Fćrsluflokkur: Ljóđ
20.9.2009 | 20:37
Sami flytjandi á 14 af 17 söluhćstu plötum heims í síđustu viku
Ţađ er sjaldgćft ađ sami flytjandi eigi í sömu viku 2 af 20 söluhćstu plötum heims. Ţađ hefur ţó gerst örfáu sinnum. Ég minnist ţess ekki ađ sami flytjandi hafi átt 3 af 20 söluhćstu plötum heims samtímis. Ţó má vera ađ ţađ hafi gerst í kjölfar dauđa Mikjáls Jacksonar. Hitt er alveg víst ađ aldrei áđur hefur sami flytjandi átt 14 af 17 söluhćstu plötum heims samtímis. Hljómsveitin sem afrekađi ţetta í vikunni 10. - 16. september 2009 spilađi síđast saman fyrir fjórum áratugum. Á stuttum ferli sló hún ótal sölumet. Mörg standa enn. Til ađ mynda ađ í júní 1964 átti hún 6 vinsćlustu lögin í Bandaríkjunum. Auk ţess fleiri lög neđar á bandaríska vinsćldalistanum. Ţetta ár, 1964, átti hljómsveitin 60% af heildarsölu platna í Bandaríkjunum.
Bítlaplötur hafa selst í 1,2 milljarđi eintaka. Ţađ er fyrir utan sólóplötur liđsmanna Bítla. Ţćr hafa flestar selst í góđu upplagi. Nćst söluhćsti flytjandinn, Presley (nei, ég er ekki ađ meina söngvarann í The Troggs heldur hinn), hefur selt tćpan milljarđ platna. Plötuferill hans spannađi röska tvo áratugi en plötuferill Bítlanna 7 ár. Ţriđji söluhćsti flytjandinn, Abba, hefur selt um 500 milljónir platna. Ég vil sem fćst vita um ţá drepleiđinlegu hljómsveit.
Ástćđan fyrir mikilli sölu á plötum Bítlanna í dag er talin vera sú ađ ţćr voru nýveriđ gefnar út í hreinna "sándi" en áđur. Um svipađ leyti var settur á markađ einhver Bítlatölvuleikur. Viđ ţađ er eins og Bítlaćđi hafi skolliđ á heimsbyggđina.
Ţetta voru söluhćstu plötur liđinnar viku (innan sviga er fjöldi seldra eintaka):
1. Jay-Z: Blueprint 3 (489.000)
2. Bítlarnir: Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band (258.000)
3. Bítlarnir: Abbey Road (243.000)
4. Bítlarnir: Hvíta albúmiđ (230.000)
5. Bítlarnir: Rubber Soul (228.000)
6. Bítlarnir: Revolver (216.000)
7. Bítlarnir: Help! (196.000)
8. Bítlarnir: Magical Mystery Tour (184.001)
9. Bítlarnir: A Hard Day´s Night (184.000)
10. Bítlarnir: Please, Please Me (178.000)
11. Bítlarnir: With The Beatles (172.000)
12. Bítlarnir: Beatles For Sale (170.000)
13. Bítlarnir: Let It Be (154.000)
14. Bítlarnir: Past Masters (153.000)
15. Whitney Houston: I Look To You (140.000)
16. Mai Kuraki: All My Best (137.000)
17. Bítlarnir: Yellow Submarine (121.000)
Til gamans má geta ađ fyrra lagiđ er frá 1963 en seinna frá 1969. Fyrra lagiđ var lokalag á hljómleikum Bítlanna ţví ţađ slátrađi alltaf raddböndum Johns Lennons.
Seinna lagiđ var hugsanlega níđsöngur Pauls um Yoko Ono, kćrustu Johns. Paul hefur ţó alltaf ţrćtt fyrir ţađ. Fullyrđir ađ ţađ hafi aldrei hvarflađ ađ sér ađ ráđast ađ henni alveg burt séđ frá ţví ađ hann hafi ekki veriđ sáttur viđ hvernig hún kom inn í feril Bítlanna. Ţađ er ţó ekki alveg hćgt - međ vilja - ađ útiloka kenninguna ţví Paul er diplómat: Gefur oftar í skyn fremur en segja hlutina beint út.
Athygli vekur ađ rythmagítarleikarinn John er ţarna sólógítarleikari. Sólógítarleikari Bítlanna, George Harrison, var í fýlu út í Paul og sagđist ekki nenna ađ taka viđ fyrrskipunum hans um sólógítar í laginu. Paul böggađist aldrei í John, öfugt viđ út í Ringo og George. Ringó er flottur í laginu.
Ljóđ | Breytt 21.9.2009 kl. 02:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (25)
17.9.2009 | 22:09
Hver er besta plata Megasar?
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (50)
13.9.2009 | 20:48
Heiđra minningu Helga Hóseasonar međ sönglagi
Simmi og Jói kallast tvíeyki sem ţekktast er fyrir ađ vera kynnar í sjónvarpsţáttunum Ćdol á Stöđ 2. Ţeir halda úti bloggsíđu og - ađ ég held - útvarpsţćtti. Ég er ekki klár á hvađa útvarpsstöđ. Hef ţó grun um ađ ţađ sé á Bylgjunni. Nú hafa ţessir drengir hljóđritađ sönglag til ađ heiđra minningu Helga Hóseasonar. Lagiđ má heyra á: http://blogg.visir.is/simmiogjoi/2009/09/12/vi%c3%b0-hei%c3%b0rum-minningu-helga-hoseassonar-me%c3%b0-lagi-mp3/#comments. Ţegar smellt er á rauđlitađ nafn Helga hefst spilun á laginu.
Ţetta er ljómandi gott hjá drengjunum og fallegt uppátćki. Áreiđanlega eiga ţeir eftir ađ setja lagiđ einshversstađar á netiđ ţar sem hćgt verđur ađ hala ţví niđur.
Til gamans má rifja upp ađ rokksveitin Atomstöđin gaf fyrir nokkru út plötu sem var tileinkuđ Helga Hóseasyni. Helgi tók ţví vel en ţótti músíkin viđbjóđur (sennilega notađi hann annađ orđ). Enda lítiđ fyrir rokkiđ.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
9.9.2009 | 21:52
Hvađ er ţetta međ Bítlana?
Breska hljómsveitin Bítlarnir er áberandi um ţessar mundir. Svo mjög ađ kalla má Bítlaćđi. Ég var ađ glugga í útlend músíkblöđ í dag. Ţau skarta forsíđumyndum af Bítlunum og innsíđur eru undirlagđar umfjöllun um Bítlana. Í kvöld voru hérlendis haldnir hljómleikar ţar sem íslenskir popparar fluttu Bítlalög og lög af sólóplötum forsprakka Bítlanna, Johns Lennons. Ţegar ég tala um John sem forsprakka Bítlanna er ég ađ vísa til ţess ađ hljómsveitin var afsprengi hljómsveitarinnar Quarrymen sem hann fór fyrir. Hćgt og bítandi bćttust ţeir viđ sem síđar urđu ţekktasta útgáfan af Bítlunum: Bassaleikarinn Paul McCartney, gítarleikarinn George Harrison og trommarinn Ringo Starr.
Framan af var John fyrirliđi hljómsveitarinnar. Áđur en yfir lauk og eftir ţví sem eiturlyfjaneysla Johns jókst fćrđist hljómsveitarstjórn ađ verulegu leyti yfir á hendur Pauls. George sagđi eftir ađ Bítlarnir hćttu ađ ţeir Ringo hafi alltaf litiđ á John sem leiđtoga hljómsveitarinnar ţótt ţeir hafi sćtt sig ađ mestu - og međ ólund - viđ stjórnsemi Pauls. Báđir hćttu á sitthvorum tíma um hríđ í Bítlunum vegna stjórnsemi Pauls. Ţeir tilkynntu John um brotthvarf sitt en ekki Paul. En látum ţađ liggja milli hluta. John og Paul voru turnarnir tveir í Bítlunum. Í mínum huga voru ţeir tvíeykiđ Lennon-McCartney og ég geri ekki upp á milli ţeirra. Ţannig lagađ.
Ég keypti áđan nýjasta hefti breska poppblađsins Mojo. Ţví fylgir diskur sem inniheldur öll lögin af síđustu plötu Bítlanna, Abbey Road, krákuđ (cover) af Cornershop, Robyn Hitchcock, Gomez og fleiri. Blađiđ hefur áđur gefiđ út fylgidiska međ krákum af öđrum Bítlaplötum. Ţađ er ekki erfitt fyrir Mojo ađ smala saman lögum á ţessa diska. Hvert einasta Bítlalag hefur veriđ krákađ af ţekktum poppurum. Sum lögin af allt ađ 2000 flytjendum sem tilheyra ólíkum músíkdeildum: Djassi, kammersveitum, pönki, kórum, progi, kántrýi, ţungarokki, tölvupoppi og svo framvegis.
Oft heyri ég Bítlunum hallmćlt og ţeir taldir ofmetin hljómsveit. Oftast vegna ţess ađ ţeir sem halda ţessu fram telja Bítlana hafa veriđ léttvćgt poppfrođuband. Vissulega er yfirdrifiđ nóg af léttpoppi á plötum Bítlanna. Bunki af lögum sem mér ţykja leiđinleg. Á móti vegur ađ á plötum Bítlanna er einnig ađ finna sprćk rokklög, sýru, furđulega framúrstefnu, ţungan blús, djass, heimspopp (world music) og allskonar öđruvísi lög. Ég hef mörgum sinnum sett saman (brennt) diska međ Bítlalögum sem komiđ hafa formćlendum Bítlanna í opna skjöldu. Í öllum tilfellum međ ţeim árangri ađ viđkomandi hefur orđiđ ađdáandi Bítlanna.
Ţađ merkilega viđ vinsćldir Bítlanna er ađ hljómsveitin starfađi stutt. Fyrsta platan, Please Please Me, kom út 1963. Síđasta alvöru hljóđversplatan, Abbey Road, kom út 1969. Hljómsveitin starfađi síđast saman ţađ ár en opinberlega hćtti hún 1970. Síđan eru liđnir 4 áratugir og margar hljómsveitir náđ háum hćđum. En ţađ eru Bítlarnir sem eru fyrirferđarmestir í dag.
Fá lög er ađ finna međ Bítlunum á youtube. Ég fann ţó tvo létta Bítlablúsa. Gaman vćri ađ heyra viđhorf ykkar til Bítlanna. Mér ţykir gaman ađ ţrefa um Bítlana.
Ljóđ | Breytt 10.9.2009 kl. 23:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (65)
29.8.2009 | 15:12
Myndbandiđ sem beđiđ var eftir
Fyrir nokkrum dögum skúbbađi ég, eins og oft vill verđa. Ţar upplýsti ég ađ íslenska pönkhljómsveitin Q4U nyti óvćnt nýtilkominna vinsćlda í Ţýskalandi. Mér tókst ekki ađ finna neitt myndband međ hljómsveitinni til ađ skerpa á fréttinni og gefa sýnishorn af ţví sem heillar Ţjóđverjana. Einar Loki vísađi síđar á samklippu úr kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Ţar bregđur Q4U fyrir.
Nú hef ég fengiđ sendan hlekk á myndband međ Q4U. Myndbandiđ var sett inn á youtube.com í gćr en er úr sjónvarpsţćtti frá 1997.
Ljóđ | Breytt 30.8.2009 kl. 23:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
25.8.2009 | 23:03
Skúbb! Íslensk músík slćr óvćnt í gegn í útlöndum
Óli Palli heldur ţví stundum fram á rás 2 ađ hljómsveitir hćtti aldrei. Ţađ er sitthvađ til í ţessari kenningu. Hljómsveitir virđast hafa tilhneigingu til ađ verđa langlífari en liđsmenn ţeirra gera sér grein fyrir á ţeim tímapunkti sem ţeir halda ađ hljómsveitin sé hćtt. Stundum verđa óvćntir atburđir úr ólíklegustu átt til ţess ađ endurvekja hljómsveit sem strangt til tekiđ var hćtt.
Íslenska pönksveitin Q4U er ein ţeirra sem virđist hafa 9 líf. Ţessi hljómsveit varđ einn af fylgihnöttum Utangarđsmanna og Frćbbblanna í pönksprengjunni um og upp úr 1980. Međal liđsmanna Q4U voru einmitt hljóđfćraleikarar úr ţessum tveimur hljómsveitum.
Q4U vakti töluverđa athygli í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík og á tónlistarhátíđinni Melarokki. Lagiđ Böring (sem fjallađi um Bjarna Móhíkana úr Sjálfsfróun) varđ síđar vinsćll útvarpssmellur.
1996 reis hljómsveitin úr dvala eftir margra ára hlé. Spilađi á hljómleikum, kom fram í sjónvarpinu og sendi frá sér yfirlitsdiskinn Q2.
Fyrir nokkru komst ţessi diskur í hendur Ţjóđverja nokkurs. Diskurinn vakti lukku í kunningjahópi Ţjóđverjans. Ţjóđverjinn óskađi eftir ađ kaupa upp ţađ upplag sem til var af disknum, um 150 eintök. Ţau eintök seldi Ţjóđverjinn á "nó tćm". Nú hefur hann pantađ 1000 eintök til viđbótar.
Ţađ er ekki um annađ ađ rćđa en endurútgefa diskinn í ţví upplagi - og rúmlega ţađ. Ţjóđverjinn telur pöntun sína upp á 1000 eintök ađeins vera til ađ sinna bráđri eftirspurn. Pöntun á stćrra upplagi muni fylgja í kjölfariđ. Músík Q4U höfđi sterkt til Ţjóđverja.
Ţetta eru ekki stórar tölur - sé litiđ til alţjóđamarkađar. En verulega stórar tölur fyrir íslensku pönksveitina Q4U, sem var hćtt en horfir nú til ţess ađ ástćđa sé til ađ endurreisa hljómsveitina enn einu sinni. Hamra járniđ á međan ţađ er heitt. Margt spennandi getur veriđ í spilunum. Ţýski músíkmarkađurinn er einn sá stćrsti í heiminum.
Ég fann ekkert myndband međ Q4U en á myndbandinu hér fyrir ofan syngur Q4U-liđinn Árni Daníel Júlíusson Sex Pistols-slagarann Pretty Vacant viđ undirleik Q4U-trommarans Komma (Kormáks) og liđsmanna Frćbbblanna.
Hér fyrir neđan eru myndir af Q4U. Ég veit ekki hvernig Ellý nćr ađ vera sćtari og kynţokkafyllri en fyrir nćstum ţremur áratugum. Debbie Harry og Siouxie Sioux ná ţví ekki:
Ljóđ | Breytt 26.8.2009 kl. 21:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
25.8.2009 | 00:34
(Ó)heppinn innbrotsţjófur
Í Fćreyjum er ekki til siđs ađ lćsa húsum. Ekki einu sinni ţegar heimilisfólk er fjarri til lengri tíma. Tónlistarmađurinn og plötuútgefandinn Kristian Blak lćsti ţó húsi sínu ţegar hann fór ásamt fjölskyldu sinni til útlanda í nokkrar vikur. Ástćđan var sú ađ geđveikur náungi hafđi hótađ og ofsótt Kristian um hríđ. Međal annars hafđi sá geđveiki gengiđ í skrokk á bíl mannsins í nćsta húsi viđ Kristian. Bílnum var lagt fyrir framan hús Kristians og ofbeldismađurinn hélt ađ ţetta vćri bíll Kristians.
Kristian óttađist ađ sá geđveiki kćmi inn í húsiđ, myndi jafnvel setjast ţar ađ og/eđa skemma tölvur og fleira. Húsinu, sem er í miđbć Ţórshafnar, var ţví kyrfilega lćst. Samt var brotist ţar inn. Sem er mjög einkennilegt. Brotist inn í eina lćsta húsiđ í Ţórshöfn. Innbrotsţjófurinn virđist hafa einungis fariđ inn í eitt lítiđ herbergi. Ţađan stal hann glćsilegum ferđageislaspilara, svokölluđum "gettó-blaster", og bunka af geisladiskum sem ţar stóđu hjá, samtals 50 diskum.
Ţegar Kristian og fjölskylda komu aftur heim frá útlöndum og uppgötvuđu innbrotiđ og ţjófnađinn gátu ţau ekki varist brosi. Diskana hafđi Kristian komiđ međ frá Noregi og átti eftir ađ fara međ ţá í Norrćna húsiđ í Fćreyjum. Diskarnir innihéldu allir fornan söng Sama, svokallađ joik, án undirleiks. Ţađ eru ekki margir utan Sama sem hlusta á svoleiđis sér til gamans. Á myndbandinu hér fyrir neđan má heyra sýnishorn af ţví sem innbrotsţjófurinn hefur haft í eyrunum ţegar hann fór ađ spila geisladiskana.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
23.8.2009 | 23:04
Mikilvćgt ađ leiđrétta
Nýveriđ birtist í Morgunblađinu opnugrein um bítilinn Paul McCartney. Ljómandi skemmtileg grein. Enda skrifuđ af Ingólfi Margeirssyni; oft titlađur réttilega Bítlafrćđingur. Í greininni segir ađ Paul McCartney hafi samiđ flest vinsćlustu lög Bítlanna. Áreiđanlega er hćgt ađ fćra rök fyrir ţví. Bítlarnir áttu mörg fleiri vinsćl lög en ţau sem skoruđu hćst á vinsćldalistum sem smáskífur. Ţađ getur ţó veriđ vandkvćđum bundiđ ađ kveđa upp úrskurđ um vinsćldir einstakra Bítlalaga sem einungis komu út á stórum plötum.
Ef litiđ er til ţeirra laga sem skoruđu hćst á vinsćldalistum sem smáskífur verđur ekki annađ séđ en jafnrćđi hafi ríkt á milli laga Johns Lennons og Pauls McCartneys. Af 30 vinsćlustu smáskífulögum Bítlanna á breska og bandaríska vinsćldalistanum er um jafntefli ađ rćđa. Í fyrri sviganum er hlutur Johns í lögunum og í seinni sviganum er hlutur Pauls.
- All You Need is Love (100) (0)
- Ballad of John and Yoko (100) (0)
- Can't Buy Me Love (10) (90)
- Come Together (100) (0)
- Day Tripper (80) (20)
- Do You want to know a Secret (100) (0)
- Eight Days a Week (30) (70)
- Eleanor Rigby (20) (80)
- Free as a Bird (100) (0)
- From Me to You (50) (50)
- Get Back (0) (100)
- Hard Day´s Night (100) (0)
- Hello Goodbye (0) (100)
- Help! (90) (10)
- Hey Jude (0) (100)
- I Feel Fine (100) (0)
- I Want to Hold Your Hand (50) (50)
- Lady Madonna (0) (100)
- Let It Be (0) (100)
- Long and Winding Road (0) (100)
- Magical Mystery Tour (10) (90)
- Nowhere Man (100) (0)
- Paperback Writer (20) (80)
- Penny Lane (20) (80)
- Please Please Me (100) (0)
- Real Love (100) (0)
- She Loves You (50) (50)
- Strawberry Fields Forever (100) (0)
- Ticket to Ride (100) (0)
- We Can Work it Out (30) (70)
Ég er svo sérvitur ađ gera ekki upp á milli Johns og Pauls. Met ţá báđa jafn mikils. Međ kostum ţeirra og göllum. Mér er alltaf illa viđ ţegar hallar á annan hvorn ţeirra í umfjöllun um Bítlana. Mitt uppáhalds Bítlalag er á međfylgjandi myndbandi, hinn lauflétti blús Helter Skelter, eftir Paul. Til gamans má geta ađ í upptöku var lagiđ 25 mínútna langt en stytt í tćplega 5 mínútna bút á Hvíta albúminu. John og Paul skiptust á sólógítarleik og John blés einnig í saxófón. John var á sólógítar í fyrri hlutanum en Paul ţegar kom ađ ískrinu. Allir vel dópađir og hressir.
Ljóđ | Breytt 3.2.2013 kl. 23:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (38)
22.8.2009 | 15:23
Meiri upphitun fyrir kvöldiđ
Hér er viđbót viđ síđustu fćrslu. Meiri upphitun fyrir kvöldiđ: Frćbbblarnir, Megas, Súkkat... (sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/934946/).
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2009 | 22:09
Skúbb! Íslenskur söngvari á útlendri safnplötu
Fyrir síđustu jól sýndi Geir Ólafs Fćreyingum ţakklćti sitt - og íslensku ţjóđarinnar - fyrir höfđinglegt lán til Íslendinga í kjölfar bankahrunsins og fćrđi ţeim ađ gjöf jólalag. Lagiđ söng Geir á fćreysku og kallađi ţađ Jólamađurinn (sem er fćreyska heitiđ á jólasveininum). Uppátćkinu var vel tekiđ og lagiđ var lengi á A-spilunarlista (hot play list) fćreyska ríkisútvarpsins, Kringvarpsins.
Nú er í undirbúningi fćreysk jólasafnplata sem kemur á markađ í nóvember. Ég held ađ mér sé óhćtt ađ fullyrđa ađ ţar sé um ađ rćđa fyrstu fćreysku jólasafnplötuna. Ţar fyrir utan hafa Fćreyingar ekki veriđ duglegir viđ ađ senda frá sér jólaplötur í gegnum tíđina. Ég er ađ hjálpa til viđ ađ setja fćreysku jólasafnplötuna saman og ţađ er ekki um auđugan garđ ađ grisja. Ţađ er ađ segja fćreyskar jólaplötur til ađ velja lög af eru fáar. En góđar. Ţannig ađ safnplatan verđur góđ.
Međal laga á safnplötunni verđur Jólamađurinn međ Geir Ólafs. Ţađ verđur í fyrsta skipti sem ţetta lag kemur út á plötu. Og ekki seinna vćnna. Jólamađurinn er best kynnta og mest spilađa jólalagiđ í Fćreyjum til margra ára.
Geir er ákveđinn í ađ standa viđ ađ lagiđ sé gjöf til Fćreyinga. Hann hefur hafnađ greiđslu fyrir lagiđ á safnplötunni. Ţess í stađ ánafnar hann öllum ágóđa af laginu til langveikra barna í Fćreyjum. Ţađ er virkilega fallegt og til fyrirmyndar.
Ekki er búiđ ađ ganga endanlega og formlega frá öllum öđrum lögum sem verđa á fćreysku safnplötunni. Ţess vegna er ótímabćrt ađ gefa ţau upp. Eitt lag verđur ţó međ álfadrottningunni Eivöru. Platan mun fást í verslunum Pier í glerturninum viđ Smáratorg og í Korputorgi. Meira um ţetta allt saman síđar.
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (22)