Nú verður stuð! Það fer allt á annan endann!

Óp-hópurinn

  .Það verður ekkert smá fjör á morgun (Óðinsdag,  9. febrúar).  Og það í Salnum í Kópavogi.  Fjörið hefst ekki seinna en á slaginu klukkan 18.00.  Eða því sem næst.  Það er sjálfur Óp-hópurinn sem mun með leikrænum tilþrifum flytja atriði úr óperum eftir Bellini (Norma),  Bizet (Carmen)  Donizetti,  Gershwin (Porgy  og  Bess),  Mozart og Tchaikovsky (Spaðadrottningin).  Ýjað verður að búningum og sviðssetningu eins og kostur er.  . 

  .Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast öllum helstu stórsöngvurum framtíðarinnar á einu bretti.  Óp-hópurinn samanstendur af söngvurunum Braga Jónssyni,  Erlu Björgu Káradóttur,  Magnúsi Guðmundssyni,  Hörn Hrafnsdóttur, Rósalindi Gísladóttur,  Jóhönnu Héðinsdóttur og Bylgju Dís Gunnarsdóttur. 
   .Ég er ekki klár á því hvort Antonía Hevesí er skilgreind sem fullgild í Óp-hópnum eða hvort hún telst vera píanóleikari Óp-hópsins.  Ef seinna tilfellið er nær sanni getum við talað um tónleika Óp-hópsins við píanóundirleik Antoníu Hevesí.  Það hljómar vel í öllum skilningi.
  .Miðaverð er svo mjög stillt í hóf að það er næstum spaugilegt:  Litlar 1500 krónur.  Hægðarleikur er nálgast miða á www.salurinn.is eða í síma 5700 400.
  ..Eins og allir vita (eftir að hafa lesið þetta) hefur Óp-hópurinn á rösku ári haldið um 20 tónleika úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu.  Nú er röðin komin að Kópavogi,  bænum sem enginn ratar í eða út úr og hefur alið af sér Fræbbblana,  Ham,  Svart-hvítan draum,  BlazRoca,  Sesar A og Ríó tríó,  sem sumir hafa ranglega ruglað saman við Sex Pistols en ættu frekar að rugla saman við Sham 69.
    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband