Blindfull

  Um árámótin hlaut breskur barþjónn verðlaunin Wetherspoon Perfect Server.  Það eru ekki fréttir út af fyrir sig.  Einhver breskur barþjónn fær árlega þessi verðlaun.  Ekki samt alltaf sá sami.  Það sem er fréttnæmt nú er að verðlaunahafinn er blind kona.  54. ára amma í þokkabót.

  Júlía Richards var hjúkrunarkona.  Þegar hún blindaðist skipti hún um starf.  Gerðist barþjónn.  Hún er gleggri á gesti en aðrir barþjónar.  Hún þekkir lyktina af þeim,  skóhljóð þeirra, rödd og man hvaða drykk þeir vilja.  Áður en þeir hafa lokið við að bjóða gott kvöld er hún búin að rétta þeim BLINDfullt bjórglas í lúkur.  Afgreiðsla hennar gengur þess vegna mun hraðar fyrir sig en hjá öðrum.

blind 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Nokkuð líkt og með honum Stormi ( hundi dóttur minnar)sem alltaf veit hver úr flokknum hans  er að koma og skiptir ekki máli hvort viðkomandi kemur hjólandi akandi eða gangandi.  En komi einhver sem ekki hefur komið þrisvar áður þá gerir hann athugasemd.  Rófan er til merkis um það hversu vænt honum þykir um þann sem er að koma og er dóttir mín augljóslega vinsælust enda foringinn. 

Ég hinsvegar er í öðru hlutverki innan hópsins, harðhentari  og skipunum mínum hlítt umyrða laust, en ég á líka oft til frosin kjötbita sem er það besta sem hægt er að fá og er ekki hægt að naga inni í húsum.  Svoleiðis matur verður bara nagaður úti á grasi eða í snjóskafli  og skipir engu máli hvernig veður er.  

Honum hafa verið boðnar ýmsar tegundir af dýnum teppum og mottum til að naga á frosin kjötbita inni í forstofu eða í eldhúsi þá rignir eða snjóar og Kári blæs, en nei, nei, svona mat  er ekki hægt að naga inni í húsum og hann verður svo ámáttlegur og vansæll fái hann ekki að fara út að borða eins og sagt er í mannheimum.

Hrólfur Þ Hraundal, 15.1.2016 kl. 07:56

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Góður staður fyrir þá sem drekka sig blindfulla!!

Sigurður I B Guðmundsson, 15.1.2016 kl. 16:01

3 Smámynd: Jens Guð

Hrólfur,  takk fyrir skemmtilegt innlegg.  

Jens Guð, 15.1.2016 kl. 19:54

4 Smámynd: Jens Guð

 Sigurður I B,  perfect!

Jens Guð, 15.1.2016 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband