Fćrsluflokkur: Útvarp
26.8.2015 | 19:42
Stćrstu rokkstjörnur heims auglýsa íslenskt áfengi
Fyrir aldarfjórđungi og ţar í kring voru vinsćlustu og áhrifamestu hljómsveitir heims Guns N´ Roses og Nirvana. Enn í dag tróna nöfn ţessara hljómsveita í efstu sćtum yfir merkustu hljómsveitir rokksögunnar. Eitt af sérkennum GNR var söngrćnn og áberandi gítarleikur Slash. Gítarlykkjan sem einkennir lagiđ Sweet Child O´ Mine hefur löngum veriđ í toppsćtum yfir bestu gítarriff allra tíma.
Nirvana innleiddi nýbylgju sem kallast grugg (grunge). Hérlendis tóku margar hljómsveitir upp gruggstílinn. Frćgust varđ Botnleđja. Nirvana kynnti líka fyrir nýrri kynslóđ söngvaskáldiđ Leadbelly (blúsari sem féll frá 1949).
Slash tók ástfóstri viđ íslenskan heilsudrykk, vodkann Black Death. Framleiđandi hans er Siglfirđingurinn Valgeir Sigurđsson. Slash skartađi löngum á hljómleikum skyrtubol merktum Black Death. Valgeir framleiđir einnig bjór undir merki Black Death. Forpokađir ríkisreknir embćttismenn ÁTVR bönnuđu á sínum tíma Black Death bjórinn á ţeirri forsendu ađ á umbúđum stendur "Drink in peace". Ţađ var skilgreint sem ósvífinn áróđur fyrir bjórdrykkju.
Víkur ţá sögu ađ trommuleikara Nirvana, Dave Grohl. Eftir fráfall söngvarans, Kurts Cobains, 1994 stofnađi hann hljómsveitina Foo Fighters. Ţar er hann söngvari og gítarleikari. Foo Fighters erfđi ađ stórum hluta vinsćldir Nirvana.
Fyrir nokkrum árum kom Foo Fighters fram á hljómleikum í Reykjavík. Ţar kynnti Dave Grohl til leiks unglingahljómsveit frá Stokkseyri, Nilfisk. Sú hljómsveit fékk jafnframt ađ njóta sín á DVD diski Foo Fighters.
Dave fékk dálćti á íslenska heilsudrykknum Brennivíni. Hann hefur alla tíđ síđan veriđ allt ađ ţví áskrifandi ađ Brennivíni. Afmćlis- og ađrar tćkifćrisgjafir til vina hans og vandamanna eru gjarnan Brennivínsflaska. Á hljómleikum og í viđtölum hjá fjölmiđlum er Dave iđulega í skyrtubol merktum Brennivíni. Ţar á međal í nýjasta hefti nćst stćrsta tónlistartímariti heims (á eftir Rolling Stone), Spin. Sjá međ ţví ađ smella á ţennan hlekk: http://www.spin.com/2015/08/dave-grohl-endurance-foo-fighters-new-bands/
Á plötu međ Foo Fighters syngur Dave um Brennivín. Ţađ má heyra á mín 1.14: "Brennivín and cigarettes"
Fćreyska ţungarokksveitin Týr er ein ţekktasta víkingametalsveit heims. Hún hefur veriđ á vinsćldalistum víđa um heim. Međal annars var hún fyrir nokkrum árum í 1. sćti hjá CMJ. Hérlendis er CMJ kallađ amerískar háskólaútvarpsstöđvar. Í raun er vinsćldalisti CMJ samantekt á spilun í öllum framhaldsskólaútvarpsstöđvum í Bandaríkjunum og Kanada. Týsarar hafa sungiđ um íslenskt Brennivín.
Útvarp | Breytt 31.8.2016 kl. 14:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
21.8.2015 | 20:22
Ţér er bođiđ á ókeypis fćreyska hljómleika á Menningarnótt í Hörpu
Fćreyska sendistofan á Íslandi býđur upp á einstaklega spennandi og glćsilega tónlistardagskrá í Hörpu á Menningarnótt. Ađgangur er ókeypis. Fćreyska dagskráin hefst klukkan 17.00 í Flóasal og stendur til 19.00.
Fyrstur stígur á stokk vísnasöngvarinn Hanus G. Hann er merkur tónlistarmađur á heimsmćlikvarđa. Eldri mađur sem semur ofurfalleg lög og flutningur hans er dáleiđandi og draumkenndur. Fegurđin er slík ađ áheyrendur jafnvel tárfella undir fegurstu köflum.
Hanus G. nýtur mikillar hylli ungra fćreyskra tónlistarmanna. Til ađ mynda hefur Eivör sungiđ sönglög hans inn á sínar sólóplötur. Ţađ hafa fleiri ungir fćreyskir tónlistarmenn gert.
Sumir kalla Hanus fćreyskan Megas. Ţađ er villandi en samt ekki út í hött. Söngstíllinn er ólíkur. En ţeir eru á líkum aldri. Eiga rćtur Bob Dylan og Woody Guthrie. Báđir njóta ómćldrar virđingar međal yngri tónlistarmanna.
Međ Hanusi í för er 16 manna kvennakór undir stjórn Paulu í Sandgerđi.
Viđ af Hanusi tekur dúettinn Tróndur Enni og Liv Nćs. Tróndur er bróđir Brands Enni sem naut gríđarmikilla vinsćlda sem barnastjarna á Íslandi um og upp úr 2002 og 2003. Brandur söng inn á plötu međ íslensku barnastjörnunni Jóhönnu Guđrúnu. Tróndur var í hljómsveitinni Arts um ţađ leyti og flutti inn á plötu lag eftir Hanus.
Liv Nćs er mögnuđ söngkona og lagahöfundur. Um frábćra plötu hennar má lesa HÉR:
Ég mćli eindregiđ međ fćreysku hljómleikunum í Hörpu.
Útvarp | Breytt 22.8.2015 kl. 09:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
17.8.2015 | 19:43
Plötuumsögn
Útvarp | Breytt 18.8.2015 kl. 22:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2015 | 22:34
Voru Bítlarnir írskir?
Seint á níunda áratug síđustu aldar dvaldi ég í Bandaríkjum Norđur-Ameríku. Bítlarnir njóta mikilla vinsćlda ţar á bć. Í sjónvarpinu var daglega í barnatíma sýnd teiknimyndasería um Bítlana. Ég nennti ekki ađ fylgjast međ henni. Lét barnunga syni mína um ţađ. Merkilegra ţótti mér ađ horfa á heimildarmynd um Bítlana. Af henni mátti ráđa ađ Bítlarnir vćru bandarísk hljómsveit.
Töluverđu púđri var variđ í hljómsveit George Harrison gítarleikara Bítlanna, Traveling Vilburys. Međ honum í hljómsveitinni voru bandaríkjamennirnir Bob Dylan, Tom Petty og Roy Orbison. Bretinn Jeff Lynn slćddist međ. Eiginkona Georges, barnsmóđir og tengdamóđir íslenskrar dóttur Kára Stefánssonar, Ólavía, er fćdd mexíkósk en bjó í Bandaríkjunum.
Af framsetningu mátti ráđa ađ Traveling Wilburys vćri bandarísk hljómsveit. Sem er ekki alrangt.
George Harrison söng međ sínu nefi Vestmannaeyarlag.
Umfjöllun um John Lennon snéri öll ađ búsetu hans í New York. Svo og ţarlendri eiginkonu hans, Yoko Ono. Hún var stjarna bandarísku Flux-nýlistasenunni.
Töluverđu púđri var eytt í bandaríska ljósmyndarann Lindu McCartney, eiginkonu bassaleikara Bítlanna, Paul McCartney. Eiginkona trommarans, Ringos, Barbara Bach, er líka bandarísk.
Af heimildarmyndinni um Bítlanna var ekki hćgt ađ ráđa annađ en ađ Bítlarnir vćru bandarísk hljómsveit. Engu var beinlínis logiđ. Frásögninni var bara stillt upp ţannig. Hátt hlutfall Kana stendur í ţeirri trú ađ Bítlanrir hafi veriđ bandarísk hljómsveit.
Hiđ rétta er ađ Bítlarnir voru ensk hljómsveit. Eđa hvađ?
Söngvari írsku hljómsveitarinnar U2, Bono, heldur ţví fram ađ Bítlarnir hafi veriđ írsk hljómsveit, hljómsveit írskra afkomenda í Bretlandi.
Afi Johns Lennons, John Jack Lennon, var írskur. Hann var giftur írskri konu. Ţau fluttu til Englands. Afi og amma Pauls McCartneys voru líka írsk. Ćttarnafniđ McCartney er írskt.
Ef Bítlarnir hefđu veriđ bandarísk hljómsveit er nćsta víst ađ írskum rótum Johns og Pauls hefđi veriđ og vćri hampađ. Afkomendur írskra innflytjenda til Bandaríkjanna rćkta uppruna sinn og veifa honum viđ öll tćkifćri.
Ţjóđverjar hafa löngum reynt ađ feđra Bítlana. Í hafnarborginni Hamborg í Ţýskalandi er ţví víđa flaggađ ađ ţar hafi Bítlarnir slitiđ barnsskónum. Ţjóđverjinn Klaus Woormann spilađi iđulega á bassa međ Bítlunum í Ţýskalandi. Hann var jafnframt bassaleikari Johns Lennons eftir ađ hljómsveitin Bítlarnir snéri upp tám. Ţýsk kćrasta hans, Astrid, varđ kćrasta bassaleikara Bítlanna, Stus Sutcliffes. Hún varđ hirđljósmyndari Bítlanna og hafđi gríđarmikil áhrif á hljómsveitina. Innleiddi til ađ mynda hina frćgu Bítlahárgreiđslu (hár greitt niđur á enni og látiđ vaxa yfir eyru).
Víđa í Hamborg í Ţýskalandi má ráđa af gögnum ađ Bítlarnir hafi veriđ svo gott sem ţýsk hljómsveit.
Hiđ rétta er ađ Bítlarnir eru í dag nćstum ţví íslenskt fyrirbćri. Hér er friđarsúla Johns Lennons í Viđey. Hér er ekkja Johns Lennons, Yoko Ono, međ annan fótinn. Ásamt syni ţeirra, Sean Lennon. Kári Stefánsson (Íslensk erfđagreining) er tengdafađir einkasonar George Harrisons og Ólavíu. Ţau eru öll meira og minna á Íslandi. Einkum í námunda viđ ţađ ţegar friđarsúlan er tendruđ. Ţá mćtir Ringó líka. Ćtíđ sprćkur og allir trođa upp međ Plastic Ono Band.
Paul McCartney hefur einu sinni sótt Ísland heim. Í kjölfar heimsókarinnar breytti hann texta Bítlalagsins "Why Don´t We Do It In The Road?" í "Why Don´t We Do It In The Fjörđ?"
Ţegar allt er vegiđ og metiđ eru Bítlarnir og Ísland samfléttaöri en írskar rćtur Johns og Pauls.
Útvarp | Breytt 17.8.2016 kl. 10:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
Seinni tíma rannsóknir hafa leitt í ljós ađ Verndarsamtök foreldra fóru villu vegar.
Reyndar ţarf engar rannsóknir til. Hérlendis höfum viđ langa reynslu af ţungarokkshátíđinni Eistnaflugi í Neskaupstađi. Um og yfir 2000 gestir hafa aldrei sýnt af sér annađ en góđa hegđun. Ţar er ekkert ofbeldi. Engir ţjófnađir. Engar nauđganir.
Til samanburđar höfum viđ skallapoppshátíđir á borđ viđ Ţjóđhátíđ í Eyjum um verslunarmannahelgina. Ţar er aldrei spurt um ţađ hvort ađ einhverri manneskju hafi veriđ nauđgađ eđa hvort einhver hafi veriđ laminn. Ţar er ađeins spurt um fjölda nauđgana og barsmíđa.
Stćrsta árleg ţungarokkshátíđ í Evrópu, Wacken í Ţýskalandi, telur 80 ţúsund gesti. Ţar hafa aldrei komiđ upp vandamál. Engar nauđganir. Engar barsmíđar. Enginn ţjófnađur.
Nú hefur veriđ birt í tímaritinu Self and Identidy niđurstađa rannsóknar á ţungarokkurum. Niđurstađan passar viđ allar ađrar alvöru kannanir. Hún stađfestir ađ ungir ţungarokkarar eru almennt hamingjusamari en jafnaldrar sem hlusta á ađra músík. Ţeir eru heiđarlegri og í betra andlegu jafnvćgi. Gáfađri og međ meiri félagslega fćrni. Ţungarokkarar spjara sig betur í lífinu en ţeir sem hlusta á ađra músíkstíla.
Rannsóknin nćr aftur til ársins 1980 (hálfan fjórđa áratug). Ţá voru ţungarokkarar ađ hlusta á Iron Maiden og Metallica.
Á síđasta ári voru ţungarokkarar virkustu notendur Spotify. Á síđasta ári toppađi rokkmúsík ađra músíkstíla í plötusölu í Bandaríkjunum.
Heimska fólkiđ stillir á FM957 og Léttbylgjuna.
Útvarp | Breytt 9.8.2016 kl. 16:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)