Sjaldan fellur eggið langt frá hænunni

  Fyrir nokkrum árum gaf Gísli Marteinn Baldursson upp í bók að hann væri með prófgráðu í stjórnmálafræði.  Við nánari skoðun kom í ljós að þetta var ofmat.  Gísli Marteinn hafði ekki lokið prófi.  Hann bara hélt það.  Faðir Gísla Marteins,  Baldur Gíslason,  er skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík.  Á dögunum fékk Baldur áminningu frá menntamálaráðherra.

  Fyrir hvað?  Jú,  Baldur hélt að nokkrir nemendur Iðnskólans hefðu tekið þar próf án þess að þeir hafi gert það.  Hljómar kunnuglegt,  ekki satt? 


mbl.is Ólafur treystir Gísla Marteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Heheheh þú ert óborganlegur. 

Ía Jóhannsdóttir, 2.2.2008 kl. 21:06

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæll Jens. Ertu nú ekki að skjóta full neðarlega þarna? Er ekki óþarfi að blanda þessu saman, Gísla og gjörðum föður hans?

Sveinn Hjörtur , 2.2.2008 kl. 21:26

3 identicon

Minnir nú að gráðan sem Gísli hafi talið upp hafi verið önnur en lögfræði gráða, sem skv. honum hann hélt að hann yrði kominn með þegar bókin væri gefin út en svo gekk það ekki upp vegna anna.

Einnig er ekki rétt að þetta séu nemendur sem hafi lokið prófi hjá Baldri heldur var hann að reyna telja hve margir hafi mætt í próf, enda greiðir ráðuneytið eftir því en ekki hve margir ljúka prófi.

Fyrst menn eru að skjóta á menn er nú skemmtilegra að hafa skotin rétt :)  

Baldur en ekki Gíslason (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 21:34

4 Smámynd: Jens Guð

  Sveinn,  þessu hefur hvorutveggja verið gerð góð skil í fjölmiðlum.  Þannig að það er ekki eins og ég sé að afhjúpa eitthvað sem á að liggja í þagnargildi.  Hinsvegar þykir mér broslegt hvað þeim feðgum svipar saman.  Það er ekkert neikvætt við að benda á að feðgar gangi í takt.

Jens Guð, 2.2.2008 kl. 21:37

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fyndið sem það hljómar, en vegna þess að þú tengir þetta við þessa fregn af "Borgarstjóranum þínum", ertu þá undir rós að vantreysta trausti hans?

Magnús Geir Guðmundsson, 2.2.2008 kl. 21:39

6 Smámynd: Jens Guð

  Baldur,  takk fyrir að lagfæra ónákvæmnina hjá mér.  Það er betra að hafa þetta nákvæmt upp á vinnu sagnfræðinga seinni tíma að gera.   

Jens Guð, 2.2.2008 kl. 21:41

7 Smámynd: Jens Guð

  Maggi,  nei,  þvert á móti.  Ég er að vekja athygli á því að Ólafur treystir Gísla Marteini.  Það er ekki lítils virði fyrir Gísla Martein að fá traustsyfirlýsingu frá heimilislækni.

  Ólafur,  eða hvort að þetta er í genunum. 

Jens Guð, 2.2.2008 kl. 21:48

8 Smámynd:                                           OM

Sæll

Gísli hélt að hann væri búinn að ljúka BA-prófi í stjórnmálafræði en ekki lögfræði. Held að það sé rétt munað hjá mér. Hann var í námi hjá meistara Hannesi Hólmsteini.

KV. LL

OM , 2.2.2008 kl. 21:55

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

haha, heldur þú að það hafi verið heimilislæknirinn en ekki Borgarstjórinn sem þarna talaði? Getur varla verið því karlinn er núna hættur sem heimilislæknir!En ónákvæm eða ekki, feðgagrínið gott og sannar enn og aftur já, að margt er líkt með skyldum!

En, finnst þér í alvöru að eggið falli sjaldan..?

Magnús Geir Guðmundsson, 2.2.2008 kl. 21:58

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Núna bullar þú Jens. Kannski líka oftar, veit það ekki.........

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.2.2008 kl. 21:59

11 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Jens skrifar sig ekki aðeins Guð. Hann heldur að hann sé það.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2008 kl. 22:00

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og já einmitt, þetta er örugglega rétt hjá Leifi, stjórnmálafræði var það, ekki lögfræði.

Magnús Geir Guðmundsson, 2.2.2008 kl. 22:00

13 identicon

Gísli Mistilteinn Baldursson: "Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1992. Nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands sem er ólokið. Dvaldi við háskólann í Tubingen í Þýskalandi í tengslum við ERASMUS stúdentaskiptaverkefnið veturinn 1996-1997."

http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-528/


Steini Briem (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 22:13

14 Smámynd: halkatla

sniðugur samanburður  

og Leifur hefur rétt fyrir sér, þetta var próf í stjórnmálafræði. Honum vantaði 15-20 einingar uppá prófið, einsog Gísli sagði sjálfur í sjónvarpinu... og prófessorinn HHG sagði þetta smámuni, þegar fólk hættir að læra einsog Gísli og bíður í smátíma þá fá flest námskeiðin nefninlega ný nöfn, og þegar það gerist er víst óþarfi fyrir þá sem voru að læra fagið að klára það sem uppá vantar (meiraðsegja ritgerð)

halkatla, 2.2.2008 kl. 22:18

15 identicon

Úr 115. grein reglna fyrir Háskóla Íslands:

"Hámarksnámstími til þess að ljúka BA-prófi er níu kennslumisseri [4,5 ár] frá því er stúdent var skrásettur í viðkomandi aðalgrein. Deildinni er heimilt að veita undanþágu frá þessum tímamörkum, þegar sérstaklega stendur á.

Stúdent sem ekki getur lokið námi innan þeirra tímamarka sem sett eru í 115. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands þarf að sækja um sérstaka og tímasetta undanþágu frá því ákvæði til skorar."

Steini Briem (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 22:43

16 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef leiðrétt í færslunni að Gísli hafi verið í stjórnmálafræði.  Reyndar held ég að hann hafi haldið að hann væri að læra lögfræði þó hann hafi verið að læra stjórnmálafræði.  En höfum þetta bara einfalt.

  Maggi,  sá sem er einu sinni heimilislæknir er alltaf heimilislæknir þó hann sé borgarstjóri af og til. 

  Ég ólst upp innan um hænur í Skagafirðinum.  Þar féllu eggin ekki langt frá hænunni.

Jens Guð, 2.2.2008 kl. 22:49

17 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er áreiðanlega í góðu lagi að gera pínulítið grín að Gísla Marteini. Þetta er flugskarpur piltur, glaðvær og áreiðanlega húmoristi. Hann fór pínulítið fram úr sér í akademisku afrekaskránni en ég met það honum til gildis sem hann vantar uppá námið hjá Hannesi Hólmsteini.

Úr Gísla mætti gera vel nothæfan stjórnmálamann ef hann losnaði úr slæmum félagsskap.

Svo er móðir Gísla frá Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi vestur, en úr þeim hreppi hafa komið margir andans menn og að sjálfsögðu konur líka.

Arfgengi hæfileika úr þeirri átt er talið óvenju sterkt.

Árni Gunnarsson, 2.2.2008 kl. 23:05

18 identicon

Það er ekki niðurlogið á hann Steina Briem,hann er mikill viskubrunnur.

jensen (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 23:52

19 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Sjaldan fellur eggið langt frá hænunni?? Það er ekki nóg með að þú hafir verið með námið rangt sem Gísli Marteinn stundaði heldur geturðu ekki haft málsháttinn réttan. Það er talað um að sjaldan falli eplið langt frá eikinni. Hins vegar er stundum talað um það þegar eggið er að kenna hænunni

Sem minnir mig á annað. Ekki alls fyrir löngu ritaðir þú færslu þar sem þú gerðir grín að því að Færeyingar hefðu opnað sendiráð í Austurstræti fyrir ofan Óðal. Þar blakti því færeyski fáninn í fullri reisn. Ég benti þér á að þetta væri einfaldlega ekki rétt, sendiráðið væri í öðru húsi við þá ágætu götu eins og sjá mætti ef menn legðu leið sína þangað niðureftir. Stuttu síðar gat ég ekki séð betur en að færslan hefði verið fjarlægð. Sé það rétt, hvað olli?

Hjörtur J. Guðmundsson, 3.2.2008 kl. 00:05

20 Smámynd: Jens Guð

  Árni,  það er ekki aðeins í lagi að gera góðlátlegt grín að Gísla.  Það er blátt áfram nauðsynlegt.

  Valdemar,  Gísli er skarpur.  Við getum ekki tekið það frá honum.  Hinsvegar á hann margt ólært í pólitík.  REI-ævintýrið,  leynifundurinn án Villa,  fall meirihluta D og B o.s.frv. hefur áreiðanlega skólað Gísla betur en allar kennslustundirnar hjá Hannesi til samans.

  Jensen,  Steini Briem er annað nafn yfir alfræðiorðabók.

Jens Guð, 3.2.2008 kl. 00:10

21 Smámynd: Jens Guð

  Hjörtur,  þetta er nú bara léttur útúrsnúningur og tilraun til fyndni.  Ekki datt mér í hug að ástæða væri til að taka það fram.  Ekki vera svona alvörugefinn.  Hvað er annars epli að gera hjá eik?

  Ef ég man rétt var einhver Færeyingur ósáttur við að grínast væri með nábýli sendiráðsins við klámbúllu.  Ég vil ekki að Færeyingar séu ósáttir.

Jens Guð, 3.2.2008 kl. 00:22

22 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Það er bara einfaldlega alltof algengt að fólk rugli svona saman málsháttum/orðtökum.

Manstu ekki betur? Það er ekki eins og það sé langt síðan þetta gerðist. En burtséð frá því þá datt þér náttúrulega ekki í hug að einhverjum Færeyingum myndi mislíka það að gantast væri með að fáninn þeirra blakti í fullri reisn fyrir ofan strippstað? En kannski áttu bara engir Færeyingar að lesa þetta? Þá hefur málið varla snúist um að Færeyingar væru ekki ósáttir fyrr en eftir að þú rakst á það að einhverjir þeirra gætu skilið það sem þú varst að skrifa.

Hjörtur J. Guðmundsson, 3.2.2008 kl. 00:37

23 Smámynd: Jens Guð

  Hjörtur,  það er líka mjög algengt að fólk snúi út úr málsháttum.

  Ég man ekki hvenær sendiráðið opnaði.  Það var þó sennilega farið að hausta vegna þess að í opnunarhátíðinni,  sem haldin var í glerskála við Norræna húsið,  þá var ég með söluborð við innganginn.  Og man að það var frekar kalt.

  Eins og sjá má á færslum mínum þá eru þær sumar meira óheflaðar en teprulegar.  Til samanburðar eru Færeyingar mjög orðvarir og kurteisir.  Þeir eru siðprúðir þegar kemur að umræðu sem snýr að kynlífi.  Þess verður langt að bíða að strippbúlla verði opnuð í Færeyjum eða verslun með hjálpartæki ástarlífs eða klámmyndbönd og klámblöð.   

  Ég held að mér hafi ekki dottið í hug að einhverjir Færeyingar væru að lesa bloggið mitt.  Þó að Íslendingum gangi vel að lesa færeysku þá eiga Færeyingar ekki auðvelt með að lesa íslensku (þeim gengur hinsvegar vel að skilja talaða íslensku).  Að vísu eru nokkrir Færeyingar búsettir á Íslandi.  En ég hafði ekki orðið var við þá í bloggheimi.

  Mig rámar í að einhver Færeyingur hafi hnippt í mig og sagt að það sé ekki gott að bendla sendiráðið við klámbúllu.  Ég mundi reyndar ekki eftir að hafa eytt færslunni en sú hefur þá verið ástæðan.    

Jens Guð, 3.2.2008 kl. 01:31

24 identicon

Á Snorrastöðum eggin féllu ekki,
óralangt frá landnámshænunni,
Gísla Martein allvel ég nú þekki,
á aulasvipnum á hengilmænunni.

Steini Briem (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 01:44

25 Smámynd: Jens Guð

  Steini,  enn og aftur varð mér á að skella upp úr.  Hehehe!

Jens Guð, 3.2.2008 kl. 01:52

26 identicon

Það er bráðfyndið að lesa þessa ofurviðkvæmni hjá Hirti hér að ofan í kommenti 24 hahahaha... auðvitað má snúa útúr þessu eins og hver og einn vill, óþarfi að fara að grenja Hjörtur þó að þú sért sár...dísus kræst

Bubbi J. (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 13:21

27 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Það vantar ekki húgmörinn hérna. Að segja að það sé rangt farið með hálsháttinn Sjaldan fellur eggið langt frá hænunni, er nú afar stropað. Ekki satt?

Jón Halldór Guðmundsson, 3.2.2008 kl. 16:22

28 identicon

'Eg fór beint í ættfræðina, sama hve ég leitaði fann ég aldrei þessa frænku sem heitir hæna hjá honum Gísla og og  og og hvenær féll svo þetta egg, féll það eitthvað, var það ekki bara ríkisstjórnin sem féll svei mér þá ég er alveg hætt að skilja þetta

knús og koss til þín Jens minn

Anna M (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband