Bensíntittur rćndi völdum

  Ég átti erindi norđur í land.  Áđur en brunađ var aftur til borgar óttans tók ég krók á minni leiđ og lagđi bíl upp viđ bensíndćlu.  Ţar leist mér vel á dćlu merkta "Power".  Kom upp í huga mér lag Johns Lennons "Power to the People".  Ljómandi gott lag.

  Ég greip bensíndćluna föstum tökum og beindi stút ofan í bensíntank bílsins.  Í sömu andrá sveif ađ eldri mađur,  merktur bensínstöđinni.  Hann var nánast láréttur í loftinu er hann skutlađi sér eins og til sunds á milli mín og bíls.  Reif dćluna úr bensíntanknum og hrópađi:  "Nei,  ekki Power!".  

  Svo leit hann ćstur, óđamála,  áhyggjufullur og rannsakandi á mig og spurđi:  "Varstu byrjađur ađ dćla?"

  Nei,  ég kannađist ekki viđ ţađ.  Róađist mađurinn mjög mikiđ viđ ţau tíđindi.  Honum var létt. Hann náđi andlegu jafnvćgi og byrjađi ađ dćla "venjulegu" bensíni á bílinn.  Um leiđ upplýsti hann mig:  "Power bensíniđ er 50 kr. dýrara en venjulega bensíniđ.  Ţađ er ađ vísu ađeins kraftmeira.  En ekki 50 króna virđi.  Ţađ er bara bull."

  Ég hef ekkert vit á bensíni.  Látum fagmenn um ţetta.  Ćtli sé einhver sala í "Power"?  Varla á ţessari bensínstöđ.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Ţarna fór mađur sem hugsađi vel um kúnnana.  Flott hjá honum. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 10.6.2015 kl. 09:08

2 Smámynd: Jens Guđ

  Ásthildur Cesil,  já,  ţetta var flott hjá honum.  Samt langađi mig til ađ prófa Power bensíniđ.  Ţađ bíđur betri tíma.  

Jens Guđ, 10.6.2015 kl. 22:33

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Hahaha verđur ađ fara á ađra benzínstöđ eđa bíđa ţangađ til hann fer í sumarfrí laughing

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 11.6.2015 kl. 09:02

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.