Saga the Clash

 

   7. febrúar var alþjóða CLASH-dagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim (sjá síðustu bloggfærslu).  Ekkert lát er á hróðri þessarar merku ensku pönksveit.  28. febrúar rekja Spotify og breska sjónvarpið BBC í sameiningu sögu Clash. 

  The Clash leiddi og mótaði bresku pönkbylgjuna - ásamt Sex Pistols - 1976/1977.  Fyrsta smáskífulag Clash,  White Riot (útgefið snemma árs 1977),  varð einskonar þjóðsöngur pönkbylgjunnar.  Fjöldi pönksveita krákaði lagið (cover song).  Jómfrúar Lp-plata the Clash (útgefin vorið 1977) varð fyrirmynd nýrra pönksveita um allan heim.  Meðal annars innleiddi hún reggí í pönksenuna.

 Næsta plata the Clash,  Give ´Em Enough Rope,  vakti undrun.  Hún var meira hard rokk en pönk.  Eða pönkkryddað hard rokk.  

  3ja plata the Clash,  London Calling,  vakti ennþá meiri undrun.  Fátt var um pönk en þeim mun meira af allskonar:  Allt frá djassi til calypso.  Eftir þetta hætti the Clash að koma á óvart.  Þessi hljómsveit spilaði hvað sem var.  Þess vegna allt frá pjúra poppi til sýrðasta avant-garde. 

  Eftir að hljómsveitin leystist upp í leiðindum 1986 var henni ítrekað boðið gull og grænir skógar fyrir að koma fram á hinum ýmsu rokkhátíðum.  Stjarnfræðilega háar upphæðir.  Liðsmenn höfðu bein í nefinu til að hafna öllum gylliboðum.  Hljómsveitin snérist aldrei um peninga.  Það var hennar gæfa.  Það er ein af stóru ástæðunum fyrir því að hún er þetta stöðugt vaxandi stórveldi í rokksögunni.  

  Ég skrifa um Clash í fortíð vegna þess að fyrirliðinn,  Joe Strummer,  er fallinn frá.  Hann var forsöngvarinn, gítarleikari og söngvahöfundur.  Fráfall hans hefur dregið úr líkum á endurkomu Clash.  

 

clash-barn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Pönkið heillaði mig ekki en kannski er ég of fastur í CCR!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 12.2.2019 kl. 10:27

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég var og er mikill aðdáandi CCR.  Á allar þeirra plötur sem og sólóplötur Johns Fogertys.  Þegar ég var í unglingahljómsveitum voru jafnan nokkur CCR lög á prógramminu.  Þegar pönkbyltingin gekk í garð fannst mér margt í þeirri senu standa nærri CCR:  Einfalt og kröftugt 3ja hljóma rokk og ról.  Enda krákuðu (cover song) pönksveitir CCR.  Kannski er sú frægasta með einni helstu bandarísku pönksveitinni,  the Ramones:     https://youtu.be/yFQ4GmW2zpA

Jens Guð, 12.2.2019 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband