Samanburður á listum yfir bestu gítar"riff" rokksins

  Jimi Hendrix á afmæli í dag.  Það eru 67 ár síðan hann fæddist í Seattle í Bandaríkjum Norður-Ameríku,  síðar vöggu gruggsins (grunge).  27 ára gamall var hann myrtur.  Í tilefni dagsins er gaman að skoða úrslit í lesendakosningu breska músíkblaðsins Music Radar um bestu gítar "riff" rokksögunnar.  Music Radar er vinsælasta músíkblaðið í netheimi. 

  Fyrir nokkru birti ég lista breska rokkblaðsins Kerrang! yfir bestu gítar "riffin".  Um þann lista spratt mikil og áhugaverð umræða.  Það allt saman má finna ásamt tóndæmum á:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/973748/

  Að gefnu tilefni skal tekið fram að gítar "riff" er annað en gítarsóló.  Í rokkmúsík er algengast að "riff" sé síendurtekinn hljómagangur, sem myndar ráðandi stef í undirleik lagsins.  "Riffið" getur einnig verið síendurtekin gítarlykkja (eins og í  Sweet Child O´ Mine).

  Hér er listinn í Music Radar (innan sviga er staða sömu "riffa" á listanum í Kerrang!):

 

1.   Jimi Hendrix:  Voodoo Child (Slight Return)
Fékk 14% allra greiddra atkvæða 
.
2 (1) Guns N´ Roses:  Sweet Child O´ Mine
"Riffin" í þessum 2 efstu sætum höfðu sætaskipti frá síðustu kosningu fyrir 5 árum. 
.
3 (3) Led Zeppelin:  Whole Lotta Love
.
4.   Deep Purple:   Smoke on the Water
.
5.   Derek & The Dominos:  Layla
.
6 (5) AC/DC:  Back in Black
7 (9) Metallica:  Enter Sandman
.
8.   Bítlarnir:  Day Tripper
.
9 (4) Nirvana:  Smells Like Teen Spirit
.
10.   The Rolling Stones:  (I Can´t Get No) Satisfaction
.
11 (13) Black Sabbath:  Paranoid
12.   Muse:   Plug in Baby
13 (14) Van Halen:  Ain´t Talkin´ ´Bout Love
14 (11) Kinks:  You Really Got Me
15.   White Stripes:  Seven Nation Army
16.   AC/DC:  Highway to Hell
17.   Led Zeppelin:   Heartbreaker
18.   Black Sabbath:   Iron Man
19.   Led Zeppelin:   Black Dog
20.   Michael Jackson (Eddie Van Halen):  Beat It
21.   Bítlarnir:   Paperback Writer
22 (17)  Jimi Hendrix:  Purple Haze
23.   AC/DC:   Whole Lotta Rosie
24.   Chuck Berry:  Johnny B Goode
25.   Metallica:  Sad But True
26.   Led Zeppelin:  Rock And Roll
27.   Guns N´ Roses:  Welcome to the Jungle
28 (7) Rage Against the Machine:  Killing in the Name
29.   Ozzy Osbourne (Randy Rhoads):  Crazy Train 
30.   Pantera:  Walk
.
Til gamans er hér listinn úr Kerrang!  (innan sviga staðan á listanum í Music Radar):
.
1 (2) Guns ´N´ Roses:  Sweet Child O´ Mine
2.   Black Sabbath:  Black Sabbath
3 (3) Led Zeppelin:  Whole Lotta Love
4 (9) Nirvana:  Smells Like Teen Spirit
5 (6) AC/DC:  Back In Black
6.  Pantera:  Walk
7 (28) Rage Against the Machine:  Killing In The Name
8.  Ramones:  Blitzkrieg Bop
9 (7) Metallica:  Enter Sandman
10. Korn:  Blind
11 (14) The Kinks:   You Really Got Me
12.  Sex Pistols:  God Save the Queen
13 (11) Black Sabbath:  Paranoid
14 (13) Van Halen:  Ain´t Talkin´ 'Bout Love
15.  Bítlarnir:  Helter Skelter
16.  Slayer:  Raining Blood
17 (22) Jimi Hendrix:  Purple Haze
18.  Aerosmith:  Walk This Way
19.  Green Day:  Basket Case
20.  Pearl Jam:  Alive
21.  Machine Head:  Davidian
22.  Queen:  Bohemian Rhapsody
23.  The Clash:  White Riot
24.  Motörhead:  Ace of Spades
25 (39) The Stooges:  I Wanna be your Dog 
26.  Slipknot:  Surfacing
27.  Iron Maiden:  Hallowed be thy Name
28.  Led Zeppelin:  Communication Breakdown
29.  Black Flag:  Nervous Breakdown
30 (38) Megadeth:  Symphony of Destruction

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Minnir að John Mayall eigi afmæli í dag 29,nóv.

Númi (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 00:04

2 Smámynd: Jens Guð

  Það mun rétt vera að breski blúsarinn John Mayall eigi afmæli 29. nóv.  Til gamans má geta að þegar heimili hans brann til kaldra kola fyrir mörgum árum fuðraði upp mesta klámblaðasafn í eigu einstaklings.  Mig minnir að rúmlega eitt herbergi hafi verið lagt undir klámmyndablöðin hans.  Ég þori ekki að skjóta á hvað mörg þúsund eða tugir þúsunda eintaka af klámblöðum urðu þar eldi að bráð.

Jens Guð, 29.11.2009 kl. 03:19

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki staðfest að Hendrix hafi verið myrtur - heldur eru "samsæriskenningar" um það meðal aðdáenda hans, sem þykir ekki par fínt að hann hafi "kafnað" í eigin ælu en þar til að annað hefur verið staðfest eigum við nokkuð að fara út í sögufölsun?

Jóhann Elíasson, 29.11.2009 kl. 10:41

4 Smámynd: Jens Guð

  Jóhann,  þetta er rétt hjá þér.  Ég hef ekki sett mig mikið inn í vangaveltur um dauða Hendrix.  Fyrr á þessu ári (eða í fyrra?) var í fréttum að tiltekinn starfsmaður Hendrix hafi rétt fyrir sitt andlát gert játningu um að hafa myrt kappann.  Lýsing hans á atburðarrás þykir passa við krufningu.  Ég man fátt um það annað en áfengismagnið í maga Hendrix passaði illa við að ekkert alkahól var í lungum hans.  Þetta þykir benda til að Hendrix hafi þambað mikið magn áfengis (neyddur eða viljugur) á örstuttum tíma. 

Jens Guð, 29.11.2009 kl. 16:55

5 identicon

 crazy train finnst mér alltof neðarlega á þessum lista......

Res (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 11:41

6 Smámynd: Jens Guð

  Res,  það er þó á listanum hjá Music Radar (en ekki hjá Kerrang!).

Jens Guð, 30.11.2009 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.