Endurkoma Gildrunnar

  Hljómsveitir hætta aldrei.  Þessu heldur Óli Palli stundum fram á rás 2.  Og víst er að í sumum tilfellum er meiri ástæða til að halda hljómsveitum á lífi en setja punkt fyrir aftan feril þeirra.  Þó ekki sé nema til að húrra hljómsveitinni saman einu sinni enn í tilefni einhvers viðburðar.  Það þarf svo sem ekki endilega tilefnið.  Bara upp á fjörið að gera.

  Gildran í Mosfellsbæ á þrítugs afmæli í ár.  Þeim tímamótum er fagnað með endurkomu Gildrunnar.  Hljómsveitin heldur stórhljómleika í Hlégarði 1. maí.  Forsala aðgöngumiða er þegar hafin.  Nú kætast margir.    

  Gildran var til fjölda ára ein helsta rokkhljómsveit landsins.  Framan af var rokkið þokkalega hart.  Með árunum mýktist það.  Lögin urðu ljúfari og rafmagnsreikningurinn lækkaði.  En samt alltaf stutt í rokkgírinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

30 ár held ég að það sé.

Hamarinn, 24.4.2010 kl. 18:30

2 Smámynd: Jens Guð

  Hamarinn,  takk fyrir það.  Getur það verið?  Fyrsta platan kom út 1987.  Ja,  þetta er kannski tilfellið.

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 18:35

3 Smámynd: Hamarinn

Fyrsta platan kom löngu eftir að þeir byrjuðu að spila saman.

En hvar get ég keypt miða?

Hamarinn, 24.4.2010 kl. 18:57

4 Smámynd: Hamarinn

Jens

Farðu inn á bloggsíðu Karls Tómassonar, þar eru tvö ný lög.

Hamarinn, 24.4.2010 kl. 19:03

5 Smámynd: Jens Guð

 Hamarinn,  ég er búinn að lagfæra þetta með aldur hljómsveitarinnar í bloggfærslunni.  Á bloggsíðu Kalla sannreyndi ég að þetta var rétt hjá þér.  Þar kemur fram að forsala hafi verið í Hlégarði fyrir nokkrum dögum.  

  Líklegt þykir mér að áfram séu miðar seldir í Hlégarði.  Nema það sé þegar uppselt?

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 19:29

6 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Þarna var á ferð alvöru rokkband sem ég hafði dálæti á, gaman að þeir sjái sér færi að koma saman á ný

Guðmundur Júlíusson, 24.4.2010 kl. 19:38

7 identicon

Sendiherra Danmerkur í Noregi segir ad öskufrítt sé í 30,22 m haed, sem er nýtt haedarheimsmet í Legokubbabyggingu. 

http://www.aftenposten.no/nyheter/oslo/article3621710.ece

Gjagg (IP-tala skráð) 24.4.2010 kl. 21:27

8 Smámynd: Jens Guð

  Guðmundur,  Gildran hefur gert margt flott. 

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 21:33

9 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  takk fyrir þessar góðu fréttir.

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 21:37

10 Smámynd: TómasHa

Nú þekki ég ekki Gildruna svo vel en hvað hafa þeir annað merkilegt gert? Mér finnst þegar ég hlusta á þetta hljóma taktarnir hans Gulla Falk út um allt, hafa þeir slegið í gegn með einhverju öðru lagi?

TómasHa, 24.4.2010 kl. 23:05

11 Smámynd: Jens Guð

  Tómas,  Gildran hefur átt nokkur vinsæl lög.  Til að mynda þessi:

"Mærin": 

http://www.youtube.com/watch?v=eWg71heNVcM&feature=related

"Værðin":

http://www.youtube.com/watch?v=rjTWqTzVSts&feature=related

Og fína reggí-ballaðan "Andvökunætur"

http://www.youtube.com/watch?v=S12ZRtzMHEA&feature=related

   Ég ætla að þú kannist við þessi lög þegar þú heyrir þau.  Til viðbótar þeim átti Gildran vinsælt lag sem var sungið á spænsku.  Ég fann það ekki í fljótu bragði á Þútúpunni.  Þó ég setji hlekk á þessi lög hér þá er ég sjálfur meira fyrir harðari rokklögin með Gildrunni.  Hljómsveitin á til góða rokkspretti.  Þau lög eru hinsvegar lítið spiluð í útvarpi.

Þó Gulli Falk sé í Gildrunni á myndbandinni held ég að Sigurgeir Sigmundsson hafi yfirleitt séð um gítarleikinn þar á bæ.  

Jens Guð, 25.4.2010 kl. 21:42

12 identicon

Jens eigum við ekki að mæta og fila rockið i botn KV.  B START.

Brynjar Klemensson (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 06:07

13 Smámynd: Jens Guð

  Billi Start,  þetta er úrvals tilefni til að kýla á rokk!

Jens Guð, 27.4.2010 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband