Íslensk tónlist í Finnlandi

  Ég er svo afskaplega heppinn - eđa óheppinn - ađ hafa engan áhuga á búđarrápi.  Hvorki hérlendis né erlendis.  Ég lít ekki svo mikiđ sem í búđarglugga.  Einu verslanir sem ég fer í á utanlandsferđum eru matvörubúđir (til ađ kaupa nauđsynjavörur).  Ef ég dett um bókabúđ ţá skima ég lauslega eftir músík- og myndlistabókum.  Eftir ađ internetiđ kom til sögunnar ţykir mér hentugra ađ "tékka" á og kaupa bćkur á ţeim vettvangi.  Bćkur eru óţćgilega ţungar ađ dröslast međ á ferđalögum.

  Svo eru ţađ plötubúđir.  Í útlöndum leita ég ţćr uppi.  Ég fer vandlega yfir allt úrvaliđ í plötubúđunum.  Ađ vísu skokka ég léttilega framhjá rekkum sem merktir eru "Disco" eđa "R&B" eđa "Eazy Listening" og eitthvađ svoleiđis.  Ţeim mun betur skođa ég rokkiđ,  djass,  blús,  reggí,  folk,  classic,  hip-hop og svo framvegis. 

  Almennt eru plötubúđir ekki eins spennandi í dag og áđur.  Úrvaliđ er mun einsleitara.  Sjaldgćfar plötur,  plötur međ lítt ţekktum flytjendum og plötur úr jađargeiranum eru á hrađri útleiđ úr plötubúđum.  Sala á ţeim hefur fćrst yfir á internetiđ.  Eftir standa í búđunum plötur međ Bítlunum,  Rolling Stones,  Dylan,  The Clash,  Abba,  Madonnu og Bruce Springsteen.  Og öđrum álíka ţekktum.  Engu ađ síđur bćtast alltaf í utanlandsferđum 20 - 30 plötur í plötubunkann minn.  Plötur sem ég hef ekki fundiđ í íslenskum plötubúđum. 

  Eitt er alltaf jafn gaman:  Ţađ er ađ sjá hvađa íslenskar plötur leynast í plöturekkunum.  Reyndar er ţađ nokkuđ fyrirsjáanlegt.  Hvarvetna er hćgt ađ ganga ađ plötum Bjarkar,  Sigur Rósar,  Jónsa og Sykurmolanna.  En alltaf kemur eitthvađ á óvart.  Núna um jólin uppgötvađi ég ađ geisladiskurinn međ Svanfríđi,  What´s Hidden There?,  er til sölu í finnskum plötubúđum.      

   Svanfríđur var rokkuđ hippahljómsveit Péturs heitins Kristjánssonar.  Hún sendi frá sér ţessa einu plötu 1972.  Ég á ekki diskinn og veit ekki hver gaf hann út hérlendis.  Í finnskum plötubúđum er hann útgefinn af ţýsku plötufyrirtćki. 

  Ekki alveg eins óvćnt og ađ rekast á plötuna međ Svanfríđi í finnskum plötubúđum ţá er ţar einnig ađ finna plötur međ Sólstöfum.  Sú yndislega hljómsveit er ţokkalega vel kynnt í alţjóđlegu ţungarokksdeildinni.  Hefur spilađ á mörgum stórum rokkhátíđum víđa um heim og túrađ ţvers og kruss um Evrópu.  Finnar eru töluvert í ţungarokkinu.  Frćgastar eru ţćr sem eru svo sem ekkert svo mjög ţungar,  svo sem HIM (hafa náđ gullplötusölu í Bandaríkjunum og víđar),  Lordi (sigrađi í Júrivisjón) og Nightwish (selja yfir milljón eintök af stökum plötum).

  Til gamans má rifja upp ţegar ég skrapp til Póllands 2009.  Ţar komst ég ađ ţví ađ íslenska hljómsveitin frábćra I Adapt var í hávegum.  Plata međ henni stillt upp áberandi í öllum plötubúđum og heilmikiđ skrifađ um hana í ţarlendum músíkblöđum.  Ţađ var eins og I Adapt vćri eitt heitasta nafniđ í Póllandi. 

  Ég sá ađ útgefandinn var pólskt fyrirtćki.  Ţar stóđ hnífurinn í kúnni.  Ţegar ég sagđi strákunum í I Adapt frá ţessum var ţeim brugđiđ.  Ţarna var um sjórćningjaútgáfu ađ rćđa.  Síđast ţegar ég vissi voru málaferli í gangi.  Ţađ hvarflađi ekki ađ pólsku glćpamönnunum ađ fámennur hópur íslenskra ferđamanna í Póllandi tćki eftir ţví ađ ţar vćri veriđ ađ selja ólöglega útgáfu af plötu međ I Adapt.  Og sú var nćstum raunin.  Enginn annar hefur nefnt ţetta viđ strákana í I Adapt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sćll Jens og velkominn aftutr til bloggheima.

Snjallt hjá ţér ađ breyta til og sleppa ţví ađ ganga kringum jólatređ og leika í jólaleikritunum.

Fyrir nokkrum árum kom eg í hús hér í bćnum og ţar var sjónvarp í gangi og í sjonvarpinu var mynd um Bob Dylan.

Myndin var byrjuđ ţegar eg kom inn og eg reyndi ađ líma augun á hana eins og hćgt var ţví hún fannst mér vera meiriháttar merkileg.En ţegar mađur er í heimsókn ţá er

ţađ nú ekki góđur siđur ađ sitja međ hausinn inni í

sjónvarpstćkinu.

Ţannig ađ eg missti af nafninu á myndinni en hún var gerđ um feril Dylans og sýnir vel hvađ hann er algerlega flottur :)

Nú datt mér í hug hvort ţú mundir vita nokkur skil á hvađa mynd ţetta gćti hafa veriđ

Til ţess finnst mér ţú vera manna líklegastur.

Sólrún (IP-tala skráđ) 9.1.2012 kl. 20:53

2 Smámynd: Jens Guđ

  Sólrún,  ţú átt sennilega viđ myndina ágćtu og áhugaverđu  I´m Not There.  Ţetta er all merkileg og sérstök leikin mynd um Dylan.  Fjöldi leikara fara međ hlutverk Dylans í myndinni.  Ţar á međal kona,  blökkudrengur,  Richard Gere og fleiri.  Ég hef séđ myndina 5 sinnum og hún er skemmtilegri og skemmtilegri viđ hvert áhorf.  Ţađ endar sennilega međ ţví ađ ég kaupi hana á DVD til ađ horfa á hana ennţá oftar. 

Jens Guđ, 9.1.2012 kl. 21:20

3 Smámynd: Jens Guđ

  En svo eru til margar heimildarmyndir um kappann (ekki leiknar).  Ţá koma fleiri en ein og fleiri en tvćr til greina.  Sumar hafa veriđ sýndar í sjónvarpinu (RÚV).

Jens Guđ, 9.1.2012 kl. 21:24

4 identicon

Ţađ er nefnilega ţađ .Eg hef ekki getađ fundiđ ţetta efni á netinu vildirđu kannski súna mér hvar ţađ er ađ finna.

Eg vrla trúi ţví ađ nokkur geti leikiđ meistarann hann er svo algerlega engum líkur :)

Sólrún (IP-tala skráđ) 9.1.2012 kl. 22:08

5 identicon

Eg er nú búin ađ finna myndina.Ţ

ađ ţurfti bara ađnefna nafniđ ţitt Jens :)

http://www.youtube.com/watch?v=F2lWdUqHClo

Sólrún (IP-tala skráđ) 9.1.2012 kl. 22:55

6 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 10.1.2012 kl. 12:39

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband