Fćrsluflokkur: Útvarp
18.12.2013 | 00:15
Bestu plötur ársins 2013
Ţađ er svoooo gaman ađ skođa lista yfir bestu plötur ársins 2013 í áramótauppgjöri fjölmiđla. Hér er niđurstađa 3ja breskra tímarita. Fyrsta röđin er listi Uncut. Fremri sviginn vísar í lista Mojo. Aftari sviginn vísar í lista Q.
3. (9) (-) Nick Cave & the Bad Seeds Push the Sky Away
4. (5) (9) John Grant Pale Green Ghosts
5. (19) (18) Laura Marling Once I Was An Eagle
7. (1) (27) Bill Callahan Dream River
8. (-) (36) Kurt Vile Wakin On a Pretty Daze
9. (4) (1) Artic Monkeys AM
10. (-) (25) Boards of Canada Tomorrows Harvest
12. (12) (34) Prefab Sprout Crimson/Red
13. (2) (4) Daft Punk Random Access Memories
14. (-) (37) The National Trouble Will Find Me
15 (47) (-) Julie Holter Loud City Song
16. (-) (-) Thee Oh Sees Floating Coffin
17. (38) (26) Kanye West Yeezus
18. (-) (-) Parquet Courts Light Up Gold
19. (-) (-) Endless Boogie Long Island
20. (7) (2) Vampire weekend Modern Vampires of the City
Útvarp | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
15.12.2013 | 00:56
Flott bókargagnrýni
Árni Helgason skrifar góđa, vandađa, ítarlega og vel rökstudda gagnrýni í nýjasta tölublađ vikublađsins Reykjavík um bókina "Gata, Austurey, Fćreyjar, Eivör og fćreysk tónlist".
Gagnrýnin spannar nćstum hálfa blađsíđu (dagblađsbrot). Ég endurskrifa hér ađeins brot af gagnrýninni. Um leiđ kvitta ég undir ađfinnslur Árna. Ţćr eru réttmćtar.
Fyrirsögnin er "Ég syng alltaf berfćtt".
Í meginmálstexta segir m.a.: "Fyrir ţá sem áhuga hafa á fćreyskri tónlist á síđasta hluta 20. aldar og fyrstu árum hinnar 21. er fengur ađ ţessari bók. Ađdáendur Eivarar fá einnig gott yfirlit yfir ţátttöku hennar í tónlist og afrek hennar um víđa veröld sem eru umtalsverđ eftir ţví sem frá greinir í bókinni."
Líka segir: "Ţessi bók er ekki ćvisaga Eivarar í hefđbundnum skilningi og ekki er mikiđ fjallađ um hana sjálfa nema ađ ţví er ađ tónlistinni lýtur en sú saga virđist tíunduđ mjög nákvćmlega. Fjöldi hljómsveita og tónlistarmanna sem hún hefur unniđ međ er nefndur og margir leggja bókinni til umsagnir sínar sem eru undantekningalaust jákvćđar."
Síđan: "Í lok bókar tekur höfundur saman mjög ítarlegt yfirlit yfir hljómplötur og mynddiska sem Eivör hefur gefiđ út eđa veriđ ţátttakandi í. Er fengur ađ ţeirri skrá sem og einni opnu sem höfundur kallar fćreysk-íslenska orđabók en ég hygg ađ Íslendingar hafi gaman af ţví ađ sjá sum orđin og hugtökin svo sem ađ vera hundasjúkur sem getur hent eftir ađ menn hafa veriđ bakbundnir. Innskotskaflar um Fćreyjar eru einnig mjög frćđandi og kemur margt fram sem líklega er ekki á allra vitorđi hér á landi."
Svo: "Umfjöllunin er ađ nokkru leyti í tímaröđ en ţar sem sumir kaflarnir eru laustengdir Eivöru ţá er fariđ nokkuđ fram og aftur í tíma. Almennt er bókin lipurlega skrifuđ... Fjöldi skemmtilegra mynda prýđir bókina.
Í heildina tekiđ er hér um fróđlega - og oft nokkuđ hnyttna - bók um tónlistarmanninn Eivöru og tónlist í Fćreyjum ađ rćđa auk almenns fróđleiks um frćndur okkar Fćreyinga."
Útvarp | Breytt 16.12.2013 kl. 00:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
13.12.2013 | 22:46
Útvarp Saga međ pálmann í höndunum
Svo snemma sem 2006 var byrjađ ađ gagnrýna á Útvarpi Sögu ţenslu bankanna og allt sukkiđ á ţessum árum. Til ađ mynda afmćli Ólafs Ólafssonar og fleiri ţar sem keppst var viđ ađ bjóđa upp á skemmtiatriđi međ heimsfrćgum og rándýrum poppstjörnum. Menn ferđuđust í ţyrlum til ađ fá sér pylsu međ öllu. Menn snćddu gull.
Um ţetta var fjallađ á gagnrýninn hátt í ýmsum ţáttum á Útvarpi Sögu. Međal annars í símatímum. Fyrir ţetta var Útvarp Saga atyrt, stöđin sökuđ um neikvćđni, öfund, róg og annađ slíkt. Innhringendur líka. Spurt var hvers vegna ţetta fólk gćti ekki samglađst velgengni auđmanna, ćvintýralegum og rándýrum lúxuslífstíl ţeirra, margföldun umsvifa bankanna, útrásinni, útrásarvíkingunum, íslenska efnahagsundrinu og svo framvegis.
Útvarp Saga varađi viđ á međan ađrir hengdu orđur á krimmana og hrópuđu ţrefalt húrra fyrir ţeim. Nýfelldir dómar yfir krimmunum stađfesta ađ viđvaranir Útvarps Sögu áttu rétt á sér.
Útvarp Saga varađi viđ Icesave samningunum og REI. Bara svo ađ tvö dćmi af mörgum séu tiltekin ţar sem Útvarp Saga stóđ vaktina og varđi hagsmuni Reykvíkinga og íslensku ţjóđarinnar á međan ađrir fjölmiđlar sátu hjá. Útvarp Saga er samviska ţjóđarsálarinnar.
![]() |
Vitna í gamalt bréf frá Sigurđi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Útvarp | Breytt 14.12.2013 kl. 20:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
11.12.2013 | 22:19
Plötuumsögn
- Titill: On High
- Flytjandi: Knút
- Útgefandi: Tutl
- Einkunn: ****1/2 (af 5)
Knút er Knút Háberg Eysturstein, fćreyskt söngvaskáld. Hann kvađ sér fyrst hljóđs međ rokksveitinni Reverb í Götu í Fćreyjum, 12 ára gamall. Jafnaldra hans, Eivör, var söngvarinn. Af öđrum ţekktum í Reverb má nefna trommuleikarann Högn Lisberg. Hann og Eivör voru síđar í "súper grúppunni" Clickhaze. Högni á farsćlan sólóferil. Um ţađ má lesa í nýútkominni bókinni "Gata, Austurey, Fćreyjar, Eivör og fćreysk tónlist".
On High er ţriđja og besta plata Knúts. Ţađ er ekki auđvelt ađ lýsa tónlistinni. Hún er róleg eđa á millihrađa og iđulega međ stígandi. Sumt minnir örlítiđ - en ađeins örlítiđ - á REM. Einkum lagiđ Revolution of the Heart.
Lögin hljóma strax vel en eru samt flest frekar lengi ađ síast inn. Ţađ er ađ segja ađ fegurđ ţeirra kemur hćgt og bítandi betur og betur í ljós. Ţađ er mikiđ lagt í útsetningar. Mikiđ um fagran baksöng, fiđlur og allskonar önnur hljóđfćri. Um bakraddirnar sjá Dam systur og frćnkur (ţar á međal hin vinsćla Dorthea Dam). Ţćr vega ţungt og lađa fram ţungan hátíđarblć. Kallast mikilfenglegar skemmtilega á viđ einfalt píanópikk. Ţetta er flott plata sem venst einstaklega vel viđ ítrekađa spilun. Músíkin er notaleg og á köflum virkilega fögur. Öll lögin eiga ţađ sameiginlegt ađ vera ljúf og ţćgileg áheyrnar.
Platan fćst hjá www.tutl.com
Útvarp | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
11.12.2013 | 01:04
Íslensk tónlist gerir ţađ gott í áramótauppgjöri erlendra fjölmiđla
Ísland er svokallađ örríki. Viđ erum 0, eitthvađ % af rösklega 7 milljörđum jarđarbúa. Fyrir aldarfjórđungi sótti kunningi minn brúđkaupsveislu í Bandaríkjum Norđur-Ameríku. Ţar hitti hann Indverja. Sá hafđi setiđ viđ hliđ Dana í flugvél vestur um haf. Indverjinn henti gaman af ţví ađ Daninn kom frá 6 milljón manna landi. Indverjinn hló. Hann sagđi: "Ađ hugsa sér ađ hćgt sé ađ kalla ţađ ţjóđ sem er ađeins 6 milljón manna ţorp."
Íslendingurinn ákvađ ađ upplýsa ekki ađ hann vćri frá 300 ţúsund manna ţjóđ.
Í áramótauppgjöri útlendra fjölmiđla eru íslenskar plötur áberandi. Dćmi: Breski netmiđillinn OMH (musicomh.com) birti í gćr áramótauppgjör sitt. Niđurstađan er ţessi:
1. John Grant: Pale Green Ghosts
29. Sigur Rós: Kveikur
74. Ólöf Arnalds: Sudden Elevations
Í áramótauppgjöri Íslendinga hafa sumir spurt hvort ađ plata Johns Grants sé íslensk eđa útlensk. Svariđ er: Hún er íslensk. John Grant er búsettur á Íslandi. Hann gerir sína músík út frá Íslandi. Međspilarar hans eru Íslendingar. Hans starfsvettvangur er íslenskur. Upptökustjórar og ađrir sem koma ađ upptökum á hans tónlist eru Íslendingar. Sjálfur upplifir hann sig sem ţátttakanda ađ einu og öllu í íslensku tónlistarlífi.
Ţetta er alveg eins og međ fćreysku söngkonuna Eivöru. Hún var búsett á Íslandi í nokkur ár. Hér samdi hún sína músík. Hér var hún í hljómsveit međ íslenskum hljóđfćraleikurum. Hér upplifđi hún sig sem fullgildan ţátttakanda í íslensku tónlistarsenunni.
Eivör var á ţessu tímabili margútnefnd og verđlaunuđ međ íslenskum tónlistarverđlaunum og leikhúsverđlaunum. Um ţetta má lesa í bókinni Gata, Austurey, Fćreyjar, Eivör og fćreysk tónlist.
Ţađ kemur kannski einhverjum á óvart ađ plata međ Ólöfu Arnalds rati inn í áramótauppgjör erlendra tónlistarmiđla. Stađreyndin er sú ađ Ólöf Arnalds er nokkuđ hátt skrifuđ í Bretlandi (einkum Skotlandi) og Ţýskalandi. Í skoskum plötubúđum hef ég séđ plötum hennar stillt upp á áberandi hátt og undir yfirskrift "Mćlt međ". Ég hef séđ svipađ í ađal plötubúđ Berlínar í Ţýskalandi.
Ólöf Arnalds er mun stćrra dćmi erlendis en viđ hér á Íslandi gerum okkur grein fyrir. Í skoskri plötubúđ var mér sagt ađ Ep-plata međ henni vćri vinsćl. Bćđi söluhá og lög af henni spiluđ í skosku útvarpi.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2013 | 02:28
Bókin um fćreysku álfadísina Eivöru
Í gćr kom í verslanir bókin "Gata, Austurey, Fćreyjar, Eivör og fćreysk tónlist". Bókin er bćđi gefin út í mjúkri kápu og harđspjaldakápu. Harđspjaldakápan er töluvert dýrari (um 5 ţúsund kall en mjúka kápan um 3 ţúsund kall).
Nafn bókarinnar segir töluvert mikiđ um innihaldiđ. Í gćr atti bókin kappi viđ tvćr öflugar bćkur í útvarpsţćttinum frábćra Virkir morgnar. Eins og allir vita (nema Eiđur Guđnason) ţá er ţátturinn Virkir morgnar skemmtilegasti morgunţáttur í íslensku útvarpi. Ţó er samkeppnin hörđ á ţeim vettvangi. Andri Freyr og Gunna Dís fara á kostum í ţćttinum. Ţau eru svooooo afgerandi skemmtileg ađ ţađ hálfa vćri hellingur.
Bókin međ langa titlinum, "Gata, Austurey, Fćreyjar, Eivör og fćreysk tónlist", rúllađi upp samkeppninni. Engu ađ síđur voru hinar bćkurnar meiriháttar flottar: Annars vegar "Brosbörn" og hinsvegar "Strákar". Bókin "Brosbörn" er mega vel heppnuđ og ćvintýraleg barnabók. Gargandi snilld út í eitt. Bókin "Strákar" er virkilega snjöll fyrir unglingsstráka. Fjölbreytt, skemmtileg og unglingsstrákum nauđsynlegt hjálpartćki. Ţađ var mér mikill heiđur ađ kynna bókina um Eivöru um leiđ og ţessar glćsilegu og eigulegu bćkur, "Brosbörn" og "Strákar".
Útvarp | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
4.12.2013 | 23:49
Nýja íslenska jólalagiđ sem er ađ slá rćkilega í gegn
Í gćrkvöldi setti Ţórđur Bogason inn á youtube splunkunýtt frumsamiđ jólalag, "Biđin eftir ađfangadegi". Ţađ var eins og kveikt á flugeldi. Lagiđ rauk af stađ í einskonar jó-jó ţvers og kruss um Fésbók. Ég hef aldrei séđ annađ eins flug á ţeim vettvangi. Í "commentakerfi" Fésbókar var laginu fagnađ og ţađ hlađiđ lofiđ í bak og fyrir. Margir lýsa ţví sem flottasta íslenska jólalagi síđustu ára. Sumir nota tćkifćriđ og hćđa 2ja stjörnu (skv. mbl.is) jólaplötu "Ekki háttvirts" um leiđ og ţetta lag er rómađ sem hinn fullkomni jólasöngur. Ég hef ekkert heyrt af jólaplötu "Ekki háttvirts" (hlusta ekki á Bylgjuna) og tek ţví ekki ţátt í ţeirri umrćđu.
Fyrir minn smekk er jólalag Ţórđar Bogasonar virkilega grípandi og gott jólalag. Ţađ hefur alla eiginleika til ađ verđa sívinsćlt jólalag. Eitt útspiliđ er hvernig lagiđ er brotiđ upp međ örstuttu ágengu rokkgítarsólói. Til viđbótar viđ hvađ laglínan er sterk bćđi í versi og viđlagi. Trompin eru lögđ á borđiđ á fćribandi.
Hljómsveitin Foringjarnir er skráđ fyrir laginu. Mér virđist ţó sem ađ ţetta sé sólóverkefni Ţórđar Bogasonar, söngvara, lagahöfundar, textahöfundar og gítarleikara. En skiptir ekki máli. Jólalagiđ í ár og nćstu ára. Ţegar ég smellti á lagiđ á youtube í gćrkvöldi hafđi ţađ veriđ spilađ 5 sinnum. Í dag ţegar ég sá hversu mjög rösklega ţví hafđi veriđ deilt á Fésbók sá ég ađ ţađ hafđi veriđ spilađ 500 sinnum á innan viđ sólarhring. Ég man ekki eftir jafn rosalegum viđbrögđum.
Ţetta er nýja íslenska jólalagIĐ (međ ákveđnum greini). Toppurinn í nýjum jólalögum 2013. Dreifiđ laginu og leyfiđ öđrum ađ komast í rétta jólagírinn.
Útvarp | Breytt 5.12.2013 kl. 08:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
28.11.2013 | 00:36
Rás 2 er frábćrt útvarp
Öll fyrirtćki hafa gott af ţví ađ ganga í gegnum allsherjar endurskođun. Ţess vegna - međal annars - ber ađ fagna kreppu og grófum samdrćtti. Ţumalputtaregla er ađ fyrirtćki stofnađ í ađdraganda kreppu eđa eftir ađ kreppa er skollin á verđi langlífari og blómstri betur en fyrirtćki sett á laggir í góđćri.
Kreppa og samdráttur kalla á hagrćđi.
Fyrstu viđbrögđ eru jafnan ađ segja upp ţeim sem skúrar og ţrífur klósettin. Ćđstu stjórnendur međ margföld laun ţess sem skúrar slá skjaldborg um sín 16 milljón króna árslaun, jeppa, síma og ţađ allt. Hjá Rúv eru 11 ćđstu stjórnendur međ hátt á annađ hundrađ milljón króna launakostnađ. Ţegar ađrir yfirstjórnendur eru međtaldir er talan - ađ mig minnir - um 260 milljónir króna.
Ţetta er svo sem ekki há tala. Ríkiskirkjan er međ 4000 milljónir. Domino´s var verđlaunađ sem markađsfyrirtćki ársins 2013 eftir 2000 milljón króna afskriftir (eđa voru ţćr bara 1000 milljónir?). Morgunblađriđ: 4000 milljónir,
Ég kann ekki nöfnin á öllum ţeim Björgúlfum sem hafa fengiđ afskrifađar svo margar milljónir ađ ég get ekki taliđ núllin án ţess ađ ruglast í talningunni.
Víkur ţá sögu ađ Rúv og Rás 2. Rás 2 hefur gegnt stóru hlutverki í íslenskri tónlist. Rás 2 er ábyrg fyrir ţeirri sterku stöđu sem íslensk tónlist gegnir innanlands og ekki síđur erlendis. Međ tilheyrandi gjaldeyristekjum íslenska ríkisins (sameiginlegum sjóđi landsmanna) - ef menn vilja meta dćmiđ út frá krónutölu. Sem er ţó ekki eftirsóknarverđasti ţáttur í menningu og listum. Ađ nćra sálina er nauđsynlegra en ađ telja aura.
Rás 2 og Rúv hafa sinnt sínu hlutverki frábćrlega vel. Hljómsveitin Kukl varđ til í útvarpsţćtti á Rúv. Kukl var ţúfan sem velti stórum steini. Kukl varđ Sykurmolarnir. Sykurmolarnir urđu heimsfrćg hljómsveit. Söngkona Sykurmolanna, Björk, varđ frćgasti Íslendingur sögunnar. Heimsfrćgđ Bjarkar lagđi grunn ađ ţví ađ útlendum ferđamönnum til Íslands fjölgađi úr 80.000 í 600.000. Ţegar á leiđ međ fulltingi Sigur Rósar, Of Monster and Men og fleiri.
Hvar og hvenćr sem eitthvađ er um ađ vera í íslenskri tónlist ţar er Rás 2. Hvort heldur sem eru Músíktilraunir, Airwaves, Menningarnótt, 17. júní eđa annađ. Ferill Of Monster and Men hófst međ sigri í Músíktilraunum og fór á flug á Airwaves.
Rás 2 býr ađ ţeirri gćfu ađ ţar hefur safnast saman hugsjónafólk sem leggur sig fram um ađ styđja íslenska tónlist. Dagskrárgerđarmenn sem hafa metnađ, elju, ástríđu og ákafa í ađ sinna ţessu hlutverki: Óli Palli, Andrea Jóns, Guđni Már, Matti Matt, Doddi litli, Andri Freyr og Gunna Dís, Ásgeir Eyţórs, Ţossi, Valli Dordingull og fleiri. Ég er ađ gleyma svoooo mörgum.
Í áranna rás hef ég af og til stússađ í kringum tónlist međ íslenskum og útlendum tónlistarmönnum. Flestar - nánast allar - músíkútvarpsstöđvar eru lok, lok og lćs. Nema Rás 2. Meira ađ segja ţegar "Ormurin langi" međ fćreysku hljómsveitinni Tý seldist í 4000 eintökum á Íslandi var hann einungis spilađur á Rás 2. Sama var ţegar Eivör seldi 10 ţúsund eintök af Krákunni. Hún var ađeins spiluđ á Rás 2. Ţannig mćtti áfram telja.
Rás 2 stendur öllum tónlistarstílum opin. Engu er hafnađ á ţeirri forsendu ađ ţađ falli ekki ađ lagalista stöđvarinnar.
![]() |
Adolf Inga sagt upp |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Útvarp | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
27.11.2013 | 00:13
Útvarp Saga er ţjóđarútvarp
Ég kann vel ađ meta Útvarp Sögu. Útvarp Saga er ţjóđarútvarp. Ţjóđin talar og ţjóđin hlustar. Frá klukkan 09 ađ morgni til hádegis fćr almenningur ađ hringja inn og tjá sig í beinni útsendingu. Ranglega fullyrđa sumir ađ örfáir innhringendur séu ráđandi í ţessum símatímum. Athugun hefur hrakiđ ţađ. Jú, jú, inn á milli ná einhverjir inn sem áđur hafa látiđ í sér heyra. Er eitthvađ ađ ţví? Umrćđuefniđ er af ýmsu tagi. Ţeir sem ná inn og eru alveg jafn góđur ţverskurđur af íslenskum almenningi og ţeir sem daglega taka ţátt í "lofi og lasti" á Bylgjunni.
Símatímar Útvarps Sögu spegla umrćđuna á Íslandi dag hvern. Ţar fyrir utan er margt annađ áhugavert dagskrá Útvarps Sögu utan ţessara 3ja klukkutíma símatíma. Til ađ mynda skemmtilegur og fjölbreyttur morgunţáttur Markúsar Ţórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar. Núna er Jóhann ađ auki međ bókmenntaţátt. Rúnar Ţór er međ forvitnilega og fróđlega viđtalsţćtti. Ţar rekur hann garnir úr ţekktum tónlistarmönnum. Torfi Geirmundsson og Guđný í Heilsubúđinni eru međ ţátt um hár og heilsu. Annar heilsuţáttur heitir Heilsan heim. Magnús Magnússon spilar gamlar dćgurlagaperlum, talar viđ tónlistarmenn og gefur hlustendum tertur, bílabón og fleira. Arnţrúđur er međ ţátt um mat og matreiđslu. Pétur Gunnlaugsson og Erlingur Már eru međ síđdegisţátt. Ţangađ fá ţeir iđulega góđa gesti í spjall. Margt fleira áhugavert er á dagskrá Útvarps Sögu.
Nýlega var hleypt af stokkum nýrri útvarpsstöđ, Jóla-Sögu: 89 á fm. Nafniđ segir sína sögu.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
13.11.2013 | 11:45
Er Veđurstofan nauđsynleg?
Ég hlusta daglega vel og rćkilega á Útvarp Sögu. Fyrir bragđiđ verđ ég fróđari um sitthvađ á hverjum einasta degi. Í gćrdag krossbrá mér illilega. Á Útvarpi Sögu kom fram ađ starfsmenn Veđurstofu Íslands séu fleiri en tuttugu og fimm og fleiri en fimmtíu og fleiri en hundrađ og fleiri en hundrađ og fimmtíu. Starfsmenn Veđurstofunnar eru 152! Segi og skrifa: Eitt hundrađ fimmtíu og tveir!
Ţeir eru fleiri en međalstórt ţorp; til ađ mynda allir íbúar Laugavatns til samans. Hvađ kostar rekstur Veđurstofunnar á ári? Ţarna er allt vađandi í stjórum (gćđastjóri, hópstjórar, fagstjórar, mannauđsstjóri, vaktstjórar, ađalbókari, bókasafnsfrćđingur, framkvćmdastjórar, forstjóri, rannsóknastjóri, verkefnastjóri, náttúruvárstjóri...). Allir sennilega međ sér skrifstofu međ tilheyrandi búnađi. Áreiđanlega hiđ vćnsta fólk, samviskusamt og fullt áhuga.
Nú nota flestir Íslendingar norsku veđurstofuna yr.no. Er ţörf á Veđurstofu Íslands? Ef svo er ţá ţörf fyrir ađ íslenska ríkiđ reki veđurstofu? Er ekki hćgt ađ einkavinavćđa Veđurstofuna?
Hvađ kostar ţátttakan í Nató? Er ekki hćgt ađ einkavinavćđa hana í leiđinni?
![]() |
Blint verđur í fyrramáliđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Útvarp | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (22)