Foringjarnir

  Það er margt skemmtilegt og áhugavert við þútúpuna.  Þar á meðal að þar dúkka iðulega upp gömul og sjaldheyrð lög.  Lög af plötum sem ekki hafa fengist í plötubúðum eða annars staðar til fjölda ára og áratuga.  Fyrir örfáum dögum birtist á þútúpunni lagið hér fyrir ofan,  Get ekki vakað lengur.  Það er með hljómsveitinni Foringjunum.

  Foringjarnir nutu töluverðra vinsælda um og upp úr miðjum níunda áratugnum.  Til að mynda náði lagið  Komdu í partý  með Foringjunum góðri útvarpsspilun og myndband við það var margoft sýnt í sjónvarpinu. 

  Hljómsveitin þótti góð í að rífa upp stuð,  hvort sem var á dansleikjum eða á hljómleikum.  Fyrir bragðið var hún eftirsótt til að hita upp fyrir aðrar hljómsveitir.  Ein þeirra var Kiss,  svo dæmi sé nefnt.

  Foringjarnir voru Þórður Bogason (söngur),  Einar Jónsson (gítar),  Jósep Sigurðsson (hljómborð),  Oddur F. Sigurbjörnsson (trommur) og Steingrímur Erlingsson (bassi).

  Höfundar  Get ekki vakað lengur  eru Þórður og Einar.  Þórður hefur sungið með fjölda annara hljómsveita, svo sem Þreki, Skyttunum, Rickshaw, Þrymi, Warning, Þukli, DBD, Rokkhljómsveit Reykjavíkur og Mazza.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þetta er dægilegasta stuðrokklag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2012 kl. 20:38

2 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  maður rekst á margt sér til skemmtunar á þútúpunni.  Til að mynda hef ég þar fundið 3 lög með Sokkabandinu.

Jens Guð, 14.8.2012 kl. 10:55

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Virkilega ? Ég hef bara heyrt eitt.  En svo er ég frekar lítið á Þútúpunni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 10:59

4 Smámynd: Jens Guð

  Þú hefur þá ekki séð þetta:  http://www.youtube.com/watch?v=qHndptuFPJ0&feature=relmfu

Jens Guð, 14.8.2012 kl. 21:13

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég var ekki búin að sjá þetta, en ég man eftir þessum tónleikum í Alþýðuhúsinu á Ísafirði fyrir margt löngu takk fyrir mig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.