Þessi vitneskja getur bjargað lífi

  Íslendingar eru óvanir að rekast á ísbirni á förnum vegi.  Sú staða kemur þó upp af og til.  Vitað er um 600 ísbirni sem hingað hafa rekið á land frá Ameríku.  Einkum Grænlandi.  Hætt er við að þeim fjölgi í kjölfar hnattrænnar hlýnunar.  

  Birnir eru hættulegir fólki.  Ekki síst ef þeir eru soltnir eftir langt sjórek.  Röng viðbrögð eru að reyna að hlaupa birni af sér.  Bangsi hleypur miklu hraðar.  Að auki espir hlaupandi manneskja upp veiðieðli dýrsins. 

  Heppilegri viðbrögð eru að lyfta höndum upp fyrir höfuð og syngja ljúfa ballöðu.  Björninn þekkir af reynslu að stærra dýr er líklegra til að sigra í átökum.  Hendur upp yfir höfði hækka manneskjuna. 

  Þekkt eru dæmi þess að birnir láta syngjandi fólk í friði.  Ástæðan er sú að söng mannsins svipar til væls í húnum.  Þetta virkar á ísbirni, skógarbirni, svartbirni og Birni Bjarnasyni.     

bangsi   


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Veit ekki hvort skráð tilfelli eru um ísbirni á Reykjavíkursvæðinu fyrir utan þá sem voru í Sædýrasafninu í Hafnarfirði og blessunarlega lét Jón Gnarr ekki verða af því að koma slíkum fyrir hér. Margt getur verið jafn hættulegt og það að mæta ísbirni, t.d. drukknir og dópaðir bílstjórar sem nóg er af. Svo er alltaf eitthvað um hættulega hælisleitendur og hver vill mæta slíkum með sveðju á lofti ? Margir þeirra koma frá stríðshrjáðum löndum og vaða því áfram með hávaða og látum eins og þeir eru vanir.  

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2025 kl. 14:05

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fyrst talið berst að ísbjörnum, þá er hérna ein lauflétt spurning (sem hefur vafist fyrir mörgum gáfumönnum, að að ef enginn hefur svarið þá er engin skömm að því).: "HVERS VEGNA BORÐA ÍSBIRNIR EKKI MÖRGÆSIR"??????

Jóhann Elíasson, 5.6.2025 kl. 14:54

3 identicon

Tilgátur: Mörgæsir geta ekki étið mörgæsir vegna þess að þeir ná ekki umbúðunum af ætinu og geta ekki étið húðina ?

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2025 kl. 15:18

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Góðar ráðleggingar!


Svarið við spurningu Jóhanns er að mörgæsir lifa á Suðurhveli jarðar en ísbirnir á Norðurhveli.

Wilhelm Emilsson, 5.6.2025 kl. 15:29

5 identicon

Wilhelm er með pottþétt svar, en gæti ísbjörn étið mörgæsef það byðist ?

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2025 kl. 15:47

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk, Stefán. Ég var einmitt að pæla í þessu en veit ekki svarið! Mig grunar þó að ísbirnir myndu líta á mörgæsir sem skyndibita.

Wilhelm Emilsson, 5.6.2025 kl. 15:52

7 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 1),  hætturnar leynast víða.

Jens Guð, 5.6.2025 kl. 16:10

8 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  takk fyrir skemmtilega gátu.

Jens Guð, 5.6.2025 kl. 16:11

9 Smámynd: Jens Guð

Vilhelm (# 4),  góð og rétt skýring!

Jens Guð, 5.6.2025 kl. 16:12

10 identicon

Vegna þess að við Jóhann Elíasson vorum sjómenn ( stýrimenn ) á yngri árum þá ætla ég að minnast manns sem nýlega féll frá og vann með mér á togara í hálft ár þegar ég var 18 ára. Viðkomandi var reyndar frægastur fyrir að vera þjófóttur með eindæmum og eyddi stórum hluta ævinnar í fangelsum. Við á þessum togara sigldum alltaf með aflann til Þýskalands og máttum taka með okkur þrjá bjórkassa heim hver. Þar sem við vorum 30 í áhöfn var um 90 bjórkassa að ræða. Viðkomandi þjófur var útsmoginn og náði alltaf að stela 30 bjórkössum frá öðrum þegar lagst var að bryggju í Reykjavík. Það gat hann með því að finna út hverjir voru orðnir ölvaðastir þegar lagst var að bryggju. Þjófurinn bað mig oftar en einu sinni að hjálpa sér við að koma kössunum upp í sendibíl, ég neitaði alltaf, en kjaftaði þó aldrei frá vegna þess að viðkomandi þjófur var hinn almennilegasti í minn garð. Var vissulega fingralangur með eindæmum og náði að verða söguhetja í kvikmynd. Mannlíf minnist hans sérstaklega og segir sögur af honum, þó ekki þessa. 

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2025 kl. 17:27

11 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 10),  grunur beinist að nafninu Lalli.  

Jens Guð, 5.6.2025 kl. 17:48

12 identicon

Já og mín síðustu afskipti af honum blessuðum voru þegar hann fyrir líklega 12-15 árum mætti á skrifstofuna til mín með nokkur greiðslukort ( sem á einhvern óskiljanlegan hátt höfðu lent í vösum hans ) og bað mig að koma þeim til réttra eigenda sem ég og gerði. Hann var á leið á Hraunið og treysti mér fyrir þessu - Blessuð sé minning hans. 

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2025 kl. 18:51

13 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Stefán, Lalli heitinn var klókur með afbrigðum en eins og sagt er hann var oftast sjálfum sér verstur og að mínum dómi leiddist hann að miklu leiti út á þessar brautir og þegar menn eru einu sinni komnir á þessa braut er víst ekki svo einfalt að snúa við.  En það er til skemmtileg saga af því hvernig hann fékk viðurnefnið DJONS.  En það kom víst til af því að í upphafi ferilsins stal hann "Johnson" utanborðsmótor og varð út úr þessu heilmið mál og einhverjir gárungar "klíndu" nafninu á hann enda þekktu hann ALLIR undir nafninu Lalli Jones en færri vissu ekki hver Lárus Svavarsson var.

En að spurningunni í upphafi Ísbirnir borða EKKI mörgæsir vegna þess að ísbirnir eru á NORÐURHVELI JARÐAR en mörgæsirnar eru á SUÐURHVELI JARÐAR.........

Jóhann Elíasson, 6.6.2025 kl. 10:33

14 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Veit ekki alveg hvort þetta ráð dugi á Björn Bjarnason!

Sigurður I B Guðmundsson, 6.6.2025 kl. 11:07

15 identicon

Ha, ha, ha satt segir þú Sigurður IB, en sá Björn gæti nú örugglega hamflett mörgæs og grillað. ( Er vanur að grilla hina og þessa með beittum en misgóðum skrifum ). 

Stefán (IP-tala skráð) 6.6.2025 kl. 11:20

16 identicon

Hver er munurinn á Björgólfi Thor vs Robert Wessman og Donald Trump vs Elon Musk ?

Stefán (IP-tala skráð) 6.6.2025 kl. 16:11

17 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  blessunarlega hwfur ekki reynt á það - svo vitað sé!

Jens Guð, 6.6.2025 kl. 17:16

18 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 16),  munurinn er sá að Björgúlfur kannast ekki við neinar njósnir á sínum vegum.  Hann vísar alfarið til föðurhúsa lygum um að hann hafi borgað 33 milljónir fyrir njósnir.  Hið rétta sé að hann hafi aðeins borgað 8 milljónir fyrir njósnirnar.  

Jens Guð, 6.6.2025 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og tíu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband