Færeyska innrásin

  Færeyskir listamenn verða áberandi á Menningarnótt í Reykjavík á morgun (laugardag).  Þeir eru misþekktir hérlendis en allir stórkostlegir og hátt skrifaðir heimafyrir - og víðar.  Fyrst skal frægasta nefna Eivöru.  Hún kemur fram á TÓNAFLÓÐI 2012 - stórhljómleikum rásar 2, Vodafone og Exton.  Þar eru flytjendur kynntir sem "margir af dáðustu og vinsælustu listamönnum þjóðarinnar".

  Vissulega er Eivör einn dáðasti og vinsælasti listamaður þjóðarinnar.  Orðalagið hljómar eins og Eivör tilheyri íslensku þjóðinni.  Hún gerir það í raun - þrátt fyrir að hún sé færeysk.  Hún hefur enda verið ein af Íslensku dívunum, sem svo eru kallaðar á hljómleikum og plötum Frostrósa.  Íslenska þjóðin hefur tekið þvílíku ástfóstri við Eivöru að í huga Íslendinga er hún ein af okkur.   Eivöru þykir vænt um það.  

  Aðrir af dáðustu og vinsælustu listamönnum þjóðarinnar sem koma fram á Tónaflóði 2012 eru KK,  Jónas Sigurðsson & Ritvélar framtíðarinnar, svo og Retro Stefán.  Þetta er spennandi pakki.

  Í Hörpu treður upp færeyski trúbadorinn Hanus G.  Hann hefur verið að í hálfa öld eða svo.  Semur afskaplega falleg lög.  Eivör hefur sungið ýmis lög hans inn á plötur og á hljómleikum.  Til að mynda  Á Kundi Á Tíðarhavi  (á fyrstu sólóplötu Eivarar).

  Takið eftir að allir syngja með.  Þannig er það alltaf á hljómleikum Hanusar.  Allir syngja með.  Hanus hefur stundum verið kallaður færeyskur Megas.  Ekki vegna þess að söngstíll þeirra sé líkur.  Hann er það ekki.  Það er frekar út af því að þeir eru á svipuðum aldri og njóta álíka virðingar/dýrkunar meðal yngri tónlistarmanna jafnt sem annarra.  Hanus er að sumu leyti einfari í músík.  Hann hefur sent frá sér örfáar plötur.  Ég held aðeins tvær eða svo og eina kassettu. 

  Hljómleikar Hanusar eru einstæð upplifun.  Þar ríkir einlægur og hrífandi flutningur á gullfallegum söngvum.  Það er í stíl Hanusar að hann er á myndbandinu í bol merktum hljómsveitinni Sic.  Hún er ein þyngsta þungarokkshljómsveit Færeyja.  Á færeyskum þungarokkshljómleikum má jafnan sjá Hanus í hópi áhorfenda. Þó að músík hans í dag sé ljúf vísnamúsík þá var hann endur fyrir löngu í rokkhljómsveitum.

  Hljómleikar Hanusar eru klukkan 17.00 í Kaldalóni í Hörpu.

  Lena Andersen kemur einnig fram í Hörpu.  Áður en Eivör sló í gegn á Íslandi,  á hinum Norðurlöndunum og út um allt var Lena þekktasti færeyski tónlistarmaður utan Færeyja.  Hún er þokkalega vel þekkt í Danmörku, Kanada og víðar.  Hún er magnaður lagahöfundur.  Plötur hennar eru fínar en hún er ennþá betri á sviði.  Með henni spilar Niclas á gítar.  Ég veit ekki af hverju mér finnst að strengjasveit spili sömuleiðis undir hjá Lenu.  Ég hlýt að hafa lesið það eða heyrt einhvers staðar.  Kannski dreymdi mig það.

  Hér spilar Lena í eldhúsinu heima hjá sér á meðan hún bíður eftir að suðan komi upp á kartöflunum.

  Hljómleikarnir með Lenu eru í Kaldalóni í Hörpu klukkan 19.00.  Það er ókeypis inn á alla þessa hljómleika.  

  Hanus hélt vel heppnaða hljómleika í Austurbæ í Reykjavík 2002.  Lena hefur einnig haldið hljómleika hérlendis.  Ég man eftir henni á Grand Rokk og á Nasa.  Ég er ekki klár á ártölunum.

  Hanus og Lena skemmta jafnframt í Sendistofu Færeyja í Austurstræti.  Þar er opið hús frá klukkan 14.00 til 18.00.  Boðið er upp á smakk á færeyskum mat,  glerlistasýningu, málverkasýningu, kvikmyndasýningu og sitthvað annað.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mæti, ekki spurning.

Sigurður I B Guðmundsson, 17.8.2012 kl. 21:59

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Fögnum færeysku innrásinni

Sigurður Þórðarson, 18.8.2012 kl. 10:34

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir að upplýsa okkur um þessa frábæru færeysku listamenn Jens minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.8.2012 kl. 11:43

4 identicon

takk,mæti á

Sendistovu Færeyja

Arnar (IP-tala skráð) 18.8.2012 kl. 18:10

5 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður I.B., þetta var góð skemmtun.

Jens Guð, 18.8.2012 kl. 22:40

6 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður,  algjörlega!

Jens Guð, 18.8.2012 kl. 22:40

7 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  mín er ánægjan.

Jens Guð, 18.8.2012 kl. 22:41

8 Smámynd: Jens Guð

  Arnar,  takk sömuleiðis.

Jens Guð, 18.8.2012 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.