Fćrsluflokkur: Ljóđ

Kíkiđ á plötudóm

hare_hare_tumb

  Í síđustu viku gaf íslenska plötufyrirtćkiđ Kimi Records út,  fyrir íslenskan markađ,  plötuna  Haré! Haré!  međ Högna Lisberg.   Haré! Haré!  er ţriđja sólóplata Högna.  Högni er ađ vanda höfundur söngvanna,  spilar á öll hljóđfćri og syngur.  Fyrir sólóferilinn var Högni trommuleikari fćreysku súpergrúppunnar  Clickhaze,  ţar sem Eivör var fremst međal jafningja.

  Magnús Geir Guđmundsson hefur skrifađ ítarlegan plötudóm um  Haré! Haré!.  Ég hvet ykkur til ađ lesa hann:  http://www.meistarinn.blog.is/blog/meistarinn/entry/870303/#comment2393963

  Platan međ Clickhaze og fyrri sólóplötur Högna fást í verslunum Pier í glerturninum viđ Smáratorg og Korputorgi.  Eflaust fást ţćr víđar.

Most-beautiful  Morning-dew


Tvífarar dagsins - bráđfyndiđ dćmi

tvífarar

  Ţetta fékk ég sent og sprakk úr hlátri.  Mér er ljúft ađ deila ţessu međ ykkur.  Ţau eru glettilega lík ţessi tvö ţegar vel er ađ gáđ:  Sama hár,  sömu augabrýr,  sama haka,  sömu kinnar,  líkt nef og svo framvegis.  Fyrir ţau ykkar sem vita ekki hver hún er,  konan á myndinni til hćgri,  ţá varđ hún heimsfrćg á dögunum er hún keppti í breskum sjónvarpsţćtti.  Ég er ekki klár á hvađa ţáttur ţetta var eđa hvort keppt var í söng eđa almennum hćfileikum.

  Konan ţótti svo ljót ađ áhorfendur og dómarar hlógu er hún birtist á sviđi.  Jafnframt sagđist konan vera jómfrú og hafa aldrei veriđ svo mikiđ sem kysst af karlmanni.  Síđan söng hún og heillađi dómara og áhorfendur.  Ég hef ekki heyrt söng hennar en hef heyrt tvennar sögur af honum. 


Saga breska pönksins VIII

 

  Hróđur bresku pönkbylgjunnar fór ađ berast til annarra landa er leiđ á áriđ 1977.  The Damned fór í hljómleikaferđ til Bandaríkjanna um miđjan apríl.  Var ţar međ fyrst breskra pönkhljómsveita til ađ spila utanlands.  Ţrátt fyrir ítrekađ frumkvöđlastarf á upphafsárum pönksins stóđ The Damned alltaf í skugga The Sex Pistols og The Clash hvađ varđađi vinsćldir og áhrif.

  Í lok apríl var The Clash ađalnúmer á hljómleikahátíđ í París,  Nuites de Punk.  Um svipađ leyti sendi The Jam frá sér jómfrúarlag sitt,   In the City.  Ţađ er á myndbandinu hér ađ ofan.  Viku síđar kom út samnefnd stór plata frá The Jam.  Lagiđ fór í 40.  sćti breska vinsćldalistans og platan í 20.  sćti. 

  Nokkrum dögum síđar fór The Clash í vel sótta og stórbrotna hljómleikaferđ um Bretland,  White Riot Tour.  Međ í för voru The Jam,  Buzzcocks,  The Slits og Subway Sect.  Hljómleikaferđin bar nafn međ rentu.  Strax á fyrstu hljómleikunum,  í The Rainbow Theatre í London,  varđ allt brjálađ.  Í hamagangnum voru 200 sćti eyđilögđ. 

  The Jam skar sig frá öđrum pönksveitum.  Bćđi tónlist og klćđaburđur drógu dám af mod-rokki (frćgasta mod-sveit sögunnar er The Who).  Eins og í tilfelli The Stranglers gaf ţađ pönkbyltingunni aukiđ vćgi og dýpt ađ ţessar hljómsveitir voru ekki alveg eins og The Sex Pistols og The Clash.

 

  Í júlí sendi The Jam frá sér smáskífuna  All around the World / Carnaby Street.  Hvorugt lagiđ var á stóru plötunni  In The City.  Smáskífan fór í 13.  sćti breska vinsćldalistans.  Ţar međ var The Jam komin í hóp ţeirra stćrstu í pönkinu ásamt The Sex Pistols,  The Clash og The Stranglers.  Mest áberandi fylgihnettir voru The Damned og Buzzcocks.  Pönkiđ var orđiđ stórveldi sem óx jafnt og ţétt.  Hér flytur The Jam  Carnaby Street.

-------


Önnur íslensk hljómsveit kynnt í pólsku rokktímariti

  Í nćstu fćrslu á undan ţessari sagđi ég frá íslenskri rokkplötu sem er í sviđsljósinu í Póllandi um ţessar mundir (sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/810899/ ).  Ţar međ er ekki öll sagan sögđ.  Í nýjasta hefti eins helsta rokkblađs Póllands,  Pasazer,  er ţriggja blađsíđna grein um íslensku hljómsveitina Purrk Pillnikk. 

  Ekki nóg međ ţađ.  Blađinu fylgja tvćr safnplötur.  Önnur inniheldur pólska rokkmúsík.  Hin inniheldur alţjóđlegar pönkađar rokkperlur frá hljómsveitum á borđ viđ hina stórkostlegu Anti-Flag,  Nuclear Death Terror,  Chuck Ragan og Purrk Pillnikk.  Lagiđ međ Purrknum er  Tíminn

  Greinin um Purrkinn er vel unnin.  Blađamađurinn virđist vera ţokkalega vel ađ sér um íslenska pönkiđ.  Fjallar um kvikmyndina  Rokk í Reykjavík,  vitnar til frumkvöđlastarfs Frćbbblanna og tengir Purrkinn viđ Kukliđ og Sykurmolana.  Ađ hluta er greinin byggđ á viđtali viđ Einar Örn,  söngvara Purrksins.  Greinin er skreytt fjölda ljósmynda.  Međal annars tveggja mynda úr Poppbókinni sem ég skrifađi 1983.  Ţađ ţykir mér merkilegt og bendir til ţess ađ blađamađurinn hafi gert sér ferđ til Íslands viđ vinnslu á greininni.


Íslenskir rokkarar vinsćlir í Póllandi

garaz#27pasazer

  Ţađ fer lítiđ fyrir ensku í Póllandi.  Lesefni er ađ uppistöđu til einungis á pólsku.  Sama hvort um er ađ rćđa matseđla,  merkingar á verslunum eđa annarsstađar,  dagblöđ eđa tímarit.  Vinsćl erlend tímarit eru ţýdd og gefin út á pólsku.  Ţetta á líka viđ um rokkblöđ.  Pólverjar gefa einnig sjálfir út sér pólsk rokkblöđ.  Í almennum bókabúđum má finna ađ minnsta kosti tug veglegra pólskra rokkblađa.

  Eitt mitt fyrsta verk,  nýkominn til Póllands,  var ađ kaupa tvö helstu pólsku rokktímaritin,  Garaz og Pasazer.  Ţeim fylgja safndiskar međ forvitnilegri pólskri rokkmúsík.

  Er ég fletti í gegnum blöđin kom í ljós ađ í báđum blöđunum er fjallađ rćkilega um plötuna  Chainlike Burden  međ íslensku rokksveitinni I Adapt.  Ţessi plata var ađ margra mati besta íslenska platan 2007.  Ţađ er ţess vegna ekki skrýtiđ ađ hún skjótist upp á yfirborđiđ í Póllandi núna - jafnvel ţó meira en ár sé síđan I Adapt snéri upp tánum. 

  Ţegar betur var ađ gáđ uppgötvađi ég ađ  Chainlike Burden  er sérútgefin í Póllandi af stóru ţarlendu plötufyrirtćki,  Spook Records.  Fyrirtćkiđ mun hafa sent plötuna frá sér fyrir jól en pólska rokkpressan "kveikti ekki á perunni" fyrr en núna í febrúar.

  Eftir ađ ég kom aftur til Íslands var ég fljótur ađ finna sömuleiđis á netinu sitthvađ um ţessa plötu á pólskum netsíđum.  Ađ sjálfsögđu fćst ţessi vinsćla íslenska plata í pólskum plötubúđum,  ásamt örfáum öđrum íslenskum plötum.  Ég mun skrifa fćrslu um ţađ.

  Eintökin af tímaritunum Garas og Pasazer burđađist ég međ mér til Íslands sem mikilvćg sönnunargögn um ađ hér er fariđ rétt međ.  Ţau mun ég afhenda Birki Fjalari,  söngvara I Adapt,  viđ hátíđlega athöfn ţegar hann kemur í hljómleikaferđ til Íslands međ kanadísku hljómsveitinni sinni,  Man Up. 

I Adapt 1

I Adapt "Chainlike Burden"

 

Iadapt_chainlike  10 najnowszych utworów załogi z Islandii. Pełen pasji hard core, z zaangażowanymi politycznie i chwytającymi za serce tekstami. Między Modern Life Is War czy nawet Tragedy. Niestety jest to prawdopodobnie ich pożegnalna płyta. (22 zł)

 

-------------------------------

I Adapt "Chainlike Burden"
I Adapt (Iceland)
  Kiedy przeglądałem ostatnio nowości płytowe w ofercie Pasażera, natrafiłem na islandzki zespół I Adapt z albumem "Chainlike Burden". Wydawcą jest polski label Spook Records, a jedno ze zdań reklamujących płytę doskonale oddaje pierwsze wrażenia: Pełen pasji hard core, z zaangażowanymi politycznie i chwytającymi za serce tekstami. Co ciekawe, jest to najprawdopodobniej pożegnalny krążek, ale zapewne w ramach pocieszenia, kapela udostępniła bezpłatnie swoje trzy pierwsze płyty w formacie mp3. I to właśnie ten materiał, a zwłaszcza album "Sparks Turn To Flames" (2003) zgłębiam od kilku dni. I faktycznie, I Adapt to wspaniały energetyczny hardcore, niezważający na gatunkowe podziały. W tekstach zaś, przesłanie społeczno-polityczne miesza się z osobistymi opowieściami o miłości czy przyjaźni.
Love. Compassion. Tolerance. These words we celebrate. ("Celebrate").
Gorąco polecam!
       ---------------------------
I Adapt - Chainlike Burden
Iadapt_chainlike
  Najnowsza produkcja I Adapt – “Chainlike Burden” - zmiażdżyła mnie po całości. Jest w niej bowiem coś, co zdołało mnie w pełni pochłonąć. Tym czymś są pasja i autentyzm bijące ze sztuk granych przez Islandczyków.

Jeśli ktoś pochodzi z tak małej wyspy i staje się popularny w danym gronie, to z pewnością stanowi to o jego, swego rodzaju, wyjątkowości. A I Adapt ma do zaoferowania naprawdę sporo. Grupa pokazuje ja umiejętnie łączyć starą szkołę hardcore z jego nowoczesnym obliczem. Wkłada też w swą twórczość maksimum zaangażowania i emocji, a wrażliwości muzycznej mogliby się od nich uczyć inni krzykacze. Każdy poruszony temat, polityczny czy społeczny, urozmaicają dźwiękami oddającymi jego charakter. Rzecz ta jest coraz rzadziej spotykana, bo podczas gdy większości zależy na agresywnym „naparzaniu” I Adapt potrafi zagrać wolno i refleksyjnie, bez cienia nudy i nieuzasadnionych kompleksów. Koniecznie sięgnijcie po „Chainlike Burden”, gdyż krążą plotki, że to ostatnie wspólne dzieło spółki Birkir – Addi – Ingi – Elli.

1. Future In You
2. Subject To Change
3. Historical Manipulation In A Nice Suit
4. No Courage In Hate
5. Sinking Ship
6. Same As It Ever Was
7. Close To Home
8. 03.03.05
9. Thought Time Would Forget
10. Snakes And Intentions

Önnur tilkynning frá Sigga Lee Lewis

siggileelewis1 

TILKYNNING FRÁ SIGGA LEE LEWIS 

07/02/09


  Ég undirritađur,  er lýsti mig í bindindi fyrr í vikunni,  sjá fyrri tilkynningu 05/02/09  (http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/796076/),   geri nú hinum sömu vinum mínum og kunningjum vitanlegt ađ ég,  sakir ýmsa nauđsynja-orsaka er hafa síđan fyrir mig komiđ,  er nú genginn úr bindindinu aftur.

Siggi Lee Lewis,  Hafnarfirđi


Ný og frábćr plata frá Sólstöfum

sólstafir-umslag

  Ég var ađ fá í hendur splunkunýja og helvíti magnađa plötu,  Köld, međ rokksveitinni Sólstöfum.  Platan er gefin út af finnsku fyrirtćki,  Spinefarm Records.  Ţađ er heimsţekkt innan ţungarokksdeildarinnar.  Á  Köld  eru 8 lög.  Ţau eru:

1.  78 Days In The Desert
2.  Köld
3.  Pale Rider
4.  She Destroys Again
5.  Necrologue
6.  World Void Of Souls
7.  Love Is The Devil (And I’m In Love)
8.  Goddess Of The Ages

  Ég mun gera betri grein fyrir plötunni ţegar ég hef hlustađ á hana í tćtlur.  Hér má sjá hvernig Sólstafir eru kynntir á heimasíđu Spinefarm Records,  http://www.spinefarm.fi/showband.php?id=162

  Ţađ er einnig upplagt ađ kíkja á www.myspace.com/solstafir

  Hér er myndband ţar sem Sólstafir flytja titillag plötunnar  Köld:


Fćreyingar gera ţađ gott

  Helsta poppmúsíkblađ Dana heitir Gaffa.  Ţađ er fríbađ sem liggur frammi í verslunum og víđar.  Um áramótin efndi blađiđ til skođanakönnunar á međal lesenda sinna í svokölluđu vinsćldavali.  Niđurstađan liggur fyrir og er sérlega ánćgjuleg fyrir brćđur okkar í Fćreyjum.  Lagiđ  Backstabber  međ fćreyska popp-pönktríóinu The Dreams var kosiđ 3ja besta lag liđins árs.  Hér er ţađ:

  The Dreams var jafnframt kosin 4đa besta hljómsveit ársins.  Plata tríósins,   Den Nye By,  var kosin 5ta besta platan.

  Í fyrravetur náđi The Dreams 2.  sćti í danskri hljómsveitakeppni.  Ţó tríóiđ hafi ekki náđ sigursćtinu stal ţađ senunni í ţessari keppni.  Danskir fjölmiđlar kepptust viđ ađ taka viđtöl viđ liđsmenn The Dreams.  Síđan hefur tríóiđ komiđ ţremur lögum í 1.  sćti boogie-vinsćldalista danska ríkisútvarpsins.  Sá árangur og niđurstađan í vinsćldavali Gaffa stađfesta ađ The Dreams eru súperstjörnur í Danmörku.

  The Dreams semja og syngja sín sönglög á dönsku.  Međ ţessum fína árangri.  Á sama tíma syngja danskar rokksveitir yfirleitt á ensku.  Flestar međ síđri árangri.

  Í vinsćldavali Gaffa var fćreyski vísnasöngvarinn Teitur kosinn 4đi besti söngvarinn.  Hann semur og syngur ýmist á fćreysku eđa ensku.  Hér flytur hann lagiđ   Louis Louis.

  Teitur er heimsfrćgasti Fćreyingurinn.  Myndbönd hans eru sýnd í MTV og öđrum músíksjónvarpsstöđvum um allan heim.  Lög hans eru notuđ í vinsćlum bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsţáttum.  Hann skemmtir á stórum tónlistarhátíđum og annađ í ţeim dúr. 

  Í haust valdi enski popparinn Sting lög á safnplötu til stuđnings Tíbetum.  Ţađ segir sitthvađ um stöđu Teits ađ Sting valdi lag međ honum á plötuna.  Ţar er Teitur í félagsskap fólks á borđ viđ Alanis Morissette,  Jackson Browne og Moby.

Songs_for_Tibet 

  Plötur međ Teiti fást í verslunum Pier á Íslandi (glerturninum viđ Smáratorg og í Korputorgi).  Ég mćli sérstaklega međ plötunni  Káta horniđ.

  Eivör sendi ekki frá sér plötu í fyrra.  Ţess vegna er hennar nafn ekki ađ finna í vinsćldavali Gaffa.  Á undanförnum árum hefur Eivör hinsvegar rakađ ađ sér verđlaunum og titlum í Danmörku,  rétt eins og á Íslandi.

  Eivör er á leiđ í hljómleikaferđ til Hawai ásamt eistneska djasssaxófónleikaranum og snillingnum Villi Veska.

eivor


Jack Bruce hraunar yfir Led Zeppelin

Cream

  Skoski söngvarinn,  bassaleikarinn og lagahöfundurinn Jack Bruce er ţekktur fyrir hroka,  kjafthátt og frekju.  Á árum áđur átti hann til ađ veitast ađ međspilurum sínum í hljómsveitum međ barsmíđum.  Hann hefur víst lagt af ţann siđ,  tćplega sjötugur.  Jack er ţekktastur fyrir ađ hafa leitt blús-rokktríóiđ Cream 1966 - ´68.  Međal annarra sem hann hefur spilađ međ eru Manfred Mann,  Frank Zappa,  Michael Mantlier,  Ringo Starr og John Mayall´s Bluesbreakers.  Bara svo fáir séu nefndir.

  Í nýjasta hefti breska rokkblađsins Classic Rock getur kallinn ekki leynt afbrýđi sinni út í Led Zeppelin:

  "Allir eru ađ tala um Led Zeppelin - og ţeir komu fram á einum fjandans hljómleikum.  Einum lélegum hljómleikum.  Á sama tíma túruđum viđ í Cream vikum saman og héldum hvarvetna góđa hljómleika.  Ekki lélega eins og Led Zeppelin,  sem ţurftu ađ lćkka sig um tónhćđ og hvađeina.  Viđ fluttum öll okkar lög í upphaflegri tónhćđ.    

  Fjandinn hirđi Led Zeppelin;  ţiđ eruđ drasl.  Ţiđ hafiđ alltaf veriđ drasl og ţiđ verđiđ aldrei neitt annađ.  Gallinn er sá ađ fólk gleypir viđ draslinu sem ţví er selt.  Cream var tíu sinnum betri hljómsveit en Led Zeppelin. 

  Ćtlar einhver ađ líkja vesalingnum Jimmy Page viđ Eric Clapton?  Svoleiđis samanburđur er út í hött.  Eric er góđur (gítarleikari) en Jimmy er lélegur.  Eini frambćrilegi náunginn,  eini gaurinn sem gat eitthvađ í Led Zeppelin er dauđur."

  Ljósmyndin hér ađ ofan er af Cream.  Jack Bruce er lengst til vinstri. Á myndbandinu hér fyrir neđan flytja Cream eitt sitt ţekktasta lag,  Sunshine of your Love.  Cream var frábćr hljómsveit og hafđi töluverđ áhrif á ţróun blúsrokksins yfir í ţungarokk.  Ţađ breytir engu um ađ Led Zeppelin var besta hljómsveit rokksögunnar.


Skúbb! Uppselt á Bubba

bubbi1

  Laugardaginn 31. janúar heldur Bubbi hljómleika í Norđurlandahúsinu í Ţórshöfn í Fćreyjum.  Norđurlandahúsiđ í Ţórshöfn er einstaklega glćsilegt - aldeilis frábćr arkítektúr -  og mun rúmbetra en Norrćna húsiđ í Reykjavík.  Stćrsti salurinn í Norđurlandahúsin í Ţórshöfn tekur um 200 manns í sćti.  Ţađ seldist upp á hljómleika Bubba "á no time".  Vegna eftirspurnar hefur öđrum hljómleikum međ Bubba veriđ bćtt viđ sunnudaginn 1.  febrúar. 

  Bubbi er stórt nafn í Fćreyjum.  Ţađ líđur vart sá dagur ađ lög međ Bubba séu ekki spiluđ í fćreyskum útvarpsstöđvum.  Sennilega er  Ţađ er gott ađ elska  mest spilađa lagiđ međ Bubba í Fćreyjum.   Talađ viđ gluggann  er einnig ţekkt lag međ Bubba í Fćreyjum.  Ţađ var "krákađ" (coverađ) á plötu,  Hinumegin ringveginn,   međ einu hćst skrifađa söngvaskáldi Fćreyja,  Kára P.,  1992.  Sú plata fćst í Pier í glerturninum viđ Smáratorg og á Korputorgi.  Margir ađrir Fćreyingar hafa krákađ lagiđ,  bćđi á plötum og ţó enn fremur á hljómleikum.  Ţetta er "klassískur" pöbbaslagari í Fćreyjum.  Ţađ er sérstök upplifum ađ vera á pöbbahljómleikum í Fćreyjum ţegar allir syngja  Talađ viđ gluggann.   

  1998 var ég međ mitt fyrsta skrautskriftarnámskeiđ í Fćreyjum og spurđi hvort nemendur kynnu eitthvert íslenskt lag.  Međ ţađ sama brast á kröftugur söngur 24 nemenda í  Talađ viđ gluggann.

  Á morgun,  laugardag,  klukkan 16:00 mun Bubbi frumflytja í Iđnó lag um fjöldamorđ nasistanna í Ísraelsher á Palestínumönnum,  konum og börnum á Gaza.

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband