Fćrsluflokkur: Fjármál

Ný hugsun gegn geggjađri sóun á matvćlum

  Íslendingar hafa löngum hent gríđarlega miklu magni af úrvals matvćlum.  Matvćlum sem eru í góđu lagi en nálgast merkingarnar "Best fyrir" og "Síđasti söludagur".  Báđar merkingarnar gefa upp dagsetningu sem stendur fyrir allt annađ en síđasta neysludag.  Alltof margir rugla ţessu saman.

matvćlum hent 

 

  Ég hef horft upp á starfsmenn 10-11 henda í ruslagáma ţessar ágćtu vörur í miklum mćli.  Ţađ er dapurleg sjón.  Ţarna er um verđmćti ađ rćđa.  Á sama tíma á fátćkt fólk í vandrćđum međ ađ láta enda ná saman.  Ţađ stendur í öllum veđrum í langri röđ fyrir utan húsnćđi Mćđrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálpar Íslands.  

  Fyrir nokkrum árum mćttu ábúđafullir embćttismenn í Fjölskylduhjálpina og stöđvuđu dreifingu á úrvals góđum kartöfluflögum sem voru komnar á dagsetningu.  Vel ađ merkja dagsetningu sem vísađi á síđasta söludag en átti langt í síđasta neysludag.

  Ţađ ţarf hugarfarsbreytingu, vakningu og uppreisn hérlendis gegn ţví ađ matvćlum í góđu lagi sé hent í ruslagáma.  Nú hafa verslanir Krónunnar tekiđ upp á ţví ađ selja útrunnin matvćli á spottprís.  Ţađ er til fyrirmyndar.  Ţetta er algengt erlendis og nýtur vinsćlda.

  Einnig er til fyrirmyndar ađ hjá N1-bensínsjoppunni á Blönduósi fá gestir gjarnan hálfétna matarskammta.  Ţađ gerist ţannig ađ afgreiđsla á skyndibitanum (kjúlli eđa hamborgari og franskar) fer öll úr skorđum á álagstímum.  Ţegar greint er úr flćkjunni ţá er hálfétnum matarskömmtum komiđ snöfurlega í réttar hendur.  Hver matarskammtur nýtist ţannig til fulls.  

kjúlli hálfétinn

   


mbl.is Sala á útrunnum mat gengiđ vel
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bensíntittur rćndi völdum

  Ég átti erindi norđur í land.  Áđur en brunađ var aftur til borgar óttans tók ég krók á minni leiđ og lagđi bíl upp viđ bensíndćlu.  Ţar leist mér vel á dćlu merkta "Power".  Kom upp í huga mér lag Johns Lennons "Power to the People".  Ljómandi gott lag.

  Ég greip bensíndćluna föstum tökum og beindi stút ofan í bensíntank bílsins.  Í sömu andrá sveif ađ eldri mađur,  merktur bensínstöđinni.  Hann var nánast láréttur í loftinu er hann skutlađi sér eins og til sunds á milli mín og bíls.  Reif dćluna úr bensíntanknum og hrópađi:  "Nei,  ekki Power!".  

  Svo leit hann ćstur, óđamála,  áhyggjufullur og rannsakandi á mig og spurđi:  "Varstu byrjađur ađ dćla?"

  Nei,  ég kannađist ekki viđ ţađ.  Róađist mađurinn mjög mikiđ viđ ţau tíđindi.  Honum var létt. Hann náđi andlegu jafnvćgi og byrjađi ađ dćla "venjulegu" bensíni á bílinn.  Um leiđ upplýsti hann mig:  "Power bensíniđ er 50 kr. dýrara en venjulega bensíniđ.  Ţađ er ađ vísu ađeins kraftmeira.  En ekki 50 króna virđi.  Ţađ er bara bull."

  Ég hef ekkert vit á bensíni.  Látum fagmenn um ţetta.  Ćtli sé einhver sala í "Power"?  Varla á ţessari bensínstöđ.  


Einföld ađferđ til ađ verjast leigubílasvindli í útlöndum

  Víđa um heim er varasamt ađ taka leigubíl.  Einkum er ţađ varasamt fyrir útlendinga.  Ennţá varasamara er ţađ ţegar útlendingurinn er staddur viđ flugvöll.  Svo ekki sé talađ um ţađ ţegar hann starir ruglađur í allar áttir;  er auđsjánlega ringlađur og međ magabólgur.  

  Allir leigubílstjórar međ sjálfsbjargarviđleitni gera viđkomandi umsvifalaust ađ fórnarlambi.  Ţeir svindla á honum.  Ţeir aka krókaleiđir og stilla mćlinn á hćsta taxta.  Reyna ađ lenda á rauđu ljósi og í umferđarteppu.  

  Ţegar seint og síđar meir áfangastađ er náđ ţá er túrinn farinn ađ slaga í 30 ţúsundkall.  

  Til er auđveld ađferđ til ađ verjast óheiđarlegum leigubílstjórum og komast hratt,  örugglega og stystu leiđ á áfangastađ.  Hún felst í ţví ađ taka á flugvellinum bíl međ GSP tćki á leigu.  Svokallađan bílaleigubíl.  Ţá getur ţú ađ auki ráđiđ ţví á hvađa útvarpsstöđ er stillt í bílnum.  Ţađ skiptir máli. 


mbl.is Varar viđ leigubílum viđ Oslóar-flugvöll
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Snýst ţetta allt um fégrćđgi?

 

  Í umrćđunni um kjaraviđrćđur,  verkföll,  launakröfur,  skattabreytingar,  styttingu vinnuvikunnar,  hćkkađ matarverđ,  magabólgur og djöflatertur hafa lćgstu laun boriđ á góma.  Sumum hefur orđiđ tíđrćtt um ađ ástćđa sé til ađ hćkka lćgstu laun.  Jafnvel um einhverja ţúsundkalla á nćstu ţremur árum.  

  Ađrir hafa brugđist hinir verstu viđ.  Ţeirra viđhorf er ţađ ađ hćrri laun greidd ómenntuđum skófluskríl muni gera útaf viđ menntun í landinu.  Ţá verđi keppikefli allra ađ tilheyra hópi ómenntađa skrílsins. Ţađ verđi eftirsóknarverđasta takmark lífsins.

  Kannski er kenningin rétt.  Kannski sýnir enginn námi áhuga nema til ţess ađ fá hćrra kaup en ómenntađi skríllinn.  

  Ţetta ţarf ađ rannsaka.  Einkum vegna ţess ađ margir eru svo vitlausir ađ ţeir rjúka í annađ nám en ţađ sem skilar ţeim síđar meir hćstu tekjum.  Einhverjir eru meira ađ segja svo vitlausir ađ ţeir leggja á sig nám sem nýtist ţeim lítiđ sem ekkert á vinnumarkađi.  Hvađ ţá ađ ţađ skili ţeim feitum launatékka.

  Getur veriđ ađ Kári Stefánsson hafi hangiđ í skólum áratugum saman einungis vegna ţeirrar vissu ađ á endanum myndi hann fá góđ laun?  Kannski hafđi hann aldrei áhuga á taugalífrćđi og erfđarannsóknum.  Hvađ veit ég.

  Ţegar ég ungur settist á skólabekk í Myndlista- og handíđaskóla Íslands ţá hafđi ég ekki hugmynd um ađ vera rekinn áfram af löngun í hćrri laun en ţau sem ég fékk ómenntađur í Álverinu í Straumsvík.  Svo gekk ţađ ekki einu sinni eftir.  Í heimsku minni hélt ég ađ skólagangan í MHÍ réđist af löngun til ađ lćra skrautskrift,  olíumálun,  vatnslitun,  ljósmyndun,  myndskreytingu,  auglýsingateikningu og eitthvađ svoleiđis bull. Nú veit ég betur.

 Fólki er ekki sjálfrátt.  Ađ minnsta kosti sumu fólki.  Ţađ veit ekki af hverju ţađ stundar nám í einhverju.  Ţađ heldur ađ námiđ snúist um ađ frćđast um eitthvađ sem viđkomandi hefur gríđarlegan huga á.  En svo í raun snýst ţetta um fégrćđgi:  Ađ komast á annan launataxta en ómenntađi skríllinn.

       


mbl.is „Háskólahugtakiđ útţynnt“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hverjir eiga Bónus?

  Ég er ekki međ ţađ á hreinu hver eđa hverjir eiga Bónus í dag. Eđa Haga sem á Bónus.  Er ţađ ekki ađ uppistöđu til lífeyrissjóđir lćgst launađa fólks landsins?  Hverjir fara međ stjórn Haga?  Er ţađ ekki fólk međ 5 - 6 milljón króna mánađarlaun?  Plús fríđindi af öllu tagi.

  Lćgst launađa fólkiđ borgar hćstu launin.  Ţađ er metnađur.  Eđa hvađ veit ég?  Á mér ekki ađ vera sama?  Ekki vinn ég ţarna.    

b


mbl.is Loka ţyrfti öllum verslunum Bónuss
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Frakkar stelpur

  Ég sat í rólegheitum í kyrrstćđum bíl og las Stundina.  Ég átti mér einskis ills von.  Skyndilega var bankađ kröftuglega á bílrúđuna. Mér krossbrá.  Úti fyrir stóđ unglingsstúlka.  Ég renndi bílrúđunni niđur.  Hún heilsađi ekki né kynnti sig heldur bar umsvifalaust upp erindiđ:  "Viltu gefa mér 300 kall?"

  Ég:  "Hvers vegna í ósköpunum ćtti ég ađ gefa ţér 300 kall?"

  Hún:  "Af ţví ađ mig langar í smávegis nammi í nammibarnum í 10-11."

  Ţetta ţótti mér vera sanngjörn og góđ rök fyrir ţví ađ gefa henni 300 kall.  Svo heppilega vildi til ađ ég var međ 300 kall í vasanum (reyndar ađeins meira.  En lét ekki á ţví bera).  Annars hefđi ég ţurft ađ fara í 10-11 - sem var ţarna rétt hjá - og biđja kassastrákinn um ađ skipta fyrir mig seđli.  

  Ţegar ég horfđi ringlađur á eftir stelpunni storma hröđum skrefum í 10-11 mundi ég skyndilega eftir ţví ađ ţađ var ekki nammidagur.  En ţađ var of seint ađ bregđast viđ ţví. Hún slapp í nammiđ á virkum degi.  


mbl.is Vafđar inn í teppi á vespu um nótt
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Paul McCartney á flesta peninga

  Margir höfđu gríđarlega miklar áhyggjur af lausafjárstöđu breska tónlistarmannsins Pauls McCartneys fyrir örfáum árum.  Ţá stóđ hann í illvígum skilnađi viđ einfćtta konu,  Heather Mills.  Hún er barnsmóđir hans og stóđ ekki höllum fćti í kröfum sínum til bankabókar heimilisins.  Leikar fóru ţannig ađ Heather náđi ađ skrapa bankabókina.  Í kjölfariđ keypti hún gervifót frá Össuri.  Búin ađ smella honum undir fór hún ađ dansa.  Ţađ gustađi af henni og fćtinum frá Össuri.  

  Paul var svo illa haldinn eftir skilnađinn ađ hann lifđi á grasi í langan tíma ţađan í frá.  

  Nú hefur bankabók Pauls braggast á ný.  Hún geymir 730 milljónir sterlingspunda (sinnum 208 krónur = 152 milljarđar).  Ţađ gerir kauđa ađ ríkasta tónlistarmanni Bretlands.  Íslendingar hafa löngum spreytt sig á ađ syngja í sjónvarpsţáttum söngva eftir Paul.  Ţađ fćrir honum feitar höfundarréttargreiđslur.  

  Söngleikjahöfundurinn Andrew Loyd-Webber er í 2. sćti.  Hann á ekki nema 650 milljón pund,  rćfils tuskan.

  Í 3ja sćti er írska hljómsveitin U2.  Hún er rekin eins og fyrirtćki.  Fjármál liđsmanna eru sameiginleg.  Sjóđurinn telur 431 milljón punda.  

  Elton John er í fjórđa sćti.  Hann á 270 milljónir.  Söngvari The Rolling Stones,  Mick Jagger, á 225 milljónir punda.  Ţađ setur hann í fimmta sćtiđ.  Félagi hans,  gítarleikarinn Keith Richards,  er međ svipađa innkomu en eyđslusamari.  Ţess vegna á hann ekki nema 210 milljónir undir koddanum.  

  Í sjöunda sćtinu er írski margverđlaunađi flautuleikarinn Michael Flatley.  Hans helsta tekjulind er fyrir dansútsetningar.  Frćgastur er Riverdansinn.  Einnig sá hann um dansa í Lord of the Rings og allskonar.  Hann á 195 milljónir punda.

  Ringo Starr og Sting eiga sitthvorar 180 milljónir punda.  Fyrrum bassaleikari Pink Floyd,  Roger Waters,  vermir 10. sćtiđ međ 160 milljón pund.   

Af hverju geta ţessir menn ekki fengiđ sér vinnu eins og annađ fólk? 


mbl.is Len Blatvatnik ríkasti mađur Bretlands
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Veitingaumsögn

skansabandiđ

 

 

 

 

 

 

 

 

  -  Réttur:  Íslensk kjötsúpa

  -  Veitingastađur:  Perlan

  -  Verđ: 1200 kr.

  -  Einkunn: *

  Kjötsúpan sem seld er á 4đu hćđ Perlunnar er hefđbundin íslensk kjötsúpa.  Hún inniheldur örlítiđ af rótargrćnmeti á borđ viđ gulrćtur, gulrófubita og lauk og eitthvađ svoleiđis.  En ađ uppistöđu var hún bara ţunnur vökvi međ grćnmetis- og kjötbragđi.  En ekkert kjöt. Ég gerđi athugasemd viđ ţetta viđ kassadömuna.  Hún svarađi ţví til ađ svona vćri súpan í dag. Ţađ var enginn ágreiningur á milli okkar um ţađ.  

  Til ađ sanngirnis sé gćtt ţá get ég upplýst og vottađ ađ ótal sinnum oft hef ég fengiđ ţokkalega matarmikla kjötsúpu ţarna.  Međ ásćttanlegu magni af smátt skornum kjötbitum.  En hér og nú er ég ađeins ađ gefa lýsingu á súpunni sem ég fékk í gćr.  Međ súpunni fylgir brauđbolla og smjör.  

  Ţessi mynd er ekki af súpuskálinni í Perlunni en svipar til hennar.

kjötsúpa

 

 

 

 

 

 

 

 

Alvöru íslensk kjötsúpa lítur aftur á móti svona út (fleiri veitingaumsagnir má finna hér )ísl kjötsúpa


Sekir eru saklausir

Siggi var sauđdrukkinn úti í haga,

sullandi í rommi lengst austur í mó.

Valtur um holtin kaus hann ađ kjaga

kengfullur út um allt ţversum hann spjó.

"Agg, gagg, gagg," sagđi tófan a grjóti.

"Agg, gagg, gagg," sagđi Siggi á móti.

Göróttum augunum trúi ég hann gjóti.

Greyiđ hann Siggi, hann ţorir ekki heim.

 

  Samkvćmt mínum heimildum er Al-Thani bróđir sinn.  

sigur_ur-einarsson

 

 


mbl.is Brotin ţaulskipulögđ og ófyrirleitin
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Egg og beikon og svívirđileg verđlagning

egg og beikon í Herjólfi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Um margra ára skeiđ var veitingastađur í Ármúla 7,  Vitaborgarinn. Ţar fékk ég mér stundum egg og beikon.  Síđast ţegar ég gerđi mér ţess háttar erindi ţangađ ţá var ég upplýstur um ađ ţarna vćri kominn nýr veitingastađur,  Joe´s Diner.  Á matseđlinum var ekki lengur "egg og beikon".  

  Ungur afgreiđslumađur rétti mér matseđil Joe´s Diner. Ég renndi augum yfir hann.  En sagđi dapur á svip ađ ţar vćri ekkert sem mig langađi í.  

  Afgreiđslumađurinn sagđist harma ţađ.  En fyrst ađ ég hafi spurt um egg og beikon ţá vćri svo sem hćgt ađ grćja svoleiđis.  Ţeir vćru hvort sem er ađ selja hamborgara međ beikoni og eggi.  Ţađ vćri ekki vandamál ađ afgreiđa egg og beikon án hamborgara.  "Hvađ viltu margar beikonsneiđar?" spurđi hann.  

  Ég:  "Á Vitaborgaranum voru ţćr 12"

  Afgreiđsludrengurinn:  "Eitt eđa tvö egg?"

  Ég bađ um tvö egg.  Drengurinn sagđi:  "Ég veit ekki hvernig ég á ađ verđleggja ţetta.  Hvađ rukkađi Vitabarinn fyrir ţetta?"  

  Mig minnti ađ ţađ hafi veriđ um 800 kall.  Jafnframt lét ég ţess getiđ ađ ţar hafi einnig fylgt međ ristađar brauđsneiđar og smjör.  En ég hefđi engan áhuga á ţví međlćti.  

  Afgreiđslumađurinn stakk upp á 600 kalli.  Ţetta var til fyrirmyndar.   

  Anna Margrét Valgeirsdóttir skrifađi fésbókarfćrslu um öđru vísi afgreiđslu í Herjólfi á eggi og beikoni. Vegna fćđuofnćmis gat hún ekki pantađ sér neitt af matseđlinum.  Hún bađ um ađ vikiđ vćri frá matseđlinum og snúiđ upp á egg og beikon.  Ţví var mćtt međ afgreiđslu á hamborgara án brauđs og án hamborgara.  En međ eggi og beikoni.  Fyrir ţetta var hún rukkuđ um 200 kall fyrir beikon + 200 kall fyrir egg + 1490 fyrir hamborgara.  Hamborgara sem var ekki međ í pakkanum.  En egg (tvö) og beikon (sex sneiđar) kostađi 1890 kall.  Fyrir sömu upphćđ er hćgt ađ fá nokkuđ veglega máltíđ á ţokkalegu veitingahúsi.  Til ađ mynda bjóđa mörg asísk veitingahús upp á glćsilegt hlađborđ fyrir mun lćgri upphćđ.     

  Fyrir ofan er mynd sem Anna Margrét tók af 1890 kr. beikoninu og eggi.  Ef smellt er á myndina ţá stćkkar hún og kvittunin verđur lćsileg.  

  


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »