á öðrum og sjálfu sér í jólagjöf.  Verslun ein á höfuðborgarsvæðinu hefur dottið niður á bráðskemmtilega og nýtilega lausn á þessu vandamáli.  Verslunin auglýsir til sölu hjá sér kaffiskeið. 

  Á flestum heimilum og vinnustöðum er hellt upp á kaffi.  Allur háttur er á með hvaða verkfæri möluðu kaffi er mokað í kaffivélina.  Sumir nota ómerkilegar plastskeiðar.  Aðrir lítil plastglös.  Enn aðrir hella beint úr kaffipokanum ofan í kaffivélina.  Í þeim tilfellum vill kaffið sáldrast út um allt borð.  Það er engin reisn yfir þessum aðferðum.

  Alvöru kaffiskeið er málið.  Sterkleg skeið úr stáli.  Skaftið fer vel í hendi þannig að það er auðvelt að halda á henni.  Verðið ráða flestir við.  Rétt rúmlega þúsund kall,  eða 1999 kr.

  Það allra besta er að einnig er hægt að ausa strásykri með skeiðinni.  Ef það er gert þarf þó að skola kaffi af henni fyrst og þurrka hana.  Annars berst örfínt kaffiryk yfir í sykurinn.


Myndir úr sviðaveislu

svi_aveisla3.jpg

 svi_aveisla23_939004.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á dögunum hélt Rannveig Höskuldsdóttir glæsilega sviðaveislu.  30 - 40 manns gæddu sér á sviðum,  sviðasultu,  rófum og rófustöppu.  Dúett söngvara sem jafnframt spiluðu á gítar og bassa skemmti.  Öllum var gert að mæta með frumsamda vísu.  Upplestur á þeim vakti mikla kátínu.  Enda flestar gamanvísur.  Einnig fór fram æsispennandi spurningakeppni.  Allur áttu að mæta með lítinn pakka.  Pökkunum var síðan útdeilt á milli gestanna.  Sitthvað fleira var til gamans gert. 

svi_aveisla21_939013.jpgsvi_aveisla20_939014.jpg  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Yngvi Högnason tók meðfylgjandi myndir.  Nema þessa af honum og Heiðu B. (skessu).  Yngvi lagði jafnframt til sviðin í veisluna.  Honum,  Rannveigu og öðrum í veislunni eru hér með færðar bestu þakkir fyrir frábært kvöld.

svi_aveisla18_939023.jpgsvi_aveisla17.jpg

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Rannveig með blómvönd sem einhver hugulsamur hefur fært henni.

svi_aveisla14.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Edda Lára fótasnyrtir og herrann hennar.  Rannveig stendur fyrir aftan.  Hægra megin við Eddu má þekkja Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur.

svi_aveisla10.jpgsvi_aveisla9.jpg 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Í pakkanum sem ég fékk var smekkur.  Það var virkilega við hæfi.  Hann smellpassar handa afastelpunni minni,  henni Ylfu Mjöll.

svi_aveisla8.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Tónlistarmennirnir sem sungu og spiluðu.

svi_aveisla7.jpgsvi_aveisla6_939076.jpgsvi_aveisla5.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Grétar Mar fór á kostum allt kvöldið.  Reitti af sér brandara,  greip í gitarinn og söng meðal annars "Sigga litla systir mín".  Hann sagðist þekkja þessa Siggu.  Hún búi í Keflavík.

svi_aveisla2.jpg 

svi_aveisla4.jpg

 

svi_aveisla13.jpg svi_aveisla12.jpgsvi_aveisla11.jpg

svi_aveisla16.jpgsvi_aveisla15.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband