Gríðarleg fagnaðarlæti í Pakistan

  Fáir fagna kosningasigri ljúflingsins Dóna Trumps - til embættis forseta Bandaríkja Norður-Ameríku - meira og ákafar en Pakistanar.  Þar í landi er altalað að hann hafi fæðst í fjárhúsjötu í landinu;  þá barn að aldri.  Skömmu síðar féllu foreldrar hans frá, að því er sagan segir.  Var hann þá ættleiddur til Bandaríkjanna - með stuttri viðkomu í Englandi.

  Pakistanar kunna nöfn blóðforeldra hans utanbókar.  Jafnframt eru til ljósmyndir af drenghnokkanum frá æskuárunum í Pakistan.  Eðlilega hafa pakistanskir fjölmiðlar gert málinu góð skil.  Enda þjóðin stolt af sínum manni.  Hún hamstrar ljósmyndir af honum til að hengja upp á besta stað í stássstofunni. Hávær krafa er um að dagurinn sem Trump verður formlega settur í forsetaembætti verði gerður að opinberum frídegi í Pakistan til frambúðar.  


mbl.is Neitar að klæða Melaniu Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband