Hollusta SS pylsunnar

  Sífellt fleiri eru að uppgötva hollustu SS pylsunnar.  Hún er þéttþjappaður heilsubiti.  Lengi vel snæddu Íslendingar í dögun hafragraut með súrsaðri blóðmör.  Með fylgdi gúlsopi af þorskalýsi,  fjölvítamíntafla og Rautt Eðalvöru ginseng hylki.  Þetta er liðin tíð.  

  Í dag borða Íslendingar SS pylsu. Ekki síst á morgnana.  Hún skerpir athygli og eykur þol.  Gefur fólki gott start inn í daginn.  Hún gefur heilbrigt og hraustlegt útlit.  Hún eyðir flestum húðsjúkdómum,  krabbameini og lömun.  Með auknu og almennu SS pylsuáti getur Ísland orðið hjólastólalaust árið 2020.  

  Sú var tíð að fólk hafði hrásalat, kartöflur, grænar baunir, rauðkál,  maís,  tómata og agúrkur með fiski eða kjöti í hádegi og í kvöldmat.  Í dag hefur þetta meðlæti vikið fyrir SS pylsu.  Hún er heilsusamlegasti kostur sem völ er á með steiktum fiski,  soðningu,   svo og purusteik,  lambahrygg og kjúklingi.

  SS pylsa er besti heilsubiti á milli mála og kvöldsnakk.  Öfugt við epli þá hefur hún ekki verið úðuð með skordýraeitri.

  Einn af mörgum eiginleikum SS pylsu er sá að hana má borða beint úr pakkanum.  Einnig má hita hana í 20 sek í örbylgjuofni.  Færri vita að upplagt er að geyma hana í frysti.  Gaddfreðin er hún bragðgott og meinhollt sælgæti sem hlær að rjómaís og frostpinnum.

  SS pylsa hefur reynst vel þeim sem vilja hætta að reykja.  Þá handleika menn hana á milli fingra líkt og sígarettu og sjúga hana af og til eins og snuð.

  SS pylsa er besta val fyrir grænmetisætur.  Í henni er einugis kjöt af dýrum sem lifa alfarið á grænmeti.    

  Fremstu sitjandi íþróttamenn landsins borða SS pylsu.  Það á jafnt við um bridge spilara og skákmenn.  Þetta á einnig við um þá sem eru fljótastir að hlaupa á eftir tuðru,  hvort sem er til að sparka af og til í hana eða hrinda frá sér með höndum.  

  Það er næstum því sannað að fólk sem neytir SS pylsu reglulega er gáfaðra og fljótara að leysa einföld reikningsdæmi á blaði en þeir sem vita ekki af henni.   

  Ein SS pylsa jafngildir fjögurra klukkutíma puði á líkamsræktarstöð.  

  iceland- pylsur-1    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA  !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

laughing

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 3.2.2016 kl. 17:51

2 identicon

Það er allavega staðreynd að betra hráefni er notað í pylsur en kindabjúgu.

Stefán (IP-tala skráð) 4.2.2016 kl. 08:13

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Stefán

Hvað hefurðu fyrir þér í þessari fullyrðingu ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.2.2016 kl. 09:07

4 identicon

Ég vann um tíma í kjötvinnslu sem ungligur og komst þá rækilega að þessu. Hef upplýsingar um það að það sé óbreytt.

Stefán (IP-tala skráð) 4.2.2016 kl. 13:42

5 Smámynd: Jens Guð

Predikarinn,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 4.2.2016 kl. 18:40

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 4.2.2016 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.