Fćrsluflokkur: Útvarp

Sjötugir og alltaf jafn strákslegir

rollingstones-young

  Breska blúsrokkhljómsveitin The Rolling Stones er um ţađ bil elsta rokkhljómsveit heims.  Hún er jafnframt ein örfárra rokkhljómsveita frá sjöunda áratugnum sem hefur aldrei hćtt.  Flestar rokkhljómsveitir frá sjöunda áratugnum hafa hćtt.  Sumar hafa alveg hćtt.  Ađrar hafa veriđ endurlífgađar mörgum árum eđa áratugum síđar.

  The Rolling Stones hefur lítiđ skipt sér af eiginlegum rokkhátíđum.  Ţađ er ađ segja hátíđum sem standa í marga daga og bjóđa upp á langa dagskrá međ fjölda skemmtikrafta.  Ţess í stađ hefur The Rolling Stones fariđ í stórar hljómleikaferđir vítt og breitt um heim.  Ţađ er mikiđ í ţćr lagt.  Sérhönnuđ sviđsmynd er sett upp á hverjum stađ og allt er mjög stórt í sniđum.  Eitt sinn hitti ég kokk sem vann ásamt fleirum viđ ađ elda ofan í liđsmenn The Rolling Stones og starfsmenn ţeirra.  Hópurinn var á viđ heilt ţorp.  Fyrir utan fjölda ađstođarhljóđfćraleikara, bakraddasöngkvenna, rótara, hljóđmanna, ljósameistara, smiđi, förđunarfrćđinga og lífverđi voru međ í för lćknir, líkamsrćktarţjálfari og eitthvađ ţess háttar liđ.  Ţó ađ kokkurinn hafi unniđ daglega međ hópnum í lengri tíma hafđi hann einungis spjallađ viđ gítarleikarann Ronnie Wood.  Ronnie hafđi spurnir af ţví ađ kokkurinn safnađi málverkum og málađi sjálfur í frístundum.  Ronnie hafđi frumkvćđi af ţví ađ spjalla viđ kokkinn um myndlist af og til.  Hina Rollingana hitti kokkurinn aldrei til ađ eiga orđaskipti viđ.

  Hljómleikaferđir The Rolling Stones hafa alltaf vakiđ athygli og fengiđ mikla umfjöllun í fjölmiđlum.  Ţćr hafa jafnframt viđhaldiđ ímynd The Rolling Stones sem stćrstu rokkhljómsveitar heims (eftir ađ Bítlarnir hćttu). 

  Í vor brá hinsvegar svo viđ ađ liđsmenn The Rolling Stones höfđu frumkvćđi af ţví ađ koma fram á stćrstu árlegri útitónlistarhátíđ heims,  Glastonbury.  Hún er alltaf haldin síđustu vikuna í júní.  Ţađ var gítarleikarinn Ronnie Wood sem suđađi í ţeim hinum ţangađ til ađ ţeir létu undan hans ósk:  Ađ spila á alvöru útihátíđ.  Ronnie er krakkinn í hópnum.  Sá eini Rollinga sem fćr ekki gamalmennaafslátt í sund og strćtó.  Hann er nćr ţví ađ fá afhentan barnamatseđil á veitingastöđum út á barnslegt andlit. 

ron-wood-eldri mynd

  Ákvörđunin reyndist happadrjúg,  bćđi fyrir The Rolling Stones og Glastonbury.  Ég var úti í Englandi ţegar dagskrá Glastonbury var kynnt fjölmiđlum.  The Rolling Stones var á forsíđum bresku dagblađanna og músíktímarita nćstu daga.  Ţetta var ađalfrétt í útvarps- og sjónvarpsstöđvum.  Spjallţrćđir Breta á netinu voru undirlagđir umrćđu um The Rolling Stones og Glastonbury.  Fréttir af nú afstađinni Glastonbury hátíđinni snúast meira og minna um The Rolling Stones.  Allt mjög jákvćtt.  Eftir ţví var tekiđ hvađ ţessir sjötugu rokkarar eru strákslegir. 

rollingstones eldri mynd

  Ţetta er eldri mynd af strákunum.  Á Glastonbury voru ţeir eins og fermingardrengir.  Ţađ hjálpađi upp á ađ Keith var málađur um augun (eyeliner) og Mick međ fagurgrátt hár sitt litađ brúnt. 

rollingstones-glastonbury-f


Áríđandi! Ekki missa af!

  Ţađ er orđiđ alltof langt síđan fćreyska álfadísin,  Eivör,  hefur haldiđ hljómleika á Íslandi.  Ennţá lengra er síđan hún hefur haldiđ hljómleika á litlum stađ ţar sem hún er í nálćgđ viđ áheyrendur.  Nú ber heldur betur til tíđinda:  Nćstkomandi föstudag (12.  júlí) verđur Eivör međ hljómleika á Gamla Gauknum.  

  Eins og allir vita sem hafa veriđ á hljómleikum hjá Eivöru ţá er ţađ miklu áhrifaríkari og stórkostlegri upplifun en ađ hlusta á plötur međ henni eđa lög í útvarpi.  Samt eru plöturnar hennar ljómandi góđar en ólíkar hver annarri.  Á hljómleikum nćr Eivör ađ framkalla töfra.  Hún dáleiđir áheyrendur.  Ţeir sitja opinmynntir umvafđir fegurđ tónlistarinnar;  frábćrum söng og túlkun Eivarar.  Stór ţáttur í magnađri stemmningunni rćđst af sterkum sviđsţokka Eivarar,  útgeislun og spjalli hennar á milli laga og kynningum á lögunum.

  Ekki missa af ţessum hljómleikum!  Miđasala er hafin á www.gamligaukurinn.is .  Ţađ er algjörlega óvíst hvenćr Eivör heldur nćst hljómleika á Íslandi.  Vinsćldir hennar út um heim vaxa jafnt og ţétt međ tilheyrandi spurn eftir hljómleikum.  Sem dćmi ţá hafđi nýjasta plata hljómsveitar hennar,  Vamp,  selst í 130 ţúsund eintökum í Noregi síđast ţegar ég vissi (í fyrra).   Ţá fékk Eivör afhenta ţrefalda platínuplötu fyrir söluna.  Nćsta víst er ađ platan sé í dag til á nálćgt 200 ţúsund norskum heimilum.  Hún var nefnilega enn í 1. sćti norska sölulistans ţegar Eivör fékk ţreföldu platínuplötuna.

  Á undan Eivöru á Gauknum stígur á stokk önnur flott fćreysk söngkona,  Dorthea Dam.  Hún átti eitt mest spilađa lag í fćreysku útvarpi í fyrra.  Ţađ heitir Candy og hefur eitthvađ veriđ spilađ í íslensku útvarpi.  Fleiri lög međ Dortheu hafa fengiđ góđa spilun í fćreysku útvarpi.

  Eftir ađ Dorthea og Eivör hafa heillađ salinn upp úr skónum svífa á sviđ stuđboltinn Sigurđur Ingimars og hljómsveit.  Sigurđur var sigurvegari í Íslensku trúbadorkeppninni og á fćreyska konu.  

  Daginn eftir,  laugardaginn 13. júlí,  er Eivör međ hljómleika á Grćna hattinum á Akureyri.

  


plötuumsögn

binni.jpgbinni_a_little_trip.jpg

  - Titill:  A Little Trip

  - Flytjandi:  Binni Rögnvalds

  - Einkunn: **** (af 5)

  Binni Rögnvalds er skagfirskur trúbador.  Hann er söngvaskáld,  gítarleikari og söngvari.  Fađir hans,  Rögnvaldur Valbergsson,  er kunnur tónlistarmađur í Skagafirđi;  kórstjórnandi og hljómborđsleikari helstu hljómsveita Skagafjarđar,  svo sem Trico og Hljómsveitar Geirmundar.  

  A Little Trip er fyrsta plata Binna.  Í gamla daga hefđi svona plata veriđ skilgreind sem Ep.  Hún er sex laga (mitt á milli smáskífu og "stórrar" Lp plötu).

  Fyrstu tvö lögin eru í svipuđum stíl:  Ţau falla undir skilgreiningu á "krúttpoppi".  Ţetta eru áferđarfögur lög.  Róleg lög međ minimalískum hljóđfćraleik.  Upphafslagiđ,  Hamburg,  leiđir huga ađ With Or Without You međ írsku hljómsveitinni U2.  Seyđmögnuđ og dáleiđandi fegurđ umlykur ţessi lög.  Einfaldleiki,  látleysi og klingjandi gítar lađa fram ljúfa og notalega tilfinningu.

  Í lagi nr. 2,  Fly,  bćtist viđ í viđlagi söngur Dönu Ýr Antonsdóttur.  

  Ţegar ég hlustađi fyrst á plötuna var ég kominn í ţannig stemmningu ađ ţriđja lagiđ var eins og ţruma úr heiđskíru lofti.  Heldur betur skipt um gír.  Call In Sick er hart pöbbarokk;  rythmablús.  Mér kćmi ekki á óvart ađ ţađ lag hafi veriđ hljóđritađ "live" í hljóđveri.  Rífandi gítar og fjör.  Hressilegt lag. Binni fer úr hlutverki ljúfa söngvarans og ţenur raddböndin. 

  Fjórđa lagiđ er Fame and Fortune.  Fyrstu ţrjú lögin eru ekki međ rífandi krćkjur (hooks).  Ţau eru frekar međ vinalegar laglínur sem vinna stöđugt á viđ ítrekađa hlustun.  Fame and Fortune er međ krćkju bćđi í laglínu og stefi í undirleik.  Útvarpsvćnasta lag plötunnar.   Gítarinn jađrar viđ ađ nálgast reggí-takt. Kannski er ţađ óskhyggja hjá djassgeggjaranum mér ađ greina smá djasskeim í ţessu lagi.  

  Fimmta lagiđ,  Daddy´s Lullaby,  kallar fram hughrif í átt ađ Nick Cave.  Leiđandi píanólína og falleg laglína.  Afskaplega snoturt lag.  

  Lokalagiđ,  Who Belongs To Me,  sver sig í sömu ćtt.   Ţessi plata Binna Rögnvalds er afskaplega vel heppnuđ.  Góđ lög,  góđur flutningur.  Allt snyrtilega afgreitt.  Engir stćlar í hljóđfćraleik eđa öđru.  Enginn rembingur.  Bara allt flott.  Flott plata. 


The Rolling Stones

  Jú,  reyndar vissir ţú ţetta ef ţú ert sýslumađur Árnessýslu.  Annars vissir ţú ţađ ekki.  Kannski sumt af ţessu.  En ekki allt. 

  -  Fyrsti trommuleikari The Rolling Stones varđ síđar heimsfrćgur sem trommari The Kinks. Hann  heitir Mick Avory. 

  -  Annar tveggja gítarleikara The Rolling Stones heitir Ronnie Wood.  Fyrir daga The Rolling Stones gerđi bróđir hans ţađ gott á breska vinsćldalistanum.  Ţađ var 1961 sem Ted Wood og hljómsveit hans,  Temperance Seven,  sló í gegn međ laginu You´re Driving Me Crazy. 

 

  -  Vörumerki The Rolling Stones er útfćrsla á tungu og vörum söngvarans,  Micks Jaggers.  Vörumerkiđ er jafnframt sótt í tákn eins af guđum Hindúa,  Kali the Destroyer. 

  -  Bítlarnir uppgötvuđu The Rolling Stones,  urđu ákafir ađdáendur og komu The Rolling Stones á plötusamning.  Ţađ var gítarleikari Bítlanna,  George Harrison,  sem gekk á fund forráđamanna plöturisans Decca og benti ţeim á ađ ţarna vćri tćkifćri til ađ rétta hlut sinn eftir ađ Decca hafđi hafnađ Bítlunum og orđiđ ađ athlćgi fyrir klúđriđ.  Bítlarnir voru orđnir ofurstjörnur ţegar hér var komiđ sögu.  Forráđamenn Decca tóku ábendingu Harrisons međ ţökkum og gerđu plötusamning viđ The Rolling Stones í snatri.

  -  Fyrsta smáskífa The Rolling Stones náđi ekki ţeim árangri sem ađ var stefnt.  Ţađ var lag eftir Chuck Berry,  Come On.  Smáskífan náđi ekki inn á Topp 20 vinsćldalistans.  En nćstum ţví (21. sćti).  Bítlarnir John Lennon og Paul McCartney tóku sig ţá til og sömdu fyrir The Rolling Stones lag sem átti ađ koma hljómsveitinni inn á Topp 20.  Ţađ gekk eftir.  Lagiđ,  I Wanna Be Your Man,  flaug í 12 sćti breska vinsćldalistans.  Sögusagnir hafa veriđ um ađ ţetta lag hafi upphaflega veriđ samiđ fyrir trommuleikara Bítlanna,  Ringo Starr,  til ađ syngja.  Löngu löngu síđar upplýsti forsprakki Bítlanna,  John Lennon,  ađ ţeir Paul McCartney hafi veriđ búnir ađ skilgreina ţetta lag sem ekki nógu gott fyrir Bítlana.  En ţađ sem ţeir Lennon og McCartney skilgreindu sem ekki nógu gott fyrir Bítlana myndi engu ađ síđur skila The Rolling Stones inn á Topp 20.  Sjálfir voru Lennon og McCartney ţegar orđnir áskrifendur ađ 1. sćti breska vinsćldalistans. 

  -  Bítlarnir John Lennon og Paul McCartney kenndu liđsmönnum The Rolling Stones galdurinn viđ ađ semja lög. 

  -  Bítlarnir innleiddu nýja byltingarkennda hárgreiđslu:  Ađ greiđa háriđ fram á enni og leyfa hárinu ađ vaxa yfir eyrun.  Liđsmenn The Rolling Stones gengu lengra og lögđu sig fram um ađ vera međ síđara hár en Bítlarnir. 1963 keyptu The Rolling Stones auglýsingar í dagblöđum undir jólakveđju sem hljómađi ţannig:  "Bestu óskir til sveltandi hárskera og ţeirra fjölskyldna."  Meiningin í textanum er:  "Bestu óskir um gleđileg jól til..."

  -  Kvikmyndaleikstjórinn Martin Scorsese hefur notađ The Rolling Stones lagiđ Gimme Shelter í fjórum af sínum kvikmyndum.  Hann er einlćgur og ákafur ađdáandi.  Hann gerđi líka heimildarkvikmynd um The Rolling Stones,  Shine A Light.  Alveg fjögurra stjörnu mynd.

  -  Nafniđ á The Rolling Stones er sótt í samnefnt lag međ bandaríska blúsaranum Muddy Waters.

  -  Nafniđ The Rolling Stones er iđulega ranglega ţýtt á íslensku sem Rúllandi steinar.  Rétt ţýđing er Flćkingarnir. 

  -  Söngvari The Rolling Stones,  Mick Jagger,  er eldheitur áhugamađur um ballettdans. 

  -  Ţađ kom mörgum á óvart ţegar upplýst var ađ besti vinur bandaríska háđfuglsins,  gítarsnillingsins og söngvahöfundarins Frank heitins Zappa var Mick Jagger,  söngvari The Rolling Stones.  Hvorugur ţeirra hafđi upplýst um ţetta fyrir fráfall Zappa.  Ţeir voru ekki á nákvćmlega sömu línu í tónlist.  En ţeir náđu saman í heimspekilegu spjalli um heimsmálin,  pólitík,  listir og menningu og ţess háttar.  Báđir bráđgáfađir.  Ţeim ţótti fyrst og fremst gaman ađ spjalla saman.  Ţegar Mick var á ferđ í námunda viđ heimili Zappa kom hann ćtíđ ţar viđ og dvaldi jafnvel dögum saman hjá Zappa.  Músík var sjaldnast á dagskrá.   

  -  Trommuleikari The Rolling Stones,  Charlie Watts,  er lítiđ fyrir rokk.  Hann er harđlínu djassgeggjari. 

  -  Eitt sinn voru The Rolling Stones á hóteli.  Ađ mig minnir á 3ju hćđ.  Söngvaranum,  Mick Jagger,  varđ ţađ á ađ tala um Charlie Watts sem trommuleikarann sinn.  Charlie snöggreiddist.  Hann stökk á Mick og ćtlađi ađ henda honum út um glugga.  Gítarleikarinn Keith Richard kom Mick til bjargar međ ţví ađ skakka leikinn.  Ástćđan sem Keith gaf var sú ađ Mick var í uppáhalds jakka Keiths.  Keith vildi ekki sjá á eftir jakkanum út um gluggann.

  -  1977 var gítarleikari The Rolling Stones,  Keith Richard,  böstađur fyrir ađ vera međ dóp.  Sanngjarnir dómarar dćmdu hann til ađ taka út refsingu međ ţví ađ halda hljómleika fyrir blinda í Toronto.  Hugmyndina fengu dómarar út frá frétt af ţví ađ Keith hafđi áđur tekiđ upp á ţví ađ hjálpa blindri konu ađ komast á hljómleika hjá The Rolling Stones.  Keith var ađ sumu leyti sáttur viđ dóminn en líka í uppreisn.  Hann lagđi ţví allt undir međ ţví ađ bjóđa ţeim blindu upp á glćsilegasta myndrćna "show" sem mögulegt var.  En vitaskuld sáu blindu "áhorfendurnir" ekkert af ţessu "showi".  Ţađ er púki í Keith. 

  - Textarnir á plötu The Rolling Stones Exile On Main St.  voru samdir eftir uppskrift bandaríska skáldsins William S. Burrough.  Uppskriftin var sú ađ klippa niđur texta og rađa honum aftur tilviljunarkennt upp.  Ţannig fengju setningar og meiningar óvćnt annađ samhengi.  William S.  Burrough er eitt mesta skáld Bandaríkjanna.  Međal annars gerđi Kurt Cobian (Nirvana) plötu viđ ljóđ Williams S. Burroughs.  Líka Michael Frant í Beatnigs og Spearhead.  Fremur en ađ telja upp uppátćki Burroughs hvet ég til ţess ađ ţiđ "gúgliđ" kallinn.  Hans saga er svo mikiđ dćmi.


Bestu trommuleikararnir

  Spin er nćst söluhćsta bandaríska músíktímaritiđ.  Rolling Stone er söluhćst.  Rolling Stone er jafnframt söluhćsta músíktímarit heims.  Sala á ţessum tímaritum í pappírsútgáfu hefur dalađ töluvert eftir tilkomu internetsins.  Pappírsútgáfan af Rolling Stone selst í hálfri annarri milljón eintaka í dag - eftir ađ hafa áđur veriđ nálćgt tveimur milljónum eintak.  Pappírsútgáfan af Spin selst í hálfri milljón eintaka.  Ađ mestu í áskrift út um allan heim.  Ţađ er svo einkennilegt í Bandaríkjunum ađ Spin og önnur bandarísk músíktímarit - önnur en Rolling Stone - eru ekki seld í blađsöluvögnum eđa sjoppum.  Ţess í stađ eru helstu bresku músíktímaritin seld ţar.

  Engu ađ síđur eru Spin og Rolling Stone ráđandi í heiminum í umfjöllun um rokkmúsík.   

  Nú hefur ritstjórn Spin tekiđ saman vel rökstuddan lista yfir bestu trommuleikara heims.  Svona listar Spin ráđast ekki af samanburđi á tćknilegri fćrni hljóđfćraleikara heldur hvađ hljóđfćraleikararnir gera fyrir hljómsveitirnar sem sínar.  Listar Spin eru ţess vegna jafnan ólíkir öđrum slíkum listum. 

  Allir svona listar eru fyrst og fremst léttvćgur samkvćmisleikur.  Enginn Stóridómur.  Smekkur fyrir músíkstílum og tónlist viđkomandi hefur margt ađ segja.  Ţetta er ađeins til gamans.   

  Ţannig er listi Spin yfir bestu trommuleikarana:

 1.  Dave Grohl (Nirvana)

  Spin:  Ekki međ nákvćmustu tímasetningar eđa flest litbrigđi.  Ţess í stađ spilar Dave af tilfinningu, er ágengur og lćtur stemmninguna ráđa för.  Jafnframt er trommuleikur hans melódískur.
  Ég:  Dave er alltaf blessunarlega laus viđ rembing og stćla.
 
 
2.  Clyde Stubblefield og John "Jabo" Starks (James Brown)
  Spin:  Clyde og Jabo trommuđu ýmist sitt í hvoru lagi eđa saman.  Clyde er hinn eini sanni fönk-trommari.  Jabo var međ hárnákvćmar tímasetningar og "grúviđ" sem skóp upphaf fönksins.
 
 
3.  Stewart Copeland (Police)
  Spin:  Byltingarkenndur trommuleikur sem einkenndist af strekktri sniđtrommu og reggí-kitli.  
 
 
4.  Tony Allen (Fela Kuti)
 
 
5.  Terry Bozzio (Frank Zappa)
6.  Jaki  Liebezeit (Can)
7.  Zigaboo Modeliste (The Meters)
8.  Steve Reid (Miles Davis og Sun Ra)
9.  ?uestlove (The Roots)
10.  Chad Smith (Red Hot Chili Peppers)
11.  Dave Lombardo (Slayer)
12.  Dale Crover (Melvins)
13.  Tim "Herb" Alexander (Primus)
14.  Will Calhoun (Living Colour)
15.  Drumbo (Captain Beefheart)
16.  Stephen Perkins (Jane´s Addiction og Porno for Pyros)
17.  Matt Cameron (Pearl Jam og Soundgarden)
18.  Jimmy Chamberlin (Smashing Pumpkins)
19.  Martin Chambers (The Pretenders)
20.  Tommy Ramone (Ramones)
21.  "Bigfoot" Brailey (Parliament / Funkadelic)
22.  George Hurley (Minutemen og fIERHOSE)
23.  Jon Theodore (The Mars Volta)
24.  Zack Hill (Death Grips)
25.  Bill Stevenson (Black Flag og Descendents)
26.  Ramon "Tiki" Fulwood (Parliament / Funkadelic)
27.  Mike Bordin (Faith No More)
28.  Budgie (Siouxsie and the Banshees)
29.  Danny Carey (Tool)
30.  Glenn Kotche (Wilco)
  Af merkum trommuleikurum sem ná ekki inn á Topp 30 en eiga ţar engu ađ síđur heima má nefna: 
  Tómas Haake í Meshuggah (32),  Mick Harris í Napalm Death (37),  Hugo Burnham í Gang of Four (49),  Bill Ward í Black Sabbath (62),  Igor Cavalera í Sepultura (73) og Topper Headon í The Clash (81).  Til ađ undirstrika grćskulaust gamaniđ er í 60. sćti Roland trommuheili.
 

Jon Bon Jovi valdi fćreyska músík

 

  Stóra fréttin í dönskum fjölmiđlum í dag er ađ bandaríska hljómsveitin Bon Jovi hafi kolfalliđ fyrir fćreyskum tónlistarmanni.  Bon Jovi er bandarísk hljómsveit og eitt stćrsta nafniđ í rokkheiminum í dag.  Hún hefur komiđ fjölda laga í 1. sćti bandaríska vinsćldalistans og ennţá fleiri nálćgt toppsćtinu.  Ţekktasta lag Bon Jovi er sennilega Livin´ On A Prayer.  Plötur međ Bon Jovi hafa einnig ratađ í 1. sćti bandaríska vinsćldalistans.  Ţćr hafa samtals selst í á annađ hundrađ milljón eintökum.

  Bon Jovi er hljómsveit söngvarans Jon Bon Jovi.  Hann er fćddur og uppalinn í New Jersey,  9 milljón manna smáríki viđ hliđ New York.  Frćgasti sonur New Jersey er Brúsi frćndi (Bruce Springsteen).  Ţeir Jon Bon Jovi eru góđir vinir.  

  Ég er úr Skagafirđinum.  Ţar er Bon Jovi í miklum metum.  Eiginlega ríkir Bon Jovi fár á Sauđárkróki.  Sjálfur er ég ekki í hópi ćstustu ađdáanda Bon Jovi.  En ég ber virđingu fyrir kauđa.  Ástćđan er sú ađ ég sá í erlendri sjónvarpsstöđ heimildamynd um kappann.  Ţar kom fram ađ hann má ekkert aumt sjá.  Hann er mikill mannvinur.  Hann er auđmađur hvađ tekjur varđar en ver auđćfum sínum í ađ hlaupa undir bagga međ útigangsmönnum.  Hann kaupir heilu fjölbýlishúsin (blokkir) undir útigangsfólk.  Hann heimsćkir íbúana reglulega og gengur úr skugga um ađ vel fari um ţá.  Lengst af hélt hann ţessu leyndu fyrir fjölmiđlum.  Og ćtlađi ađ hafa ţetta fyrir leyndarmál.  Hann óttađist ađ uppátćkiđ yrđi skilgreint sem hann vćri ađ hreykja sér eđa hampa sér á kostnađ útigangsmanna.  Framan af reyndi hann ađ koma í veg fyrir ađ upplýsingar um ţetta kćmu fram á Wikipedia. 

  Uppátćkiđ barst til eyrna Bills Clintons sem vildi vekja athygli á framtakinu.  Afstađa Clintons réđist af ţví ađ hann taldi uppátćki Jons verđa öđrum auđmönnum til eftirbreytni.  Ég held ađ ţađ hafi samt ekki orđiđ raunin.  

  Jon Bon Jovi rekur einnig veitingahúsakeđju.  Ég man ekki hvađ hún heitir.  Ţar eru engir verđlistar í gangi.  Viđskiptavinir ráđa hvađ ţeir borga.  Útigangsmenn ţurfa ekki ađ borga neitt fyrir máltíđir ţar.  Ţeim stendur til bođa ađ vinna sjálfbođavinnu í eldhúsi gegn máltíđ.  Ţeir ráđa ţví ţó.  Ef ţeir kjósa ađ borđa á veitingastađnum án vinnuframlags ţá er ţađ ţeim frjálst.  Ađrir gestir eru hvattir til ađ borga fyrir máltíđ ríflega upphćđ til ađ standa undir útgjöldum viđ máltíđir fyrir útigangsmenn.  Dćmiđ gengur alveg upp ţannig.  Reksturinn stendur undir sér.  Eiginlega engir útigangsmenn misnota ađstöđuna.  Ţeir sem engan pening eiga fyrir máltíđ bjóđa fram vinnu sína í eldhúsinu.  Margir kunna ţessu svo vel ađ ţeir skila vinnuframlagi sem fer langt umfram kostnađ viđ máltíđ.

  6. júní halda Bon Jovi hljómleika í Parken í Danmörku.  Jon Bovi fékk músíksýnishorn frá 60 hljómsveitum til ađ velja úr upphitunarnúmer.  Hann og félagar hans í Bon Jovi lágu yfir ţessum sýnishornum í nokkrar vikur.  Niđurstađan varđ sú ađ ţeir völdu fćreyska tónlistarmanninn Jens Marni til ađ hita upp fyrir sig.  Áreiđanlega hjálpađi hvađ nafniđ Jens er flott.  

  Danskir fjölmiđlar segja ađ val Bon Jovi á upphitunarnúmerinu ţýđi ađ Jens Marni verđi stimplađur rćkilega inn í dönsku rokkmúsíksenuna.  Hann verđi stórt nafn í dönsku músíksenunni.  

  Jon Bon Jovi er góđur mađur og vel greiddur.  Ţökk sé mömmu hans sem er hárgreiđsludama.  

  


Pönkhljómsveit semur ballettverk

 

  Einhvernvegin hljóma orđin pönkrokk og ballett eins og algjörar andstćđur.  Eins og eitthvađ sem á enga samleiđ heldur stangast á.   Stangast jafn harkalega á og passar jafn illa saman og sođin ýsa međ kartöflum og smjöri annarsvegar og hinsvegar strásykur og núggat.

  Víkur ţá sögu ađ pönkinu.  Ein af vinsćlustu hljómsveitum bresku pönkbyltingarinnar á seinni hluta áttunda áratugarins var The Stranglers.  Hljómsveitin fór mikinn á vinsćldalistum víđa um heim.  Naut međal annars mikilla vinsćlda á Íslandi.  Hélt hér vel sótta hljómleika 1978 og nokkrum sinnum síđar.  Samtals komu The Stranglers 23 lögum inn á breska vinsćldalistann,  Topp 40,  og 12 plötum.  Nýjustu fréttir af The Stranglers eru ţćr ađ hljómsveitin er ađ semja ballettverk,  byggt á plötunni The Gospel According To The Meninblack.  Ţá plötu sendi The Stranglers frá sér 1981. 

  Bassaleikarinn og söngvarinn JJ-Burnel lýsir verkinu ţannig:  "Ţetta er einhverskonar blanda af Frankenstein og Madame Butterfly.  Verkiđ fjallar um sköpun gođanna og geimvera á manninum." 

  Ţegar betur er ađ gáđ eiga The Stranglers og ballett snertiflöt.  ţađ fór ekki hátt á sínum tíma ađ JJ-Burnell á ađ baki nám í klassískum gítarleik og spilađi međ sinfóníuhljómsveit fyrir daga The Stranglers. 

  Til gamans má geta ađ trommuleikari The Stranglers er hálf áttrćđur.  Unglambiđ JJ-Burnel er einungis á sjötugsaldri.  Breska pönkbyltingin er 37 ára.  Ţađ er eins og hún hafi veriđ í gćr. 


Rolling Stone tímaritiđ gefur út fćreyskt lag

newnoizes   

  Tímaritiđ Rolling Stone er söluhćsta tónlistarblađ heims.  Upplag blađsins er hálf önnur milljón eintaka.  Ţar af er stćrsti hluti upplagsins á ensku.  Nćst stćrsti hlutinn er á ţýsku.  Blađiđ kemur einnig út á frönsku,  spćnsku og einhverjum fleiri tungumálum.  Ţýska útgáfan selst í 60.000 eintökum.  Međ nćsta tölublađi fylgir safnplatan Whatever Turns You On.  Á henni eru 10 lög;  sýnishorn af ţví ferskasta,  flottasta og efnilegasta í poppmúsík dagsins í dag.  

  Međal laga á plötunni er eitt frá Fćreyjum.  Ţađ heitir  Inner Beast  og er af plötunni  Ghost With Skin,  sólóplötu söngvaskáldsins,  gítarleikarans og söngvarans Benjamíns í Götu.   Benjamín Petersen er 24ra ára og hefur oft komiđ fram á hljómleikum hérlendis.  Bćđi sem sólólistamađur og einnig sem gítarleikari Eivarar og hljómsveitarinnar Kvönn. 

  Um lagiđ međ Benjamín segir í Rolling Stone: 

  "07.  Der Hype eilt Benjamin Petersen voraus. So wurde der junge Songwriter von den Färöer-Inseln schon vor Erscheinen seines Albums „Ghost With Skin“ mit Etiketten wie „Rock’n’Roll-Jesus“ belegt. Zu solchen Begeisterungsstürmen wollen wir uns nun nicht gleich hinreißen lassen, auch wenn Benjamin – zugegeben – ziemlich viel kann. In „Inner Beast“ zum Beispiel verbindet er MGMT-Pop mit halsbrecherischen Gitarrenläufen im Stil eines Dick Dale." 

  Ţýski markađurinn er ţriđji stćrsti tónlistarmarkađur heims.  Ţađ er öflug kynning ađ eiga lag á plötu sem fer inn á 60 ţúsund heimili ákafra tónlistarunnenda.  Í kjölfariđ heldur Benjamín í hljómleikaferđ til Ţýskalands og Danmerkur. 

  Ég er ekki međ Inner Beast lagiđ.  En hér er annađ lag međ Benjamín:

   Benjamín er ekki óţekkt nafn í Ţýskalandi.  Hér fyrir neđan er ljósmynd úr stćrstu plötubúđinni í Berlín.  Ţar er plötu Benjamíns hampađ á sérstökum stalli undir yfirskriftinni "Tipp!".  Ef vel er ađ gáđ má sjá plötu Ólafar Arnalds ţarna fyrir neđan.  Ólöf nýtur töluverđra vinsćlda í Ţýskalandi,  Englandi og Skotlandi.  Og kannski víđar.

Benjamin-plata     


Söngvari Metallica hampar fćreyskri hljómsveit

  Bandaríska ţungarokkshljómsveitin Metallica er ein sú hćst skrifađa í heiminum.  Plötur hennar seljast í tuga milljóna upplagi.  Allt upp undir 30 milljónum stök plata.  Ţćr stökkva jafnan í 1. sćti vinsćldalista í útgáfuvikunni.  Ţegar liđsmenn Metallica tjá sig um rokktónlist ţá hlusta margir.  

  Á dögunum birti forsöngvari,  gítarleikari og ađal söngvahöfundur Metallica,  James Hetfield mynd af snjallsímanum sínum á samskiptavefnum Instagram.  Ţar sést ađ síminn er stilltur á lag međ fćreyska víkingametalbandinu Tý.  Lagiđ heitir  Sinklars Vísa  og er af plötunni  Land

  Undir myndina skrifar James:  "A little obsessed with these guys at the moment #Faroe Islands #WykingMetal".  Í lauslegri ţýđingu segist James vera heillađur af ţessum fćreysku víkingarokkurum.  Ţađ er skemmtilegt ađ lagiđ sem James er hugfangnastur af međ Tý skuli vera sungiđ á fćreysku.  Mér segir svo hugur ađ ţađ sé ađ hluta fćreyskan sem lćtur víkingametal Týs hljóma spennandi í eyrum heimsmarkađarins.  Ţegar ég var í Finnlandi um ţar síđustu jól heyrđi ég í útvarpinu splađan  Ormin langa  međ Tý.  Og í sama útvarpsţćtti annađ fćreyskt lag.  Ég man bara ekki hvort ađ ţađ var  Ólavur Riddararós  međ Harkaliđinu eđa eitthvađ annađ.  Ég kann ekki finnsku svo ađ ég veit ekkert hvađ ţulurinn sagđi um ţessi lög.  

  Ef vel er rýnt í "kommentin" hćgra megin viđ myndina má sjá Hera Joensen, söngvara, gítarleikara og ađal söngvahöfund Týs,  ţakka fyrir sig.      

metallica um Tý

  Hljómsveitin Týr nýtur vinsćlda víđa um heim.  Ekki síst hérlendis.  2002 átti Týr vinsćlasta lagiđ á Íslandi,  Ormurin langi.  Vinsćldir ţess lags og Týs urđu sprengja sem kölluđ var Fćreyska bylgjan.  Hún opnađi íslenska markađinn upp á gátt fyrir fćreyskri tónlist.  Inn á markađinn ţétt á hćla Týs streymdu Eivör,  Clickhaze,  Makrel,  Brandur Enni,  pönksveitin 200,  Hanus G.,  Arts,  Kári Sverrisson,  Krit,  Deja Vu,  Lena Andersen,  Gestir,  Taxi,  Yggdrasil,  Högni Lisberg,  Högni Restrup,  Hamferđ,  Pétur Poulsen,  Guđríđ Hansdóttir,  Dorthea Dam,  Pushing Up Daisies og áreiđanlega annar eins fjöldi sem ég man ekki eftir í augnablikinu. 

  Fyrir tveimur árum vakti mikla athygli í Ameríku ţegar plata međ Tý náđi 1. sćti CMJ vinsćldalistans.  Sá listi mćlir spilun í svokölluđum háskólaútvarpsstöđvum.  Sem er ekki nákvćm lýsing vegna ţess ađ listinn er ekki alveg bundinn viđ háskólaútvarpsstöđvar heldur nćr yfir allar framhaldsskólaútvarpsstöđvar í Kanada og Bandaríkjum Norđur-Ameríku.  Ţađ vakti mikla athygli ađ fćreysk hljómsveit ćtti mest spiluđu plötuna í skólaútvarpsstöđvunum ţá vikuna.  Ekki síst vegna ţess ađ útvarpsstöđvarnar eru ekki mikiđ í ţungarokkinu en ţeim mun meira í ţví sem kallast alternative rokk. Tiltekinn hluti hjólabrettapönks,  gáfumannapopps og nýbylgju er kallađ samheitinu bandarískt háskólarokk. 

  Ţađ segir töluvert um vinsćldir Týs utan Fćreyja og Íslands ađ einstök vinsćlustu lög ţeirra hafa veriđ spiluđ á 4đu milljón sinnum á ţútupunni.  


Íslensk tónlist í London

  Á Oxford strćti í London er stćrsta plötubúđ í heimi.  Ţađ ţarf ekki ađ koma á óvart ađ hún sé jafnframt stćrsta plötubúđ HMV plötubúđakeđjunnar (sem telur á ţriđja hundruđ plötubúđir víđa um heim).  Eins og ađrar plötubúđir hefur ţessi viđ Oxford strćti látiđ verulega á sjá síđustu ár.  Jađarmúsík er ađ mestu horfin úr hillum.  Heilu plöturekkarnir standa galtómir.  Eftir eru fyrst og fremst plötur sem ná hátt á vinsćldalista og plötur flytjenda sem teljast í hóp ţeirra stćrstu og best ţekktu. 

  Á árum áđur tók marga klukkutíma ađ fletta í gegnum plötuúrvaliđ ţarna.  Sú ţolinmćđisvinna skilađi sér jafnan í kaupum á 50 - 60 plötum.  Í dag tekur rétt um klukkutíma ađ fletta í gegn.  Afraksturinn um páskana voru kaup á 11 plötum. 

  Eitt af ţví skemmtilega viđ ađ fletta í gegnum plötuúrval í útlendum plötubúđum er ađ rekast ţar á plötur íslenskra flytjenda.  Í öllum slíkum búđum eru plötur Bjarkar, Sykurmolanna,  Sigur Rósar og Jónsa.  Svo og íslensk-ensku hljómsveitarinnar The Vaccins og íslenska nýbúans Johns Grants.  Ţessi tvö nöfn,  The Vaccins og John Grant,  eru mjög stór á markađnum og plötum ţeirra stillt upp á áberandi stöđum í verslunum.

  Til viđbótar ţessum nöfnum eru seldar í HMV viđ Oxford strćti plötur Ólafs Arnalds hljómsveitarinnar FM Belfast,  Röggu Gröndal,  Emilíönu Torrini og Ólöfu Arnalds.  Tvćr plötur eru til sölu međ Ólöfu.  Ég keypti ađra ţeirra,  Ólöf Sings.  Hún kostađi 8 pund (x 188 = 1504 kr.).  Á limmiđa á plötuumbúđum stendur:  "Ólöf Arnalds lends her distinctive voice to classics by Caetano Veloso,  Bruce Springsteen,  Arthur Russell & others.  Includes download coupon for four additional trancs and "Surrender" video directed by Árni & Kinski."

  Á ţennan límmiđa vantar upplýsingar um ađ á plötunni eru einnig lög eftir Bob Dylan,  Neil Diamond og Gene Clarke (úr The Byrds). 

  Í plöturekka var spjald merkt Röggu Gröndal.  Ţar var hinsvegar enga plötu međ Röggu ađ finna.  Annađ hvort hefur plata međ henni fariđ á flakk (veriđ sett á rangan stađ) eđa veriđ uppseld.  Flakkiđ er líklegra.  Venja er ađ fjarlćgja merkt spjald ţegar plata selst upp.  Nema von sé á henni fljótlega aftur. 

  Ég sá ekki plötu međ Of Monsters And Men.  Kannski er sú hljómsveit ekki búin ađ ná inn á enska markađinn.  Ţađ er skrítiđ miđađ viđ vćnar vinsćldir í Ameríku og á meginlandi Evrópu. 

  FM Belfast virđist vera međ fast land undir fótum.  Ţegar ég skrapp til Svíţjóđar um jólin sá ég ađ plata međ ţeim var til sölu í sćnskum plötubúđum. 

  Í fyrra skrapp ég til Berlínar.  Ţar var gott úrval af íslenskum plötum til sölu.  Ţar á međal međ Ólafi Arnalds (5),  Benna Hemm Hemm (2),  Helga Rafn Jónssyni (3),  Gus Gus (3),  Seaber (2) og sitthvor platan međ Sóleyju og Of Monsters And Men.  Og auđvitađ hellingur međ Björk,  Sykurmolunum,  Sigur Rós,  Jónsa og Emilíönu Torríni.

  Nokkrum dögum áđur skrapp ég til Skotlands.  Ţar var platan Ólöf Sings til sölu. 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband