Fćrsluflokkur: Heilbrigđismál
6.2.2016 | 12:17
Spaugileg réttarhöld
Í réttarsal eru samtöl dómara og lögmanna viđ sakborning og vitni samviskusamlega skráđ og fćrđ til bókar. Eđlilega eru allir misjafnlega upplagđir. Ţar getur veriđ dagamunur á. Ađ auki er fólk mis rökfast ađ upplagi og mis klárt í ađ skilja og skilgreina spurningar og svör viđmćlenda.
Eftirfarandi samtöl eru öll tekin upp úr dómsskjölum í Bandaríkjum Norđur-Ameríku:
-----------------
Lögmađur: Hvađ er sonur ţinn gamall, sá sem býr heima hjá ţér?
Vitni: 38 eđa 35. Ég man ekki hvort.
Lögmađur: Hvađ hefur hann búiđ lengi hjá ţér?
Vitni: Í 45 ár.
-----------------
Lögmađur: Hver er fćđingardagur ţinn?
Vitni: 18. júlí.
Lögmađur: Hvađa ár?
Vitni: Á hverju ári.
-----------------
Lögmađur: Hvađ var ţađ fyrsta sem eiginmađur ţinn sagđi viđ ţig ţennan morgun?
Vitni: Hann sagđi: Hvar er ég, Kata?
Lögmađur: Hvers vegna kom ţađ ţér í uppnám?
Vitni: Ég heiti Súsanna.
-----------------
Lögmađur: Hefur ţessi sjúkdómur nokkuđ haft áhrif á minni ţitt?
Vitni: Jú.
Lögmađur: Á hvern hátt?
Vitni: Ég gleymi.
Lögmađur: Gleymir? Getur ţú nefnt mér eitthvađ sem ţú hefur gleymt?
-----------------
Lögmađur: Ertu kynferđislega virk?
Vitni: Nei, ég ligg bara ţarna.
-----------------
.
![]() |
Lögmenn međ 185 ţúsund á tímann |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
4.2.2016 | 20:33
Ađgát skal höfđ í nćrveru sálar
Frétt mbl.is af meintu óhreinlćti múslímskra kvenna á íslenskum sundstöđum er einkennileg. Međal annars einkennileg vegna ţess ađ í sjálfri fréttinni kemur fátt fram sem styđur fyrirsögn um óhreinlćti ţeirra á sundstöđum. Frekar ţvert á móti. Fyrirsögninni "Sakađar um ađ gćta ekki hreinlćtis" er augljóslega slegiđ upp í ţeim tilgangi ađ ala á fordómum. Ţađ er ekki til fyrirmyndar. Lúmskur rasískur áróđur af ţessu tagi er ekki til eftirbreytni.
Múslimakonur eru mjög lágt hlutfall af sundlaugargestum á Íslandi. Hinsvegar eru bandarískir ferđamenn hátt hlutfall af sundlaugargestum á Íslandi. Međal annars vegna ţess ađ ţeir eru einna fjölmennustir túrista hérlendis.
Töluverđ vandamál hafa fylgt ţví ađ Kaninn er spéhrćddur ţegar kemur ađ nekt í búningsklefum sundlauga. Hann veigrar sér viđ nekt og ţví ađ ţrífa sig áđur en haldiđ er út í sundlaugina. Margur sundlaugarvörđurinn ţarf ađ beita lagni og kurteisi til ađ fá Kanann til ađ fylgja reglum um ţrifnađ í ađdraganda heimsóknar í heita pottinn.
Ekkert samt stórt vandamál. Ţetta hefur međ menningarmun ađ gera. Engin ástćđa til ađ slá upp frétt af ţví. Svona er ţetta bara. Allir gera sitt besta til ađ gera gott úr ţessu. Ţannig á ţađ ađ vera.
Til gamans má rifja upp ađ í bandaríska Fésbókin bannađi nektarskotiđ (mín 1:13) í myndbandinu hér fyrir neđan. Flokkađi ţađ undir gróft klám sem sćrđi blygđunarsemi. Ađgát skal höfđ í nćrveru sálar.
![]() |
Sakađar um ađ gćta ekki hreinlćtis |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt 5.2.2016 kl. 10:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
3.2.2016 | 11:11
Hollusta SS pylsunnar
Sífellt fleiri eru ađ uppgötva hollustu SS pylsunnar. Hún er ţéttţjappađur heilsubiti. Lengi vel snćddu Íslendingar í dögun hafragraut međ súrsađri blóđmör. Međ fylgdi gúlsopi af ţorskalýsi, fjölvítamíntafla og Rautt Eđalvöru ginseng hylki. Ţetta er liđin tíđ.
Í dag borđa Íslendingar SS pylsu. Ekki síst á morgnana. Hún skerpir athygli og eykur ţol. Gefur fólki gott start inn í daginn. Hún gefur heilbrigt og hraustlegt útlit. Hún eyđir flestum húđsjúkdómum, krabbameini og lömun. Međ auknu og almennu SS pylsuáti getur Ísland orđiđ hjólastólalaust áriđ 2020.
Sú var tíđ ađ fólk hafđi hrásalat, kartöflur, grćnar baunir, rauđkál, maís, tómata og agúrkur međ fiski eđa kjöti í hádegi og í kvöldmat. Í dag hefur ţetta međlćti vikiđ fyrir SS pylsu. Hún er heilsusamlegasti kostur sem völ er á međ steiktum fiski, sođningu, svo og purusteik, lambahrygg og kjúklingi.
SS pylsa er besti heilsubiti á milli mála og kvöldsnakk. Öfugt viđ epli ţá hefur hún ekki veriđ úđuđ međ skordýraeitri.
Einn af mörgum eiginleikum SS pylsu er sá ađ hana má borđa beint úr pakkanum. Einnig má hita hana í 20 sek í örbylgjuofni. Fćrri vita ađ upplagt er ađ geyma hana í frysti. Gaddfređin er hún bragđgott og meinhollt sćlgćti sem hlćr ađ rjómaís og frostpinnum.
SS pylsa hefur reynst vel ţeim sem vilja hćtta ađ reykja. Ţá handleika menn hana á milli fingra líkt og sígarettu og sjúga hana af og til eins og snuđ.
SS pylsa er besta val fyrir grćnmetisćtur. Í henni er einugis kjöt af dýrum sem lifa alfariđ á grćnmeti.
Fremstu sitjandi íţróttamenn landsins borđa SS pylsu. Ţađ á jafnt viđ um bridge spilara og skákmenn. Ţetta á einnig viđ um ţá sem eru fljótastir ađ hlaupa á eftir tuđru, hvort sem er til ađ sparka af og til í hana eđa hrinda frá sér međ höndum.
Ţađ er nćstum ţví sannađ ađ fólk sem neytir SS pylsu reglulega er gáfađra og fljótara ađ leysa einföld reikningsdćmi á blađi en ţeir sem vita ekki af henni.
Ein SS pylsa jafngildir fjögurra klukkutíma puđi á líkamsrćktarstöđ.
Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
1.2.2016 | 07:23
Hćttulegustu borgir heims
Ţegar land er lagt undir fót er ástćđa til ađ huga ađ öryggi. Í sumum útlendum borgum er mannslíf til fárra fiska metiđ. Ađrir grófir ofbeldisglćpir og glćpir af öllu tagi eru fylgifiskar. Margir eru svo fátćkir ađ ţeir hafa engu ađ tapa.
Hér er listi yfir varasömustu borgir heims. Hann spannar einungis borgir sem hafa ađ lágmarki íbúafjölda Íslands, 300.000.
1 Caracas, Venezuela
2 San Pedro Sula, Hondúras
3 San Salvador, El Salvador
4 Acapulco, Mexíkó
5 Maturin, Venezuela
6 Distrito Central, Hondúras
7 Valencia, Venezuela
8 Palmira, Colombíu
9 Höfđaborg, Suđur-Afríku
10 Cali, Colombíu
11 Ciudad Guayana, Venezuela
12 Fortaleza, Brazilíu
13 Natal, Brazilíu
14 Salvador, Brazilíu
15 St. Louis, Bandaríkjum Norđur-Ameríku
16 Joao Pessoa, Brazilíu
17 Culiacan, ekki í Skeifunni heldur Mexíkó
18 Maceio, Brazilíu
19 Baltimore, Bandaríkjum Norđur-Ameríku (beint flug frá Íslandi)
20 Barquisimeto, Venezuela
21 Sao Luis, Brazilíu
22 Cuiaba, Brazilíu
23 Manaus, Brazilíu
24 Cumana, Venezuela
25 Guatemala, Guatemala
26 Belem, Brazilíu
27 Feira de Santana, Brazilíu
28 Detroit, Bandaríkjum Norđur-Ameríku
29 Colania y Aparecida de Colania, Brazilíu
30 Teresina, Brazilíu
31 Vitoria, Brazilíu
32 New Orleans, Bandaríkjum Norđur-Ameríku
33 Kingston, Jamaíka
34 Gran Barcelona, Venezuela
35 Tijuna, Mexíkó
![]() |
Fjöldamorđ í 15 ára afmćli |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt 20.11.2016 kl. 13:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
26.1.2016 | 18:11
Fólk trúir
Fólk er trúgjarnt. Ţađ er eđlislćgt. Alveg frá ţví ađ börn fćđast ţá verđa ţau ađ trúa foreldrum sínum og öđrum uppalendum. Ţannig lćra ţau. Ungur nemur, gamall temur. Í gegnum alla skólagöngu verđa börn ađ trúa kennurum sínum. Ţađ hjálpar ţeim ţegar kemur ađ prófum.
Trú fólks er ólík eftir ţví hvar ţađ er statt á jörđinni. Ţađ fer eftir uppeldi og umhverfi. Meirihluti Íslendinga trúir á tilvist álfa og huldufólks. Líka á framhaldslíf og miđla.
Á Indlandi, nćst fjölmennasta ríki heims (á eftir Kína), trúa íbúar ţví ađ beljur séu heilagar. Ţví ekki ţađ? Er eitthvađ sem bendir til annars?
Yfir 80% Indverja eru hindúar. Ţeir trúa á endurholdgun ţvers og kruss um dýraflóruna. Í nćsta lífi getur mađur endurfćđst sem ánamađkur. Er eitthvađ sem mćlir gegn ţví?
Víđa í Afríku og karabíska hafinu trúir fólk á galdra. Svokallađa vúdú-töfra. Vúdú-lćknar ţykja bera af öđrum lćknum. Ţeir fara međ töfraţulur, slátra hćnum og eitthvađ svoleiđis til ađ lćkna allskonar kvilla. Međ ţví ađ útbúa litla brúđu og stinga í hana međ nálum má hrekkja óvini. Jafnvel drepa hann ef vel tekst til. Kannski ekki samdćgurs en ekki seinna en eftir 10 - 20 ár.
Guđir og stađgenglar ţeirra sem fólk trúir á eru á bilinu 5000 til 7000. Fer dálítiđ eftir ţví hver telur og hvernig. Veđurguđirnir standa okkur Íslendingum einna nćst. Ţeir eru svo uppátćkjasamir.
Í áranna rás hefur fjöldi fólks trúađ ţví ađ jörđin sé flöt eins og flatlús. Enda ekki fráleitt og margt er líkt međ skyldum. Í Bretlandi má finna formleg samtök flatjarđunga. Ţau láta ekki mikiđ fyrir sér fara. Félagar ţeirra eru feimnir.
Á allra síđustu misserum er fariđ ađ bera á ţví í Bandaríkjum Norđur-Ameríku ađ nýstirni opinberi trú sína á flatri jörđ. Rökin eru alveg góđ - eins og fyrir svo margri annarri trú.
![]() |
Segir milljónum ađ jörđin sé flöt |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt 14.11.2016 kl. 14:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
22.1.2016 | 08:51
Innflytjendur líkna og hjúkra
Fólk hefur allskonar viđhorf til innflytjenda. Ţađ er eđlilegt. Innflytjendur eru allskonar. Eins og Íslendingar. Eins og fólk út um allan heim. Sem betur fer. Mannlífiđ vćri litlaust og leiđigjarnt ef allt fólk í heiminum vćri alveg nákvćmlega eins ađ öllu leyti.
Í nágrannalöndum okkar taka innflytjendur til hendinni á heilsugćslustöđvum og sjúkrahúsum. Ekki síst viđ skúringar og önnur ţrif. Líka sem hjúkrunarfrćđingar. Ennfremur sem lćknar. Í Lúxemborg eru fjórir af hverjum tíu starfandi lćknum innflytjendur.
Í Bretlandi eru ţeir rösklega ţriđjungur (35,4%) allra lćkna. Í Svíţjóđ 30%. 25,4% í Belgíu og 19,5% í Frakklandi.
![]() |
Vita lítiđ um hatursglćpi á Íslandi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2016 | 14:20
Blindfull
Um árámótin hlaut breskur barţjónn verđlaunin Wetherspoon Perfect Server. Ţađ eru ekki fréttir út af fyrir sig. Einhver breskur barţjónn fćr árlega ţessi verđlaun. Ekki samt alltaf sá sami. Ţađ sem er fréttnćmt nú er ađ verđlaunahafinn er blind kona. 54. ára amma í ţokkabót.
Júlía Richards var hjúkrunarkona. Ţegar hún blindađist skipti hún um starf. Gerđist barţjónn. Hún er gleggri á gesti en ađrir barţjónar. Hún ţekkir lyktina af ţeim, skóhljóđ ţeirra, rödd og man hvađa drykk ţeir vilja. Áđur en ţeir hafa lokiđ viđ ađ bjóđa gott kvöld er hún búin ađ rétta ţeim BLINDfullt bjórglas í lúkur. Afgreiđsla hennar gengur ţess vegna mun hrađar fyrir sig en hjá öđrum.
Heilbrigđismál | Breytt 18.1.2016 kl. 16:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
11.1.2016 | 20:16
Davíđ Bowie 1947-2016
Margir hafa hvatt mig til ađ blogga um feril heiđnu bresku poppstjörnunnar Davíđs Bowie. Ég hef ekki spurt en dettur í hug ađ ţađ sé vegna fráfalls hans í gćr. Ađrir hafa undrast ađ enga minningargrein um hann sé ađ finna á ţessari bloggsíđu.
Nú ađ kvöldi nćsta dags hefur veriđ fjallađ um Bowie og feril hans fram og til baka í helstu fjölmiđlum. Ekki síst á Rás 2. Fáu er viđ ađ bćta. Nema ađ kveđa niđur draugasögu um framburđ Íslendinga á nafninu Bowie. Hann er Báví. Illar tungur flissa ađ ţessu og halda ţví fram ađ réttur framburđur sé Bóí.
Stađreyndin er sú ađ enskumćlandi međreiđarsveinar Bowies eru ekki á einu máli. Sumir brúka íslenska framburđinn. Til ađ mynda bandaríski gítarleikarinn hans, Steve Ray Vaughan. Sumir ađrir tala um Bóí. Ţar fyrir utan megum viđ Íslendingar kalla hvađa útlending sem er hvađa nafni sem okkur hugnast. Kinnrođalaust höfum viđ kallađ Juan Carlos fyrrverandi Spánarkonung Jóhann Karl. Viđ tölum aldrei um The Beatles heldur Bítlana. Bruce Springsteen köllum viđ Brúsa frćnda. Ţannig mćtti áfram telja.
Annađ: Bowie var og er oft kallađur kameljón. Ţađ er villandi. Kameljón breytir um lit til ađ laga sig ađ umhverfinu. Bowie hinsvegar breytti ítrekađ um lit til ađ skera sig frá umhverfinu.
Ţó ađ ég hafni kameljónstilvísunni ţá segir sitthvađ um litskrúđuga lagaflóru Davíđs ađ í morgun taldi ég 23 lög sem jafn margir ađdáendur póstuđ á Fésbók sem sitt uppáhalds Bowie-lag.
Í stađ ţess ađ skrifa og bćta viđ enn einni minningargrein um Bowie og endurtaka flóđ greina um feril hans vitna ég hér í nokkra punkta af Fésbók:
"Mér finnst eins og rokkiđ sé dáiđ og hugur minn er í hálfa stöng...bless Bowie"
- Bubbi (Björn Jónsson)
"Sumir segja hann vera gođsögn áttunda áratugarins, en ţađ er vćgt til orđa tekiđ. Hann hefur veriđ einn af fremstu og áhugaverđustu listamönnum heims í nćstum fimm samfleytta áratugi."
- Rakel Andradóttir
"Ţú kenndir mér svo ótrúlega margt en ţađ mikilvćgasta er örugglega ţađ ađ ef ţú mátt vera David Bowie ţá hlýt ég ađ mega vera ég sjálfur."
- Óskar Zowie (Óskar Ţór Arngrímsson)
"Low og Heroes voru toppurinn fyrir mig. Ţćr breytt ţví hvernig ég hugsađi um músík."
- Trausti Júlíusson
"Og hann var ekki einu sinni leiđinlegur ţćgar hann var leiđinlegur."
- Ísak Harđarson
"Djöfull er nýja Bowie platan góđ mađur!"
- Sigurjón Kjartansson
![]() |
David Bowie látinn |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Heilbrigđismál | Breytt 12.1.2016 kl. 19:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
8.1.2016 | 21:59
Fólskuleg árás
Sólin skein samviskusamlega upp á hvern dag í Alicante. Ţađ var hlýtt og notalegt. Ţađ var ljúft ađ sitja úti á gangstétt međ einn til tvo kalda á kantinum. Njóta sólarinnar og hugsa til Íslands. Sjá fyrir sér íslenska snjóskafla, hrímađar bílrúđur og frostbarđa Íslendinga.
Ég sat aldrei á sjálfri gangstéttinni heldur á stól. Síđdegis ţrengdust kostir. Verslunum og veitingastöđum var lokađ hverjum á fćtur öđrum í tvo til ţrjá klukkutíma í senn. Sumum klukkan eitt. Öđrum klukkan tvö. Ţá voru Spánverjar ađ taka sinn reglubundna síđdegislúr. Svokallađan "síesta". Mér varđ ađ orđi:
Spánverjar spígspora um götur
og spjalla um allt ţađ besta
sem á dagana hefur drifiđ
og dorma svo í síesta.
Rannsóknir hafa sýnt ađ síđdegislúrinn sé hollur. Í honum hleđur líkaminn batteríin svo munar um minna. Ţetta vissu íslenskir bćndur fyrr á tíđ.
Fyrstu nóttina í Alicante varđ ég fyrir fólskulegri árás. Ég varđ ţó ekki var viđ neitt fyrr en ađ morgni. Ţá sá ég ađ moskítóflugur höfđu bitiđ mig. Fyrst voru bitsárin varla sýnileg. En ţeim fylgdi kláđi. Á nćstu dögum urđu ţau sýnilegri: Dökknuđu, stćkkuđu, urđu dökkrauđ og upphleypt. Kláđinn jókst og bitsárum fjölgađi á hverri nóttu.
Moskítóflugan er lúmsk. Hún felur sig. Bíđur eftir ljósaskiptum og ţví ađ fórnarlambiđ sofni. Ţá fer hún á stjá. Í svefnrofanum má heyra lágvćrt suđ frá henni á flugi. Hún notar deyfiefni til ađ fórnarlambiđ verđi einskis vart er hún sýgur úr ţví blóđ.
Til ađ alhćfa ekki í óhófi ţá er rétt ađ taka fram ađ karlflugan áreitir enga. Einungis kvenflugan.
Á heimleiđ var ég alsettur bitförum. Húđin líktist yfirborđi pizzu. Ţađ neyđarlega er ađ ég rek litla heildsölu og sel apótekum öfluga bitvörn í nettu úđaspreyi, Aloe Up Insect Repellent. Ég hafđi enga rćnu á ađ grípa hana međ mér til Spánar. Í apótekum í Alicante fann ég "roll on" sem átti ađ gera sama gagn. Ţađ gerđi ekkert gagn. Nema síđur sé. Sólvarnarkrem í ţarlendum apótekum eru sömuleiđis algjört drasl.
Ég ráđlegg vćntanlegum Alicante-förum ađ grípa međ sér frá Íslandi góđar sólarvörur og bitvörn. Ekkert endilega Aloe Up, Banana Boat eđa Fruit of the Earth. Eđa jú.
Heilbrigđismál | Breytt 9.1.2016 kl. 09:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
7.1.2016 | 19:19
Ćvintýri í Suđurhöfum
Fyrir jól var veđurspá kaldranaleg. Vetrarhörkur voru bođađar; hörkufrost á fróni. Viđbrögđ mín voru ţau ađ flýja suđur um höf. Veđurspá fyrir Alicante á Spáni var notaleg, 16-20°. Í ţann mund er ég hélt upp á flugvöll rćddi ég viđ systir mína, búsetta á Spáni. Hún benti mér á ađ hitatalan segi ađeins hálfa sögu. Vegna loftraka sé kaldara en ćtla megi. 16-20° hiti í Alicante bjóđi ekki upp á stuttbuxur og hlýrabol.
Ég skellti ţegar á mig hnausţykkri prjónahúfu, vafđi trefli um háls, tróđ mér í lopapeysu, föđurland og fóđrađa leđurhanska. Kuldaúlpa međ lođfóđrađri hettu tryggđi ađ ekki myndi slá ađ mér.
Á flugvellinum í Alicante var ég best dúđađur af öllum. Enginn var léttklćddur. Enda gustur úti. Verra var ađ enginn talađi ensku. Hinsvegar hefur fólkiđ ţarna náđ tökum á spćnsku. Sérlega var ađdáunarvert ađ heyra hvađ ung börn tala góđa og fumlausa spćnsku. Ţađ kom mér ekki ađ gagni. Ég kann ekki spćnsku.
Vandrćđalaust fann ég strćtó sem samkvćmt korti átti leiđ ađ hlađvarpa gistiheimilis míns. Ţegar á reyndi stoppađi hann fjarri áfangastađ. Allir farţegar yfirgáfu vagninn möglunarlaust. Nema ég. Bílstjórinn talađi ekki ensku fremur en ađrir. Hann brá sér í hlutverk ágćts látbragđsleikara ţegar ég kvartađi undan ţví ađ vagninn vćri ekki kominn á áfangastađ. Um leiđ ýtti hann lauslega viđ mér til ađ koma mér út úr vagninum. Ţađ gekk treglega framan af. Svo var eins og skepnan skildi. Ljóst var ađ vagninn fćri ekki lengra. Kannski var ţetta síđasti vagn leiđarinnar. Klukkan nálgađist miđnćtti.
Ég skimađi ţegar í stađ eftir stóru hóteli. Ţar er yfirleitt hćgt ađ finna leigubíl. Sem gekk eftir. Leigubíllinn kostađi 700 ísl. kr. Ég hefđi alveg eins getađ tekiđ leigubíl frá flugstöđinni. Strćtóinn kostađi 540 ísl. kr.
Innritunarborđ gistiheimilis míns lokar á miđnćtti. Ég rétt slapp inn í tćka tíđ. Fyrsta fólkiđ sem ég hitti á gistiheimilinu var ungt íslenskt par, Ásthildur og kólumbískur Íslendingur. Einu Íslendingarnir sem ég hitti á Alicante.
Meira á morgun.
Heilbrigđismál | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)