Fćrsluflokkur: Mannréttindi
6.12.2014 | 17:42
Hvađa ţjóđir njóta mesta netfrelsis?
Í útlöndum er til stofnun sem mćlir netfrelsi hinna ýmsu ţjóđa. Hún heitir Freedom house. Allt sem snýr ađ netfrelsi er skođađ. Međal annars út frá ţví hvort eđa hvađa skorđur yfirvöld setja á umgengni almennings viđ netiđ. Til ađ mynda hvort ađ einhver forrit séu bönnuđ eđa ađgengi ađ ţeim takmörkuđ og bara allskonar. Listinn yfir ţćr ţjóđir sem búa viđ mesta netfrelsi er forvitnilegur. Ekki síst fyrir okkur Íslendinga. Ţessi lönd tróna á toppnum:
1 Ísland
2 Eistland
3 Kanada
4 Ástralía
5 Ţýskaland
Íranar búa viđ minnst netfrelsi. Ţar er eiginlega flest blokkerađ eđa stranglega bannađ. Sýrlendingar koma ţar nćst. Síđan eru ţađ Kínverjar. Kúbanar eru í fjórđa neđsta sćti. Á hćla ţeirra koma Eţíópar.
Ekki reyndist unnt ađ mćla netfrelsi í N-Kóreu. Enginn ţeirra íbúa sem rannsóknarteymiđ rćddi viđ ţar í landi hafđi hugmynd um hvađ internet er.
-----------------------------------------------------------
Mannréttindi | Breytt 10.1.2016 kl. 11:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
22.11.2014 | 18:31
Byssan er saklaus
Byssur drepa engan. Ţessu halda margir fram í kjölfar ţess ađ hafa sett upp spekingslegan svip og tekiđ í nefiđ. Ef vel er ađ gáđ er ţađ alveg rétt ađ byssur drepa engan. Ekki fremur en handsprengjur, kjarnorkusprengjur, eldflaugar, eiturefnavopn eđa rafmagnsstóllinn. Ţađ er ástćđulaust ađ agnúast út í ţetta dót. Drápstćkin eru saklaus uns sekt er sönnuđ. Sökin liggur hjá manneskjunum sem misnota leikföngin. Svo geta alltaf orđiđ slys. Eins og gengur. Ţau gera ekki bođ á undan sér.
![]() |
Skotinn til bana fyrir slysni |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt 18.12.2015 kl. 18:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2014 | 22:22
Ofbeldi og níđingsháttur
Fyrir nokkrum árum bloggađi ég ítrekađ um deilu tónlistarmannsins Hebba Guđmunds viđ nágranna sína í sömu rađhúsalengju viđ Prestbakka. Sjá m.a. http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1226373/ Vegna ţessa máls fer Hebbi í gjaldţrot í komandi jólamánuđi ljóss og friđar.
Eins og sést á stöđu innheimtumáls vegna ósanngjarnar kröfu um ţátttöku Hébba í ţakviđgerđum nágranna sinna er hann nú krafinn um nćstum 11 milljónir króna. Ţar af eru dráttarvextir nćstum 4 millur + vextir af kostnađi 630 ţús kr. Innheimtuţóknun er 530 ţús kall. Og svo framvegis. Sjálf krafan er 3,6 millur. En ţegar öllu hinu hefur veriđ smurt ofan á er upphćđin komin í 10,6 millur. Svona er Ísland í dag. Ţetta er geggjađ. Ţetta er ofbeldi.
___________________________
Ţetta var vinsćlasta lagiđ á Íslandi á sjötta áratugnum.
Mannréttindi | Breytt 18.11.2014 kl. 12:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
10.10.2014 | 17:46
Áfall Sveinbjargar Birnu
Í Viđskiptablađinu má lesa um andúđ Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur á styrkveitingu sem Jón Gnarr fékk úr friđarsjóđi Lennon Ono. Styrkinn, sex milljónir króna, veitti Jón Kvennaathvarfinu. Sveinbjörg Birna er borgarfulltrúi í Reykjavík (en búsett í Kópavogi). Samkvćmt Viđskiptablađinu furđar Sveinbjörg Birna sig á ađ Jón Gnarr hafi tekiđ viđ styrknum. Sjálf segist Sveinbjörg ekki hefđi gert slíkt.
![]() |
Styrkurinn til friđar á heimilum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt 11.10.2014 kl. 16:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
23.9.2014 | 00:33
Stjörnurnar sem risu upp gegn kynţáttahatri
Langt fram eftir síđustu öld voru gríđarlega miklir kynţáttafordómar, kynţáttahatur og kynţáttamisrétti ríkjandi í Bandaríkjum Norđur-Ameríku. Ástandiđ var svo svakalegt ađ nútímamanneskja, almenningur í dag, á erfitt međ ađ skilja hversu djúpstćtt ţetta var - einkum í Suđurríkjunum.
Tvćr manneskjur áttu stćrstan og róttćkastan ţátt í ađ slá hratt og rćkilega á ţennan viđbjóđslega rasisma. Annarsvegar var ţađ rokksöngvarinn Elvis Presley um miđjan sjötta áratuginn. Hinsvegar leikkonan Marilyn Monroe örlitlu síđar.
Elvis Presley var hvítur söngvari í Memphis, Tennessee. Ţví sem kallast Djúpa-suđriđ. Ţar var kynţáttahatur nomiđ. Elvis var hinsvegar ónćmur fyrir kynţáttahatri. Ţvert á móti ţá hafđi hann dálćti á svertingjablús og bar mikla virđingu fyrir annarri blökkumannatónlist. Til ađ mynda gospell.
Í upphafi ferils stóđ til ađ Elvis myndi gera út á kántrý í bland viđ blökkumannablús. Hann varđ strax fyrir hatursfullum viđbrögđum vegna blökkumannatónlistarinnar. Hann var úthrópađur "negrasleikja" og hótađ ađ vera útilokađur frá markađnum. Ţetta hafđi ţveröfug áhrif á unga uppreisnarmanninn sem sá ekkert nema óréttlćti í ţví kynţáttahatri sem hann mćtti.
Í stađ ţess ađ láta undan hótunum blés hann til sóknar. Hann tilkynnti hljómsveit sinni og umbođsmanni ađ vegna hótana og ofsókna myndi hann breyta dagskrá sinni úr kántrýi yfir í eintóma blökkumannablúsa. Sem hann stóđ viđ. Ţar međ stimplađi hann nýtilkomna rokkbylgju sjötta áratugarins inn sem blökkumannabylgju. Rokkbylgjan fór í hćstu hćđir 1955 - 1958. Presley flaug ţar efst en á hćla hans komu Jerry Lee Lewis, Chuck Berry, Little Richards og Fats Domino. Rokkbylgjan var blökkumannatónlist og engin greinarmunur gerđur á hörundslit rokkaranna. Hörundsdökki Chuck Berry samdi lögin. Hörundsdökki Little Richards sum af ţeim. Og allir sungu sömu lögin. Komu saman fram á hljómleikum og almenningur hćtti ađ greina tónlist, rokkiđ, út frá hörundslit.
Án MM hefđi heimurinn aldrei heyrt af Ellu.
![]() |
Ljósmynd af Marilyn Monroe fyrir 817.000 krónur |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
20.9.2014 | 21:44
Vond ţjónusta vínbúđanna kallar á nýjar leiđir
Íslenskar vínbúđir veita afleita ţjónustu. Fćstar eru opnađar fyrr en klukkan 11.00. Sumar ekki fyrr en klukkan 16.00 eđa 17.00. Síđan er ţeim flestum lokađ klukkan 18.00. Margar eru lokađar á laugardögum. Og allar eru ţćr eru ţćr harđlćstar á sunnudögum. Einmitt ţegar einna mest ţörf er fyrir ţví ađ ţćr séu opnar.
Ađ auki eru brögđ ađ ţví ađ sumar vínbúđir hafi ekki bjórkćli.
Einna verst er ađ vínbúđir bjóđa ekki upp á heimsendingu á neinu áfengi. Hvorki bjór, léttvíni, sterku víni né landabruggi. Fáir ţurfa ţó meira á heimsendingu ađ halda en neytendur áfengra drykkja. Margir eiga ekki heimangengt vegna ölvunar, veikinda, öldrunar, ţreytu og skilningsleysis (og óliđlegheita) maka.
Afleit ţjónusta vínbúđanna hrópar á nýjar leiđir. Mestu munar um ađ fyrirhugađ frumvarp um afnám einkaréttar ÁTVR á áfengissölu. Ţađ frumvarp er gott og tímabćrt, svo vćgt sé til orđa tekiđ. En gengur full skammt ađ mörgu leyti. En er áríđandi skref í rétta átt.
Nćsta skref er ađ bjóđa upp á heimsendingu á áfengum drykkjum. Hún er ađ vísu til stađar og nýtur mikilla vinsćlda. Gallinn er sá ađ úrvaliđ er ađeins landi og eiturlyf. Ađallega hass, amfetamín og E-pillur.
![]() |
Fólk fái áfengiđ heim ađ dyrum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
18.9.2014 | 20:29
Rokkstörnurnar styđja sjálfstćđi Skota
Fjöldi rokkstjarna utan Skotlands hefur lýst opinberlega yfir stuđningi viđ skosku Já-hreyfinguna. Hún leiđir baráttuna fyrir ţví ađ Skotland segi sig formlega úr sambandríkinu Stóra-Bretlandi. Mikiđ er í húfi. Ekki síst fyrir afganginn af Stóra-Bretlandi. Ţađ verđur heilmikiđ tjón fyrir íbúa ţess ađ missa Skotland úr sambandsríkinu. Ađ sama skapi er líklegt ađ sjálfstćđi verđi Skotum til framdráttar.
Međal rokksjarna sem opinberlega styđja Já-hreyfinguna má nefna Björk, Johnny Marr (The Smiths), Matt Bellamin (The Muse) og Billy Bragg. Í ţessum hópi eru líka skoskar stjörnur á borđ viđ Edwin Collins, Alex Kapranos (Franz Ferdinand), Stuart Braithwaite (Mogwai) og liđsmenn Deacon Blue.
Paul McCartney styđur hinsvegar Nei-hreyfinguna, eins og fleiri af eldri kynslóđinni. Til ađ mynda Mick Jagger, David Gilmour (Pink Floyd), Bryan Ferry, Sting, Cliff Richard og David Bowie.
![]() |
Skotar líta til Norđurlanda |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
1.9.2014 | 23:54
Viđbjóđsleg framkoma íslenskra embćttismanna gagnvart Fćreyingum
Fćreyskt skip, Nćraberg, lenti í nauđ. Vélarbilun viđ makrelveiđar í grćnlenskri lögsögu. Ţađ náđi ađ skrölta til Íslands á fjögurra hnúta hrađa. Móttökurnar á Íslandi voru til skammar. Ţćr einkenndust af embćttismannahroka og rembingi. Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar, Ásgrímur Ásgrímsson, bannfćrđi skipiđ međ ţađ sama. Bannađi alla ţjónustu viđ skipiđ. Skipsverjar máttu ekki einu sínni fara frá borđi. Ţeir máttu hvorki kaupa vistir né eldsneyti í íslenskri höfn.
Sjávarútvegsráđherra lýsti yfir ógildingu á banninu. En fylgdi ţví ekki eftir af neinum ţunga. Hrokafull afstađa íslenskra embćttismanna fékk ađ leika lausum hala dögum saman. Viđbrögđ íslensks almennings voru ţau ađ hátt í 14 ţúsund manns studdi á Fésbók afsökunarbeiđni til Fćreyinga. Sömuleiđis tóku einstaklingar upp á ţví ađ fćra áhöfn Nćrabergs hamborgara og gosdrykki. Ţađ var niđurlćgjandi fyrir alla ađila - ţó ađ reisn vćri yfir uppátćkinu út af fyrir sig.
Allt bull um lög frá 1998 um samskipti viđ Fćreyinga höfđu og hafa ekkert gildi eftir ađ fríverslunarsamningur viđ Fćreyinga 2006 gekk í gildi.
Framkoma íslenskra embćttismanna í garđ Fćreyinga er viđbjóđur. Nćsti bćr viđ hrokafullt erindi Ölgerđarinnar, kröfu um ađ frábćrt Föroya Bjór Gull sé tekiđ af markađi. Styđjiđ Fćreyinga í verki međ ţví ađ kaupa Föroya Bjór Gull og sniđgangiđ vörur frá Ölgerđinni.
Ég fordćmi hroka og yfirgangssemi íslenskra frekjuhunda í garđ Fćreyinga. Ég er búinn ađ setja viđskiptabann á Ölgerđina Egil Skallagrímsson. Óţverrafyrirtćki.

![]() |
Fćreyska skipiđ fariđ frá Íslandi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt 2.9.2014 kl. 12:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
29.8.2014 | 22:40
Aulagangur hrokafyllstu Íslendinga ríđur ekki viđ einteyming
Skammt er stórra högga á milli í keppni hrokafyllstu Íslendinga í ókurteysi, yfirgangssemi og frekju í garđ Fćreyinga. Fyrst gekk fram Andri Ţór, forstjóri Ölgerđarinnar Egill Skallagrímsson. Međ verulega ókurteisu, frekjulegu og yfirgangssömu bréfi til Föroya Bjór hótađi hann öllu illu ef Föroya Bjór Gull yrđi ekki umsvifalaust tekiđ af markađi. Krafan var ósanngjörn, heimskuleg og óraunhćf. Frekjukast án innistćđu.
Frekjuhundurinn gerđi sig ađ athlćgi. Og ekki í fyrsta skipti. Aulalegt frekjukast hans skilađi ţví ađ sala á Föroya Bjór Gull óx um 1200% á Íslandi í síđustu viku. Á sama tíma sór fjöldi Íslendinga ţess heit ađ kaupa engar vörur frá Ölgerđinni fyrr en hrokafulla frekjukast Andra Ţórs rjátlađist af honum.
Nćst gerist ţađ ađ fćreyskt skip, Nćraberg, lendir í vandrćđum. Bilun og nćr međ erfileikum ađ koma sér í íslenska höfn. Ţá tekur á móti ríkisrekinn embćttismađur hjá Landhelgisgćslunni, Ásgrímur Ásgrímsson. Hann belgir sig út og neitar um alla ađstođ. Bannar skipsverjum landgöngu, bannar afgreiđslu á eldsneyti, bannar liđsinni viđ viđgerđ.
Embćttismađurinn útbelgdi ber titilinn framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar.
Ţökk sé Óđni og Ţór ađ hann fer ekki međ alrćđisvald. Seint og síđar meir tókst stjórnvöldum ađ gera hann afturreka međ rembinginn. Nćraberg fćr ţá ađstođ sem ţarf. Framkvćmdastjóri ađgerđarsviđs Landhelgisgćslunnar grćtur sig í svefn í kvöld. Niđurlćgđur.
![]() |
Vandar Íslendingum ekki kveđjurnar |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Mannréttindi | Breytt 30.8.2014 kl. 18:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (22)
27.8.2014 | 20:29
Sea Shepherd-liđi laminn í Fćreyjum

Bandarísku hryđjuverkasamtökin Sea Shepherd hafa haldiđ til í Fćreyjum í sumar. Ţar eru ţau í herferđ gegn hvalveiđum. Herferđin kallast Grind Stop 2014. Hún hófst í byrjun júní og átti ađ standa fram í miđjan ágúst. Einhverra hluta vegna hafa 100 Sea Shepherd-liđar orđiđ ţaulsćtnari í Fćreyjum en upphaflega var ćtlađ.
Svo óheppilega vildi til ađ á dögunum lamdi Fćreyingur einn Sea Shepherd-liđa. Sá síđarnefndi stóđ vaktina, góndi út á haf í heilan dag og skimađi eftir hval. Rétt eins og ađrir SS-liđar gera alla daga í Fćreyjum. En ekkert gerist. Nema ţađ ađ ţegar komiđ var undir miđnćtti ţá lamdi ofurölvi Fćreyingur manninn tvívegis í höfuđiđ. Sá segir SS-liđann hafa áreitt sig og föđur sinn, hvalveiđimann.
Fćreyingar eru ósáttir viđ ţessa uppákomu. Ţeir eru friđsamir og leggja mikiđ upp úr friđsamlegum samskiptum viđ allt og alla. Réttilega telja ţeir ţetta vera fordćmanlega framkomu í garđ gests í Fćreyjum. Ţar fyrir utan fćrir ţetta Sea Shepherd öflugt áróđursvopn upp í hendur. Núna stillir Sea Shepherd sér upp sem hópi fólks međ fallega hugsjón, hetjum sem standi vaktina í ađ vernda "mannréttindi" hvala ţrátt fyrir gróft ofbeldi og annađ mótlćti sem ţćr sćta.
Sea Shepherd hefur ţegar nýtt sér uppákomuna í botn. Sent heimspressunni frásögn af barsmíđunum ásamt ljósmyndum af fórnarlambinu. Ţćr eru ljótar:


Sea Shepherd kćrđi líkamsárásina ţegar í stađ. Ofbeldismađurinn viđurkenndi sök sína undanbragđalaust.
Viđ tók einkennileg atburđarrás. Ljósmyndir Sea Shepherd passa ekki viđ lýsingu á ţví sem gerđist. Einhverjir sem ţekkja betur en ég til áverka eftir tvö högg í höfuđiđ fullyrđa ađ litur á mari sé ekki svona strax eftir höggin.
Fórnarlambiđ segir ađ árásarmađurinn hafi margbrotiđ fingur hans. Ţess vegna sé hann í fatla.
Ţeir sem eru mér fróđari um svona segja ađ fingurbrot kalli á gifsumbúđir. Umbúđirnar á myndinni eru hinsvegar losarlega vafiđ sárabindi.
Ţar fyrir utan vekur upp spurningar hvers vegna mađur sem telur sig sitja uppi međ margbrotna fingur leitar ekki til slysavarđstofu heldur býr sjálfur um margrotna fingur međ sárabindi. Eđlilegast vćri ađ fá röntgenmynd af fingurbrotunum til ađ leggja fram fyrir dómi vegna árásarkćrunnar.
Ţrátt fyrir ţetta hafa margir af SS-liđum í Fćreyjum vitnađ á Fésbók um undrun sína á ţví hvađ Fćreyingar almennt eru hlýjar og góđar manneskjur. Ţađ ţekkjum viđ Íslendingar sem fariđ hafa til Fćreyja heldur betur. Meira ađ segja formađur SS, Paul Watson, hefur á Fésbók vitnađ um elskulegheit Fćreyinga.
Paul Watson hefur ţó ekki komiđ til Fćreyja í sumar. Hann hefur samt látiđ sem svo sé. Hann birtir međ Fésbókarfćrslum sínum ljósmyndir af sér í Fćreyjum frá árinu 2011. Í fćrslunum verđur ekki annađ ráđiđ en ađ hann sé í Fćreyjum.
Mannréttindi | Breytt 28.8.2014 kl. 10:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)