Fćrsluflokkur: Útvarp

Plötuumsögn

blaar_raddir-mynd-margreti-nilsdottur.jpggislithorolafsson.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  - Titill:  Bláar raddir

  - Flytjandi og höfundur laga:  Gísli Ţór Ólafsson

  - Ljóđ:  Geirlaugur Magnússon

  - Einkunn: **** (af 5)

  Áđur en ég skellti disknum undir geislann renndi ég yfir textabćklinginn.  Ljóđ Geirlaugs Magnússonar eru frjáls í forminu.  Ţađ er ekki sterkur hrynjandi eđa taktur í ţeim,  né rím.  Upp í huga mér kom spurningin:  Hvernig í ósköpunum getur Gísli Ţór samiđ dćgurlög viđ svona ljóđ?  Svariđ er:  Hann rćđur bćrilega viđ ţađ.  Reddar sér snilldarlega fyrir horn ţegar mest á reynir.  

  Ljóđ Geirlaugs eru mögnuđ;  samanpakkađir gullmolar;  safarík orđsnilld.   Ljóđin eru svo geislandi perlur ađ platan verđur eiginlega skilgreind sem tónskreyttur flutningur á ţeim.  Samt geta lögin stađiđ prýđilega ein og sér - án ţess ađ hlustađ sé náiđ eftir ljóđinu.  

  Upphafslagiđ,  Hringekjan,  er eina rokkađa lagiđ á plötunni.  Harđur trommutaktur og kröftugur gítar.  Grípandi stuđlag.

  Viđ tekur Rökkur;  gullfallegt og hátíđlegt.  Hálfgerđur sálmur.  Svo kirkjuleg er stemmningin.  Einungis söngur og hljómborđ.  Mjög Toms Waits-legt lag og Toms Waits-legur söngur.  Andi Toms Waits svífur víđar yfir vötnum á plötunni.  Mest í lokalaginu,  Fugl sem fuglari,  fyrir utan Rökkur.   Ţau tvö eru bestu lög plötunnar.  Tilviljun?  Held ekki.  

  Fugl sem fuglari  er vals,  spilađur á harmonikku (ásamt kontrabassa og kassagítar).  Frábćrt lokalag.

  Ţau sjö lög sem eru á milli  Rökkur  og  Fugl sem fuglari eru "venjulegri".   Ţađ er ónákvćm lýsing sem segir fátt.  Ţađ segir ekki mikiđ meira ađ tilgreina ađ ţau lög hafi ekki sömu sterku sérkenni og lögin sem hafa veriđ nefnd.  Engu ađ síđur ljómandi fín lög,  hvert fyrir sig.  Ţađ er engan veikan punkt ađ finna á plötunni.  

  Gísli Ţór spilar sjálfur á fjölda hljóđfćra (gítar,  bassa,  orgel).  Honum til ađstođar er Sigfús Arnar Benediktsson sem spilar á trommur, gítar og hljómborđ.  Jón Ţorsteinn Reynisson spilar á harmonikku.  Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir syngur bakrödd í  Hringekjan.

  Glćsilegt málverk á forsíđu er eftir Margréti Nilsdóttur.  


Heimsfrćg bandarísk poppstjarna syngur fćreyskt lag inn á plötu

  Höfundur lags sem vinsćlar og heimsfrćgar poppstjörnur syngja og gefa út á plötum er í góđum málum.  Fyrir ţađ fyrsta gefur ţađ ágćtan pening í ađra hönd.  Oft kemur ţađ sér vel ađ fá marga peninga í vasann.  Í annan stađ er ţađ öflug kynning fyrir lagahöfundinn.  Ađrir flytjendur sjá nafn höfundarins.  Ef ţeir kunna vel viđ lagiđ geta viđbrögđ orđiđ ţau ađ kynna sér fleiri lög eftir sama höfund.  Margar af skćrustu poppstjörnum heims hófu feril sinn sem höfundar laga sem poppstjörnur sungu og gáfu út á plötu.  Ţannig var ţađ međ Kris Kristofferson.  Lag eftir hann ratađi inn á plötu međ Jerry Lee Lewis.  Í kjölfariđ pikkuđu Johnny Cash,  Janis Joplin og fleiri lög hans upp og gáfu út í sínum flutningi.  Svipađa sögu má segja um Willie Nelson og ótal ađra.  

  Í ţriđja lagi er ţetta mikil viđurkenning á hćfileikum höfundar.  Vinsćlar og heimsfrćgar poppstjörnur hafa úr milljónum laga ađ velja ţegar ţćr syngja inn á 12 - 14 laga plötu.  Hvert lag sem ţćr syngja eftir ađra en sjálfa sig ţarf virkilega ađ heilla viđkomandi.

  Núna í lok september sendir bandaríska söngkonan og leikarinn Cher frá sér sína fyrstu plötu í 12 ár.  Platan heitir Closer to the Truth.  Hún inniheldur 14 lög.  Ţar af eitt fćreyskt.  Ţađ heitir My Love og er eftir Gretu Svabo Bech.  

  Lagiđ var upphaflega samiđ fyrir og flutt af hljómsveitinni Picture Book sem Greta var í fyrir nokkrum árum.  

  Greta var stödd inni í mátunarklefa í fataverslun í London ţegar síminn hringdi.  Á línunni var starfsmađur Cher.  Hann spilađi lagiđ í flutningi Cher og spurđi hvort ađ Greta vćri sátt viđ útkomuna.  Greta varđ svo undrandi ađ hún varđ ringluđ og spurđi sjálfa sig:  Hver er ég?  Hvađ er ţetta? 

  Cher hefur átt fjölda laga á toppi vinsćldarlista.  Fyrst sem dúettinn Sonny & Cher.  Síđan undir eigin nafni sem sólósöngvari.  

  Greta rekur sitt eigiđ hljóđver í Miđvági í Fćreyjum.  

  Á myndbandinu fyrir neđan syngur Greta međ Picture Book (lagiđ hefst ekki fyrr en á 38. sek).  

  Sennilega er Believe ţekktasta lag Cher til ţessa.  Svo tekur My Love eftir Gretu Svabo viđ. 


Hvers vegna?

-blo_-mojo_agust.jpg

blöđ-uncut

  Í nćst síđustu bloggfćrslu minni, hér fyrir neđan, er samantekt á listum ýmissa fjölmiđla yfir bestu plötur rokksögunnar.  Athygli vekur ađ allar plöturnar á listunum eru komnar vel til ára sinna.  Ţar af flestar frá sjöunda og áttunda áratugnum.  Bítlarnir, Nirvana, Pink Floyd, Clash, Beach Boys, Bob Dylan, Rolling Stones og ađrir slíkir einoka listana.  Langyngsti flytjandinn er Radiohead međ langnýjustu plöturnar.  Sú nýrri ţeirra kom út fyrir 16 árum.

blöđ-record collectorrs dylan

  Af hverju eiga nýliđar og nýrri plötur erfitt uppdráttar á svona listum?  Ég gerđi könnun:  Skođađi forsíđur nýjustu tölublađa helstu tónlistartímaritanna.  Og sjá:  Ţćr eru undirlagđar ţessum sömu gömlu og rótgrónu nöfnum.  Sömu nöfnum og tróna efst á listum yfir bestu plöturnar.

  Af langri reynslu hafa ritstjórnir ţessara tímarita lćrt hvađa forsíđuumfjallanir selja blöđin.  Ţćr ţekkja kaupendur blađanna.  Vita hvađ ţeir vilja.  

blöđ-kerrang!blöđ cr hendrix

  Ţetta er einskonar sjálfhelda:  Tímaritin fóđra lesendur á endalausri og síendurtekinni umfjöllun um sömu gömlu poppstjörnurnar.  Lesendur eru búnir ađ lesa svo oft sömu klisjurnar um ţessar poppstjörnur ađ ţeir kunna ţćr utan ađ.  Út á ţađ gengur skemmtunin:  Ţađ er ţćgilegt ađ lesa kunnuglegan texta og rifja upp sögurnar af gömlu hetjunum sínum.  Ţađ gefur jafnframt ástćđu til ađ endurnýja kynni viđ gömlu góđu plöturnar enn einu sinni.  Ţađ er góđ skemmtun.  

  Kannski er líka kominn tími til ađ kaupa ný "remasteruđ" eintök af plötunum - međ aukalagi.  Ţađ er gaman.  Sú er ástćđan fyrir ţví ađ almennar plötubúđir eru hćttar ađ hafa á bođstólum ađrar plötur en ţessar međ gömlu góđu poppstjörnunum (ásamt ţeim sem eru efst á vinsćldalista dagsins).  Í plötubúđunum eru allar plötur Bítlanna, Rolling Stones, Dylans og Clash.  Plötur međ minna ţekktum tónlistarmönnum fást ekki lengur í almennum plötubúđum.    

  Klassíska rokkiđ er allsráđandi á markađnum.  Ţađ er í góđu lagi út af fyrir sig.  Rúnar heitinn Júlíusson orđađi ţađ einhvernvegin ţannig:  "Mínar gömlu hetjur,  Hendrix og Led Zeppelin,  standast svo vel tímans tönn ađ ég hef ekki ţurft ađ skipta ţeim út fyrir nýrri stjörnur."

blöđ-classic popblöđ-uncut-sept

  Tíminn gegnir veigamiklu hlutverki í tónlist.  Eitt af ţeim hlutverkum er ađ tíminn sorterar hismiđ frá kjarnanum.  Gullmolarnir verđa eftir og glansa skćrar međ hverju ári.  Plötur sem ţola ítrekađa og langvarandi spilun verđa klassík.  Hinar verđa tröllum ađ bráđ og gleymast án ţess ađ nokkur sakni ţeirra. 

blöđ-mojoblöđ-metal hammer

 


Bestu plötur rokksögunnar

  Ég er ađ detta inn á sjötugs aldur hvađ úr hverju.  Ég kann ekkert á tölvur.  Ég ćtla ekkert ađ lćra á ţćr né allt ţetta sem kallast iPad, iPod,  snjallsímar eđa annađ slíkt.  Ţađ tekur ţví ekki.  Ég kann lítiđ annađ á tölvur en e-mail.  Allt ţar fyrir utan er eitthvađ sem ég veit fátt um.  Samt hćtti ég mér stundum út fyrir e-mailiđ og fikta eitthvađ út í loftiđ.  Ţá rakst ég á lista yfir bestu plötur rokksögunnar.  Fyrir listanum var skráđ nafniđ RFNAPLES.  Ég veit ekkert fyrir hvađ ţađ stendur.  Ég reyndi ađ fletta ţví upp en ţađ stoppađi á innskráningu,  lykilorđi og einhverju svoleiđis. 

  Engu ađ síđur ţótti mér listi RFNAPLES áhugaverđur.  Ég mátađi hann viđ nokkra ađra lista sem ég átti.  Ţeir eru misgamlir.  En kemur ekki mikiđ ađ sök.  Bestu plöturnar eru flestar eldri en tvívetra.  Niđurstađan er skemmtilega allt ađ ţví samhljóđa (međ skemmtilegum undantekningum).  Árlega koma út tugir milljóna rokkplatna.  Ţađ er afar merkilegt ađ af öllum ţessum milljörđum platna skuli meira og minna sömu plötur toppa lista yfir bestu plötur rokksögunnar. 

Fyrsti svigi Rolling Stone (bandarískt tímarit)
Nćsti svigi Q (2006) (enskt tímarit)
Ţriđji Virgin (2000) (ensk plötubúđarkeđja)
BBC Channel 4 (2005) (breska ríkisútvarpiđ)
Entertainment Weeklys (2013) (bandarískt tímarit)
.
BítlarnirRevolver (3)(4)(1)(10)(1) 
  Lengi vel var  "Sgt. Peppers..." međ Bítlunum föst í toppsćti yfir bestu plötur rokksögunnar.  Á síđustu árum hefur "Revolver" međ Bítlunum skriđiđ fram úr. 
.
.
2  Nirvana:  Nevermind (17)(3)(17)(3)(10)
.
.
Bítlarnir:  Hvíta albúmiđ  (10)(-)(5)(12)(12)
.
.
Bítlarnir:  Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band (1)(19)(3)(7)(-)
.
..
Pink Floyd:  The Dark Side of the Moon (43)(15)(9)(5)(37)
.
.
Bítlarnir:  Abbey Road (14)(14)(8)(-)(22)
.
.
The Beach Boys:  Pet Sounds (2)(18)(18)(33)(9)
.
 
.
The Clash:  London Calling (8)(20)(37)(44)(5)
.
 
.
Radiohead:  OK Computer (-)(1)(4)(1)(45)
.
 
.
10  The Velvet Underground:  The Velvet Underground and Nico (13)(42)(13)(46)(38)
.
11  Led Zeppelin:  IV (69)(21)(42)(17)(79)
12  Bob Dylan:  Highway 61 Revisited (4)(45)(26)(-)(27)
13  The Rolling Stones:  Exile on Main St. (7)(34)(35)(42)(3)
14  David Bowie:  The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars (35)(41)(27)(32)(34)
15  Radiohead:  The Bends (-)(2)(2)(22)(-)
16  U2:  The Joshua Tree (27)(11)(25)(2)(-)
17  Bob Dylan:  Blonde on Blonde (9)(36)(33)(-)(-)
18  The Smiths:  The Queen is Dead (-)(12)(10)(20)(50)
19  Bítlarnir:  Rubber Soul (5)(29)(34)(-)(46)
20  The Stone Roses:  The Stone Roses (-)(6)(12)(24)(-)
21  The Jimi Hendrix Experienced:  Are You Experienced (15)(63)(63)(19)(26)
22  The Rolling Stones:  Let It Bleed (32)(64)(40)(35)(-)
23  The Who:  Who´s Next (28)(51)(48)(-)(39)
24  Bruce Springsteen:  Born to Run (18)(82)(20)(37)(15)
25  Bob Dylan:  Blood on the Tracks (16)(23)(7)(55)(6)
26  Pixies:  Doolittle (-)(43)(-)(48)(81)
27  Marvin Gaye:  What´s Going On (6)(32)(39)(78)(13)
28  Sex Pistols:  Never Mind the Bollocks,  Here´s The Sex Pistols (41)(28)(29)(31)(-)
29  Pink Floyd:  The Wall (87)(27)(30)(-)(-)
30  The Doors:  The Doors  (42)(75)(46)(27)(-)

Ný lög frá Högna

  Högni Lisberg sló fyrst í gegn međ trip-hopp hljómsveitinni Clickhaze.  Ţar trommađi hann af snilld.  Eivör og Pétur Pólson sungu.  Mikael Blak,  Jón Tyril, Bogi og Jens L. spiluđu á hin hljóđfćrin.  Ţetta var rosaleg hljómsveit.  Allir ađ springa úr sköpunarţörf og spilagleđi.  Merkasta hljómsveit fćreysku rokksögunnar fyrir margra hluta sakir. 

  Clickhaze sigrađi međ yfirburđum í fćreysku Músíktilraununum.  Í kjölfariđ hélt hljómsveitin hljómleika á Hróarskeldu og Íslandi 2002.  Svo sprakk hún.  Liđsmenn voru hver um sig of stórir međ of stór áform fyrir hljómsveitina.  Ţeir uxu hljómsveitinni yfir höfuđ.

  Högni hóf sólóferil.  Hann hefur sent frá sér fjórar sólóplötur.  Titillag plötu nr. 2,  Morning Dew,  sló í gegn hérlendis.  Ég man ekki hvort ađ ţađ náđi toppsćti íslenska vinsćldalistans en ţađ sat ađ minnsta kosti vikum saman ofarlega á honum.  Fleiri lög af sömu plötu nutu vinsćlda á Rás 2 og fleiri útvarpsstöđvum.  Í kjölfariđ spilađi Högni á Airwaves og víđar á Íslandi.  

   Lag af  Haré! Haré!,  ţriđju plötu Högna,  ratađi inn í bandarískan tölvuleik,  NBA 2K 11.  Tölvuleikurinn seldist í milljónum eintaka.  Lagiđ hans Högna,  Bow Down,  er vel ţekkt í Bandaríkjunum og víđar út af ţessum tölvuleik.  Til samans hafa myndbönd međ laginu veriđ spiluđ yfir milljón sinnum á ţútúpunni.  Ađdáendur lagsins spila fleiri lög međ Högna.  Mánađarleg spilun á myndböndum hans til samans á ţútupunni er kvartmilljón.  

  Á Spotify eru lög međ Högna spiluđ 150 ţúsund sinnum á mánuđi.  

  Nú hefur Högni í fyrsta skipti á ferlinum hljóđritađ nokkur lög ţar sem hann syngur á fćreysku.  Hann er búinn ađ deila tveimur ţeirra yfir á ţútúpuna.  Fyrra lagiđ heitir  Fólkiđ í Sprekkunum.  Magnađ lag.

  


Sjaldan fellur epliđ langt frá hćnunni

  Ţađ er tvíeggjađ sverđ ađ vera sonur eins af merkustu tónlistarmönnum sögunnar.  Kosturinn er sá ađ margar dyr standa opnar.  Viđskiptavild pabbans er stór og sonurinn nýtur góđs af ţví.  Sonurinn fćr á ţann hátt forgjöf umfram ađra nýliđa í tónlist.  Ţađ munar öllu.  

  Ókosturinn er sá ađ allt sem sonurinn gerir í tónlist er og verđur boriđ saman viđ helstu afreksverk pabbans.  Ţađ er ójafn leikur.

  James McCartney,  sonur bítilsins Pauls McCartneys,  segir ađ ekki einu sinni pabbi hans geti keppt viđ Bítlana.  Paul hefur sjálfur sagt ađ engin hljómsveit geti keppt viđ Bítlana.  Ef Bítlarnir hefđu veriđ endurreistir á međan John Lennon og George Harrison voru á lífi á áttunda áratugnum ţá hefđu ţeir ekki getađ keppt viđ Bítlana eins og hljómsveitin var á sjöunda áratugnum.  Bítlarnir voru slík yfirburđarhljómsveit á sínum stutta ferli ađ ótal met hennar í vinsćldum, áhrifum og öđru verđa aldrei slegin út.  

  James McCartney,  sonur Pauls,  var ađ senda frá sér sína fyrstu sólóplötu.  Hann er hálf fertugur og hefur veriđ ađ dútla í músík til margra ára.  En látiđ fara lítiđ fyrir sér.  Hann hefur ţó spilađ á gítar á nokkrum plötum pabbans.  Hann hefur einnig sent frá sér nokkrar smáskífur í hálfgerđri kyrrţey.  

  Plata James heitir  Me.  Gagnrýnendur tćta plötuna í sig.  Breska tímaritiđ Q gefur henni 1 stjörnu af 5.  Hér er eitt lag af plötunni.  Ţađ á ekki eftir ađ toppa neinn vinsćldalista.  Frekar óspennandi dćmi.

   Söngrödd og raddbeitingu James skortir alveg sjarma Pauls.  Ađ öđru leyti er ósanngjarnt ađ bera músík James saman viđ Bítlana,  samanber tilvitnanir hér ađ ofan.  Sanngjarnara er ađ bera músík hans saman viđ minna ţekkt lög pabbans,  Pauls.  Ţađ er ađ segja lög sem hafa ekki tröllriđiđ vinsćldalistum,  svo sem "Let Me Roll It".  Sönglag sem Paul hrissti fram úr erminni til ađ svara skćtingi frá John Lennon.  "Leyfđu mér ađ leika mér í friđi," söng Paul og hermdi skemmtilega eftir höfundareinkennum Johns,  gítarstíl hans og trommuleik Alans Whites (Yes) sem trommađi međ Lennon.   

  Ţađ er sterkur "karakter" í söngrödd Pauls.  Takiđ eftir ţví hvađ hann gefur skemmtilega örlítiđ í um og upp úr mín. 1.00.  Röddin verđur smá rám í örskotsstund.  Um mín. 2.00 gefur Paul enn betur í og bregđur fyrir sig nettum öskursöngstíl.  Hann kann ţetta en James kann ţetta ekki.    

  Eldri sonur Johns Lennons,  Julian,  fór ágćtlega af stađ í músík međ ska-laginu "Too Late for Goodbyes".

  Svo var hann fullur í mörg ár og hefur aldrei náđ ađ byggja upp feril.  Hér eru skemmtilegar ljósmyndir af ţeim feđgum á sama aldri.

lennon-feđgar

  Ţeir eru glettilega líkir,  feđgarnir.  Julian verđur ekki föđurbetrungur úr ţessu.   Ţađ er nćsta víst.

   Yngri sonur Johns,  Sean,  hefur valiđ ţá skynsamlegu leiđ ađ gera út á jađarmúsík (alternative).  Ţar međ stađsetur hann sig nćr mömmunni, Yoko Ono.  Vandamáliđ er ađ hann er ekki góđur lagahöfundur. 

  Ţau mćđgin,  Yoko og Sean,  hafa veriđ međ annan fótinn á Íslandi síđustu ár.  Ţau eru hér miklu oftar en fjölmiđlar skýra frá.    

  Sonur bítilsins George Harrisons,  Danni Harrison,  á íslenska konu.  Ég man ekki nafniđ en hún er dóttir Kára Stefánssonar (Íslensk erfđagreining).  Danni hefur fariđ sömu skynsamlegu leiđ og Sean:  Gert út á jađarmúsík,  ólíka Bítlapoppinu.  


Veistu hver ég var?

siggi-hlo.jpg

   17. ágúst nćstkomandi svífur á skjáinn splunkuný sjónvarpsţáttasería,  "Veistu hver ég var?"  Hún verđur á dagskrá Stöđvar 2.   Ţetta er spurningaţáttur.  Umsjónarmađur, spyrill og dómari er Siggi Hlö.  Viđfangsefniđ er níundi áratugurinn.  Nánar tiltekiđ sú músík sem fellur undir samheitiđ "80´s" (dansvćnt tölvupopp, nýróman...) og kvikmyndir.

  Hvernig stendur á ţví ađ ég veit ţetta?  Öfgafullur mađur sem var á kafi í ţví selja pönkplötur, gefa út pönkplötur og stússa í pönkhljómleikum á níunda áratugnum?  

  Skýringin liggur í ţví ađ ég er í einu af 18 keppnisliđum sem spreyta sig í "Veistu hver ég var?"  Ţćttirnir hafa ţegar veriđ teknir upp.  Ţađ var góđ skemmtun ađ taka ţátt í leiknum.  Egils Gull var í bođi.  Gott ef ađ pizzur og eitthvađ fleira voru ekki einnig á bođstólum.  Ég einbeitti mér ađ Gullinu.

  Ég var í keppnisliđi Hebba Guđmunds.  Ásamt okkur var í liđinu Bjarni Jóhann Ţórđarson.  Ţađ munađi um minna.  Sá var og er á heimavelli ţegar 80´s poppiđ er annars vegar.  Ţar fyrir utan hugsar hann svo hratt ađ áđur en mínar heilasellur náđu ađ sameinast í ađ grafa upp svar viđ einni spurningu var Bjarni búinn ađ svara mörgum.  

  Keppnisliđ Hebba atti kappi viđ liđ Sverris Stormskers.  Sverrir er fjölfróđari um 80´s músík en margur heldur.  Honum til halds og trausts voru tveir Snorrar.  Annar er Snorrason og sigurvegari í Idol eđa X-factor.  Ég held ađ ég sé ekki ađ rugla honum saman viđ einhvern annan ţegar ég tengi hann viđ hljómsveitina Jet Black Joe.  

  Hinn Snorrinn er Sturluson.  Hann var íţróttafréttamađur, ja, nú man ég ekki hvort ţađ var á Rúv eđa hjá Stöđ 2.  Eđa kannski báđum.  Hann hefur líka veriđ dagskrárgerđarmađur á Rás 2 og öđrum útvarpsstöđvum.  Liđ Sverris var öflugt.  

  Siggi Hlö er stuđbolti.  Hann tekur sig ekki hátíđlega.  Ţađ einkennir ţáttaseríuna.  Ţetta er allt til gamans gert.  Ţađ er útgangspunkturinn.  Ungmennafélagsandinn "ađ vera međ í leiknum" svífur yfir vötnum.  Siggi Hlö er rétti mađurinn í hlutverki ţáttastjórnandans, eins og dćminu er stillt upp:  Fjörmikill gleđipinni og snöggur til svars af léttúđ undir öllum stöđum sem upp koma.  Hann á auđvelt međ ađ keyra upp stemmninguna  Ţađ er svo mikiđ stuđ á stráknum.  Hann kann ţetta frá A - Ö. 

  Ţađ var virkilega gaman ađ taka ţátt í ţessum spurningaleik.  Ég skemmti mér konunglega.  Ég hlakka til ađ sjá útkomuna í endanlegri útfćrslu.  Ekki ađeins ţáttinn međ keppnisliđum Hebba og Stormskers.  Ađrir ţćttir eru líka spennandi.  Til ađ mynda viđureign Rásar 2 og Bylgjunnar.  

  hebbi_gu_munds_li_-_bjarni_-_jens.jpg


Presley eftirhermur

elvis-prElvis-p 

  Út um allan heim er allt morandi í svokölluđum Presley-eftirhermum.  Ţađ eru menn sem lifa ađ meira og minna leyti á ţví ađ herma eftir bandaríska rokksöngvaranum Elvis Presley.  Eftirhermurnar reyna ađ líkjast Presley sem mest í útliti og sviđsframkomu.  Ţćr klćđast samskonar hvítum samfestingi og Presley lét sérsauma á sig á áttunda áratugnum.  Ţćr líma á sig gervibarta og syngja lög sem Presley gerđi frćg.  Herma ađ sjálfsögđu sem nákvćmast eftir söngrödd og söngstíl Presleys.

  Einhverra hluta vegna er uppistađan af Presley-eftirhermum "skrítnir" náungar.  Sumir mikiđ skrítnir og laglausir.  Ađrir smá skrítnir og syngja betur.  Ţetta á ekki viđ um alla.  Og hver er svo sem ekki skrítinn á sinn hátt?  Máliđ er bara ađ í nánast öllum löndum má finna aragrúa af laglausum og skrítnum Presley-eftirhermur.   Sumar eru stjörnur í sínu landi.  Til ađ mynda Svíinn Eilert Pilarm.  Hann er stórstjarna út um alla Skandinavíu og víđar. 

  Presley sjálfur var mjög góđur söngvari;  lagviss međ sterka baritón-rödd og góđa raddbeitingu.  Sennilega var hann fyrsti hvíti söngvarinn til ađ beita öskursöngstíl.  Og afgreiddi ţađ dćmi frábćrlega flott. 

  Margir hafa velt fyrir sér og reynt ađ greina ástćđu ţess ađ tugţúsundir mishćfileikaríkra/-lausra manna um allan heim hermi eftir Presley.  Sumir sjá samlíkingu viđ ţann fjölda vistmanna á geđdeildum sem telur sig vera Napoleon og ađrir telja sig vera Jesú.  Sá munur er á ađ Presley-eftirhermurnar eru međvitađar um ađ ţćr eru ekki Elvis Presley.  Ţćr vita ađ um hlutverkaleik er ađ rćđa. 

  Hvers vegna tugţúsundir Presley-eftirherma en teljandi á fingrum annarrar handar Mikjáls Jacksons eftirhermur og varla finnast Paul McCartney eftirhermur af ţessu tagi?  Ţađ er alveg jafn auđvelt ađ herma eftir útliti og söng Johns Lennons og Bobs Dylans,  svo dćmi séu tekin.  Margir fagmenn gera út á ţađ.  En Presley-eftirhermurnar dúkka upp viđ öll tilefni viđ misjafnar undirtektir.

  Sumir vilja rekja ásóknina í ađ herma eftir Presley felast í hvíta samfestingnum.  Hann sé svo sterkt einkenni fyrir Presley ađ sá sem klćđist samfestingnum upplifi sig vera ađ klćđast í sjálfan Presley.

  Ţađ vantar sjaldan íburđinn ţegar takt- og laglausar Presley-eftirhermur fara mikinn á sviđi.  Né heldur vantar fagnađarlćtin frá áheyrendum.


Hagfrćđingar ljúga

 

  Hagfrćđingar eru óáreiđanleg heimild um ástandiđ.  Ţađ vantađi ekki kokhrausta hagfrćđinga til ađ vísa á bug viđvörunarljósum sem blikkuđu út um allt korteri fyrir bankahrun.  Hagfrćđingar skrifuđu og gjömmuđu hver í kapp viđ annan (á háum launum) um ađ engin hćtta vćri á bankahruni eđa neinu slíku.  Ţvert á móti ţá vćri ástandiđ tćr snilld og bankarnir ćttu ađ gefa í međ Icesave og alla ţessa hamingju sem ţeir vćru ađ útdeila.

  Eflaust má finna árinu 1976 sitthvađ til ágćtis.  Bćđi í Bretlandi og víđar.  Breska pönkiđ byrjađi 1976.  Ţađ var frábćrt.  Hófst um sumariđ sem einskonar neđanjarđarhreyfing Sex Pistols, The Clash,  The Damned,  The Buzzcocks og Siouxie & The Banshees.  Hreyfingin vatt hratt upp á sig.  Um haustiđ var haldiđ 2ja daga pönk-festival í 100 Club viđ Oxford strćti.  Fyrir árslok var pönkiđ orđiđ umtalađ og komiđ á forsíđur dagblađanna. 

   Nćstu ár á eftir fór pönkiđ međ völd.  Ţađ ól af sér ótal músíkstíla sem kölluđust samheitinu nýbylgja.  Ţađ opnađi dyr fyrir reggí og ska.  Ţađ skóp hártísku og fatatísku.  Ţađ stillti rokkbransanum í heilu lagi upp viđ vegg.  Flest sem rokkarar höfđu veriđ ađ gera og voru ađ gera var boriđ saman viđ pönkiđ.  Breska pönkiđ fór eins og stormsveipur um heiminn.  Upp spruttu öflugar pönkbylgjur ţvers og kruss ađ hćtti ţeirrar bresku.  Hérlendis hefur pönkbylgjan veriđ kennd viđ kvikmyndina Rokk í Reykjavík.

  Til ađ breska pönkiđ nćđi upp á yfirborđiđ og yrđi sú bylting sem ţađ varđ ţá ţurfti sérstakan farveg.  Sá farvegur samanstóđ af vondu efnahagsástandi í Bretlandi 1976,  vonleysi og reiđi.  Einnig ţreytu og leiđa á risaeđlunni sem rokkmarkađurinn var orđinn.

  Atvinnuleysi í Bretlandi var mikiđ,  heilu fjölskyldurnar og íbúar heilu bćjarhlutanna voru fastir í fátćkragildru.  Ţađ logađi allt í verkföllum,  kynţáttaóeirđum,  lögregluofbeldi,  pirringi.  Stćrsti nasistaflokkurinn í Bretlandi,  National Front,  naut stuđnings 130 ţúsund kjósenda.  Hatur og reiđi út í allt og alla kraumađi og leitađi útrásar. 

  Ástandiđ,  eins og ungir lágstéttarmenn upplifđu ţađ,  var súmmerađ upp á nćst fyrstu smáskífu Sex Pistols,  God Save The Queen.  Ţađ getur ađ heyra í myndbandinu efst.  Textinn hefst á ţessum orđum: 

God save the queen
The fascist regime
They made you a moron
Potential H-bomb

God save the queen
She ain't no human being
There is no future
In England's dreaming

  Í niđurlaginu er margendurtekiđ ađ ţađ sé engin framtíđ.  Svipuđ viđhorf voru áberandi í öđrum breskum pönksöngvum.  Ţađ var sungiđ um fasisma og anarkisma,  atvinnuleysi og vonleysi.  Á fyrstu smáskífu Sex Pistols,  Anarchy In U.K.,  er stjórnleysi bođađ.

  Í fyrsta smáskífulagi The Clash,  White Riot,  var sungiđ um óeirđir og uppţot.  Myndbandiđ var skreytt klippum af lögreglu og mótmćlendum.  Upplifun bresku pönkaranna á ástandinu 1976 er ólík lýsingu hagfrćđinganna á besta og hamingjuríkasta ári Bretlands.  Söngvar bresku pönkaranna eru marktćk sagnfrćđi ađ einhverju leyti.

  Tom Robinson lýsir ástandinu skýrar og ljóđrćnna í Up Against The Wall.  Ţar segir m.a. 

Darkhaired dangerous schoolkids
Vicious, suspicious sixteen
Jet-black blazers at the bus stop
Sullen, unhealthy and mean
Teenage guerillas on the tarmac
Fighting in the middle of the road
Supercharged FS1Es on the asphalt
The kids are coming in from the cold

Look out, listen can you hear it
Panic in the County Hall
Look out, listen can you hear it
Whitehall (got us) up against a wall
Up against the wall...

High wire fencing on the playground
High rise housing all around
High rise prices on the high street
High time to pull it all down
White boys kicking in a window
Straight girls watching where they gone
Never trust a copper in a crime car
Just whose side are you on?

Consternation in Brixton
Rioting in Notting Hill Gate

Fascists marching on the high street
Carving up the welfare state
Operator get me the hotline
Father can you hear me at all?
Telephone kiosk out of order
Spraycan writing on the wall

  Eitt af mörgu góđu viđ pönkiđ var ađ ţađ gerđi ţarfa uppreisn gegn kynţáttafordómum og nasisma.  Slátrađi National Front međ ţví ađ spila undir yfirskrift á borđ viđ Anti-Nazi League og Rock Against Racism,  ásamt ţví ađ gagnrýna í textum kynţáttafordóma.  Eins og ađ framan greinir áttu breskir nasistar sterkt fylgi ţegar pönkbyltingin skall á.  The Clash lýstu stöđunni ţannig ađ ef Adolf Hitler kćmi til Bretlands ţá yrđi tekiđ á móti honum í limmósíu á flugvellinum.

   


mbl.is 1976 var hamingjuríkasta áriđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Norskur ţungarokksnasisti, morđingi og kirkjubrennari

  Ég er dálítđ "svag" fyrir svartamálmi (black metal).  Ţessi músíkstíll varđ til í Noregi og hefur breiđst út um heim.  Verra er ađ einn af forsprökkum svartamálms er Norđmađurinn Vargur Vikernes.  Léttgeggjađur hćgri öfgamađur sem blandar saman nasisma og ásatrú.  Ţađ ţykir mér sem félaga í Ásatrúarfélaginu miđur.  Ásatrúarfélagiđ á Íslandi hafnar blessunarlega kynţáttafordómum,  kynţáttahatri og nasisma. 

  1994 var Vargur dćmdur í lífstíđarfangelsi í Noregi fyrir ađ drepa gítarleikarann sinn og kveikja í fjórum kirkjum.  Ađrar heimildir herma ađ hann hafi kveikt í 50 kirkjum.  Einhverjir Íslendingar hófu bréfasamskipti viđ Varg á međan hann sat í fangelsi.  Flestir gáfust fljótlega upp á ţeim samskiptum ţegar ţeir áttuđu sig á ţví hvađ nasistinn er kolgeggjađur. 

  Lífstíđarfangelsi í Noregi ţýđir 21 ár.  Vargur losnađi úr fangelsi 2005.  Hann stofnađi fjölskyldu međ franskri konu og flutti til Frakklands.  Ađ undanförnu hefur hann fariđ mikinn á internetinu.  Hann hefur hvatt til uppreisnar gegn gyđingum og múslimum í Evrópu.  Hann kennir gyđingum um bankakrísuna og skilgreinir almenning sem ţrćla gyđinga. 

  Frönsk yfirvöld hafa nú gripiđ inn í og handtekiđ Varg.  ţađ gerđu ţau í kjölfar ţess ađ hann var farinn ađ safna ađ sér skotvopnum og undirbúa hryđjuverk.  Í dagblađinu VG er Vargur sagđur vera ađdáandi norska hćgriöfgamannsins Breiviks og hefur átt í bréfasamskiptum viđ hann.  Vargur var ţó ósáttur viđ fjöldamorđ Breiviks til ađ byrja međ. 

  Eftir sem áđur er Vargur flottur tónlistarmađur.  Ţađ reynir á prinsipp mitt ađ njóta tónlistar óháđ viđhorfum flytjandans.  Ađ vísu hef ég gert undantekningu međ ţví ađ sniđganga barnaníđinga.  En ţađ er á mörkunum ţegar nasistar á borđ viđ Varg eiga í hlut.  Lćt fylgja međ fordćmingu á nasisma,  fasisma, kynţáttahatri og öllu ţví ógeđi um leiđ og ţetta ljúfa lag Vargs hljómar.


mbl.is Ađdáandi Breivik handtekinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ť Fyrri síđa | Nćsta síđa ť

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.