Fćrsluflokkur: Útvarp
30.9.2012 | 23:03
Hver túlkar dćgurlagatexta rétt?
Útvarp | Breytt 1.10.2012 kl. 13:38 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
27.9.2012 | 21:58
Hćgri hönd bítilsins Pauls McCartneys međ hljómleika á Íslandi
Fyrst kom Ringó til Íslands og spilađi međ Stuđmönnum í Atlavík. Síđan kom Yoko Ono og hélt áhrifamikla og frumlega málverkasýningu í Reykjavík. Svo kom Paul McCartney og rúntađi á jeppa um landiđ. Ţessu nćst var sett upp sýning á Kjarvalsstöđum međ teikningum eftir John Lennon. Um svipađ leyti fór ađ sjást oftar til Yokoar Ono á götum Reykjavíkur og hún varđ sannkallađur Íslandsvinur. Í Viđey var reist heimsfrćg friđarsúla til minningar um John Lennon. Í tengslum viđ ţađ hefur heimsóknum Ringós og ekkju George Harrisonar, ásamt Sean Lennon og auđvitađ Yokoar Ono fjölgađ ár frá ári. Plastic Ono Band hefur veriđ ađ halda hljómleika hérna. Sonur Georges Harrisonar gerđist tengdasonur Kára Stefánssonar og Íslands. Bítlabarinn Ob-La-Di Ob-La-Da hóf farsćlan feril. Ţangađ kíkir Yoko ţegar hún á leiđ um, svo og Bítlasynir. Tengsl Bítlanna og Íslands ţéttast stöđugt. Ísland er Bítlaland.
Og hvergi sér fyrir enda á. Í nćsta mánuđi heldur hćgri hönd Pauls McCartneys, gítarleikarinn Rusty Anderson, nokkra hljómleika hérlendis. Ţar á međal í Austurbć, Rosenberg og Grćna hattinum á Akureyri. Miđasala hefst á morgun á midi.is.
Rusty hefur spilađ á flestum plötum Pauls og fylgir honum á hljómleikaferđalögum. Rusty hefur einnig spilađ međ Sinéad O´Connor, Elton John, Willie Nelson, Joe Cocker, Cat Stevens, Meatloaf og ótal öđrum stórstjörnum. En hann er ţekktastur sem sólógítarleikari Pauls McCartneys. Gítarleikur Rustys setur sterkan svip á marga ţekktustu söngva Pauls.
Hér fyrir ofan og neđan eru myndbandsbútar sem sýna Rusty á hljómleikum međ Paul. Í myndbandinu fyrir neđan flytja ţeir félagar sönglag Johns Lennons, Give Peace A Chance. Til gamans má geta ađ Paul er skráđur međhöfundur lagsins. Paul ţykir vćnt um ţađ ţó ađ hann hafi ţar hvergi komiđ nćrri. Bítlarnir í upplausn og leiđindi í gangi. Heiftúđleg málaferli. John skrifađi Paul reiđilestur og samdi um hann níđsöng (How Do You Sleep?). Paul svarađi fyrir sig međ "Let Me Roll It". Virkilega flott lag ţar sem hann hermir eftir músíkstíl Lennons.
Fóstbrćđralag ţeirra slitnađi ţó aldrei. Ţeir spjölluđu saman í síma fram á síđasta dag Lennons. Ekki alltaf í vinsemd. En samt inn á milli. John var skapofsamađur og einstaklega skapstyggur. Ţađ kom fyrir ađ John skellti á símtóli og einnig Paul. Af og til féll allt í ljúfa löđ og ţeir hittust og djömmuđu saman.
John sagđi síđar ađ níđsöngurinn um Paul hafi í raun veriđ meira um sig sjálfan en Paul. Hann var reiđari út í sjálfan sig en Paul en beindi reiđinni ađ Paul.
Útvarp | Breytt 28.9.2012 kl. 23:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
13.9.2012 | 22:22
Eivör á góđu flugi - međ eina bestu plötu ársins!
Íslendingar - eins og fleiri - hafa tekiđ nýju plötu fćreysku álfadrottningarinnar, Eivarar, Room, afskaplega vel. Platan náđi 1. sćti íslenska vinsćldalistans (söluhćst) og er nú í 2. sćti. Lagiđ Rain hefur veriđ ofarlega á vinsćldalista rásar 2 og Bylgjunnar. Trausti Júlíusson á Fréttablađinu gaf plötunni 4 stjörnur (****). Ţađ sama gerđi Dr. Gunni á Fréttatímanum (****). Einnig Helgi Snćr Sigurđsson á Morgunblađinu (****). Ég gaf plötunni 4 og hálfa stjörnu (****1/2): http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1256404/
Andrea Jónsdóttir á rás 2 gaf Room einkunnina 9,9 af 10. Ţađ er ljóst ađ Room er ein af bestu plötum ársins 2012.
Bókin um Eivöru kemur út í lok október (ef allt gengur samkvćmt áćtlun).
Útvarp | Breytt 14.9.2012 kl. 01:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
6.9.2012 | 21:52
Plötuumsögn
- Titill: Room
- Flytjandi: Eivör
- Einkunn: ****1/2 (af 5)
Útvarp | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2012 | 21:48
Fćreyska innrásin
Fćreyskir listamenn verđa áberandi á Menningarnótt í Reykjavík á morgun (laugardag). Ţeir eru misţekktir hérlendis en allir stórkostlegir og hátt skrifađir heimafyrir - og víđar. Fyrst skal frćgasta nefna Eivöru. Hún kemur fram á TÓNAFLÓĐI 2012 - stórhljómleikum rásar 2, Vodafone og Exton. Ţar eru flytjendur kynntir sem "margir af dáđustu og vinsćlustu listamönnum ţjóđarinnar".
Vissulega er Eivör einn dáđasti og vinsćlasti listamađur ţjóđarinnar. Orđalagiđ hljómar eins og Eivör tilheyri íslensku ţjóđinni. Hún gerir ţađ í raun - ţrátt fyrir ađ hún sé fćreysk. Hún hefur enda veriđ ein af Íslensku dívunum, sem svo eru kallađar á hljómleikum og plötum Frostrósa. Íslenska ţjóđin hefur tekiđ ţvílíku ástfóstri viđ Eivöru ađ í huga Íslendinga er hún ein af okkur. Eivöru ţykir vćnt um ţađ.
Ađrir af dáđustu og vinsćlustu listamönnum ţjóđarinnar sem koma fram á Tónaflóđi 2012 eru KK, Jónas Sigurđsson & Ritvélar framtíđarinnar, svo og Retro Stefán. Ţetta er spennandi pakki.
Í Hörpu tređur upp fćreyski trúbadorinn Hanus G. Hann hefur veriđ ađ í hálfa öld eđa svo. Semur afskaplega falleg lög. Eivör hefur sungiđ ýmis lög hans inn á plötur og á hljómleikum. Til ađ mynda Á Kundi Á Tíđarhavi (á fyrstu sólóplötu Eivarar).
Takiđ eftir ađ allir syngja međ. Ţannig er ţađ alltaf á hljómleikum Hanusar. Allir syngja međ. Hanus hefur stundum veriđ kallađur fćreyskur Megas. Ekki vegna ţess ađ söngstíll ţeirra sé líkur. Hann er ţađ ekki. Ţađ er frekar út af ţví ađ ţeir eru á svipuđum aldri og njóta álíka virđingar/dýrkunar međal yngri tónlistarmanna jafnt sem annarra. Hanus er ađ sumu leyti einfari í músík. Hann hefur sent frá sér örfáar plötur. Ég held ađeins tvćr eđa svo og eina kassettu.
Hljómleikar Hanusar eru einstćđ upplifun. Ţar ríkir einlćgur og hrífandi flutningur á gullfallegum söngvum. Ţađ er í stíl Hanusar ađ hann er á myndbandinu í bol merktum hljómsveitinni Sic. Hún er ein ţyngsta ţungarokkshljómsveit Fćreyja. Á fćreyskum ţungarokkshljómleikum má jafnan sjá Hanus í hópi áhorfenda. Ţó ađ músík hans í dag sé ljúf vísnamúsík ţá var hann endur fyrir löngu í rokkhljómsveitum.
Hljómleikar Hanusar eru klukkan 17.00 í Kaldalóni í Hörpu.
Lena Andersen kemur einnig fram í Hörpu. Áđur en Eivör sló í gegn á Íslandi, á hinum Norđurlöndunum og út um allt var Lena ţekktasti fćreyski tónlistarmađur utan Fćreyja. Hún er ţokkalega vel ţekkt í Danmörku, Kanada og víđar. Hún er magnađur lagahöfundur. Plötur hennar eru fínar en hún er ennţá betri á sviđi. Međ henni spilar Niclas á gítar. Ég veit ekki af hverju mér finnst ađ strengjasveit spili sömuleiđis undir hjá Lenu. Ég hlýt ađ hafa lesiđ ţađ eđa heyrt einhvers stađar. Kannski dreymdi mig ţađ.
Hér spilar Lena í eldhúsinu heima hjá sér á međan hún bíđur eftir ađ suđan komi upp á kartöflunum.
Hljómleikarnir međ Lenu eru í Kaldalóni í Hörpu klukkan 19.00. Ţađ er ókeypis inn á alla ţessa hljómleika.
Hanus hélt vel heppnađa hljómleika í Austurbć í Reykjavík 2002. Lena hefur einnig haldiđ hljómleika hérlendis. Ég man eftir henni á Grand Rokk og á Nasa. Ég er ekki klár á ártölunum.
Hanus og Lena skemmta jafnframt í Sendistofu Fćreyja í Austurstrćti. Ţar er opiđ hús frá klukkan 14.00 til 18.00. Bođiđ er upp á smakk á fćreyskum mat, glerlistasýningu, málverkasýningu, kvikmyndasýningu og sitthvađ annađ.
Útvarp | Breytt 18.8.2012 kl. 13:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
14.8.2012 | 03:42
Ókeypis lag (til niđurhals)
Sólstafir eru ţessa stundina á hljómleikaferđalagi um Evrópu og koma fram á mörgum af helstu ţungarokkshátíđum heims. Bandiđ hefur spilađ á yfir 40 hljómleikum á meginlandinu síđan í mars, auk nokkura vel valdra tónleika á Íslandi.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 03:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2012 | 20:10
Foringjarnir
Ţađ er margt skemmtilegt og áhugavert viđ ţútúpuna. Ţar á međal ađ ţar dúkka iđulega upp gömul og sjaldheyrđ lög. Lög af plötum sem ekki hafa fengist í plötubúđum eđa annars stađar til fjölda ára og áratuga. Fyrir örfáum dögum birtist á ţútúpunni lagiđ hér fyrir ofan, Get ekki vakađ lengur. Ţađ er međ hljómsveitinni Foringjunum.
Foringjarnir nutu töluverđra vinsćlda um og upp úr miđjum níunda áratugnum. Til ađ mynda náđi lagiđ Komdu í partý međ Foringjunum góđri útvarpsspilun og myndband viđ ţađ var margoft sýnt í sjónvarpinu.
Hljómsveitin ţótti góđ í ađ rífa upp stuđ, hvort sem var á dansleikjum eđa á hljómleikum. Fyrir bragđiđ var hún eftirsótt til ađ hita upp fyrir ađrar hljómsveitir. Ein ţeirra var Kiss, svo dćmi sé nefnt.
Foringjarnir voru Ţórđur Bogason (söngur), Einar Jónsson (gítar), Jósep Sigurđsson (hljómborđ), Oddur F. Sigurbjörnsson (trommur) og Steingrímur Erlingsson (bassi).
Höfundar Get ekki vakađ lengur eru Ţórđur og Einar. Ţórđur hefur sungiđ međ fjölda annara hljómsveita, svo sem Ţreki, Skyttunum, Rickshaw, Ţrymi, Warning, Ţukli, DBD, Rokkhljómsveit Reykjavíkur og Mazza.
Útvarp | Breytt 14.8.2012 kl. 04:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
13.8.2012 | 00:02
Meiriháttar rokkabillý-hljómleikar
Í gćrkvöldi hélt kanadíski rokkabillý-stuđboltinn Bloodshot Bill hljómaleika á Gamla Gauknum á viđburđinum Rockabillý-sprengja aldarinnar!. Langi Seli og Skuggarnir hituđu upp. Áheyrendur voru sammála um ađ sjaldan eđa svo gott sem aldrei áđur hafi ţeir skemmt sér jafn vel. Langi Seli og Skuggarnir eru ofur svöl hljómsveit. Rokkađir töffarar međ góđ frumsamin lög, skemmtilega texta á íslensku og "cool" sviđsframkomu. Langi Seli er góđur og yfirvegađur söngvari og hljóđfćraleikararnir í hćsta gćđaflokki. Jón Skuggi afgreiđir kontrabassann flestum öđrum betur. Eric Quick er trommusnillingur. Ţannig mćtti áfram telja. Frábćr hljómsveit. Bloodshot Bill varđ ađdáandi međ ţađ sama, sem og sumir ađrir sem voru ađ heyra í hljómsveitinni í fyrsta sinn. Ţar á međal tveir kanadískir túristar á Íslandi sem rak í rogastans er ţeir sáu götuauglýsingu um hljómleika rokkabillý-hetju Kanada, Bloodshot Bill, í Reykjavík. Ţeim ţótti heldur betur ćvintýrin gerast er ţeir komust í persónulegt návígi viđ gođiđ sitt og samlanda.
Einnig slćddist inn á hljómleikana rauđháls (redneck) frá Suđurríkjum Bandaríkjanna, ađdáandi Bloodshots Bills. Rauđhálsinn sté villtan dans á dansgólfinu sveipađur stórum Suđurríkjafána, allt ađ ţví teppi. Ósk hans um ađ Suđurríkin nćđu aftur fyrri stöđu (The South Will Rise Again) var kannski pínulítiđ fjarlćgari möguleiki en ósk hans - sem ţarna rćttist - um ađ komast á hljómleika međ Bloodshot Bill.
Fánadans rauđhálsins setti skemmtilegan svip á hljómleikana. Rokkabillý á rćtur og uppruna í Suđurríkjunum í Bandaríkjunum. Er sprottiđ úr fjölmenningarsamfélagi Suđurríkjanna ţar sem mćttist blús blökkumanna og keltnesk ćttuđ dansmúsík fjallalalla (hillbilly).
Bloodshot Bill tók áhorfendur í bóli, eins og Fćreyingar orđa ţađ. Hann var ţvílíkt flottur ađ unun var ađ fylgjast međ og hlýđa á. Hann gaf allt í flutninginn. Er magnađur söngvari, gítarleikari og bakkađi dćmiđ upp međ kraftmiklum trommuleik. Hann er eins-manns-hljómsveit (one man band) og hljómar eins og fjölmenn hljómsveit.
Ţađ segir margt ađ Bloodshot Bill var klappađur upp í tvígang. Eftir ađ hljómleikum lauk mokseldi hann af Lp-plötum sínum og geisladiskum.
Nú rignir yfir okkur ađstandendur hljómleikanna óskum um ađ Bloodshot Bill komi aftur til Íslands og haldi fleiri hljómleika. Líklegt er ađ viđ látum ţađ eftir.
Bloodshot Bill er mjög skemmtilegur náungi í viđkynningu. Mikill grallari, fyndinn og hress og afar ţćgilegur í samskiptum. Af honum fara miklar sögur um óvćnt og "sjokkerandi" uppátćki sem hafa stundum gengiđ fram af áhorfendum. Hann var til ađ mynda bannađur í Bandaríkjunum í nokkur ár. Hér var hann ljúfur sem lamb. En međ afbrigđum hress og fjörmikill. Jafnt á sviđi sem utan.
Ég fćri Bloodshot Bill og Langa Sela og Skuggunum bestu ţakkir fyrir frábćra skemmtun. Svo og afskaplega ţćgilegu og lipru starfsfólki Gamla Gauksins.
Langi Seli og Bloodshot Bill.
Bloodshot Bill og Smutty Smiff.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
9.8.2012 | 22:09
Blóđhlaupni Bjarni
Ţađ hefur ekki fariđ framhjá neinum - sem á annađ borđ fylgist vel međ - ađ heitasta nafniđ í rokkabillý-senunni, Bloodshot Bill, er á leiđ til landsins. Ţessi kanadíski stuđbolti tređur upp á Gamla Gauknum á laugardaginn. Húsiđ opnar klukkan 21.00. Í bođi verđur 2 fyrir 1 (sćlustund, "happy hour") á barnum ţangađ til Langi Seli & Skuggarnir stíga á stokk um klukkan 22.00.
Ţeir eru ţekktir fyrir ađ rífa fjöriđ upp á rassgatinu. Áhorfendur verđa komnir í hćsta gír ţegar Bloodshot Bill tekur viđ. Og sá kann nú aldeilis trylla lýđinn.
Međ ţví ađ smella á ţennan hlekk fást nánari upplýsingar um viđburđinn: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1251813/
Međ ţví ađ smella á eftirfarandi hlekk og stilla á mín 31.30 má heyra umfjöllun Andreu Jóns á rás 2 um Bloodshot Bill: http://www.ruv.is/sarpurinn/popppressan/08082012-0 Ţađ er reyndar gaman ađ hlusta ţáttinn hennar frá byrjun til enda.
Eins og ţar kemur fram syngur Bloodshot Bill og spilar samtímis á trommur og gítar. Fyrir hljómleikana hér ţarf ađ redda honum ýmsum grćjum ađ hans óskum. Hann kemur ţó međ bassatrommuna sjálfur.
Útvarp | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
3.8.2012 | 18:47
Rockabillysprengja aldarinnar!
Sjóđheitur frá Kanada rokkabilly-stuđboltinn Bloodshot Bill.
Langi Seli & Skuggarnir keyra upp stuđiđ og ţegar allt verđur komiđ á suđupunkt tekur Bloodshot Bill viđ.
http://midi.is/tonleikar/1/7106
https://www.facebook.com/events/487868717892605/
Útvarp | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)