Gott að vita

  Hvaða þjóð drekkur mest af cola-drykkjum miðað við höfðatölu?  Íslendingar?  Nei, ekki alveg.  Næstum því.  Bandaríkjamenn?  Nei,  ekki heldur. En næstum því.  Það eru Mexíkóar.  

  Allir þekkja þunglyndislyfið Prozak.  Kannski ekki af persónulegum kynnum.  Frekar af umtali.  Ef snigill kemst í tæri við Prozak þá tapar slím hans límkenndum eiginleika.

  Tungan í tígrisdýri er hrjúf eins og sandpappír.  Sleiki dýrið bert mannsskinn þá verður það blóðrisa.

  Lúðvík XIII Frakklandskonungur fór fyrst í bað fyrir sjö ára afmæli sitt.  

  Bandaríkjamenn sporðrenna yfir 10 milljörðum kleinuhringa á ári.  Þar af eru kleinuhringir uppistaðan af daglegu fæði lögregluþjóna.  

  Karlmenn eru í margfalt meiri hættu á að fá hjartaáfall í leik með viðhaldi en innan hjónabands. 

  Strútur hleypur léttilega fullt maraþon á þremur korterum.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband