Færsluflokkur: Ljóð

Takið þátt í skoðanakönnun um besta jólalagið

  Fyrir nokkru óskaði ég eftir tillögum um besta íslenska jólalagið.  Góður fjöldi tillagna barst.  En aðeins fjögur lög voru tilnefnd af fleiri en einum.  Þau lög hef ég nú sett upp í formlega skoðanakönnun hér til vinstri á síðunni.  Ykkur er velkomið að nefna til sögunnar fleiri íslensk jólalög.  Ef þau eru studd af fleirum bæti ég þeim þegar í stað í könnunina.

  Ég óskaði einnig eftir tillögum um leiðinlegasta íslenska jólalagið.  Eitt lag reyndist pirra flesta umfram önnur,  Jólahjól  með Sniglabandinu.  Niðurstaðan í því var svo afgerandi að önnur lög eiga ekki möguleika.  Það lag náði þó einnig inn í formlegu skoðanakönnunina um besta jólalagið.


Bestu plötur ársins 2008

  Fréttablaðið fékk nokkra tónlistarmenn og áhugafólk um tónlist til að velja bestu íslenskar plötur ársins 2008.  Útkoman er verulega áhugaverð.  Ekki síst vegna þess að nokkrar íslenskar plötur sem komu út á árinu eru jafnframt áberandi í áramótauppgjöri helstu tónlistarblaða heims.  Samkvæmt niðurstöðu Fréttablaðsins eru eftirfarandi plötur þær bestu sem komu út hérlendis 2008:

1.   Sigur Rós:  Með suð í eyrum við spilum endalaust

2.   FM Belfast:  How to make Friends

3.   Dr.  Spock:  Falcon Christ

4.   Lay Low:  Farewell Good Night´s Sleep

5.   Mammút:  Karkari

6.  Sin Fan Bous:  Clangour

7.  Emilíana Torríni:  Me and Amini

8.  Retro Stefson:  Montana

9. - 10.  Celstine:  At the Borders of Arcadia

9. - 10.  Reykjavík!:  The Blood 

11.  Bang Gang:  Ghosts from the Past

12. - 13.  Bragi Valdimar & Memfismafían:  Gilligill

12. - 13.  Jeff Who?:  Jeff Who?

14.  Morðingjarnir:  Áfram Ísland!

15. - 17.  Bob Justman:  Happiness and Woe

15. - 17.  Motion Boys:  Hang on

15. - 17.  The Viking Giant Show:  The Lost Garden of the Hooligans

  Gaman væri að hlera viðhorf ykkar til bestu platna ársins 2008.  Ég var einn af álitsgjöfum Fréttablaðsins og er afar sáttur við niðurstöðuna.  Hún er mjög svo til samræmis við mína skoðun á bestu plötunum.  Ég veit ekki alveg hvernig á að meta eða taka því að ég er lang elstur álitsgjafanna.  Kominn vel á sextugsaldur á meðan hinir álitsgjafarnir eru nýlegar fermdir krakkar.  En samt gaman að fá að vera með. 

  Ég kvitta glaður undir allar plöturnar í 10 efstu sætunum.  Ég ætlaði að hafa plötu Celestine á mínum lista.  En klúðraði því.  Ég hef grun um að platan hafi ekki verið í Plötutíðindum þannig að mér yfirsjást hún þegar á reyndi.  Þeim mun meira gaman er að hún skuli hafa náð inn á Topp 10.  Frábær hljómsveit og frábær plata.

  Plata Dr.  Spock var í 1.  sæti hjá mér og plata Sigur Rósar nr.  2.  Spockararnir eru yndislega hressilegir og pönkaðir rokkarar.  Ég er mikill Sigur Rósar aðdáandi en fyrir minn smekk poppaðist hljómsveitin um 1 gráðu með nýju plötunni.  Samt ekki um of.  Stórkostleg hljómsveit á heimsmælikvarða.  Og platan er hjá mér inni á Topp 5 lista yfir bestu plötur heims ársins 2008.

  Í DV í dag var birtur listi yfir bestu plöturnar 2008. Hann var skemmtilega samhljóða listanum í Fréttablaðinu.  Ég hlakka til að sjá lista Morgunblaðsins yfir bestu plöturnar.  Mér segir svo hugur að hann verði sömuleiðis til samræmis við lista Fréttablaðsins.


Öðruvísi útgáfa af Jólamanninum með Geir Ólafs

geir ólafs 

  Í tónspilaranum hér til vinstri á bloggsíðunni er að finna flutning Geirs Ólafs og mín á laginu  Jólamaðurinn kemur í kvöld  við undirleik stórsveitar Vilhjálms Guðjónssonar.  Lag sem Geir Ólafs söng með færeyskum texta nú fyrir jólin og færði Færeyingum að gjöf sem þakklætisvott fyrir að Færeyingar lánuðu Íslendingum 6 milljarða króna í erlendum gjaldeyri eftir að íslenska krónan ónýttist.

  Upptakan á laginu í tónspilaranum er úr beinni útsendingu síðasta laugardag í þætti Halldórs E.  og Markúsar Þórhallssonar,  Í vikulokin,  á Útvarpi Sögu.  Eins og heyra má kunni ég hvorki lag né texta.  Sem gamall pönkari lét ég slag standa þegar á mig var skorað.  Málið var að gera fremur en  þekkja verkefnið.  Þetta var óæft og falskt eftir því.  Mig munar aldrei neitt um að gera mig að fífli - við hvaða tækifæri sem er.  Enda þaulvanur slíku.  Geir var á hinn bóginn á heimavelli og syngur með stæl,  eins og alltaf.


Upphaf bresku pönkbylgjunnar VI

  Fátt er betra á jólum en smá pönk.  Í færslunni um fyrsta breska pönklagið kom fram að í Bandaríkjunum var til pönkhreyfing fyrir daga breska pönksins.  Þar var ekki um heiti á músíkstíl að ræða heldur samheiti yfir ólíkar hljómsveitir sem spiluðu á þáverandi djassklúbbi í New York,  CBGB´s.  Svo skemmtilega vildi til að ein þessara hljómsveita,  The Ramones,  smellpassaði inn í þann músíkstíl sem varð til í Bretlandi 1976 og hlaut heitið pönk.  Eftir það varð breska skilgreiningin á pönki ofan á í heimsbyggðinni.  Líka í Bandaríkjunum.   

  Það ruglaði margan góðan manninn,  ekki síst margan góðan pönkarann,  að framan af var í Bandaríkjunum pönkhreyfing sem náði yfir hljómsveitir sem gátu engan veginn fallið undir bresku skilgreininguna á pönki.  Sumir eiga jafnvel enn í dag erfitt með að skilja það dæmi.  Sú er ástæðan fyrir því að ég tíunda þetta núna aftur.  En einnig geri ég það vegna þess að The Ramones blandaðist svona vel inn í breska pönkið.  Fyrsta plata The Ramones,  samnefnd hljómsveitinni,  kom út sumarið 1976.  Sú plata og nokkrar smáskífur sem hljómsveitin sendi frá sér náðu á þeim tíma ekki að gera neinn skurk.  Í mars 1977 kom hinsvegar út plata með The Ramones,   Leave Home,  sem náði í 45.  sæti breska vinsældalistans.  Að vísu var vandræðagangur með þá plötu.  Eitt lagið,  Carbone Not Glue,  þótti hvetja til vímuefnaneyslu og var þá fjarlægt af plötunni.  Hér eru tvö lög af plötunni:  Babysitter  (efra myndbandið) og  California Sun.

Fyrri færslur um upphaf bresku pönkbylgjuna:

V:   http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/750862/

IV:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/747161

III:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/746033/

II:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/744949

Fyrsta breska pönklagið:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/743999/

  Bandaríska ljóðskáldið - og síðar Íslandsvinurinn - Patti Smith var oft kölluð pönkdrottningin.  Það var út frá upphaflegri skilgreiningu í Bandaríkjunum á pönki.  Músík Pattíar var strax í upphafi og alla tíð síðar frekar róleg músík.  Ljóð hennar og/eða textar voru óheflaðir - jafnvel kjaftforir - og nýstárlegir.  Þeir lönduðu strax hlutverki í bandarískum skólaljóðum og voru sungnir inn á plötu hjá hinum sérstæða róttæka últra-hægri sinnaða bandaríska þungarokkara Todd Rundgren og plötur bandarísku þungarokkssveitarinnar Blue Oyster Cult.  Samkvæmt þáverandi skilgreiningu bandarískra fjölmiðla féll sú hljómsveit einnig undir pönk.  Framan af flutti Patti ljóð sín við píanóundirleik Bobs Dylans en stofnaði svo Patti Smith Group með hljóðfæraleikurum sem einnig spiluðu í Blondie og Television. 

  Fyrsta plata Pattiar Smith,  Horses,  kom út 1975.  Hún náði 47.  sæti bandaríska vinsældalistans.  Síðar náði Patti 5.  sæti breska vinsældalistans með laginu  Because the Night.  Það fór í 13.  sæti bandaríska vinsældalistans.  Þetta lag samdi hún með Bruce Springsteen.  Hún kom fleiri plötum inn á Topp 20 vinsældalista Bandaríkjanna og Bretlands. 

  Í mars 1976 sendi Patti frá sér smáskífuna  Gloria/My Generation.  Hér flytur hún síðarnefnda lagið.  Það örlar á Gyllinæðar-stemmningu.  Nema að engin kveikti í sér og fáum hljóðfærum var slátrað:


Þetta eru jólabækurnar sem ég mæli með

  Fátt er skemmtilegra og meira við hæfi um jól en næra andann með lestri ljúfra bóka.  Ég er þegar búinn að lesa nokkrar bækur nú á litlu jólunum.  Mér er ljúft og skylt að miðla af minni reynslu.  Með gleði í hjarta get ég mælt með eftirfarandi bókum sem áhugaverðum og ánægjulegum.  Tekið skal fram að myndastærðin af kápum bókanna hefur ekkert með annað að gera en í hvaða stærð ég á þær tiltækar.

gullastokkur stor

  Í  Gullstokkur gamlingjans  rekur Vilhjálmur Hjálmarsson hugljúfar og margar skondnar æskuminningar úr Mjóafirði.  Sjá nánar:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/713864/

sá einhverfi og við hin

  Sá einhverfi og við hin  eftir Jónu Á.  Gísladóttur er safn notalegra frásagna af einhverfum syni hennar.  Sjá: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/736914

 

töfrumlíkast

  Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns  er skráð af Gunnari Kr.  Sigurjónssyni.  Baldur var og er fremsti töframaður Íslands.  Sjá:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/732693

hordurtorfa-tabu

  Tabú - Ævisaga Harðar Torfa  segir frá mannréttindafrömuðinum,  baráttumanninum,  tónlistarmanninum,  leikaranum og leikstjóranum sem breytti og er enn að breyta gangi sögunnar.  Skrásetjari er Ævar Örn Jósepsson.  Sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/729597/

annaáhesteyri - bókarkápa

  Ég hef nú sjaldan verið algild - Ævisaga Önnu á Hesteyri  er skemmtilegasta bók sem ég hef lesið til margra ára.  Sjá:  http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/751586

clapton

  Eric Clapton - Sjálfsævisaga  á ekki mikið erindi til annarra en músíkdellufólks og aðdáenda Erics Claptons.  En þeir fá hér fyllri mynd af gítarsnillingnum sem er óvenju mikið þjakaður af allskonar "komplexum" og sálarflækjum.

 


Skemmtilegar hugleiðingar

  Þetta fékk ég sent og kann engin frekari deili á upprunanum.  Höfundur er sagður vera Kalli.  Þess vegna læðist að mér grunur um að hann heiti Karl.  Þar með eru vísbendingar upptaldar.  Ég dreg í efa að höfundurinn sé Karl Sigurbjörnsson biskup.  Þó má það vera.  En fyrsta kvæðið hljómar best sé það raulað við lagið úr Kardimommubænum,  Við læðumst létt...

Við býsna mikið berumst á,
til Bretlands erum farnir.
Í Danmörku flest keyptum, já
við útrásarvíkingarnir.
Við kaupum og seljum út um allt
og græðum meira en hundraðfalt.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

Við kaupum það sem finnum falt
í flestum skúmaskotum.
Og fljúgum síðan út um allt
á nýjum einkaþotum.
Og enginn spyr okkur ekkert um,
með alla pressuna í vasanum.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

BANKAMENNIRNIR
Við digrum samning erum á,
svo endalaust við græðum.
Í sjóði landsins nú skal ná
með nýjum hagnaðarfræðum.
Og til að halda okkur gangandi
við ruplum suður á Bretlandi.
Já, það er nú meira, hvað karlinn er klár,
já við Sigurjón, Welding og Heiðar Már.

Við veiðum stundum lax með lús
og leigjum þyrlur allir.
Við byggjum okkur lúxushús
og ljúfar sumarhallir.
Og ökum um á Roverum
og partý með útlendum söngvurum.
Já við erum alls engin meðalgrein flón,
já við Heiðar Már, Welding og Sigurjón.

ÞJÓÐIN (lag: dvel ég í draumahöll úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Dvel ég í draumaheim
og dýrka víkingana.
Sólarferðir, borga-geim...
og skíðaferðir plana.
Flatskjár, raðhús, freyðivín,
fellihýsi og sleði.
Svona líður ævi mín
í kaupæði og gleði.

DABBI (lag: Rebbavísur úr Dýrunum í Hálsaskógi)
Hér mætir Dabbi, sjá
með alvæpni ó-já.
Með stýrivexti og verðbólgu
og vaxtahækkun, vá.
Í Svörtuloftum er
og stjórna öllu hér.
Hið litla, montna Glitnis-grey
nú mætti gá að sér.
Ég kalla: "Gagg með kló í Baugsins-skinni,
þá kveð ég, þér ég næ að þessu sinni.
Þó að það kosti kannski hér
að við steytum upp á sker,
þá tek ég bara allt heila klabbið
í hafdjúpið með mér – HA HA HA HA"

JÓHANNA (Kardimommubærinn, lagið hennar Soffíu frænku)
Ja fussum svei, ja fussum svei.
Mig furðar þetta rót.
Í hverju skoti skúm og ryk
og skran og rusl og dót.
Og skuldasúpa út um allt,
en eignir engar finn.
Víkingarnir flugu út
og hirtu afganginn.

Já ástandið er ansi svart,
já allt sem moldarflag.
Og kraftaverk nú þyrfti til
að koma öllu í lag.
Ég hækka bætur, hirði upp drasl
og hreinsa skítinn hér.
Já, núna loksins kom að því.
Minn tími kominn er.

ÚTRÁSARVÍKINGAR OG BANKAMENN (Hvar er húfan mín úr Kardimommubænum)
Hvar er bankinn minn?
Hvar er kaupaukinn?
Hvar er stóri feiti kaupréttarsamningurinn?
Hvar er flugrisinn?
Og hvar er Baugurinn?
Sérðu markað fyrir hlutabréfaviðskiptin?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu gjaldeyri?
Sérðu markaði?
Eða síbrosandi stóráhættufjárfesti?
Sérðu þotuna?
Eða jeppana?
Sérðu fylgispöku faguryrtu þjóðina?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu Illuga?
stuttbuxnastrákana?
Hvar er Bjarni Ben og menntamálaráðherra?
Hvar er Guðni minn?
og öll Samfylkingin?
Hvar er Björgvin, hvar er Solla, hver er forsetinn?
Ég er viss um að þau voru með í gær.
Já, ég er viss um að þau voru með í gær.



Höfundur: Kalli.


mbl.is Fyrrum bankastjórar koma ekki að rekstri Nýja Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Missið ekki af frábærum útvarpsþætti á morgun (laugardag)

anna á hesteyri

  Einn alskemmtilegasti þáttur í íslensku útvarpi er síðdegisþáttur Markúsar Þórhallssonar og Halldórs Einarssonar á Útvarpi Sögu á laugardögum,   Í vikulokin.  Þátturinn hefst klukkan 13:00.  Klukkan 14:00 dregur til tíðinda.  Þá verður fjallað um þjóðsagnapersónuna frábæru og náttúrubarnið Önnu á Hesteyri.  Það eru yfirgnæfandi líkur á að gamli maðurinn sem hér bloggar mæti til leiks og taki þátt í umfjöllun um þessa stórkostlegu frænku.  Pabbi Önnu og afi minn voru bræður.  Anna er ævintýri og umfjöllun um hana getur ekki orðið annað en ævintýralega skemmtileg.

  Fyrir þá sem eru utan útsendingarsvæðis Útvarps Sögu er um að gera að hlusta á netinu www.utvarpsaga.is


Jólabækurnar í ár

annaáhesteyri - bókarkápasá einhverfi og við hinhordurtorfa-tabugullastokkur stortöfrumlíkastec-sjálfsævisaga

  Jólabækurnar eru farnar að streyma í hús sem aldrei fyrr.  Einhverra hluta vegna eru allar nýju bækurnar sem ég les þessa dagana frásagnir af daglegu lífi fólks eða ævisögur af einhverju tagi.  Það er hið besta mál.  Þetta eru eftirfarandi bækur:

Ég hef nú sjaldan verið algild - Ævisaga Önnu á Hesteyri.  Skráð af Rannveigu Þórhallsdóttur.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/712385/

Sá einhverfi og við hin.  Skráð af Jónu Á.  Gísladóttur,  www.jonaa.blog.is.

Tabú - Ævisaga Harðar Torfa.  Skráð af Ævari Erni Jósepssyni.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/729597/

Gullstokkur gamlingjans.  Æskuminningar Vilhjálms Hjálmarssonar á Brekku.  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/713864/

Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns.  Skráð af Gunnari Kr.  Sigurjónssyni.

Eric Clapton - Sjálfsævisaga

  Þessum bókum mun ég öllum gera ítarleg skil á næstu dögum.  Ég er aðeins kominn með eina splunkunýja plötu í hús.  Það er  Spegill sálarinnar  með  Herberti Guðmundssyni.  Ég er að hlusta á hana á fullu og skrifa fljótlega umsögn.

spegill sálarinnar


Bókarumsögn

hordurtorfa-tabu

Titill:  Tabú - ævisaga Harðar Torfa

Skrásetjari:  Ævar Örn Jósepsson

Útgefandi:  Tindur bókaútgáfa

Einkunn:  **** (af 5)

  1975 var Hörður Torfa einn virtasti og vinsælasti skemmtikraftur landsins.  Lög hans hljómuðu daglangt í útvarpi,  hann var eftirsóttur leikari og fyrirsæta,  lék á sviði og í sjónvarpinu og leikstýrði leikhúsum þvers og kruss um landið.  Þá fór allt skyndilega á hvolf.  Hörður lýsti því yfir í blaðaviðtali að hann væri hommi.  Þetta var sprengja.  Fólk varð agndofa.  Samkynhneigð var eitthvað er ekki var talað um opinberlega.  Það voru óskrifuð lög að samkynhneigð ætti að vera í felum.

  Karlmenn sem voru óöruggir um kynhneigð sína tóku upp á því að ofsækja Hörð.  Ofsóknirnar gengu það langt að Hörður flýði land.

  Í útlegð kynnti hann sér réttindabaráttu samkynhneigðra erlendis,  snéri aftur til Íslands og stofnaði Samtökin 78.  Hörður sættir sig ekki við ranglæti.  Víða í bókinni bregður fyrir orðinu óréttlæti og lýsingu á því að Herði hafi sárnað og hann reiðst.  Eftir lestur bókarinnar er rökrétt og eðlilegt að sjá Hörð standa fyrir vikulegum mótmælafundi á Austurvelli eða berjast fyrir endurupptöku á brottvísunarmáli Pauls Ramses.  Á þessi mál er ekki minnst í bókinni.  En þar sem rétti er hallað má reikna með að Hörður láti til sín taka.

  Í bókinni leiðir Hörður lesandann inn í skrautlegan heim homma á Íslandi fyrir daga Samtakanna 78.  Við þann lestur rekur maður upp stór og útstæð augu að hætti Ástþórs Magnússonar.  Þetta hefur verið hið litríkasta samfélag.  Af bókinni má skiljast að þetta sé veröld sem var.  Enda fáir að velta fyrir sér kynhneigð fólks í dag.   

  Það er dapurlegt að lesa um það mótlæti sem Hörður hefur þurft að takast á við og náði hámarki eftir blaðaviðtalið.  Án þess að draga neitt undan er Hörður þó ekki að velta sér um of upp úr erfiðleikunum.  Hann horfir líka á broslegu hliðarnar.  Við lesturinn hefur lesandinn ekki fyrr dæst yfir óréttlæti heimsins en hann skellir upp úr við atvik eins og þegar Herði var sýnt morðtilræði.  Blóðið fossaði úr skurði niður eftir bringunni en Hörður hugsaði bara um ósvífni mannsins að skemma skyrtuna.  Nýja og dýra skyrtu.  Eða þegar Hörður fór í margra daga eins manns verkfall á fjölmennum vinnustað.  Eða er Hörður flýði á harðahlaupum frá stúlku sem vildi trúlofast honum.  Eða þegar Reynir Oddsson kvikmyndagerðamaður fékk alltaf í bakið ef verklegar framkvæmdir stóðu fyrir dyrum.  Eða er Hörður var vaktaður af lögreglunni og færði lögreglumönnunum liti og litablokk til að létta þeim tilveruna.  Þannig mætti áfram telja.

  Bókin er lipurlega skrifuð.  Það er vel til fundið að enda hvern kafla á kvæði við hæfi.  Það undirstrikar að bókin fjallar um ljóðskáld.  

  Bókin á erindi til allra og ætti að vera notuð við kennslu í skólum.  Þessa bók á líka að þýða og gefa út erlendis.  Til að mynda í Færeyjum. 

  Saga Harðar segir mikið um íslenskt samfélag.  Sem músíkdellukarl hef ég sérstaklega gaman af að lesa um tónlistarmanninn Hörð Torfa.  Þar koma fram ýmsir fróðleiksmolar á borð við þann að fyrsta plata Harðar var fyrsta platan sem var hljóðrituð í steríó á Íslandi.  Áhugasamir um leiklist finna sömuleiðis margan forvitnilegan fróðleikinn fyrir sig í bókinni.    

  Þegar ég fór á kynningu á bókinni í Iðnó fékk ég símtal frá útlöndum sem ég varð að afgreiða.  Til að trufla samkomuna ekki færði ég mig út í bíl.  Að símtalinu loknu hélt ég áfram að glugga í bókina.  Og gleymdi mér við lesturinn.  Las bókina til enda.  Hrökk þá upp við að mér var orðið hrollkalt í bílnum.  Kynningardagskráin í Iðnó var áreiðanlega löngu um garð gengin.  Þannig að ég keyrði bara heim og hóf að lesa bókina í annað sinn.  Þetta segir sitthvað um hversu áhugaverð lesning bókin er.

  Þegar ég hef verið að glugga frekar í bókina sakna ég nafnskrár aftast í henni.  Það er svo þægilegt að finna aftur með aðstoð nafnskrár eitthvað sem gaman er að lesa betur.  Einnig sakna ég þess að í bókinni sé ekki heildarlisti yfir plötur Harðar með tilheyrandi upplýsingum (upptalningu á lögum,  útgáfuár og þess háttar).  Á tölvuöld er svo sem hægt að finna eitthvað af þessum upplýsingum á www.hordurtorfa.com.   


Til hamingju Ísland!

son of a point 
Hey þú, ógeðslega töff, ég er að tala við þig.
Ég er Son of a Point shining in the light.
Ég veit þú þráir mig.
Born in Selfoss, gemmér nú einn koss, farðu ekki í kross.
Ég veit ég vinn fokkings Baugsfeðga,  allir hinir hafa tapað.
.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.
.
Mín mynt, ógeðslega töff, ekkert evru ógeð.
Hún er töff, ókey, hún er ekki gay.
Ég er kominn hér to stay!
Evrusinnarnir eru bólugrafnir en ég er ókey.
.
Þið elskið mig, þið dýrkið mig, sætt, en samt eitthvað svo glatað.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.
.
Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland.
.
Halló!  Er þetta Ísland?
Ógeðslega mikið til hamingju með að ég er búinn að ná Kaupþingi niður,
skilurðu...?
Sjáumst!
.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.

mbl.is Efast um að Davíð eigi við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »