Falskt öryggi

  Einnota hanskar eru í tísku um þessar mundir.  Hvítir þykja flottastir. Bláir og grænir njóta einnig vinsælda.  Annars fer þetta að mestu eftir litnum á fötunum sem fólk klæðist hverju sinni. 

  Einnota hanskar eru ekki aðeins skemmtilegur klæðnaður.  Þeir geta líka spornað gegn útbreiðslu kórónaveirunnar.  Eða hvað?  Jú,  ef rétt er að farið.  Verra er að þeir geta einnig gefið falskt öryggi.

  Veiran smitast ekki bara við snertingu.  Hún svífur um loftin blá;  ferðast allt í kringum smitað fólk.   Veik manneskja þarf ekki einu sinni að hósta hraustlega til að smita aðra.  Henni nægir að anda án rykgrímu.

  Einnota hanski venur fólk ekki af því að snerta andlitið á sér.  Í hanska flaðrar fólk upp hurðahúna sem löðra í veirum; stigahandrið, innkaupakerrur,  slær inn PIN-númer og svo framvegis.  Þegar hanskaklætt fólkið snertir síðan á sér andlitið þá er það engu betur sett en berhentir.

  Yfirleitt liggja hanskarnir þétt um höndina.  Við það verður húðin þvöl.  Það er kjörlendi fyrir veiruna.  Mikilvægt er að hendur séu vel þurrar þegar þeim er stungið í hanska.  

 Töluverð kúnst er að fara úr einnota hanska.  Margir fara þannig úr þeim að þeir gætu eins sleikt hurðahún. 

  Tíður handþvottur er heppilegri en hanskar.  Hann skilur heldur ekki eftir sig sama sóðaskap og hanskinn.  Víða fyrir utan matvöruverslanir má sjá einnota hanska fjúkandi út um öll bílastæði.

  Sumir klippa framan af fingrum hanskans;  breyta honum í grifflur.  Það er töff en veitir falskt öryggi gegn kórónaveirunni. 

einnota hanskarveiruvörn    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frekar sammála þessu. Nota sjálfur þunna vélpjónaða fingravettlinga og prjónað buff fyrir vitin í verslunum.

sigurður bjarklind (IP-tala skráð) 28.3.2020 kl. 06:52

2 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Ég ætla ekki að halda því fram að öll greinin sé bull, en höfundur sannar vanþekkingu sína þegar hann heldur því fram að veiran fjölgi sér á þvölum höndum í latexhanska.

Veira þarf að komast inn í lifandi frumu af réttri gerð í réttri dýrategund til að fjölga sér.

það gerist tæplega í þvölum hanska.

Þórhallur Pálsson, 28.3.2020 kl. 09:32

3 Smámynd: Jens Guð

Sigurður,  það er lagið!

Jens Guð, 28.3.2020 kl. 09:48

4 Smámynd: Jens Guð

Þórhallur,  takk fyrir ábendinguna.  Ég laga þetta í snarheitum í pistlinum.  Ég oftúlkaði textann sem ég sótti fróðleikinn til.  Þar segir aðeins að rakinn fóðri veiruna.  

Jens Guð, 28.3.2020 kl. 09:53

5 identicon

Því er við að bæta að tillitsemi við náungann og reglufesta í umgengni við allt og alla er afar mikilvæg.

sigurður bjarklind (IP-tala skráð) 28.3.2020 kl. 15:07

6 identicon

Held að sprittið virki langbest. En það sagði mér einn að Vodki væri góður gegn veirunni. Ég spurði hann hvort hann gæti ábyrgðst það. Nei, en það er gott að trúa því.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 28.3.2020 kl. 20:44

7 Smámynd: Jens Guð

Sigurður (# 5),  mæl þú manna heilastur!

Jens Guð, 29.3.2020 kl. 08:52

8 Smámynd: Jens Guð

Jósef Smári,  án góðs handþvottar gerir sprittið takmarkað gagn.  Hitt er annað mál að vodki er besta sprittið;  virkar vel bæði að utan og innan.  

Jens Guð, 29.3.2020 kl. 08:56

9 identicon

Tónlist er gott meðal í veikindum nema þá fyrir Jón Gnarr og aðra slíka sem illa þola tónlist. Ég er nýbúinn að lesa niðurstöður úr rannsóknum á Parkinson og Alzheimer sjúklingum sem sýna svo ekki verður um villst að tónlist hefur góð áhrif á líðan þeirra. Það eru t.d. góðar fréttir fyrir Parkinson sjúklinginn Ozzy Osbourne. Fólk með háan hita á erfitt með að einbeita sér að lestri og flestu öðru, en góð tónlist í bakgrunni getur þá ekki gert annað en gott. ,, There is healing in those guiters and a spirit in the song / music is the doctor makes you feel like you want it / music is the doctor of my soul ,, sungu Doobie Brothers og höfðu nokkuð til síns máls. 

Stefán (IP-tala skráð) 29.3.2020 kl. 18:30

10 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég kvitta undir hvert orð.

Jens Guð, 29.3.2020 kl. 18:47

11 identicon

Áhugavert viðtal, gaman ef þú rýndir í þetta

https://www.youtube.com/watch?v=gMTZu6_TjU8

kv

þórður bogason (IP-tala skráð) 9.4.2020 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.