Tvær góðar en ólíkar

1001 gamansagadjöflanýlendan

  Fyrir nokkrum dögum birti ég sýnishorn af gamansögum Helga Seljan úr bókinni  1001 gamansaga.  Það má fletta upp á því með því að smella á þennan hlekk:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1210651/  Fólk hefur svo gaman af sögunum hans Helga að ég bæti hér nokkrum við:

 

  Sá litli þurfti að fara á klósettið og amma hans hjálpaði

honum, en svo vildi sá litli sitja rólegur á klósettinu og

sagði ömmu sinni að hann myndi kalla í hana þegar hann

væri búinn. „Ja, þú verður þá að kalla hástöfum því ég heyri

orðið svo illa.“ Svo líður dálítil stund og þá heyrist kallað:

„Hástöfum, hástöfum, hástöfum.“

 

  Faðirinn var að kenna lítilli sex ára undirstöðuatriði í

stærðfræði. Hann teiknaði tvo pizzuhelminga, setti þá svo

saman og spurði þá litlu hvað þetta væri nú. Hún var svo

sem ekki að taka mikið eftir en sagði: „Pabbi, svo skal ég

teikna pepperóne.“

 

  Manni litli kom til Valborgar kennara og sagði: „Ég ætla

ekkert að vera að hræða þig, Valborg, en pabbi sagði að ef

ég kæmi ekki heim með betri einkunnir næst þá yrði einhver

flengdur.“

 

  Danni litli neitaði að borða kartöflurnar í kvöldmatnum

hvernig sem um var vandað við hann, jafnvel var sagt að

Guð yrði reiður ef hann borðaði ekki kartöflurnar. Um

nóttina vaknar Danni við vonskuveður með þrumum og

eldingum og þegar mamma hans fer að vitja um hann segir

Danni: „Skárri eru það nú lætin út af fáeinum kartöflum.“

 

  Ungur drengur af Héraði kom á Seyðisfjörð. Þá komu

að honum nokkrir strákar og einn spurði hvaðan hann væri.

Hann sagði bæjarnafnið. Þá spurði einn ansi merkilegur með

sig: „Er það næsti bær við helvíti?“ Héraðsdrengur ansaði:

„Nei, Seyðisfjörður er á milli.“

  Djöflanýlendan  er bandarísk háspennusaga eftir metsölubókahöfundinn James Rollins.  Það sem gerir bókina sérlega áhugaverða fyrir Íslendingar er að Ísland kemur við sögu.  Lesið meira um það með því að fara á Fésbókina og slá nafni bókarinnar inn sem leitarorði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Gleðilega hátíð.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 24.12.2011 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband