Húrra! Nú ætti að vera ball!

  Við þennan frábæra útlistann Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á frjálshyggjuuppskrift Sjálfstæðis-FL-okksins sem nú hefur kollsteypt íslensku þjóðfélagi er engu við að bæta.  Nema kannski mútugreiðslunum frá FL-Group og Landsbankanum.  Eins og segir í gömlum slagara:  "Húrra,  nú ætti að vera ball!"  Takið eftir því að trúboðinn virkilega trúir því sem hann er að segja.

sjálfstæðis-FL-okkurinn

  Merki ránfuglsins er útfært að Guðsteini Hauki Barkarsyni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gaman að þér þegar þú virkar pólítískur,já þessi postuli Davíðs er aumkunarverður.

Númi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 23:50

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég meðhöndlaði þetta viðtal örlítið um daginn - sjá hér.

Lára Hanna Einarsdóttir, 16.4.2009 kl. 23:55

3 Smámynd: Jens Guð

  Númi,  ég er alltaf mjög pólitískur.  Ekki síst nú þegar flokkurinn minn,  Frjálslyndi flokkurinn,  á í vök að verjast.

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 00:11

4 Smámynd: Jens Guð

  Lára mín,  ég fylgist daglega með blogginu þínu og veit allt um það.  Bara bestu þakkir fyrir frábært blogg.

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 00:15

5 identicon

ÆÆ ,hlupum við ekki öll á okkur í góðærinu. Hannes karlinum er vorkunn þetta er 2007.Héldu allir að við værum dottnir í gullæð,gætum föndrað við excel skjöl með millijón á mánuði.Ég trúði þessu sjálfur.

hordur halldorsson (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 00:38

6 Smámynd: Jens Guð

  Hörður,  ég deili ekki með þér trú á hókus-pókus uppskrift frjálshyggjutrúboðanna. Ein af þeim ástæðum fyrir því að ég gekk í Frjálslynda flokkinn á sínum tíma var að framsalið á óveiddum fiski myndi búa til gervihagfræði,  uppsveiflu,  blöðru sem myndi leiða til þess efnahagshruns sem nú hefur orðið.  Ég játa samt að hafa ekki séð fyrir hvað hrunið hefur orðið stórt.   

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 01:05

7 identicon

„Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það. Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar.“

- Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra á heimasíðu sinni 5. ágúst 2008

deijó (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 07:55

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er alveg rosalegt að hlusta á.  Takk fyrir uppryfjunina Jens minn.  Ég segi sama með Láru Hönnu, legg til að hún fái fálkaorðu fyrir sína frammistöðu hér á blogginu undanfarna mánuði. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2009 kl. 09:06

9 identicon

Margir vilja meina að umræddur frjálshyggjuöfgamaður sé pólitískt hræ í dag.

Stefán (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 09:19

10 Smámynd: Sverrir Einarsson

Hannes Hólmsteinn hefur aldrei lifað í raunveruleikanum, bara eftir einhverjum "kenningum" úr "fræðibókum", lifandi á ríkisjötunni, sem "harðasti talsmaður einkaframtaksins. Hans eina "einkaframtak" var ritstuldur úr verkum Laxness og allir vita hvernig hann var dæmdur, þjóðfélagslega, pólitískt og ekki síst dómstólalega af þeim verkum "sínum". Hefði ég verið staðinn að álíka gjörningi í minni vinnu hefði ég verið rekinn umsvifalaust, en nei takk ríkið sér um sína.....ekki satt?

Þetta myndband ætti að vera lexía nr. 1 í kennslubókum háskóla spekúlanta um alla framtíð í ljósi afleiðinga.

Sverrir Einarsson, 17.4.2009 kl. 16:00

11 Smámynd: Jens Guð

  Deijó,  góður!

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 23:47

12 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur,  það er jafn nauðsynlegt að rifja reglulega upp frjálshyggjutrúboð Hannesar eins og að kíkja daglega á bloggið hennar Láru Hönnu.  Í útlendum blöðum hælir Hannes sér af því að vera höfundur "efnahagsundursins" sem nú hefur sprungið framan í andlit landsmanna og skuldsett næstu kynslóðir.

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 23:53

13 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  hann er ekki upp á marga fiska í dag.  Svo mikið er víst.  Kominn mörg ár framyfir síðasta söludag.

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 23:55

14 Smámynd: Jens Guð

  Sverrir,  það segir sitthvað um hvar íslenska menntakerfið er statt í dag að Hannes skuli vera ríkiskennari í Háskóla Íslands í stað þess að vera hafður þar til sýnis og eða til rannsóknar.

Jens Guð, 17.4.2009 kl. 23:58

15 identicon

Af hverju í andsk, fekk  frjálshyggjan ekki að njóta sín?

Ríkið selur bankana! ok samt stendur ríkið uppi með ábyrgðir!

 Þetta voru ekki bankar ríkisins .Á ríkið að taka ábyrgð á öllum fyrirtækjum í landinu ?

boli (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 17:08

16 Smámynd: Jens Guð

  Boli,  það er nákvæmlega svona sem frjálshyggjan virkar í raun þegar upp er staðið.  Og er algjörlega til samræmis við ríkisreknu frjálshyggjutrúboðana sem beita öllum bolabrögðum til að komast á ríkisspenann.

Jens Guð, 18.4.2009 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.