Agg-gagg-gagg, sagði tófan á grjóti

sigur_ur-einarsson

  Eðlilega vakti það mikla athygli á sínum tíma þegar helstu fálkar bankahrunsins voru í aðdraganda hrunsins merktir með fálkatákni af forseta Íslands. Það var táknrænt.  Eðlilega vekur það einnig umtal og umræðu þegar kóngurinn á Bessastöðum bannar nú einum þeirra að bera fálkatáknið.  Heppilegra væri að skikka hann til að vera merktur fálki.  

   


mbl.is Sviptur rétti til að bera orðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Mig hefur lengi grunað að Davíð Oddsyni hafi verið veittar veitingar, sem ekki gera annað en að ná að gera lítið úr trúverðugleika og heilindum hans hér áður fyrr, og enn þann dag í dag. Og ef maður hefði fengið að sjá "þann" sem hótaði honum þegar allt fór úr böndunum, með blekkingum, lögfræðiaðstoðarmönnum og músum, þá væri margt óljóst komið í heildarpúsluspilið.

Ég er viss um að Davíð Oddson er ekki illa innrættur né vondur maður. En netafelluvegur allra er ólíkur og ekki alltaf réttlætanlega fjölmiðla-útskýrður. Það þarfnast virkilegar rannsóknar á siðmenntaðan og dómstólaverjanlegan hátt.

Ég bendi fólki á að lesa fyrstu bók Davíðs: Nokkrir dagar án Guðnýjar.

Ég veit ekki hver þessi Guðný er. En í smásögu sem byrjar á blaðsíðu 43 er athygliverð "skálduð" smásaga. Sem byrjar svona: Dagarnir í Moskvu liðu hratt.

Það er ekki alltaf allt sem sýnist, né samkvæmt sönnuðum staðreyndum heildarmyndarinnar, hjá risafjölmiðlafréttum heimsins hverju sinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.12.2015 kl. 20:46

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

leiðrétting: Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.12.2015 kl. 00:05

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Á ég að trúa því að enn séu til þeir íslendingar sem trúa því og reyna að fá aðra til að trúa því að öll útrásin hafi svifið hjá án vitundar og vilja Davíðs Oddsonar sem óvart var forsætisráðherra þeirrar ríkisstjórnar sem hannaði útrásarumhverfið?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.12.2015 kl. 06:58

4 identicon

Eitthvað er þetta andlit nú kunnuglegt á þessum grindhoraða hobbita þarna á myndinni, samt tel ég það þó hæfa betur á akfeitan skrokk, en auðvitað er það bara púsluspil. Annars fer nú senn að vænkast hagur langtíma Kvíabryggjubúa þegar þeim verður skaffaður fyrrum landsliðsmarkvörður til að sprikla með í fótbolta.  

Stefán (IP-tala skráð) 10.12.2015 kl. 08:27

5 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  það er áreiðanlega rétt hjá þér að stundum sé ekki allt sem sýnist.

Jens Guð, 12.12.2015 kl. 18:02

6 Smámynd: Jens Guð

Axel Jóhann,  Doddsson trúir því sjálfur.

Jens Guð, 12.12.2015 kl. 18:03

7 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég fylgist ekki með boltanum.  En það kemur ekki á óvart að boltamenn sláist í hópinn á Kvíabryggju.

Jens Guð, 12.12.2015 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.