Skemmtilegar og broslegar myndir af þreyttum köttum

AAAAABköttur

  Kettir hugsa fyrst og síðast um að láta sér líða vel.  Þeir nota hvert færi sem gefst til skreppa inn í draumalönd - á milli þess sem þeir gera strangar kröfur um að fá gott að borða og drekka hjá "eiganda" sínum.  Reyndar viðurkenna kettir ekki að neinn eigi þá.  Fólk má snúast í kringum þá,  klappa þeim og klóra,  en kötturinn fer sínar eigin leiðir,  frjáls og óháður.

AAAAABBAAAAABBBkötturAkötturAAkötturAAAkötturAAAAkötturAAAAAkötturAAAAAAkötturAAAAAAAAköttur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Kisurnar mínar eru ekki alveg svona þreyttar.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.1.2010 kl. 01:18

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Fer að leita að kattardúettinum,sungnum af ,Þuríði  Pálsdóttur   og  Guðrúnu Á Símonardóttur. (leiðrétti ef þetta er rangt).

Helga Kristjánsdóttir, 25.1.2010 kl. 02:02

3 Smámynd: Jens Guð

Jóna Kolbrún, veistu nokkuð hvernig þeir halla sér þegar þú ert ekki heima?

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 03:34

4 Smámynd: Jens Guð

Helga, þetta er rétt hjá þér. Það voru Þuríður og Guðrún sem tóku kattadúettinn.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 03:35

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gott,,,,,,var ég búin að segja þér frá stráknum sem var látinn sitja eftir,í skóla eins og algengt var á arum áður.því fylgdi refsing,hann skyldi   skrifa stíl ,sem innihéldi 50 orð.og yrði þá sleppt.   Strákur var ekki lengi,stíllinn var svona: Ég á lítinn kött,einu sinni týndi ég honum.Þá fór ég út og kallaði,kis,kis,kis,kis,kis,kis,kis,kis,kis, þar til 50 orðum var náð. Finnst eins og ég hafi skrifað þetta áður. 

Helga Kristjánsdóttir, 25.1.2010 kl. 03:52

6 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  þú hefur ekki skrifað þessa sögu áður.  Ekki hér að minnsta kosti.  Ég er að lesa þessa sögu í fyrsta skipti núna og þykir hún skemmtileg.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 03:58

7 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Ég kannast nú við nokkrar þessar myndir og í gær sofnaði nú einn svona lítill ofan á lyklaborðinu hjá mér. Það eru engin dýr önnur en kötturinn sem ég get sagt að ég beri virkilega virðingu fyrir enda getur maður aldrei kúgað köttinn, en ef maður ber virðingu fyrir honum þá ber hann líka virðingu fyrir þér, hins vegar finnst mér skynsemi og snilld katta vera vanmetin í dag. Í Grikklandi til forna voru þeir dýrkaðir og átti það við bæði smáa og ekki síður stóra ketti t.d. hefur því verið haldið fram að á tímum Faraóanna í Egiptalandi hafi þeir notað ljón til að draga vagnana löngu áður en hestarnir komu til sögunnar og að faraóarnir hafi stýrt ljónunum með hugarorkunni einni saman (og bara þeir) og máttu þeir aldrei missa einbeitninguna eða finna til ótta, því þá gátu þau ráðist gegn eigendum sínum og jafnvel drepið þá. Hvort þetta er satt veit ég nú ekki alveg en hins vegar eru kettirnir óhemju skemmtileg, sjálfstæð og bráðskörp dýr og auðga líf eigenda sinna og eru  miklir gleðigjafar.    

Hulda Haraldsdóttir, 25.1.2010 kl. 04:29

8 Smámynd: Kama Sutra

Krúttlegar og flottar myndir.  Ég er veik fyrir svona krílum.

Kama Sutra, 25.1.2010 kl. 06:37

9 Smámynd: Kama Sutra

Fleiri krútt til að kikna í hnjáliðunum yfir. ;)

funny pictures of cats with captions

Kama Sutra, 25.1.2010 kl. 06:41

10 Smámynd: Jens Guð

  Hulda,  takk fyrir fróðleikinn.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 10:58

11 Smámynd: Jens Guð

  Kama Sutra,  takk fyrir kisugrínið.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 10:58

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábærar myndir af kettlingum.  Takk fyrir þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.1.2010 kl. 11:01

13 identicon

Ég tek náttlega þátt í kisuleiknum, þessi er þreyttur á að bíða eftir að það opnist

DoctorE (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 18:02

14 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  blessaðir kettirnir geta verið skemmtilega krúttlegir.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 18:43

15 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  þessi er góður 

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 18:45

16 Smámynd: Halla Rut

krútt

Halla Rut , 25.1.2010 kl. 20:10

17 Smámynd: Jens Guð

  Halla Rut,  kettir geta verið krútt.  Þó mér sé lítið um þá gefið nema á myndum.

Jens Guð, 25.1.2010 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband