Færsluflokkur: Mannréttindi

Áríðandi leiðbeiningar fyrir húsmæður

húsmóðirhúsmóðirAhúsmóðirBhúsmóðirChúsmóðirDhúsmóðirEhúsmóðirF 

  Það vill vefjast fyrir margri góðri stúlkunni hvernig eðlilegast og sjálfsagt er að haga sér inni á heimili.  Hún er óörugg og veit ekki hvernig umgangast skal eiginmanninn þegar hann kemur örþreyttur heim úr vinnunni.  Mér er ljúft að bæta úr þessu með því að birta hér leiðbeiningar úr kennslubók í heimilisfræði.  Þetta er nýleg bók,  eða frá 1950.  Von er á nýrri og endurbættri útgáfu 2050.  Þangað til gildir þessi.  Ef vikið er frá leiðbeiningunum er næsta víst að hjónabandið lendi í hættu.  Því er nauðsynlegt að prenta þetta út og hengja á ísskápinn.

 

Leiðbeiningar úr kennslubók í heimilisfræði

Þetta er konum ráðlagt til að halda hjónabandi góðu:
  1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.
  2. Notaðu 15 mínútur til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur heim. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
  3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
  4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
  5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
  6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þótt hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minni háttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn. 
  7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúminu. Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
  8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þótt hann fari aldrei með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af þreytu látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.

Jenis av Rana í predikunarferð til Íslands

jenis av rana

  Færeyski lögþingsmaðurinn,  trúarleiðtoginn,  heimilislæknirinn og formaður Miðflokksins er grátklökkur yfir þeim stuðningskveðjum sem rignt hefur yfir hann frá Íslendingum.  Einkum eru Íslendingarnir fagnandi yfir brotum Jenisar av Rana á lögum um upplýsingaskyldu er hann beitti þöggun varðandi barnaníð innan trúfélags síns.  Svo ekki sé minnst á skelegga baráttu Jenisar fyrir því að nýlegt lagaákvæði #266b verði afnumið.  Það kveður á um að bannað sé að ofsækja samkynhneigða.  Jenis av Rana vill að refsilaust sé að lemja homma.  Enda sé það nauðsynlegt þeim til góða svo þeir brenni ekki um eilífð í vítislogum.  Það er kvalafullt.  Jenis av Rana vill ekki að neinn þurfi að upplifa slíkan sársauka.  Og það svona lengi.

  Nú er Jenis av Rana á leið í predikunarferð til Íslands.  Trúfélag nokkurt hefur boðið honum að boða fagnaðarerindi sitt á samkomu hjá því.  Ekki fylgir sögunni um hvaða trúfélag er að ræða.  Aðeins að samkoman verði haldin stutt frá Reykjavík.  Jenis av Rana ætlar að grípa með sér vanan forsöngvara til að gera viðburðinn hátíðlegri.

  Grunur leikur á að Jenis av Rana muni í leiðinni halda námskeið til að kenna hvernig heppilegast er að lumbra með Biblíunni á hommum.  Annað námskeið,  þar sem kennt er hvernig þagga eigi niður barnaníð,  er óþarft.  Íslensku trúfélagarnir eru þaulvanir í því.  Eiginlega atvinnumenn. 

  Áður hefur komið fram að innan um stuðningskveðjurnar frá Íslandi leyndist kveðja frá forstöðumanni 1000 manna trúfélags.  Þau íslensku trúfélög sem eru næst því að vera með 1000 félagsmenn koma varla til greina.  Það eru Ásatrúarfélagið með um 1500 félaga og Búddistar sem eru um 900.  Önnur trúfélög eru töluvert fjölmennari eða fámennari.  Þetta er dularfullt.

  Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort aðrir en íslenskir uppklapparar Jenisar av Rana sýni einhver viðbrögð við heimsókn hans og predikun stutt frá Reykjavík.

  Jenis av Rana hefur einnig orðið var við stuðning heima fyrir.  Hann er með 25 undirskriftir frá Færeyingum undir höndunum því til staðfestingar. 


Jenis av Rana skýtur sig í fótinn - II

  Í næstu bloggfærslu hér fyrir neðan geri ég grein fyrir því hvernig Jenis av Rana hefur tapað tiltrú almennings í Færeyjum á málflutningi hans.  Færeyingar almennt skammast sín fyrir öfgafullan málstað hans.  Það er mikilvægt að halda því til haga.  Gott dæmi um viðbrögðin er opið bréf guðfræðingsins Árna Zachariassen til Jóhönnu Sigurðardóttur.  Sjá:  http://www.arnizachariassen.com/ithinkibelieve/?p=1187

  Árni er virtur blaðamaður á dagblaðinu Dimmalætting (færeyska Mogganum).  Færeyska áfladrottningin Eivör hefur hingað til ekki verið yfirlýsingaglöð á opinberum vettvangi um pólitík eða trúarmál.  Nú er henni nóg boðið.  Hún hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu á fésbók sem útleggst:  "Ég set sjaldan hér inn yfirlýsingar en Jenis fær mig til að fyllast af skömm fyrir að vera Færeyingur!!!!!!":

Eg skrivi sjálvdan slíkar viðmerkingar inni her, men Jenis far meg at føla skomm yvir at vera føroyingur!!!!!!Eivør Pálsdóttir

 

 


mbl.is Danir blása Jenis-málið út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona elur kálf við brjóst sér

  Hindúar og fleiri á Indlandi standa í þeirri trú að beljur séu heilög dýr.  Hið rétta er að beljur eru verulega heimsk dýr og fjarri því heilög.  En indversk kona hefur tekið upp á því að ala heilagan kálf við brjóst sér.  Hér má sjá hana gefa kálfnum á brjóst:  http://www.telegraph.co.uk/news/newsvideo/weirdnewsvideo/7972680/Indian-woman-breastfeeds-calf.html

  Konan segir guðina vera hina glöðustu með uppátækið.

 


Er biskup með mynd af barnaníðingi uppi á vegg hjá sér?

  Þegar ég var krakki og unglingur skreytti ég vegg í herberginu mínu með stórum myndum af uppáhalds rokkstjörnunum mínum.  Núna hafa þær myndir vikið fyrir myndum af börnum mínum og afastelpunni.  Þetta er algengur siður:  Að fólk hafi uppi á vegg hjá sér myndir af því fólki sem þeim er hjartfólgnast.

  Hvaða mynd ætli skipi stærstan sess hjá Karli Sigurbjörnssyni þessa dagana?  Getur verið að það sé risastór mynd af manni sem er umtalaðastur fyrir nauðganatilraunir gegn fjölda kvenna og barnaníð?  Getur verið að Karl sé með í veskinu sínu mynd af Steingrími Njálssyni?

biskoppar


mbl.is Boða rannsóknarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðdáunarvert hugrekki Guðrúnar Ebbu - skráið ykkur á stuðningssíðu hennar!

  Þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði Ólaf Skúlason um nauðgunartilraun kom það ekki öllum á óvart.  Stúlkur sem stunduðu nám í Réttarholtsskóla er Ólafur var þar kennari vissu að þær mættu aldrei vera einar hjá honum.  Stelpurnar brýndu þetta hver fyrir annarri og pössuðu upp á hver aðra gagnvart Ólafi.  Það var á allra vitorði í skólanum að hann væri perri sem sætti lagi við að áreita stelpur kynferðislega.

  Sigrún Pálína mætti hinsvegar lokuðum dyrum hjá kirkjunnar mönnum og var hvött til að hafa hljótt um atburðinn.  Skref Sigrúnar varð öðrum fórnarlömbum Ólafs hvatning til að stíga einnig fram.  Eitt þeirra uppskar þau viðbrögð að fjölskylda hennar skrifaði Ólafi bréf.  Þar lýsti fjölskyldan yfir stuðningi við Ólaf og sagði fórnarlamb hans vera ímyndunarveikt.

  Eftir því sem þeim fjölgaði,  fórnarlömbum Ólafs, er komu fram með ásakanir á hendur honum fjölgaði stuðningsmönnum Ólafs einnig.  Fólk sendi honum blómvendi og stuðningsyfirlýsingar út og suður.  Enn í dag má sjá stuðning við Ólaf á fésbók og bloggi. 

  Tímarnir eru þó breyttir.  Í dag eru fleiri tilbúnir að hlusta á fórnarlömb kynferðisofbeldis.  Viljinn til að sópa þeirra málum undir teppi er minni en var.  Samt tók það biskup og kirkjuráð HÁLFT ANNAÐ ÁR að verða við beiðni Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um að fá áheyrn.  Á sama tíma stakk biskupinn undir stól bréfi frá organista Ólafs Skúlasonar.  Þar vottaði organistinn að Ólafur hafi verið haldinn kynferðislegu óeðli. 

  Biskupinn beit síðan - glottandi - höfuðið af skömminni með því að væna Guðrúnu Ebbu um ósannindi.  Þetta eru skilaboðin frá æðsta og hæst launaðasta embættismanni ríkiskirkjunnar til fórnarlamba barnaníðs og annars kynferðisofbeldis af hálfu ríkispresta.

  Framganga Guðrúnar Ebbu er klárlega mikill styrkur fyrir fórnarlömb Ólafs og önnur fórnarlömb barnaníðs og kynferðisofbeldis.  Vottum Guðrúnu Ebbu virðingu fyrir hugrekki sitt og framgöngu.  Það er hægt að gera með skráningu á fésbókarsíðu til stuðnings henni:  http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=110308905690499&ref=ts 

  Á síðunni er einnig vísað á áhugaverðar greinar um sitthvað þessu tengt.

www.aflidak.is

www.stigamot.is

Ólafur Skúlason


mbl.is Lýsti alvarlegum brotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pilla sem kemur í veg fyrir að stúlkur verði samkynheigðar

  Þeim dettur margt í hug í útlöndum.  Stundum er eins og þeir hafi ekki annað að gera en láta sér detta eitthvað í hug.  Nú hafa einhverjir í útlöndum fundið út að ef þungaðar konur ganga með kvenfóstur þá geta þær,  með því að taka inn pillu,  komið í veg fyrir að það verði samkynhneigt. 

  Pillan er upphaflega á markaði til að takast á við erfðasjúkdóm sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku.  Enska heitið er "Congenital Adrenal Hyperplasia". 

  Talið er að vitneskjan um þessa pillu muni í framtíðinni draga verulega úr fæðingu samkynhneigðra stúlkna í Bandaríkjunum og kannski víðar.  Þá má spyrja:  Til hvers? 

  Hvað segja Madonna og Britney Spears um þetta?

madonna_britney


mbl.is Lyfjasala dregst saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur lífvörður Eivarar

sigurður ívarsson

  Fyrir nokkru upplýsti ég á bloggi mínu um Íslending sem stendur í þeirri trú að þau færeyska álfadrottningin Eivör séu par eða hjón.  Þetta vakti mikla athygli.  Enda sérkennilegt mál.  Eivör reyndi - án árangurs - að fá sett á hann nálgunarbann.  Meðal annars vegna þess að hann hefur:  Tjaldað í garðinum hennar í Götu í Færeyjum;  kveikt einskonar "áramótabrennu" á ströndinni fyrir neðan húsið hennar;  hótað umboðskonu hennar að kveikja í húsi henni og svo framvegis.  Hann stendur í þeirri trú að umboðskonan standi í vegi fyrir hjónabandi hans og Eivarar.  Hann hefur skrifað Eivöru allt upp í 10 bréf á dag og tjáð sig um þau á færeyskri spjallrás (þeim skeytum var eytt af rásinni).  Að auki dúkkar hann upp á hljómleikum Eivarar í Færeyjum,  Danmörku og Íslandi. 

  Þessi maður er það sem á ensku kallast "stalker" og hefur verið þýtt á íslensku sem eltihrellir.  Margir,  bæði í Færeyjum og hérlendis,  hafa RANGLEGA,  ruglað umræddum manni saman við annan Íslending.  Sá hefur tekið að sér það hlutverk að vera lífvörður Eivarar,  án hennar beiðni.  Sjálfboðaliði og öllu vanur.  Hann hefur tekið í hnakkadrambið á eltihrellinum í Færeyjum og hótað honum.

  Á Færeyskum fjölskyldudögum passaði umræddur upp á Eivöru eins og sjáaldur auga síns.  Hann var hvarvetna á varðbergi gagnvart því að eltihrellirinn myndi skjóta upp kolli þar;  kannaði allar mögulegar útgönguleiðir þar sem Eivör var stödd,  skannaði stöðugt gestafjöldann í leit að varhugaverðum eltihrellum og annað í þeim dúr.

  Lífvörðurinn er duglegur við að setja yfirlýsingar á fésbókina;  ýmist eru það skilaboð til Eivarar eða Björgólfsfeðga.  Ég skil þau ekki öll alveg.  Enda fattlaus.  Í einum skilaboðunum upplýsti hann Eivöru um að hann væri búinn að upplýsa lögregluna í Svíþjóð um íslenska eltihrellinn.  Ég skildi þessa tilkynningu.  Og sumar aðrar.  Í yfirlýsingunni sagði einnig að sænska lögreglan myndi gæta Eivarar eftir að hafa fengið þessar upplýsingar.  Í kjölfar rosalega flottra hljómleika á Stokkseyri fór Eivör beint í hljómleikahald í Svíþjóð. 

  Hér eru nokkrar yfirlýsingar af fésbók lífvarðarins: 

  "EIVOR PÁLSDÓTTIR THE BEST IN THE WORLD"

  "Gud blessi tig tu hefur líferdi í sviðtjód tad er orderad eða klart eg hef gert tad klart svo tú ert örugg eivor palsdóttir.kvedja.svanur ivarsson.syngdu med hjartanu.gud veri hja ter"

"BJORGÓLFUR THOR BJORGÓLFSSON
$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$...ÁFRAMM MED ÞIG...$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$..."

.
  "GUÐ BLESSI ÞIG" (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "ÞÚ ERT GULLMOLI TÓNLEIKAR ÞÍNIR VORU GJÖRSAMLEGA Á HEIMSMÆLIKVARÐA"
 
  "HAFDU TAD GOTT GULLMOLI FÆREYJAR EG VAR AD TALA VIL LOGREGLUNA I THORSHAVN BAD HANA AD HAFA SAMBAND VID LOGREGLUNA I SVITJOD SVO TU ATT EKKI AD TURFA AD OTTAST NEITT"
.
  "(ÓSKABARN ÍSLANDS)%%%%%%%%%%( BJORGÓLFUR THOR BJORGÓLFSSON )%%%%%%%%%%%%%"
.
  "BEST BEST BEST BEST BEST IN THE WORLD"  (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "(BJÖRGÓLFUR)(THOR)(BJÖRGÓLFSSON)  EKKI BORGA EINA KRÓNU TIL ÍSLANDS EKKI EINA KRÓNU."
.
  "LANDSBANKINN SKAL OPNA Á STOKKSEYRI"  (Ljósmynd af Eivöru fylgir)
.
  "HEILL OG SÆLL BJÖRGÓLFUR THOR MIG LANGAR TIL AÐ SETJA TIL ÞÍN ÁBENDINGU UM AÐ ALLAR RENNUR LANDSBANKANS ERU STÍLFLAÐAR ÞAÐ ER EKKI AÐ VIRKA FINNBJÖRN OG ÉG ERUM AÐ FARA AD KAUPA VINNULYFTU FRÁ VINNULYFTUM GARÐABÆ"
.
  "VEGNA VANÞAKKLÆTIS SKAL BJÖRGÓLFUR (THOR) BJÖRGÓLFSSON (EKKERT) (BORGA) AF (SÍNUM SKULDUM)"

    


Sólböð gegn sykursýki, krabbameini, þunglyndi, beinþynningu...

  Sífellt hlaðast upp sannanir fyrir því að sólböð eru holl og góð í flesta staði.  Hreint og klárt lífsnauðsynleg góðri heilsu.  Engu að síður stóðst Álfheiður Ingadóttir ekki mátið á dögunum og festi í lög að Íslendingum undir 19 ára aldri sé stranglega bannað að fara í sólbað að viðlögðum háum fjársektum,  fangelsun og eignarupptöku á sólkremum sem notuð eru við lögbrotið.

  Nú var sænsk rannsókn að staðfesta það sem margar eldri kannanir hafa bent til:  Að sólböð eru mikil og góð vörn gegn sykursýki.  Þau draga úr líkum á sykursýki um 30%.  

Sjá:  http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/solbod-heilsusamleg-samkvaemt-nyrri-saenskri-rannsokn---dregur-ur-likum-a-sykursyki

http://naturalnews.tv/v.asp?v=234

http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1067220/

   tanningaa


mbl.is Útlit fyrir gott helgarveður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bókarumsögn

Bráðar eru blóðnæturþórarinn Gunnarsson

Titill:  Bráðar eru blóðnætur
Höfundur:  Þórarinn Gunnarsson
Flokkur:  Sakamál,  spenna
Útgefandi:  Tölvuland ehf.
  Bráðar eru blóðnætur  er þriðja skáldsaga Þórarins Gunnarssonar.  Þær fyrri eru  Ógn  (2007) og  Svartar sálir  (2008).  Ég hef ekki lesið eldri bækurnar.  Eftir að hafa lesið  Bráðar eru blóðnætur  er freistandi að komast í eldri bækurnar.
  Megin sögusvið  Bráðar eru blóðnætur  er höfuðborgarsvæðið.  Sagan byrjar bratt.  Það er strax allt að gerast.  Raðmorðingi slátrar horuðum fyrirsætum út og suður.  Tvær dömur láta sitt ekki eftir liggja.  Þær slátra öldruðum barnaníðingum hverjum á fætur öðrum.
  Við fylgjumst með lögreglunni átta sig hægt og bítandi á hvað er í gangi.  Sagan er sögð frá mörgum sjónarhornum til skiptis.  Það er klippt snöggt á milli þessara sjónarhorna.  
  Til að byrja með eru þessar hröðu skiptingar örlítið ruglingslegar.  Fljótlega venjast þær vel og verða ómissandi hluti af andrúmslofti hraðans og spennunnar.
  Yfirleitt les ég bækur í áföngum.  Það gekk ekki með  Bráðar eru blóðnætur.  Ég byrjaði í þrígang á henni.  Þegar ég ætlaði nokkrum dögum síðar að taka upp þráðinn gekk það ekki upp.  Stemmningin er þannig að það verður að lesa bókina á einni striklotu.  Bæði til að halda þræðinum og muna það sem gengið hefur á í fyrri hluta sögunnar en einnig til að fylgja dampi framvindunnar.
  Bókin er hörkuspennandi.  Þrátt fyrir að mikið gangi á er sagan nokkuð trúverðug.  Hún hefði ekki verið það á síðustu öld.  En í alþjóðumhverfi á Íslands í dag,  mansals,  barnaníðs og allskonar annars ofbeldis er þetta trúverðugt - þó ýkt sé. 
  Þórarinn Gunnarsson er pennafær.  Samtöl eru eðlileg og margir endar flækjunnar haganlega saman hnýttir.  Það er hvergi dauðan punkt að finna  Fyrst og síðast er bókin spennandi og skemmtileg þrátt fyrir að vera óhugnanleg á köflum.  Hún vekur jafnframt lesandann til umhugsunar um óhugnað barnaníðs.  Bókarkápa Kristjönu Albertsdóttur er við hæfi.
.
      .
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband