Hvað er þetta með Íslendinga í Noregi?

  Ég hef miklar,  stórar og langar áhyggjur af Íslendingum í Noregi.  Þar er eitt fjölmennasta samfélag Íslendinga utan Vestmannaeyja.  Nú í þorramánuði berast fréttir af því hingað upp á meginland Íslands að Íslendingar í Noregi blóti Þorra við hátíðlega athöfn undir spilaríi hljómsveitarinnar Skítamórals. 

  Látum vera ef Íslendingar í Noregi væru að álpast til þess að lenda í slagtogi með Skítamórali vegna þekkingarleysis á íslensku músíkflórunnar.  Allir geta lent í því að þekkingarleysi verði þeim fjötur um fót.  Ég lenti til að mynda eitt sinn í því í Skotlandi að kaupa blóðmörskepp í pylsubrauði þegar ég hélt mig vera að kaupa matmikla og digra pylsu úr pylsuvagni.

  Samkvæmt fréttunum af þorrablóti Íslendinga í Noregi er þetta í annað skipti sem þeir fá Skítamóral með í gleðskapinn.  Hvað er í gangi þarna úti?  Drekka Íslendingar frá sér ráð og rænu á þorrablótum?  Eru þeir sýktir af slæmri eyrnabólgu?  Hefur norsk músík farið svona illa með þá?

  Þetta er alvarlegt.  Hvað er til ráða?  Þetta er bráðatilfelli.     

  

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það er vissulega áhyggjuefni þegar íslensk þorrablót breytast í útlensk gerviþorrablót eins og þarna hefur greinilega gerst. Það kæmi mér ekki á óvart heldur að frétta að þarna hafi verið lítið um súra punga, hvað þá lundabagga eða annað þorralostæti. Þess í stað eru étnir amerískir hamborgarar (börnin) og nýleg sviðasulta (fullorðnir).

Samt finnst mér enn alvarlega að flest íslensk ungmenni halda að það sé gamall og góður íslenskur siður að halda upp á hinn svokallaða Valentínusardag.

Ekki veit ég hvað er til ráða til að sporna við þessari menningarmengun.

Grefill (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 10:46

2 identicon

Fellur  þetta ekki undir eitthvert ráðuneytið?

Hvernig væri að ráðherrarnir í Utanríkismálaráðuneytinu og Mennta og Menningarmálaráðuneytinu (með mökum og nefnd, að sjálfsögðu) litu við hjá löndum okkar í Noregi og kipptu málum í liðinn?

Agla (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 11:29

3 identicon

Sem betur fer hafa hinir séríslensku fárherrar ekkert yfir íslendingum í Noregi að segja. Þess vegna þekki ég fjölmarga sem eru að flytja út á þessu ári.  Er farin eftir nokkra mánuði sjálf!

Venlig hilsen og Jibbí!

Dagga (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 17:42

4 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  mér var brugðið fyrir nokkrum árum er ég mætti á þorrablót á Austurlandi.  Drjúgur hluti af þorrahlaðborðinu var lagður undir pizzur.  Bæði ég og fleiri höfðu orði á að þetta væri skrýtið.  Því var til svarað að þetta væri til að unglingar gætu tekið þátt í veislunni.    

Jens Guð, 16.2.2011 kl. 22:05

5 Smámynd: Jens Guð

  Agla,  eitthvað verður að gera.  Svo mikið er víst.

Jens Guð, 16.2.2011 kl. 22:05

6 Smámynd: Jens Guð

  Dagga,  góða ferð.  Ég kann ekki að ráðleggja þér neitt til að verjast Skítamóralssóttinni sem herjar á Íslendinga í Noregi.

Jens Guð, 16.2.2011 kl. 22:07

7 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHA

Ómar Ingi, 16.2.2011 kl. 23:01

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Hehe..Gæti ekki verið meira sammála Jens. Þvílíkur skítamórall....

hilmar jónsson, 16.2.2011 kl. 23:03

9 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  við erum hláturmildir þessa dagana.

Jens Guð, 16.2.2011 kl. 23:39

10 Smámynd: Jens Guð

  Hilmar,  takk fyrir það.

Jens Guð, 16.2.2011 kl. 23:39

11 identicon

Fussumsvei, alger viðbjóður.

Ég vinn hjá Íslandspósti og gettu hverjir munu spila fyrir dansi á árshátíðinni í næsta mánuði, nú Skítamórall. Ég mun ekki mæta. Þetta er móðgun við tónlistarlega greind mína!

póstmaður (IP-tala skráð) 17.2.2011 kl. 23:38

12 Smámynd: Jens Guð

  Póstmaður,  mikið sem ég skil þig.  Þetta er hneyksli. 

Jens Guð, 18.2.2011 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.