Það er auðvelt að komast hjá skaðlegum afleiðingum sígarettureykinga

  Í tímaritinu "Cancer" er upplýst að langtíma rannsókn leiði í ljós að fyrsta sígarettan á morgnana sé sú hættulegasta og óhollusta.  Rannsóknin náði til yfir 7000 einstaklinga.  Fyrsta sígarettan tvöfaldar líkur á krabbameini.  Það er ekkert smá.  Sígarettur eru ekki heilsusamlegar.  Ráðið gegn þessu er að sleppa fyrstu sígarettunni.  Leyfa henni að reykja sig sjálfa í öskubakkanum og reykja bara næstu sígarettu. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli minn

Þetta er allt of dýr leið sem þú leggur til, Jens. Hver sígaretta kostar fimmtíukall. Það fer mun betur með peningana að fara frekar seinna á fætur en maður ætlaði að gera. Þá sleppur maður við að reykja sígarettuna sem maður hefði reykt ef maður hefði farið fyrr á fætur og fer beint í sígarettu númer tvö. Þannig þarf maður ekki að láta neina sígarettu brenna upp og þar með tapar maður ekki heldur fimmtíukalli. Plús suðvitað að þannig sleppur maður við að reykja fyrstu sígarettuna sem er óhollust.

Óli minn, 29.8.2011 kl. 06:08

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha þið hafið bjargað deginum fyrir mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 10:04

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 29.8.2011 kl. 10:54

4 identicon

Helv... Ég hefði átt að vita þetta fyrr; Ég er að byrja á reyklausa mánuði #8.
Nenni ekki að byrja aftur

DoctorE (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 12:23

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Væri þá ekki ráð að byrja daginn með vindla-eða pípureyk og fá sér síðan sígarettu!! En sannleikurinn er sá að hætta að reykja er frelsi og þar tala ég að eigin reynslu.

Sigurður I B Guðmundsson, 29.8.2011 kl. 13:44

6 identicon

það er frelsi í því að vera með góð lungu og geta leift sér sígarettu með kaffinu..

ágúst hróbjartur (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 19:29

7 identicon

Nei það er ekki frelsi að reykja, það er þrældómur, þú ert þræll tóbaksiðnaðarins.. maður er eiginlega vanviti og vesalingur.

DoctorE (IP-tala skráð) 29.8.2011 kl. 20:34

8 Smámynd: doddý

hæ  

æði margir sem þurfa á hjálp æðaskurðlækna að halda reykja.

það er slæmt.

nú er ham í ham á nasa í september.

það er frábært.  kv d

doddý, 29.8.2011 kl. 22:09

9 Smámynd: Jens Guð

Óli minn, bestu þakkir fyrir þetta góða ráð.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:33

10 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:33

11 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:34

12 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE (#4),  gangi þér vel.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:35

13 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður I B,  þetta er gott ráð.  Sjálfur er ég stöðugt að reyna að byrja að reykja til að gefa lungunum leikfimiæfingu.  En gengur illa.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:36

14 Smámynd: Jens Guð

  Gústi,  það eru forrréttindi.

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:37

15 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE (#7),  tóbaksiðnaðurinn veitir mörgum atvinnu.  Hann er stór hluti af hagkerfi borga eins og Roleigh í Norður-Karólínu. 

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:41

16 Smámynd: Jens Guð

  Doddý,  hljómleikar Ham á Nasa er tilhlökkunarefni.  Lagið Ingimar er mega.  Það er hið besta mál að æðaskurðlæknar örugga vinnu.  Nú er atvinnuleysi hjá mörgum. 

Jens Guð, 30.8.2011 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband