Trump vitnar í fróðan Færeying

trump feðginin

 

 

 

 

 

 

 

  Kosningabaráttan um embætti forseta Bandaríkja Norður-Ameríku er í hæstu hæðum um þessar mundir.  Kjördagurinn er í nóvember.  Baráttan stendur á milli Hillary Clinton og Dóna Trumps.  Eitt framboðsefnið til viðbótar er þó að sækja í sig veðrið.  Sá heitir Gary Johnson.  Hann er frjálshyggjumaður og nýtur góðs af andúð margra á hinum frambjóðendunum.

  Nánustu ættingjar og venslafólk tekur virkan þátt í kosningabaráttunni.  Það þarf ekki að koma á óvart.  34ra ára dóttir Dóna,  Ivanka Trump, er ekki eftirbátur annarra á því sviði.  Hún styður pabba sinn.  Á heimasíðu hennar á netinu slær hún upp mynd af heillaráði Færeyingsins Hans Fróða Hansen.  Það er á ensku og hljómar svo:

  "People inspire you or they drain you. Pick them wisely."  

  Á íslensku getur það útlagst:  "Fólk veitir þér innblástur eða tærir þig.  Vandaðu valið."

  Vísdómsorðin merkir Trump með Tweet myllumerkinu #WiseWords from Hans F. Hansen. Surround yourself with inspiring people.

  Hversu þungt gullkornið frá Hans Fróða kemur til með að vega í kosningabaráttunni er óvíst.  Hugsanlega gerir það útslagið.

  Margir Íslendingar kannast við Hans Fróða.  Hann spilaði fótbolta hérlendis til margra ára í upphafi þessarar aldar.  Þar á meðal spilaði hann með Fram,  Breiðabliki og Víkingi.

hans fróði 


mbl.is Mögulega lögsóttur vegna FL-viðskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góður að vitna í Hans Fróða kannski notar hann orð Guðna um Hommanna. Vona að Trump verði næsti Forseti og hann ætti að geta malað Clintonínuna.

Valdimar Samúelsson, 8.8.2016 kl. 13:16

2 Smámynd: Jens Guð

Trump rústar þessu!

Jens Guð, 8.8.2016 kl. 19:52

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ef einhver getur rústað einhverju er það öruggleg Trump. Ansi var þetta nú Dónaleg athugasemd hjá mér.embarassed

Jósef Smári Ásmundsson, 8.8.2016 kl. 21:51

4 Smámynd: Jens Guð

Jósef Smári,  þetta er allt í stíl.

Jens Guð, 9.8.2016 kl. 03:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.