Áríđandi! Ekki missa af!

  Ţađ er orđiđ alltof langt síđan fćreyska álfadísin,  Eivör,  hefur haldiđ hljómleika á Íslandi.  Ennţá lengra er síđan hún hefur haldiđ hljómleika á litlum stađ ţar sem hún er í nálćgđ viđ áheyrendur.  Nú ber heldur betur til tíđinda:  Nćstkomandi föstudag (12.  júlí) verđur Eivör međ hljómleika á Gamla Gauknum.  

  Eins og allir vita sem hafa veriđ á hljómleikum hjá Eivöru ţá er ţađ miklu áhrifaríkari og stórkostlegri upplifun en ađ hlusta á plötur međ henni eđa lög í útvarpi.  Samt eru plöturnar hennar ljómandi góđar en ólíkar hver annarri.  Á hljómleikum nćr Eivör ađ framkalla töfra.  Hún dáleiđir áheyrendur.  Ţeir sitja opinmynntir umvafđir fegurđ tónlistarinnar;  frábćrum söng og túlkun Eivarar.  Stór ţáttur í magnađri stemmningunni rćđst af sterkum sviđsţokka Eivarar,  útgeislun og spjalli hennar á milli laga og kynningum á lögunum.

  Ekki missa af ţessum hljómleikum!  Miđasala er hafin á www.gamligaukurinn.is .  Ţađ er algjörlega óvíst hvenćr Eivör heldur nćst hljómleika á Íslandi.  Vinsćldir hennar út um heim vaxa jafnt og ţétt međ tilheyrandi spurn eftir hljómleikum.  Sem dćmi ţá hafđi nýjasta plata hljómsveitar hennar,  Vamp,  selst í 130 ţúsund eintökum í Noregi síđast ţegar ég vissi (í fyrra).   Ţá fékk Eivör afhenta ţrefalda platínuplötu fyrir söluna.  Nćsta víst er ađ platan sé í dag til á nálćgt 200 ţúsund norskum heimilum.  Hún var nefnilega enn í 1. sćti norska sölulistans ţegar Eivör fékk ţreföldu platínuplötuna.

  Á undan Eivöru á Gauknum stígur á stokk önnur flott fćreysk söngkona,  Dorthea Dam.  Hún átti eitt mest spilađa lag í fćreysku útvarpi í fyrra.  Ţađ heitir Candy og hefur eitthvađ veriđ spilađ í íslensku útvarpi.  Fleiri lög međ Dortheu hafa fengiđ góđa spilun í fćreysku útvarpi.

  Eftir ađ Dorthea og Eivör hafa heillađ salinn upp úr skónum svífa á sviđ stuđboltinn Sigurđur Ingimars og hljómsveit.  Sigurđur var sigurvegari í Íslensku trúbadorkeppninni og á fćreyska konu.  

  Daginn eftir,  laugardaginn 13. júlí,  er Eivör međ hljómleika á Grćna hattinum á Akureyri.

  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.